Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1987, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1987, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1987. Andlát Helga Karlsdóttir lést 21. júní sl. Hún fæddist 29. janúar 1929. Útför hennar verður gerð frá Bústaða- kirkju í dag kl. 13.30. Sveinbjörn Lárus Hermannsen lést 22. júní sl. Hann fæddist í Ás- byrgi, Vestmannaeyjum, 13. desemb- er 1930. Útför Sveinbjörns fer fram í Vestmannaeyjum. Kristín Þorgrímsdóttir Brúarholti 2, Ölafsvík, andaðist í St. Fransis- kusspítala, Stykkishólmi, aðfaranótt 29. júní. Elín Ásgeirsdóttir frá Garðsvík andaðist 27. júní á Seli. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 3. júlí kl. 13.30. Soffia Jónsdóttir frá Nýjabæ lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 26. júní. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 4. júlí kl. 14. Útför Guðrúnar Margrétar Þor- steinsdóttur hjúkrunarfræðings, Stóragerði 10, verður gerð frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 2. júlí kl. 15. Útför Margrétar Jónsdóttur, Hrafnistu, Hafnarfirði, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 3. júlí kl. 10.30. Reynir Guðmundsson bóndi, Nýja-Bæ, verður jarðsunginn frá Bæjarkirkju í Borgarfirði laugardag- inn 4. júlí kl. 14. Kristján Andrésson, Ásbyrgi, verð- ur jarðsunginn fimmtudaginn 2. júlí kl. 14 frá Útskálakirkju, Garði, Gerðahreppi. Guðrún Magnúsdóttir, Ingólfs- stræti 7b, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 2. júlí kl. 15. Birgir Harðarson, forstöðumaður skrifstofu Eimskips í Norfolk, er and- aðist í New York sunnudaginn 20. júní sl., verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni föstudaginn 3. júlí nk. kl. 13.30. Jarðsett verður í Fossvogs- kirkjugarði. Tilkyrmingar Eymundsson 115 ára Starfslaun til þess að vinna að kennslubók Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar á 115 ára afmæli á þessu ári. Ákveðið var í tilefni afmælisins að auglýsa og veita starfslaun til þess að vinna að gerð kennslubókar og slá þannig tvær flugur í einu höggi: Minnast afmælis verslunar- innar og styrkja um leið útgáfu íslensks kennsluefnis. Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar áskilur sér forkaupsrétt á því/þeim námsbókarhandritum sem starfs- launin verða veitt til þess að vinna. Starfslaunin hafa verið auglýst og hefur Sigurður Pálsson á skrifstofu bókaversl- unar Sigfúsar Eymundssonar tekið við fjölda fyrirspurna og umsókna. Vegna margra eindreginna óska hefur verið ákveðið að lengja skilafrest fram til 6. júlí. Trúnaðarbréf afhent Hinn 26. júní afhenti Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra Jan Martenson, framkvæmdastjóra skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf. trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Islands hjá alþjóðastofnunum í Genf. Kona í dag, kona í framtíð í sumar verður boðið upp á námskeið fyr- ir konur á landsbyggðinni sem ber yfir- skriftina , kona í dag. kona í framtíð. Hér er á ferðinni upplýsinga- og fræðslunám- skeið fyrir konur á öllum aldri. Námskeið- inu er skipt í tvennt. þar sem fyrst verður fjallað um félags- og efnahagslega þætti og í seinni hluta verður íjallað meira um konuna sjálfa. Námskeiðið er byggt upp með stuttum fyrirlestrum, umræðum og hópvinnu. Námskeiðið stendur í tvö kvöld. eða í u.