Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1987, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987. Stjómmál Ríkið yfirtekið 8 milljarða skuldasúpu af orkugeiranum - þýðir tvo milljarða króna í vexti og afbovganir á ári Nýir skattar gefa 5,7 milljarða kr. Ríkisstjómin hyggst ná 5,7 mill- jörðum króna á næsta ári með nýjum sköttum sem hún hefur lagt á lands- menn frá því hún var mynduð í sumar. Þessar upplýsingar komu fram í fjárlagaræðu Jóns Baldvins Hannibalssonar. „Þessar viðbótartekjur sundurhð- ast þaxrnig að breikkun söluskatts- stofns og aðrar breytingar á honum ásamt breytingum á tollum og vöru- gjaldi munu gefa um 3.200 miUjónir króna, bifreiðaskattar 950 miUjónir króna, skattar á atvinnurekstur 600 miUjónir króna og ýmsir tekjustofn- ar, lántöku- og ábyrgðargjöld, kjam- fóðurgjald og arðgreiðslur 950 miUjónir króna,“ sagði fjármálaráð- herra. „Hluti þessara tekna, eða 3.700 milljónir króna, stafar af þeim breyt- ingum sem ákveðnar vom við stjóm- armyndunina á miðju þessu ári, 600 miUjónir króna vegna ráðstafana sem ákveðnar vom í október en 1.400 miUjónir eru vegna breytinga sem ætlað er að gangi í gUdi um næstu áramót." -KMU Ríkissjóður skuldar 450 milljónir króna TaUð er að ríkissjóður skiUdi sveit- arfélögum, íþróttafélögum og ýmsum samtökum 400 til 450 mUljón- ir króna vegna byggingar dagvistar- heinúla, félagsheinúla og íþrótta- mannvirkja. Þetta kom fram í fjárlagaræðu Jóns Baldvins Hannib- alssonar er hann ræddi um verkefn- atiUærslu frá ríki til sveitarfélaga. Hvemig fara skuU með þessa „hala“, sem ráðherrann nefndi svo, við verkaskiptinguna hefur valdið mönnum hugarangri. Dagvistar- heimih, félagsheimUi og íþrótta- mannvirki á nefrúlega að færa alfarið yflr á sveitarfélög um áramót. Jón Baldvin skýrði frá þeirri hug- mynd Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra að efla nokkurs konar viðlagadeUd í jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem hefði meðal annars það hlutverk að létta undir með sveitarfélögum vegna framkvæmda sem þegar eru hafnar. „Með því að ætla 150 miUjónir króna í sérdeUd jöfnunarsjóðsins ætti að mega jafna áhrif vegna þess- arar verkefnatUfærslu á næstu þrem árum,“ sagði fjármálaráðherra. -KMU Ríkissjóður hefur þurft að taka yfir verulegar skuldbindingar af orku- geiranum á undanfömum árum. í fjárlagaræðu Jóns Baldvins Hanni- balssonar kom fram að hrein yfirtaka ríkissjóðs vegna þessa á fimm árum næmi 8,4 miUjörðum Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra sagði í fjárlagaræðu sinni að tekjur íþróttahreyfingarinn- ar og ungmennafélaganna af lottóinu væri miklu meiri en niðurskurður á framlögum tU þeirra. „Það er rétt að þessi framlög hafa verið lækkuð um helming tíl ÍSÍ og króna á verðlagi í september. Byggðastefna, seinheppni í fjár- festingum og kjarasamningar eru ástæðumar sem Jón Baldvin sagði fyrir því að ríkið hefði yfirtekið heldur meira tíl Ungmennafélags Is- lands. Samanlagt má segja að ríkis- sjóður hafi lækkað útgjöld um 20 milljónir króna með þessum hætti,“ sagði Jón Baldvin. „Þegar lottóinu svokaUaða var komið á fyrir rúmu ári óraði sjálf- sagt engan fyrir því hve miklar væri vegna byggðaUna, Kröflu- virkjunar, Rafmagnsveitna ríkis- ins, Orkubús Vestfjarða, Rafveitu Siglufjarðar, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og