Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1987, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1987, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987. Stjómmál_______________________________________________ Jón Baldvin fylgir fjáriagafmmvarpinu úr hlaði: Her dugar ekkert pólitískt kjarkleysi „Islenska þjóöin á mikið undir því *komið að sú grundvallarstefna, sem boðuð er með þessu fjárlagafrum- varpi, um aðhaldsemi í ríkisfjármál- um og jöfnuð í ríkisrekstri, nái fram að ganga,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra undir lok tveggja og hálfrar klukku- stundar langrar ræðu sinnar við fyrstu umræðu um fjárlagafrum- varpið á Alþingi í gær. „Eg vænti þess að ríkisstjómin og þeir þingflokkar, sem að baki henni standa, sem og alþingismenn allir, reynist reiðubúnir að axla þá ábyrgð sem á þeim hvílir. Menn verða að hafa pólitískt þrek til að vera sjálfum sér samkvæmir. Það stoðar ekki að gjalda jáyrði við nauðsyn aðhaldsaðgerða en setja síð- an ótal fyrirvara og flytja tillögur um hundruð milljóna aukaútgjöld sem ekki verða fjármögnuð nema með auknum lántökum. Hér duga engir fyrirvarar, undan- sláttur eða pólitískt kjarkleysi. Það dugar ekki að gagnrýna nauðsynlega tekjuöflun en flytja á sama tíma til- lögur um stóraukin útgjöld. Lykilorðin eiga að vera ráðdeild og aðhaldssemi, hvar sem því verður við komið, án þess að reiða öxina að Pálmi Jónsson, Sjálfstæðisflokki: Skattar mun lægri hér en í nálægum löndum „Ríkisstjórnin hefur kynnt þá stefnu sína að halda gengi íslensku krónunnar stöðugu, veita verð- bólgu öflugt viðnám og stefna að hallalausum viðskiptum við útlönd og þar með lækkun erlendra skulda,“ sagði Pálmi Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Meginniðurstaða fjárlagafrum- varpsins um hallalausan ríkis- búskap er þýðingarmikill þáttur í því að þessi stefna geti orðið að veruleika. Kjarasamningar standa fyrir Pálmi Jónsson. dyrum. Mikið er í húfi að þar verði hófsamlega að verki staðið. Bregð- ist það er hætt við að fastgengis- stefnan hrynji og veröbólgan taki nýjan fjörkipp." Pálmi sagði að á starfstíma ríkis- stjórnarinnar hefðu komið fram hugmyndir um frekari skattheimtu en orðið hefur. Þær hugmyndir hefðu strandað vegna andstöðu Sjálfstæðisflokksins. „Ég vil minna á að skattar eru miklu lægri hér á landi en í flestum nálægum löndum. Sömu sögu er að segja um opinber útgjöid, sem ef til vill eru réttari mælikvarði. Árið 1983 voru opinber útgjöld rík- is og sveitarfélaga hér á landi 35,2% af landsframleiðslu. Á hinum Norðurlöndunum var þetta hlutfall 50,6% að meðaltali, hæst í Svíþjóð 61%. Hér er um gífurlegan mismun að ræða. Mér hafa ekki borist upp- lýsingar um að verulega hafi dregið úr honum síðan.