Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987. „Nú er komið Helga Möller á Stöð 2 og í Broadway „Þetta hefur verið skemmtileg reynsla og mikill heiður að vera kjör- inn af kollegum sínum,“ sagði Pétur er hann var fyrst spurður hvemig honum hefði liðið þessa daga eftir verðlaunaafhendinguna. Bikarinn stóð á borði í stofunni ásamt óupp- tekinni kampavínsflösku sem enn bar blómaskreytingu. - Attir þú von á þessu? „Ekkert frekar. Ég hafði heyrt sög- ur um að ég væri búinn að leika vel í sumar og væri sá eini rétti til að hljóta þennan titil. Ég vissi ég ætti möguleika en gerði mér ekkert frek- ar vonir. Ég er ánægður með hvemig fór. - Vissir þú áður en úrslitin voru kynnt að þú værir sigurvegarinn? „Nei, en mig fór að gruna ýmislegt þegar Ijósmyndarar beindu mynda- vélunum í átt að mínu borði, áður en úrslitin voru kynnt. Þeir hljóta að hafa vitað það.“ - Þeir hafa þá kjaftað frá? „Já, að minnsta kosti fékk ég á til- finninguna að það hlyti að vera ég,“ sagði Pétui og brosti. I raun er ekkert skrýtið þó Pétur hafi hlotið titilinn því hann hefur sýnt mikla hæfileika í sumar og ver- ið á allra vörum. Er við spjölluðum saman á heimili þeirra Helgu í nýja miðbænum var Pétur nýkominn heim eftir tapleik gegn Sparta Prag í Evrópukeppni meistaraliða. Hann virtist ekkert vera þreyttur að sjá né heldur sár. Pétur var í góðu skapi, hressilegur, og lét tapið sér í léttu rúmi liggja. Atvinnumaður í meiðslum Eins og margir vita starfaði Pétur Ormslev um nokkurra ára skeið sem atvinnumaður hjá Fortuna Dússel- dorf í Þýskalandi. Ekki gekk það slysalaust fyrir sig því hann átti í sífelldum vandræðum vegna meiðsla. - Af hverju gafstu atvinnumennsk- una upp á bátinn og komst heim? „Það voru ýmsar ástæður fyrir því. Helst var það út af meiðslum sem ég hlaut. Ég þrjóskaðist upphaflega við að fara heim. Hins vegar gekk þetta ekki upp vegna meiðslanna. Ég var alls ekki heill líkamlega. Þeg- ar tíminn leið sá ég að það þýddi ekkert annað en að drífa sig heim.“ - Langaði þig að vera lengur erlend- is? „Mig langaði til þess að vera leng- ur en eins og málin stóðu þá var enginn grundvöllur fyrir því. Eftir að ég kom heim var ég sáttur við það hlutskipti og sé ekkert eftir því. Langaði ekki heim - Af hverju fórstu út upphaflega? „Mest af ævintýraþrá. Mig langaði að reyna fyrir mér meðal þeirra bestu í heimi en það gekk svona upp og niður eins og kom í ljós. Upphaflega hafði umboðsmaður samband við mig og bauð mér starf og ég sló til. Ég var þá búinn að leika tíu landsleiki hér heima.“ - Hvemig fannst þér að vera at- vinnumaður í knattspyrnu? „Það var bæði gott og slæmt. Ánægjustundimar vom fleiri, að minnsta kosti man maður frekar eft- ir þeim. - Varstu vel launaður? „Já, ég held að allir atvinnumenn í knattspyrnu séu vel launaðir. Ég hef aldrei haft hærri tekjur en þá.“ - Hefur þú hug á að fara aftur? „Nei. Éins og málin standa í dag hef ég ekki áhuga fyrir því en maður á víst aldrei að segja aldrei." - Hvemig stendur á því að sumir íslenskir knattspymumenn duga lengur í atvinnumennsku en aðrir? „Ég held að flestir sætti sig við þetta starf en það fer mikið eftir gengi manna og einnig hvemig þeir eru. Til eru menn sem þola ekki að vera lengi að heiman.