Hitaveitu Ak- ureyrar. Ótrúlega háar fjárhæðir „Með yfirtöku ríkissjóðs á þess- um skuldum er í raun verið að færa greiðslubyrðina af mann- virkjunum af orkunotendum til skattborgaranna, sem reyndar era í sumum tílvikum sömu aðUamir. Með öðrum orðum: Verulegar fjár- hæðir út úr orkuverðinu,“ sagði fjármálaráðherra. „Ólíklegt er að fólk geri sér al- mennt grein fyrir hvað hér er um ótrúlega háar fjárhæðir að ræða. Frá ársbyrjun 1983 til ársloka 1986 þurfti ríkissjóður að greiða um 3 miUjarða króna í vexti og afborgan- ir af þessum lánum. Á þessu ári nemur fjárhæðin um 1,8 miUjörð- um króna. Greiðslubyrði ríkissjóðs af þessum skuldbindingum nemur 1,9 miUjörðum króna á árinu 1988.“ Tekjuskattur lækkaöi um 20% tekjur það mundi færa eigendunum. Nýjustu upplýsingar em þær að frá því í febrúar í ár, þegar fyrst var far- ið að greiða út hagnað, hafi verið greiddar út um 185 miUjónir króna. Varlega áætlað hefur verið taUð að hagnaður á árinu 1988 geti numið 250 miUjónum króna sem skiptist þannig orkuverðs eða skattgreiðslna má skoða dæmið á eftirfarandi hátt: Hefði ríkissjóður ekki yfirtekið lánin væri greiðslubyrði ríkissjóðs 1,9 mUljörðum lægri. Hefði mátt lækka tekjuskatt einstakUnga um þá fjárhæð eða um rúm 20%. Ef orkugeiranum yrði afhent skuldasúpan, 8.400 miUjónir króna, frá næstu áramótum, vextir væm 6,5% og lánstími 20 ár, sem má ætla að sé um það bU meðallíftími mannvirkjanna, þyrfti að hækka gjaldskrá almennrar raforkunotk- unar um fimmtung til að bera uppi þessi lán.“ Raforkuverðið er falsað „AUar þessar yfirtökur ríkissjóðs af orkugeiranum fela í sér að raf- orkuverðið í landinu endurspeglar engan veginn þann kostnað sem Uggur að baki þess. Með öðrum orðum: Raforkuverð- ið í landinu er falsað. Þykir þó mörgum það nógu hátt.“ Jón Baldvin minnti að lokum á að ekki væri séð fyrir endann á yfirtökum ríkissjóðs af orkugeiran- um. Nægði þar að minna á umtals- verða fjárhagsörðugleika ýmissa hitaveitna. -KMU að til íþróttasambands íslands færa um 120 milljónir króna, Ungmenna- félags íslands 30 miUjónir króna og Öryrkjabandalagsins um 100 miUj- ónir króna. Þetta er í hnotskurn staða þessa máls,“ sagði ráðherrann. -KMU þessar skuldir.' Hann sagði að skuldayfirtakan Skuldayfirtakan er aðallega vegna byggðalína, Kröfluvirkjunar, Raf- magnsveitna rikisins, Orkubús Vestfjarða, Rafveitu Siglufjarðar, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og Hitaveitu Akureyrar. DV-mynd EJ „Sé þetta sett fram sem val miUi Jón Baldvin svarar íþrótta- og ungmennafélögum: Hagnaður af lottó miklu meiri en niðurskurður Ævi og ástir Jóns Ottars íslendingar hafa lengi haft það fyrir sið að skrifa æviminningar sínar. SjáUsagt stafar sú árátta af meðfæddu sjálfsáliti sem leynst hefur með þjóðinni, enda mundi hún ekki hafa lifað það af að búa í þessu afskekkta landi nema að hafa óbilandi trú á sjálfri sér. Við sjáum það í íslendingasögunum að þar eru persónulýsingar nákvæmar og ævi manna rakin aUt frá fæðingu þar tU þeir em drepnir. Aldrei hefði veriö hægt að skrá þessar sögur nema vegna þess að sögupersón- umar sjálfar hafi komið hetjuskap sínum á framfæri. Munurinn var þó sá að sögur landnámsaldarinnar voru ekki gefnar út fyrr en nokkmm öldum síðar þannig að þeirri kynslóð gafst ekki kostur á að lesa hólið um sjálfa sig