“ Pálmi lagði að lokum á það áherslu aö tilfærsla verkefna til sveitarfélaga þyrfti sinn undirbún- ing. Tryggja þyrfti að fámennari sveitarfélög og ýmsir aðilar, eins og styrkþegar íþróttasjóðs, sætu ekki við lakari hlut en áður. -KMU Óli Þ. Guðbjartsson, Borgaraflokki: Skattar auknir um þúsundir milljóna „Hér er á ferð frumvarp til fjárlaga sem ber þau megineinkenni aö skatt- ar eru auknir um þúsundir milljóna króna,“ sagði Óli Þ. Guðbjartsson, þingmaður Borgaraflokksins. „Engu að síður ætlar ríkisstjómin að smokra verkefnum af ríkinu til jnnarra aðila án nægilegs undirbún- ings. En verst er þó að um þau mark- mið, sem uppi eru, virðist stjórnin og stjómarliðið sjálfu sér sundur- þykkt í verulegum atriðum. Borgaraflokkurinn lítur á hlutverk sitt í stjómarandstöðu að gagnrýna j-Óli Þ. Guðbjartsson. á rökstuddan hátt. Það munu fulltrú- ar hans gera. Hins vegar eru fulltrúar Borgara- flokksins reiðubúnir til jákvæðs og eðlilegs samstarfs við fulltrúa ríkis- stjórnar og annarra flokka í stjómar- andstöðu til þess að sníöa verstu agnúa af því meira og minna hálf- unna verki sem frumvarp þetta til fjárlaga óneitanlega er.“ Óh Þ. Guðbjartsson sagði að þegar athugað væri hvernig tekjum ríkis- sjóðs, 59,6 miUjörðum, væri ráðstafað kæmi í ljós að 52,4 miUjarðar, eða 88%, færu í rekstur báknsins en tíl fjárfestingar fæm 7,2 milljarðar, eða einungis 12% af heildartekjum. „Heldur þætti það nú slappur rekstur hjá sveitarfélagi sem ekki skilaði nema 12% tekna til fjárfest- ingar og uppbyggingar fyrir framtíð- ina.“ Hann sagði að stjómarstefnan stuðlaði að hækkun vaxta í landinu og myndi þar með íþyngja öUum at- vinnurekstri, húsbyggjendum og almenningi. Hann fjallaði sérstaklega um verk- efnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. í því efni væri mörgum spurningum ósvarað. Hvatti hann til aðgætni á því sviði og varaði við flaustri. Margrét Frímannsdóttir, Alþýðubandalagi: Enginn kvóti á vasa almennings „Viöskilnaður síðustu ríkisstjórnar var einn sá ljótasti sem um getur þannig að virða má hæstvirtum fjár- málaráðherra það tU nokkurrar vorkunnar að taka við og ætla að leysa vandann," sagði Margrét Frí- mannsdóttir, þingmaður Alþýðu- bandalags. „Enn á að leysa vanda ríkissjóðs með auknum álögum á almenning. Áfram sleppa stóreignamenn vel frá skattlagningunni. Enn sleppa skatt- svikaramir. Áfram á að fylla upp í göt fjárlaga með því að skerða og skera niður samfélagslega þjónustu. Og áfram skal haldið þeirri stefnu að færa byggð í þessu landi á suðvest- urhornið. Hvergi er reynt að ná tU þeirra sem peningana eiga. Heldur róið á sömu mið og áður. Hæstvirtur fjármálaráðherra situr og dorgar í vasa almennings. Þar er enginn kvóti. Þar er ekki rætt um ofveiði og útrýmingarhættu. Þau mið á að þurrka upp.“ Margrét sagði að fuUkomin óvissa ríkti um hvemig sveitarfélögum væri ætlað að mæta útgjöldum sem tilfærsla verkefna frá ríki hefði í for með sér. Fjármálaráðherra hefði tek- ið einhhða ákvörðun um tilfærslu verkefna í einhveiju bráðræðiskasti án umhugsunar og sanngirni. Alexander Stefánsson, Framsóknarflokki: Ekki má koma aftan að sveitarfélögum „Ljóst er að óvenju mikið og erfitt verk verður að ná saman fjárlögum 'og lánsfjárlögum, ekki síst með það markmið í huga að ná þeim halla- lausum,“ sagði Alexander Stefáns- son, þingmaður Framsóknarflokks- ins. Hann rifjaði upp aö landbúnaðar- ráðherra hefði vissa fyrirvara um frumvarpið. „Ég trúi því að þama fáist lausn sem allir geti við unað,“ sagði Alexander. Hann sagði ljóst að framlög til hafna þyrftu að hækka verulega. Þá kæmust menn ekki hjá því að skoða sérstaklega