Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987. Fréttir ___________________________________________________________DV Sláturhúsin á íslandi í notkun 19 daga á ári að meðaltali: Kostar milljarð að koma undanþáguhúsunumí lag Slátrun i fullum gangi i sláturhúsinu í Grindavik i gær. DV-mynd: BG Hólmanesið fékk gott verð í Bremerhaven: Batamerki á Þýska- landsmarkaðinum Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Hólmanes SU frá Eskifirði seldi 146 tonn af ísfiski í Bremerhaven fyrir níu milljónir níu hundruö fimmtíu og fimm þúsund krónur. Meðal- verð á kíló var 68,13 krónur sem er afar gott og með því allra besta sem fengist hefur á árinu. Uppi- staða aflans var karfi og ufsi. Fyrir karfann fengust tæpar 72 krónur á kílóið en ufsinn fór á 60 krónur kílóið. Skipstjóri á Hólma- nesinu var Sigurður Magnússon. Báðir skuttogarar Eskfirðinga hafa því selt í Þýskalandi í þessari viku og fengið þrumandi gott verð. Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá LÍÚ sagði í samtali við DV að þetta góða verð mætti rekja beint til lítils framboðs á Þýskalandsmarkaði í þessari viku. „Það er ljóst að markaðurinn er mjög ótryggur og varasamur og engan veginn búinn að ná fyrri styrk eftir hrunið sem varð í kjölfar sjónvarpsþáttar 28. júlí síðasthðinn sem fjallaði um orma í fiski. Marg- ir óttast því að verð lækki mjög verulega í næstu viku en þá selja tveir íslenskir togarar í Þýska- landi. Eigi að síður eru hér á ferðinni ákveðin batamerki," sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson. Átak JC um helgina: Tökum slysin úr umferð JC-félagar um allt land dreifa nú um helgina gögnum um aukiö öryggi í umferðinni. Yfirskriftin er: Tökum slysin úr umferð. JC hefur haft sam- starf við Fararheill ’87 og Umferðar- ráð vegna þessa átaks í umferðar- málum. JC-félög um allt land verða með ýmis verkefni í heimabyggðum sín- um um helgina sem snerta aukið öryggi í umferðinni. Þá verður lím- miðum, barmmerkjum og plakötum dreift til fólks. Þá hefur JC látið gera myndband með lagi og texta, tileinkað umferð- armálum. Lagið verður spilað á útvarpsstöðvunum um helgina en myndbandið verður sýnt í kvöld í sjónvarpinu. Samkvæmt skýrslu sláturhúsa- nefndar, sem kom út í sumar, er afkastageta allra starfræktra slátur- húsa í landinu 43.450 fjár á dag og ef miðað er við þann fjölda fjár sem slátraö var í fyrra jafngildir það 19 daga notkun að meðaltali á ári. Samt var slátrun þá mun meiri en áður vegna fækkunar sauðfjár. í skýrsl- unni ségir að þessi mikla afkastageta sláturhúsanna, samfara fækkun sauðfjár í landinu, auki á óhag- kvæmni og muni leiða til ófremdar- ástands verði ekkert að gert. Sláturhúsanefnd fullyrðir að hægt sé að anna allri sauðfjárslátrun á landinu í þeim húsum sem hafa nú þegar löggildingu. Eini landsfjórð- ungurinn þar sem lagfæringa er þörf er Austurland. Eins og skýrt var frá í DV í gær eru 33 sláturhús af 50 í landinu með undanþágu. Ef gera ætti þessi hús þannig úr garði að samræmdist nú- tíma meðferð á mannamat myndi það kosta um einn milljarð króna. Þá er átt við aö gera við þau og búa tækjum sem nauðsynleg eru til þess að hægt sé að löggfida þau. Ef þetta yrði gert þyrfti sláturkostnaður að Flateyri: hækka um 22,50 krónur á kíló eða um 32,8%. Nefndin leggur til að slát- urhúsum veröi fækkað mjög frá því sem nú er. Hún leggur til að