Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1987, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987. Fréttir Söluskattsbreytingin: Hver einasta matvöruversl- un orðin að Irtilli skattstofu - segir Bergur Guðnason lögfræðingur um söluskattsbreytinguna „Svona flókið kerfi býður upp á hvers konar misræmi og vitleysu. Reglugerðin varðandi söluskatts- breytinguna er hvergi nærri nógu ítarleg hvað það varðar hvort vörur skuli vera söluskattslausar, með 10% skatt eða 25% skatt. Það má þvi segja að hver matvöruverslun í landinu sé orðin að lítilli skattstofu, ríkissjóði að kostnaðarlausu,“ sagði Bergur Guðnason lögfræðingur, fróður maður um skattamál hér á landi. Bergur sagðist telja að það tæki nokkur ár að koma undanþágumálun- um í fast form, svo flókið væri kerfið eftir breytinguna. Hann sagðist telja að það eina sem hægt væri að gera til að leysa málið væri að kaupmenn settu með verðmerkingu hvaða sölu- skatt viðkomandi vara bæri. „Sennilega er það samt svo snúið og kostnaðarsamt að það er varla framkvæmanlegt. Það myndi samt vera gott fyrir kaupmenn að geta sýnt fólki hvaða söluskatt viðkomandi vara bæri. Innheimta söluskatts er þegar feikilegur kostnaðarauki íyrir versl- animar og eykst eftir því sem keifið verður flóknara," sagði Bergur. Hann var spurður hvort söluskatts- eftirlit yrði ekki enn erfiðara eftir þessa breytingu. „Fyrir það fyrsta er söluskattseftir- litið svo fámennt að það hefur ekki getað fylgst með fyrir breytinguna hvað þá nú eftir að búið er að gera allt kerfið flóknara," sagði Bergur Guðnason. -S.dór Klaus Schnack, Anke Prczygodda og Ralph Tiedemann. Það kom á óvart þegar Ralph svaraði á reiprennandi íslensku. DV-mynd JGH DV á Sauðáikróki: Tjaldið fellur J&i G. Hauksuan, DV, Akuieyii Þrír Þjóðverjar á tjaldstieðinu á Sauðárkróki og einn svarar á reip- rennandi íslensku þegar spurt er ura ferðalag þremenninganna. Skýring- in kom fljótt hjá Ralph Tiedemann: „Ég er að læra líffræði í Háskóla Islands." Verið var að leggja í’ann til Hvera- valla yfir Kjöl. Hvass sunnanvindur- inn hjálpaði til við að taka niður tjaldið, hann feykti því um koll. Það gerði litið til, flýtti bara fyrir . Er frosið grænmeti nýtt? Samræmist bú- vönilögunum - segir fjármálaráðherra „Samkvæmt búvörulögunum er all- ur innflutningur landbúnaðarvara bundinn leyfúm. Leyfisveitingar eru háðar því að Framleiðsluráð land- búnaðarins staðfesti að innlend framleiðsla fullnægi ekki neysluþörf. Grænmeti hefúr verið talið landbún- aðarvara en ekki iðnaðarvara þó að það sé meðhöndlað á einhvem hátt til geymslu," sagði Jón Baldvin Hannib- alsson fjármálaráðherra. Eins og fram hefur komið í DV telur formaður landbúnaðamefndar Neyt- endasamtakanna, Jónas Bjamason, að landbúnaðarráðherra sé að ganga á rétt neytenda með þeirri túlkun sinni að flokka megi frosið grænmeti sem nýtt. Má þar af leiðandi ekki flytja inn nýtt grænmeti meðan til em birgðir af frosnu. Jón Baldvin Hannibalsson sagði það rétt að í tollskrárlögum væri gerður greinarmunur á frosnu og nýju og þetta gæti verið álitamál. Til dæmis væri spuming um hvort karftöflur, sem meðhöndlaðar hefðu verið á ýms- an máta, flokkuðust undir landbúnað- ar- eða iðnaðarvörur. Jón Baldvin Hannibalsson sagðist hafa beðið ríkislögmann um álitsgerð um heimild þá sem felur Framleiðslu- ráði landbúnaðarins að leyfisbinda allan innflutning á landbúnaðarvör- um. Ságði fjármálaráðherra að draga þyrfti markalínu á milli landbúnaðar- vara og iðnaðarvara. -JFJ Borgarbúar enn óvinsælir á reykvískum