enda lifði hún áður en prentlist- in, frægðin og egótrippin vom fundin upp. Landnámshetjurnar urðu því frægar án þess að njóta þess með því að segja frá því á prenti hvað þær höfðu gert til að verða frægar. Þetta geta hetjur vorra daga gert eftir að þær em orðnar hetjur af því að koma fram í sjónvarpi. Seinna, þegar menn fóm að rita sínar eigin sjálfsævisögur tíl að halda frægð til sinni til'haga, fen- gust þær ekki birtar fyrr en löngu eftir andlát söguritara. Það mun hafa verið gert af tilUtssemi við samferðamenn. En nú er öldin önnur enda hrað- inn sUkur að frægðin þoUr enga bið. Menn verða að fá að segja frá hæfileikum sínum, ástum og ævi áður en þeir eru allir og umfram allt að fá að lesa um sig sjálfir svo að þeir geti notið góðs af frægð- inni. Nú hafa menn bæði sjónvörp, bækur, blöð og faUeg tímarit tíl að koma prívatmálum sínum á fram- færi eiida ófært að heU kynslóð og þá sérstaklega þeir sjálfir missi af þessum upplýsingum í lifanda Ufi. Tímaritið Mannlíf er nú búið að skrásetja ævi og ástir Jóns Óttars Ragnarssonar sem er einna fremst- ur íslendinga á vorum dögum. Þó er Jón Óttar ekki nema rétt rúm- lega fertugur og á þess vegna að geta sagt frá ævi sinni í framhalds- sögubroti við og við, eftir því sem ævi hans lengist og ástarævintýr- unum fjölgar. Þessi merka saga má ekki fara fram hjá neinum læs- um og uppkomnum Islendingi enda væri Jón Óttar ekki að tíunda það helsta sem á daga hans hefur drifið í bólfórum og kvennamálum fram að þessu nema vegna þess að hann telur sjálfur að það eigi erindi til almennings. Þetta er guösþakkarvert enda kemur í ljós í þessari sjálfsævisögu að Jón Óttar er maður á alþjóða- mæhkvarða í hverju sem hann tekur sér fyrir hendur. Að sögn náinna vina hans er hann faUegur, ríkur, gáfaður og vel ættaður og svona menn hafa þörf fyrir að að skipta um konur eins og aðrir skipta um fót. Jón viðurkennir að hann þoli ekki ljótar konur og umgengst því bara fgllegar konur og hlýtur þessi yfirlýsing að vera afskaplega mikil huggun fyrir allar þær sem hann er búinn að gefa upp á bátinn og er ekki með í augna- blikinu. Fyrir hinar, þær sem enn eiga eftir að njóta þessa fræga manns, er ennþá von því Jón segir að nauðsynlegt sé að skipta um eig- inkonu að minnsta kosti á tuttugu ára fresti. Svona sjálfsævisögur eru gífur- legt innlegg í þjóðfélagsmálin og léttir fyrir þjóðina, sér í lagi þegar þessi sami maður er nær daglegur gestur á skerminum á hverju heim- ih. Jón Óttar gerir sér grein fyrir að það er ekki nóg að sýna á sér andlitið. Hann verður líka að fletta niður um einkalíf sitt á almanna- færi og upplýsa aðdáendur sína um konurnar sem elska hann og kvöld- matinn sem samanstendur af kexi og hvítvíni þegar vel liggur á hon- um. Annars drekkur hann mest bjór enda er hann þeirrar skoðunar að vandlega athuguðu máli að áfengi er betra fyrir heilsuna held- ur en kókaín og hass. Jón Óttar er lærður matvælafræðingur og þess vegna hlýtur þetta að vera rétt sem hann segir eins og allt annað, ef marka má þá sem umgangast hann. Þeir em allir sammála um að þarna sé ofurmenni á ferð. Ævi og ástir Jóns Óttars era ómetanleg íslendingasaga - ekki bara fyrir þær sem hafa notið ævi hans og ásta heldur líka fyrir hinar sem eiga eftir njóta þeirra síðar. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.