eftirfar- andi hús verði starfrækt áfram: Sláturhúsið á Kirkjubæjarklaustri, Hvolsvelli, Selfossi, Þykkvabæ, Borgamesi, Búðardal, Patreksfirði, Þingeyri, Norðurfirði, Hólmavík, Hvammstanga, Blönduósi, Sauðár- króki, Húsavik, Kópaskeri, Egils- stöðum og Höfn í Hornafirði. Þetta eru 17 hús en nú eru húsin 50, þar af 33 á undanþágu sem fyrr segir. -S.dór Húsnæði fimm fjöl- skyldna boðið upp Reynir Traustason, DV, Flateyri: Fimm af sex fjölskyldum á Hjalla- vegi 14-20 á Flateyri eru fluttar úr íbúðum sínum og hafa ákveðið að láta bjóða upp húsnæði sitt frekar en að halda áfram að greiða af áhvíl- andi skuldum. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum íbúanna er sú að þegar fólkið flutti í íbúðimar 1982 lánaði Byggingasjóð- ur verkamanna 80% en kaupendum- ir lögðu fram 20%. í dag er staðan hins vegar sú að vegna misgengis lánskjara- og byggingavísitölu er lán Byggingasjóðsins orðið nánast sama upphæð og brunabótamat íbúðanna en endursöluverð íbúða á Flateyri er um 70% af brunabótamati. Rúnar Garðarsson er einn þeirra sem lentu í þessum hremmingum. Að hans sögn þyrfti hann að borga um það bil eina milljón króna með íbúðinni ef hann seldi núna. Rúnar kvað árangurslausar tilraunir hafa verið gerðar til að leysa þessi mál í samráöi við Húsnæðismálastofnun. Rúnar sagði að beint tap sitt á þess- um viðskiptum væri um 600 þúsund krónur fyrir utan þann skaða að lenda á skrá yfir vanskilamenn. Kristján Jóhannesson sveitarstjóri sagði að sveitarfélagið hefði hafnað forkaupsrétti á íbúðunum enda væri það sveitarfélaginu fjárhagslega ókleift að kaupa allar þessar íbúðir. Kristján..sagði að óskað hefði verið eftir því við Húsnæðisstofnun að lán- in yrðu reiknuð niður til samræmis við verð á íbúðum á Flateyri en þvi var hafnað. Þannig standa máhn í dag að búið er að bjóða upp eina íbúð af sex, fjór- ar verða boðnar upp 17. nóvember en ein fjölskylda ætlar að þrauka og borga af sínu okurláni. Fimm fjölskyldur standa uppi eignalausar eftir fimm ára puð og •fyrirvinnumar á vanskilalista. Hjallavegur 14-20, Flateyri. Fimm fjölskyldur af sex sem þar búa hafa ákveöið aö láta bjóöa ibúðir sínar upp. DV-mynd Róbert Reynisson Ólafsvík: Afborganir aukast um 100% Bæjarstjóm Ólafsvíkur hefur 10 milljónum í 20. Veltufjárstöðu ingamir væm í mörgu líkir reikn- loks fiShgiö ársreikninga bæjar- hefur hrakaö verulega og er hún ingum ársins 1985. sjóðs fýrir árið 1986 í hendur. neikvæð um rúmar 15 milljónir Nú er að hefjast í Ólafsvik upp- Reikningamir em um margt svip- króna. gjör vegna fyrstu níu mánaða þessa aðir ársreikningura 1985 nema Eigiö fé bæjarsjóðs er rúmar 70 árs. Því á aö vera lokið elgi siðar hvaö veltufjárhlutfall hefur versn- milljónir króna. Eignir bæjarsjóðs en 2. nóvember næstkomandi. að nokkuð. era um 160 milljónir, en skuldir em Fram að þeim tima em taldar litiar Helstu breytingar em þær; að ura 90 milljónir króna. Hagnaður líkur á að myndaður verði nýr innheimtuhlutfall lagaðist vem- af rekstri bæjarsjóðs á árinu var bæjarstjórnarmeiríhluti í Óiafsvík. lega á milli áranna, fór úr 50% í um 3. milljómr króna. Menn vilja sjá hver staöa bæjar- 81%. Áætlaðar afborganir á yfir- Þeir, sem DV ræddi við i gær, sjóðs er áöur en þeir taka viö að standandi ári aukast um 100%, úr voru á einu raáli um að ársreikn- mynda meirihluta. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.