hótelum „Jú, það er rétt, það em óskráð lög ijá hótelunum í Reykjavík að Reyk- ríkingar fái yfirleitt ekki gistingu hjá skkui' ef þeir koma farangurslausir Dg falast eftir gistingu samdægurs," sagði Bjami Sigtryggsson, aðstoðar- íótelstjóri á Hótel Sögu, er hann var nntur eftir því hvort Reykvíkingum væri enn meinaður aðgangur að gisti- lúsum höfuðborgarinnar. Þessi regla hótelanna í Reykjavík lefur verið r.okkuð lengi í gildi og íefur hún verið illskiljanleg öllum /enjulegum borgarbúum. Ef Reykvík- ngar lenda í tímabundnum húsnæðis- /andamálum þá verða þeir annað .veggja að ljúga til um lögheimili eða sækja eftfr gistingu út fyrir borgar- nörkin. En hvemig stendur á þessu? Em Reykvíkingar svona óæskilegir hótel- jestir? „Nei, alls ekki,“ sagði Bjami. „Þetta jr mikil synd og það má segja að þama iéum við að útiloka hundrað prósentin :il að forðast fimm prósentin. Það var lengi vel nokkur hópur manna sem var hreinasta plága á hótelunum. Þetta vom bísar sem skráðu sig inn á hótelin og gengu síðan á milli her- bergja, þar sem utanbæjarmenn vom kannski að gera sér glaðan dag, og sníktu vín og tóbak. Þetta var afskap- lega hvimleitt bæði fyrir gesti og starfsfólk. Þetta fólk átti það líka til að að vakta herbergin og bijótast inn í þau þegar enginn var í þeim. Þá er annar hópur - menn sem stóðu í skilnaðarmálum eða heimiliseijum. Þeir skráðu sig inn á hótelin, svo komu kunningjamir og slegið var upp veislu. Síðan kom eiginkonan og svo lögreglan. Þama var verið að flytja vandamálin frá heimilunum inn á hót- elin og af þessu varð mikið ónæði. I þriðja lagi var oft verið að flytja partíin úr heimahúsunum inn á hótel- in. Þegar annað hvort hjónanna var orðið þreytt á látunum á heimilinu var pantað hótelherbergi svo hitt hjón- anna gæti djammað áfram fram eftir nóttu. En það er leiðinlegt að þessir litlu hópar skuli eyðileggja fyrir öllum hin- um. Reykvíkingar em alls ekkert verri en aðrir, fólk utan af landi er svo sem líka með veislur á herbergjunum. Hins vegar er þetta regla sem við höfum til að verja okkur gegn óæskilegum gest- um.“ Þegar Bjami var spurður hvort það væri þá útilokað fyrir Reykvíkinga að fá inni á reykvískum hótelum sagði hann að svo væri alls ekki. „Hér búa oft Reykvíkingar. Ef menn hringja og panta herbergi með ein- hverjum fyrirvara og hér em laus herbergi þá er sjaldnast nokkurt vandamál. Og ef fólk skýrir fyrir mót- tökustjóranum mál sín og ástæður og ef móttökustjóranum líst þannig á við- komandi þá fær hann yfirleitt her- bergi. Þetta er eiginlega spuming um það hvemig menn kynna sig. Þama höfum við reglu sem mjög gott er að skýla sér á bak við ef mót- tökustjóranum líst ekki meira en svo á umsækjandann. En það er einnig hægt að beygja þessar reglur,“ sagði Bjami Sigtryggsson aðstoðarhótel- stjóri. ATA Aspirnar við Skagfiröingabraut. Sumir gárungar segja að styrktarstaur- arnir séu hin raunverulegu tré. DV-mynd JGH DV á Sauðárkróki: Umdeildar aspir Jóri G. Haukssan, DV, Akureyrt Aspimar við Skagfirðingabraut urðu frægar fyrr í sumar þegar garð- yrkjumaður á staðnum hélt því fram að 30 prósent þeirra væm dauðar og að þær væm ekki heppilegasta trjátegundin við götuna. Víðir þrifist þar betur. Málið komst alla leið í bæjarstjóm. Einum varð að orði að það að hætta við aspimar og fá víði í staðinn væri svona svipað og mað- ur sem gæfist upp á að temja hestinn sinn og fengi sér asna í staðinn. En lesendur góðir, þetta em aspimar frægu við Skagfirðingabraut.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.