þ.b. 10 klst. Námskeiðin hófust í júní og þeim lýkur í ágúst. Áætlað er að námskeiðið verði haldið á eftirtöldum stöðum: Stykkishólmi, Akranesi, Blöndu- dósi, Egilsstöðum. Neskaupstað. Höfn, Hólmavík. Isafirði. Húsavík og Búðardal. Möguleiki er að bæta við fleiri námskeið- um sé þess óskað. Allar nánari upplýsingar er að fá í síma 93-4158. Leiðbeinandi á námskeiðunum er Hansína B. Einarsdóttir stud. polit. Innhverf íhugun Nýtt námskeið í innhverfi íhugun (TM- tækninnar) hefst með kynningarfyrirlestri á morgun. fimmtudag, kl. 20.30 í Garða- stræti 17. Þar verður fjallað um áhrif tækninnar á streitu andlegt og líkamlegt heilbrigði, mannleg samskipti o.fl. Nánari upplýsingar í síma 16662. Húnvetningar - Ættarmót Klemens Ólafssonar og Þórunnar Björns- dóttur, sem bjuggu á Kurfi, Skagaströnd, verður haldið dagana 4. og 5. júlí 1987. Mótið verður sett í félagsheimilinu Skaga- strönd kl. 14 laugardaginn 4. júlí. Kl. 15 kaffiveitingar. Kl. 16 verður farið að Kurfi og Hofskirkju. Borðhald hefst kl. 20 í Fé- lagsheimilinu, síðan verður skemmtidag- skrá og endar kvöldið með dansi meðan kraftar endast. Sunnudaginn 5. júlí kl. 10 verður farið um Höfðakaupstað og Skaga- strönd og stoppað á merkum minningar- stöðum. Ættarmótinu verður slitið kl. 15. Meðan á ættarmótinu stendur liggur frammi bók sem fólk getur ritað nöfn sín í sem kaupendur að ættartölunni. Bókin er í smíðum en ekki er vitað hvenær hún kemur út. ÖUum veitingum og mat verður reynt að halda í lágmarksverði. Öll sjálf- boðavinna er vel þegin. Mætum öll, gerum góða daga skemmtilega. Tapað - Fundið Hver saknar hjóls? Grænt kvenreiðhjól var skilið eftir við hús í Garðabæ fyrir ca 3 mánuðum. Upplýsing- ar í síma 14040 eða 53361. t Útför sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Garðars Jónssonar sjómanns, Jökulgrunni 5a, fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtudaginn 2. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á heilsugæslusjóð Hrafnistu. Guörún Karlsdóttir Birgir Garðarsson Ingibjörg Einarsdóttir Baldur Garðarsson Jóna Jónmundsdóttir Bragi Garðarsson Bergur Garðarsson Guðmunda Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. A&næH 65 ára er í dag, 1. júlí, Guðríður B. Gunnarsdóttir, Ásgarði 47, Reykja- vík. Hún er í dag stödd á heimili dóttur sinnar að Keflavíkurgötu 17, Hellissandi. 50 ára afmæli á í dag, 1. Heimir Steinsson á Þingvöllum. Hann og kona hans, Dóra Þórhalls- dóttir, taka á móti vinum og ættingj- um með kvöldkaffi á Hótel Valhöll í kvöld kl. 20.30. Spakmælið Allir hafa sínar myrku hliðar sem þeir sýna ekki frekar en máninn. - Mark Twain Ferðlög Útivistarferðir Miðvikudagur 1. júlí kl. 20. Kvöldferð á Strompahella, létt ganga og hellaskoðun vestan Bláfjalla. Sérkennilegar hellamyndir. Hafið vasaljós með. Verð 600 kr., frítt f. börn m. fullorðn- um. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Fimmtudagur 2. júlí kl. 20. Viðeyjarferð. Allir ættu að kynnast þess- ari útivistarparadís. Gengið um eyjuna. Verð kr. 350. Frítt f. böm 12 ára og yngri m. foreldrum sínum. Brottför frá Korn- hlöðunni í Sundahöfn. Sjáumst. ^1% FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTK) Sumarferð Breiðfirðingafélagsins verður farin helgina 3.