“ - Hvað um aga? „Hann er ekkert meiri en hérna heima. Menn ráða sér meira í at- vinnumennskunni. Ef menn vilja drekka áfengi fyrir leik þá er enginn sem bannar þeim að gera það. Mjög algengt er að menn fái sér tvo til þrjá bjóra kvöldið fyrir leik en við Islendingarnir megum ekki fá okkur einn bjór kvöldið fyrir leik erlendis. Við erum náttúrlega ekki vanir að drekka bjór en þeir eru það.“ Engar frístundir - Var atvinnumennskan ekki hörku- vinna? „Ég er viss um að ég æfi helmingi meira hér heima en ég gerði úti. Æfingarnar úti em miklu markviss- ari og þar mæta allir á réttum tíma. Hlutirnir eru miklu meira á hreinu. Hér nota menn frístundimar sínar í æfingarnar," sagði Pétur og Helga bætti við: „Við eigum engar frístund- ir. Við höfum ekki tekið okkur sumarfrí síðan við vorum úti í Þýska- landi." - Varstu afburðaknattspyrnumaður? „Nei, ég var það ekki. Éitthvað sáu þeir við mig. Ég var sex árum yngri en átti auðvitað margt ólært,“ svar- aði Pétur sem nú er 29 ára gamall. Hann kom heim og hóf að leika aftur með sínu gamla liði, Fram. Hins vegar hefur það ekki alltaf ve- rið hans lið. Sem barn spilaði hann með KR vegna þess að félagarnir í Miðbæjarskólanum gerðu það. Pétur er alinn upp í Skólastrætinu og bjó þar allt þangað til hann fór til Þýska- lands. „Nokkrir félagar mínir í skólanum æfðu með Val og það kom að því að ég hætti í KR og fór yfir til Vals. Ég man ekki eftir að það hafi verið neinir Framarar í skólan- um. Síðan voru margar ástæður fyrir að ég hætti í Val og fór yfir til F-am. Mér líkaði illa í Val og einnig kynnt- ist ég nokkuð mörgum Frömurum á þessum tíma. Ég hef þá verið 15 ára. Takmarkið var 25 landsleikir - Hvað hefur þú leikið marga lands- leiki í dag? „Þeir eru tuttugu og sex. Einhvem tímann setti ég mér það takmark að ná tuttugu og fimm leikjum. Ég náði því marki í leiknum á móti Austur- Þjóðverjum í fyrrahaust. - En Helga, er hún íþróttakona? „Já, ég hef alltaf verið það. Ég keppti á skíðum hér áður fyrr og vann nokkrum sinnum til verðlauna. Einnig spilaði ég handbolta og reyndar körfubolta líka um tíma þó ég sé ekki hávaxin en hætti því fljót- lega. Ég bjó nálægt Laugardalsvell- inum og fór mjög oft á leiki enda voru bræður mínir í fótbolta. For- eldrar mínir hafa verið í golfi og hafa smitað okkur af þeim áhuga. Við spiluðum mikið golf þegar við vorum í Þýskalandi," sagði Helga. Pétur sagðist ekki hafa nokkurn áhuga á skíðaíþróttinni og aðeins einu sinni á ævinni hafa stigið á skíði. „Ég hef hins vegar heillast af golfinu þó ég hafi aldrei keppt í því,“ sagði hann. Helga og Pétur kynntust í Óðali sumarið 1982. „Ég var búinn að vera í Þýskalandi og kom hingað heim í stutt frí. Þá var heimsmeistara- keppnin á Spáni. Ég fór á ball, sem ég hafði ekki gert lengi, og þá hitti ég Helgu.