Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1987, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1987. Fréttir Tímaritið Þjóðlrf: Svavar áfram - minni ákvörðun verður ekki breytt segir Svavar í tímaritinu Þjóðlífi, sem kom út í gær, skrifar Svanur Kristjánsson stjómmálafræðingur grein um Al- þýðubandalagið, rekur sögu þess og spáir í framtíðina. Hans niðurstaða er sú að Svavar Gestsson verði áfram formaður flokksins. Eftir að hafa rakið gang mála í Al- þýðubandalaginu og spáð í komandi landsfund flokksins segir Svanur: „í ljósi alls er aö ofan greinir munu á landsfundi Alþýðubandalagsins vakna raddir um, að ekki sé tímabært að skipta um formann úr því að ekki náist samstaða um arftaka Svavars. Vaidakjami flokksins mun verða fljót- ur til að taka undir þessar óskir. Þetta mun ganga eftir.“ Þessi niðurstaða Svans Kristjáns- sonar var borin undir Svavar Gests- son og sagðist hann undrandi á að stjómmálafræðingurinn skyldi ekki fylgjast betur með en þetta. Síðan sagði Svavar: „Ég hef oft sett spumingarmerki við kenningar Svans Kristjánssonar um fortíð Alþýðubandalagsins og oftast hefur honum sjátlast, en að þessu sinni skjátlast honum líka um framtið- ina. Ég hef lýst yfir þeirri ákvörðun minni að gefa ekki kost á mér áfram sem formaður. Þeirri ákvörðun minni verður ekki breytt," sagði Svavar Gestsson. -S.dór Vigdís Finnbogadóttir kom i gær úr góða veðrinu á Sikiley í frostið á ís- landi. Það voru því viðbrigði fyrir hana að koma heim á Frón. Á Sikiley kynnti Vigdís sér vínrækt eyjarskeggja. Á myndinni er forsetinn að smakka á verðandi rauðvíni í 25 stiga hita. DV-mynd GVA Síldarsöltun að hefjast á Eskifirði. Alls verður saltað á sex stöðum þar á vertíðinni. DV-mynd Emil Thorarensen Eskifjörður: Fyrsta síldin komin á land Emil Thorarensen, DV, EskifirðL' Fyrsta síldin á vertiðinni barst til Eski- fjarðar í gær. Það var Sæljón SU sem landaði 45 til 50 tonnum hjá sfldarsölt- unarstöðinni Friðþjófi. Sæljón .fékk sfldina fyrir mynni Viðfjarðar. Bjarni Stefánsson, einn eiganda Friðþjófs, Scigði að sfldin væri ágæt, stór og góð, en misjöfn að fitu. Hún er þó innan réttra marka. Saltað verð- ur fyrir Skandinavíumarkað, sykur- sfld og kryddsfld. Ekki hafa náðst samningar við Rússa. Þeir hafa verið stærstu kaupendur á sfld hingað tfl. Á Eskifirði eru sex sfldarsöltunar- stöðvar og verður saltað á þeim ölium eins og síðastliðin ár. Elli- og örorkulífeyrisþegar á Reykjavíkursvæðinu: Ókeypis umfram- sktefum fjölgað Samgönguráðherra hefur ákveðiö að fjölga þeim umframskrefum sem elii- og örorkulífeyrisþegar á Reykja- víkursvæðinu fá eftirgefin frá gjald- skrá Pósts og síma og verða skrefin nú 400 ársfjórðungslega í stað 200 áð- ur, samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Hreini Loftssyni, aðstoöar- manni samgönguráðherra, í gær. Sagði Hreinn að þessi breyting væri gerð í framhaldi af gjaldskrárbreyt- ingu frá 1. júlí sl. þar sem inniföldum skrefum i fríu ársfjórðungslegu af- notagjaldi var fækkað úr 300 í 200 á Reykjavikursvæðinu, en úr 600 í 400 utan Reykjavíkursvæðisins, jafnframt því sem skrefatalning var tekin upp á kvöldin og um helgar. Sagði Hreinn að þessari ákvörðun hefði verið mót- mælt af borgaryfirvöldum og samtök- um aldraðra og væri með þessari ákvörðun reynt að koma tfl móts við þau sjónarmið sem þar hefðu komið fram. Sætu nú allir elli- og örorkulíf- eyrisþegar við sama borð hvar sem væri á landinu að þessu leyti. Hreinn sagði að þessi ákvörðun væri tekin eftir viðræður við Póst og síma en reiknað er með að tekjutap Pósts og síma vegna þessa muni nema um 3,4 milljónum króna á ári. Talið er að þessi breyting nái til 2.740 einstaklinga en á landinu öllu eru um 4.200 manns sem njóta ívflnana af þessu tagi. Sagði Hreinn að niðurfelling afnotagjalda og 400 umframskrefa tfl þessa hóps kost- aði um 14 milljónjr króna á ári. -ój Vinnueftirlit innsiglar lög- reglustöð Hús lögreglustöðvarinnar á Vopna- firði hefur verið innsiglað. í húsinu er einnig fangageymsla. Það var Vinnueftiriitið sem innsiglaði húsið. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem það er gert. Ástæðan fyrir því að hú- sið hefur verið innsiglað er að það lekur og í því er mikill raki. Upphitun hússins er einrúg ábótavant. Lögreglustöðin var innsigluð í fyrra skiptið í vor. Innsiglið var rofið þá, gegn því skilyrði að gerðar yrðu end- urbætur á húsinu. Ekki fengust menn til að vinna að lagfæringum og því var húsið innsiglað á ný. Rúnar Valsson, varðstjóri á Vopna- firði, sagði að þetta væri erfitt ástand. Að visu hefur lögreglan til umráða eitt herbergi á umboðsskrifstofu sýslu- manns. Rúnar sagði að það leysti einhvem vanda en nauösyrflegt væri að fá fangageymslumar í lag. Hann sagði að ekki hefði þurft að hýsa fanga þá tíu daga sem lögreglustöðin hefur verið innsigluð. Hann bætti við að slíkt gerði ekki boð á undan sér og því væri þetta afar óheppilegt. Rúnar varðstjóri sagði að það væri ótrúlegt hvað þeir sem settir hafa ve- rið inn hefðu sýnt mikið langlundar- geð að gera ekkert í því að vera boðin slik gistiaðstaða sem fangageymslum- ar em. -sme Póstur og sími: Sundurliðaðir símareikning- aránæstaári? Samgönguráðherra hefur falið Pósti og síma undirbúning að því að gefa símnotendum kost á sundurliðuðum símareikningum þannig að þar komi fram upplýsingar um það hvenær hringt er, hvert og hversu lengi talað er. Að sögn Hreins Loftssonar, aðstoð- armanns samgönguráðherra, má búast við því að þessi þjónusta komist í gagniö á næsta ári en til þess að þetta verði fært þarf að kaupa sérstakan tækjabúnað. Hreinn sagði tflganginn með þessari breytingu þann að bæta og auka þjónustu við símnotendur en þjónusta af þessu tagi stendur símnot- endum til boða erlendis. Hann sagði að þeir sem áhuga hefðu á þessari þjónustu þyrftu aö óska sérstaklega eftir henni, en upphæð gjalds vegna þessarar þjónustu heíði ekki verið ákveðin. Hann kvaðst þó búast við því að gjaldiö yrði svipað og upphæð út- skriftargjalds hjá greiðslukortafyrir- tækjunum. - Sambandið selur og kaupir Ríkið keypti húseignir Sambands íslenskra samvinnufélaga við Sölv- hólsgötu og Lindargötu á 280 milljónir króna í gær og verða eignimar af- hentar kaupanda að ári liðnu. Við undirritun borgaði ríkið Sam- bandinu 50 milljónir króna, eftir sex mánuði mun ríkið síðan reiða af hendi aðrar 50 milljónir króna og síðan verða eftirstöðvamar greiddar á tæpum flór- um árum. Um er að ræða eignimar Sölvhóls- götu 4 ásamt tilheyrandi eignarlóö, Lindargötu 9 ásamt tilheyrandi eign- arlóð, eignarlóðina númer 12 við Sölvhólsgötu og ennfremur framsal á eignarréttindum leigulóðanna númer 6 og 8 við Sölvhólsgötu. Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra sagði eftir undiritunina að þetta væm að hans mati hagstæð kaup fyrir ríkið. Það væri mun ódýrara fyr- ir ríkið að kaupa af Sambandinu heldur en fara út í nýbyggingar. Þegar ráðuneytin væm flutt inn myndi það spara ríkinu 25 milljónir Samningurinn undirritaður, Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, Sigurður Þórðarson, skrifstofustjóri i fjármálaráðuneytinu, Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra og Valur Arnþórsson, stjórnarformað- ur Sambands íslenskra samvinnufélaga. DV-mynd KAE króna á ári í leigugjöldum að komast í eigið húsnæði. „Það hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um nýtingu á því húsnæði sem við vorum að festa kaup á. Húsnæðið er af þeirri stærð- argráðu að það getur rúmað alla starfsemi þeirra ráðuneyta sem nú em í leiguhúsnæði en það er brýnast aö leysa húsnæðisvanda menntamála- ráðuneytisins," sagði Jón Baldvin. Síðdegis í gær festi Samband ís- lenskra samvinnufélaga kaup á 23,5 hektörum af í Smárahvammslandi í Kópavogi. Samkvæmt ósk seljenda var kaupverð ekki gefið upp. Samnig- urinn var gerður með fyrirvara um forkaupsrétt Kópavogsstaðar, sem að- ilar era sammála um að standi í 28 daga í samræmi við lög þar um. • Að sögn Guðjóns B. Olafssonar for- stjóra Sambands íslenskra samvinnu- félaga hefur sambandið ekki enn tekið ákvörðun um hvar höfuöstöðvar þess verða í framtíðinni. En ætlunin sé að komast undir eitt þak. -J.Mar Cheerios: Innkalla kraft- boltapakkana í framhaldi af umijöllun DV á slysa- hættu vegna kraftbolta sem em í pökkum með Cheerios-morgunkomi hefur heildverslun Nathans O. Olsens hcifið innköllun á pökkum sem inrú- halda þessa bolta í verslunum hér- lendis. Hingað til lands kom síðasti farmur- inn af Cheerios-morgunkomi með kraftboltum í júlímánuöi og var það allt komiö út í verslanir. í gær vann fyrirtækið síðan við að hringja í versl- anir og innkalla alla þá pakka sem vom óseldar. -J.Mar Leiðrétting: í svari við spumingu dagsins, hinn 9. þ.m., er rangt haft eftir Guðfreði Jóhannessyni að hann sé félagi í SÁÁ. Hann er hins vegar félagi í AA-sam- tökunum. Beðist er velviröingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.