-5. júlí nk. Upplýs- ingar í símum 41531 og 32562. Gönguklúbburinn Hana nú íKópavogi. Á hVerjum laugardegi allan ársins hring fer Gönguklúbbur Frístundahópsins Hana nú í Kópavogi í sitt vikulega bæjarrölt. Það er komið saman að Digranesvegi 12 kl. 10 f.h., drukkið molakaffi og rabbað saman og síðan gengið um bæinn í klukku- tíma. Þessi laugardagsganga er ekki eingöngu ætluð fyrir fyrir félaga í Hana nú heldur eru allir Kópavogsbúar vel- komnir í gönguna. 1 laugardagsgöngunum er rölt um bæinn og margir Kópavogsbúar hafa kynnst bænum í fyrsta sinn í göngun- um. 1 laugardagsgöngunni er gengið í hægðum sínum og hæfir hún vel fjölskyld- um og oft ganga tvær eða þrjár kynslóðir. Aðstandendur Hana nú vilja hvetja íbúa í Kópavogi - unga og aldna - til að reyna þennan einfalda og skemmtilega tóm- stundakost. bæklingur inniheldur upplýsingar um sérstakt málefni. Þeir íjalla um styrki og lán til verkfæra- og tækjakaupa, náms- styrki og námslán, stuðningsfjölskyldur og fjárhagsaðstoð við framfærendur, auk uppíýsinga um svæðisstjómir. Tímarit Kynningarbæklingar um málefni fatlaðra Félagsmálaráðuneytið hefur nýlega gefið út fimm bæklinga til kynningar á málefn- um fatlaðra. Um er að ræða útgáfu á bæklingum sem eru gefnir út í samræmi við lög um málefni fatlaðra í þeim tilgangi að kynna fötluðum réttindi sín og þá þjón- ustu sem ráðuneytið stendur fyrir. Hver Ökuþór málgagn Félags íslenskra bifreiðaeigenda, er komið út. Þetta er 1. tölublað 1987 - 24. árgangur. Meðal efnis í blaðinu er Handbók FÍB 1987 kynnt, verðskrá er yfir algengar tegundir fólks- og jeppabifreiða. FÍB hefur aukið þjónustu sína með því að hafa skrifstofu félagsins einnig opna í hádeginu, milli kl. 12 og 13, til hagræðis fyrir félagsmenn. Mánudaga til föstudaga verður því opið kl. 9-17 nema mánudaga og föstudaga er opið til kl. 19. Þetta gildir mánuðina júní, júlí og ágúst. Jón Baldvin Hannibalsson svarar Steingrími Hermannssyni: Samkomulag strandaði á ráðherrastól í vanskilum „Það er misskilningur að ég hafi lofað Steingrími Hermannssyni skrif- legri fundargerð frá stjómarmyndun- arviðræðunum. Ég hef hins vegar riflað upp fyrir honum atburðarásina með nákvæmum tímasetningum þrátt fyrir að það ætti að vera óþarfi," segir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, í athugasemd sem hann hefur óskað að verði birt vegna ummæla Steingríms Hermannssonar, formanns Framsóknarflokksins, í DV í gær. „Vegna misvísunar í frásögnum af atburðarás og tillöguflutningi er það fyrst og fremst eftirfarandi sem þarfn- ast skýringa: 1. Á sameiginlegum fundi formann- anna þriggja milli klukkan 22 og 22.20 á sunnudagskvöld lagði ég fram mála- miðlunartillögu um verkaskiptingu og óskaði eftir því að þeir legðu þessa miðlunartillögu fyrir þingflokká sína. Áður hafði ég rætt ítarlega við hina formennina sitt í hvoru lagi. Ég tók það skýrt fram að þessi tillaga væri enginn úrslitakostur heldur málamiðl- un og því ekki óeðlilegt að fram kæmu breytingatillögur. Báðir voru óánægðir með þessa málamiðlun svo sem vænta mátti. Steingrímur kvaðst ekki geta borið hana upp í sínum þingflokki nema með tveimur breytingum. í fyrsta lagi að