framlög til skólamála. Athuga þyrfti vel rannsóknarverk- efni fyrir atvinnuvegi. Samdráttur í styrkjum til atvinnuvega væri áhyggjuefni. Álexander gerði verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að sérstöku umtalsefni. Lagði hann áherslu á að þar yrði vandað til verka þannig að ekki skapaðist tortryggni. Kvaðst hann ekki vilja stuðla að því að þessi verkefnatilfærslamistækist. Sveitar- félög hefðu bitra reynslu frá fyrri verkefnaflutningi. Sannfæra þyrfti þau um að ekki væri verið að koma aftan að þeim. Uppgjör á sameiginlegum verkefn- um ríkis og sveitarfélaga þurftu að liggja ljóslega fyrir. Sagði Alexander Málmfriður Sigurðardóttir, Kvennalista: Harðneskja og ranglæti „Yfirbragð stefnu ríkisstjómarinnar sést í þessu fjárlagafrumvarpi, yfir- bragð harðneskju og ranglætis, auk þess sem útfærslur em óljósar svo að erfitt er að átta sig á hvort þær muni standast tímans tönn,“ sagði Málmfríður Sigurðardóttir, þing- maöur Kvennalistans. „Þannig vegur þessi ríkisstjóm með svokallaða jafnaðarmenn inn- anborðs að lágtekjufólki í landinu. Hún margfaldar skattgreiðslur hinna tekjulægstu, en útfærir ekkert bætumar, sem eiga að létta byrðar þeirra, ef marka má loforðin." Málmfríður sagði að kvennalista- konur hefðu viljað sjá á fjárlögum sérstakt framlag til að hækka laun kvenna í þjónustu ríkisins. „Það á greinilega ekki að spara alls staðar. Sums staðar á meira að segja að eyða - og eyða drjúgt. Kostnaður vegna aöalskrifstofa hefur aukist stórlega. Á næsta ári eiga þær að fá um 160 milljónum króna hærri fram- lög til yfirstjórnar en þær þyrftu til að fylgja verðlagsbreytingum.“ Ljósan punkt sagði Málmfríöur að málefni fatlaðra fengju betri útreið en á síðustu ámm. Varla hefði verið von til annars með Jóhönnu Sigurð- ardóttur í félagsmálaráðuneytinu. Hún sagði aö Kvennalistinn áteldi vinnubrögð við undirbúning verka- skiptingar milh ríkis og sveitarfé- laga. Óvissan um afdrif þeirra mála væri verulegt áhyggjuefni. „Einfóldun, réttlæti og skhvirkni era nokkurs konar einkunnarorð ljármálaráðherra við gerð þessa Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra. DV-myndir GVA rótum trésins, sem er það velferðar- ríki fólksins sem við vhjum öll festa í sessi," sagði fjármálaráðherra. -KMU Margrét Frímannsdóttir. Hún sagði að harkalega væri vegið að atvinnuvegum landsbyggðarinn- ar. Endurgreiðslur söluskatts til sjávarútvegs væra skornar niður um helming, launaskattur lagður á fisk- vinnsluna og hafnir væru sveltar. Landbúnaður fengi þó enn verri út- reið, hrikalega meðferð. Þá væri óskiljanlegt að ætlunin væri að leggja niður iðnráðgjafa. -KMU Alexander Stefánsson. að sér fyndist sem menn hefðu van- metið hvað þetta væru stórar íjár- hæðir. Þá lýsti hann þeirri skoðun sinni að eðlilegt væri að th greina kæmi að íþróttasjóður starfaði áfram við uppbyggingu íþróttamannvirkja annarra en sveitarfélaga. -KMU Málmfríður Sigurðardóttir. frumvarps. Við skulum hafa það í huga að einfóldun er sjaldan réttlát - og skilvirknin sýnist mér að komi helst fram í því hve hratt pyngjur ahs þorra launafólks munu tæmast á komandi ári.“ -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.