“ Viðtal: Elín Albertsdóttir - Þú hefur heillast af söngkonunni? „Já, það má segja að ég hafi gert það,“ sagði Pétur. Helga sagði það vera sniðugt að sem unglingar hefðu þau átt sömu kunningja en aldrei hist. - Voruð þið þá úr sama hverfinu? „Nei, ég var úr miðbænum og Helga úr austurbænum," svaraði Pétur og Helga bætir við að þau hafi bæði skemmt sér í Tónabæ á þessum árum. Söng á sporthátíð Ári eftir að þau kynntust fluttist Helga til Þýskalands og til að gera eitthvað eins og hún segir fór hún í háskóla til að læra þýsku, uppeldis- fræði og íþróttakennslu. „Það var alltaf gamall draumur," segir hún. „Mér leið mjög vel í Þýskalandi og sakna þess tíma mikið." - Lagðir þú sönginn á hilluna? „Já og nei. Mér þótti alveg æðis- legt að vera þarna einmitt vegna þess að enginn þekkti mig. Ég gat farið hvert sem ég vildi og enginn tók eftir því. Ég var búin að vera í sviðs- ljósinu hér heima. Síðasta Þú og ég platan kom út um það leyti sem við vorum að kynnast en hún gekk að vísu ekki neitt. Þá datt allt upp fyrir með Japansferðina sem stóð fyrir dyrum og ég var hálffegin því. Mér fannst ekki lagður eins mikill metn- aður í þessa plötu og þá fyrri. Við Pétur komum heim á sumrin og þá söng ég með hljómsveit Gunnars Þórðarsonar í Broadway. Annars var vinafólk okkar úti í Þýskalandi sem vildi endilega koma mér á framfæri á þýskum markaði. Ég reyndi aðeins fyrir mér undir nafninu Helga Helga- son vegna þess að Helga Möller er svo þýskt og venjulegt nafn þar. Ég kom fram á galahátíð í sambandi við sportið en kunni ekki við það. Ég söng eitt lag á ensku og eitt íslenskt en mér fannst allt vera öðruvísi en ég átti að venjast og mikil sýndar- mennska í öllu.“ - Þú hefur þá ekki sungið meira í Þýskalandi? „Nei,“ svaraði Helga, en Pétur sagði að það hefði nú getað orðið meira. „Við vorum með annan fótinn hérna heima eftir að Pétur meiddist og þá datt þetta sjálfkrafa upp fyr- ir,“ sagði Helga þá. „Þetta er svipað og í fótboltanum - aldrinum er kennt um ef menn standa sig ekki nógu vel,“ sagði Pétur. Bæði á Stöð 2 Þegar þau komu alflutt heim árið 1984 fór Pétur að vinna hjá Frjálsu framtaki við auglýsingasöfnun fyrir fþróttablaðið og Helga gerðist flug- freyja aftur en hún hafði verið í því starfi til ársins 1978 er hún eignaðist dóttur sína, Helgu. Ári síðar fór Pét- ur að vinna sem gjaldkeri hjá Verslunarbankanum sem hann segir hafa verið gott starf. „í bankanum var mjög góður starfsandi og gott fólk. Mér líkaði alltaf vel þar.“ Það er aðeins mánuður síðan hann hóf störf í markaðsdeild Stöðvar 2. - Hvað kom til? Sighvatur Blöndal markaðsstjóri vann með mér á Frjálsu framtaki og hann bauð mér þetta starf. Það felst í auglýsingavinnu. Mér leist vel á að taka þetta að mér því mér hefur sýnst að Stöð 2 sé á mikilli uppleið. Állar þær nýjungar í dagskránni í haust sýna metnað og ég er viss um að stöðin á eftir að standa sig. Það er fullt af skemmtilegu fólki að vinna á Stöð 2. Helga, sem hefur vakið á sér at- hygli sem Gleöihankustjnmu síðan umsjónarmaður Stundarinn okkar. er einnig að liefji'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.