hann fengi sjávarútvegsráðuneytið frá Sjálfstæðisflokki í skiptum fyrir iðnaðarráðuneytið. í annan stað að hann fengi jafnmarga ráðherra og Sjálfstæðisflokkur, það er fjóra. Þessi breytingatillaga Steingríms var ekki samþykkt heldur óskað eftir því að málamiðlunartillagan væri fyrst borin upp. 2. Sjálfstæðismenn samþykktu mála- miðlunina. Þeir kynntu breytingatil- lögu Steingríms en báru hana ekki undir atkvæði. Steingrímur lagði hins vegar ekki fram málamiðlunartillög- una í sínum flokki heldur nýja tillögu með sínum eigin breytingatillögum. Það hefur valdið misskilningi að þingmenn Framsóknarflokks skildu orð hans svo að við Þorsteinn hefðum samþykkt breytingatillöguna og þar með fallist á fjölgun ráðherranna. Svo var ekki. 3. Eftir þetta voru mál komin í óefni og tíminn að renna út. Þá gerði ég enn eina úrslitatilraun til samkomulags. Ég skoraði á formann Sjálfstæðis- flokksins að leita samþykkis þing- flokksins fyrir því að láta sjávarútveg- inn af hendi til Framsóknarflokksins í skiptum fyrir iðnaðarráðuneytið að því tilskildu að Steingrímur beitti formannsmyndugleik sínum til að falla frá kröfunni um fjórða ráðherrann enda fengi hann sjávarútvegsráðuney- tið í sinn hlut. Til þess að sýna góðan vilja í þessu máli bauðst ég til að leggja það fyrir mina menn að við féllum frá rétt- mætri ósk um forseta Sameinaðs þings til þess að allir hefðu fómað einhverju fyrir endanlegt samkomulag. Það sem gerðist var að sjálfstæðis- menn stóðu við sitt. Þeir samþykktu á síðustu stundu skiptin á iðnaðar- ráðuneytinu og sjávarútvegsráðu- neytinu í trausti þess að þar með myndu framsóknarmenn falla frá kröf- unni um fjórða ráðherrastólinn og þar með hefði tekist endanlegt samkomu- lag. Við stóðum einnig við okkar hlut og féllum frá kröfu um forseta Samein- aðs þings með sömu skilmálum. Þrátt fyrir að framsóknarmenn hefðu þannig fengið sjávarútvegsráðu- neytið, eins og þeir óskuðu, komu þeir með gagnkröfu um að ráðherraemb- ættum Sjálfstæðisflokks yrði fækkað um eitt. Því má svo bæta við að í reynd hef- ur Framsóknarflokkur fjögur og hálft ráðuneyti en við aðeins þrjú og hálft þar sem við féllumst á að láta utanríki- sviðskipti frá viðskiptaráðuneyti til utanríkisráðuneytis til þess að gera veg fráfarandi forsætisráðherra, Stein- gríms Hermannssonar, sem veglegast- an. Það veikir enn kröfu Framsóknar- flokks um fjórða stólinn. Þess ber einnig að geta að í viðræð- um allra formannanna þriggja á undanfómum vikum hefur það komið fram óteljandi sinnum að við teldum fjölgun ráðherra óþarfa og reyndar neyðarbrauð. Niðurstaðan er þess vegna óumdeil- anlega sú að það var orðið hreint og klárt samkomulag, samþykkt af öllum þingflokkunum þremur, um verka- skiptingu. Það sem út af stóð, og endanlegt samkomulag að lokum strandaði á aðfaranótt mánudagsins, var krafa um ellefta ráðherrastólinn, sem ég leyfði mér að kalla ráðherra- stól í vanskilum. Loks er þess að geta að ég mæltist eindregið til þess við hina formennina tvo að þeir lokuðu þingmenn sína inni og létu það aldrei um sig spyrjast að stjórnarmyndunarviðræður, s'em komnar væru á slíkt lokastig, strön- duðu á elleftu stundu á kröfu um einn stól,“ sagði Jón Baldvin. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.