Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988. Fréttir Söluskattur á matvörur leiðir til víðtækari verðhækkana en áður var talið: Jafnvel Jón Baldvin hissa á verðhækkun á kótelettum Nú er ljóst aö einu matvörumar sem ekki hækka í veröi við sölu- skattsbreytinguna er kindakjöt í heilum skrokkum og mjólk. Állar aörar kjötvörur munu hækka í verði og þeim mun meira sem þær eru unnar. Meira að segja niöur- sneiddar kótelettur munu hækka í verði vegna þess aö söluskattur kemur á vinnuna við aö sneiða þær niöur, sem og á umbúðirnar utan um þær. „Þaö kemur mér ekki á óvart þótt unnar kjötvömr hækki í veröi enda við því búist og þeim mun meira sem þær eru meira unnar,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson íjármálaráðherra í samtali við DV. Hann sagði það aftur á móti koma sér á óvart ef venjulegar kótelettur hækkuðu í verði. Steinþór Skúlason, sölustjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands, tók dæmi af kótelettum sem kosta 450 krón- ur. Af þeirri verðmyndun er kjöt 400 krónur en 50 krónurnar era annar kostnaður og á hann kemur söluskattur. Sagði Steinþór að hækkunin sem kemur á þennan kótelettupakka væri 3,25%. Hann sagði að eftir því sem kjöt- vörurnar væru meira unnar og meira væri af öðru efni en hreinu kjöti i þeim, þeim mun meira myndu þær hækka í verði. Nefndi hann sem dæmi pylsur og bjúgu og ýmsar gerðir af áleggi. Taldi hann að pylsur og bjúgu myndu hækka um allt að 20% við sölu- skattshækkunina. Alveg sömu sögu er að segja af mjólk og mjólkurvörum. Hreint skyr og mjólk hækka ekki í verði vegna aukinna niðurgreiðslna eins og á kjöti. En þegar farið er að vinna hinar ýmsu gerðir af jógúrt eða berjaskyri fer það aö hækka því söluskattur kemur á allt annað en mjólkina sjálfa. Eins er með osta, söluskattur kemur til að mynda á umbúðirnar og þaö veldur hækkun. Gunnar Snorrason, kaupmaður í Hólagarði, sagði í samtali við DV að það væri mikil vinna og flókin að verðleggja allar þessar vörur eftir söluskattsbreytinguna. -S.dór Á leið upp í brekkur Hliðarfjalls í skíðalyftum í fyrsta sinn á vetrinum. DV-mynd: GK Hlíðarfjall: Góð aðsókn fyrsta daginn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Ak- ureyri var opnað um helgina. Strax á laugardag komu þangað nokkur hundruð manns í góðu veðri. Ekki hafa allar lyftur verið opnað- ar enn, en að því verður unnið í vikunni og strax um næstu helgi verða aUar lyftur opnar og starfsem- in komin í fullan gang. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins: Orð Karvels sógð í hita augnabliksins „Ég lít svo á að Karvel Pálmason hafi sagt þessi orð í hita augna- bliksins og met þau út frá því," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráöherra og formaöur Al- þýðuflokksins, þegar DV spurði hann um eldmessu Karvels yfir forystu Alþýðuflokksins við kvó- taumræðumar í efri deild Alþingis síöastliðið fimmtudagskvöld. Jón Baidvin sagði aö það heföi verið vitaö frá upphafi að þing- menn Alþýöuflokksins á Vestfiörð- um myndu ekki styðja ríkisstjóm- ipa ef kvótakerfið yrði óbreytt. í stjórnarsáttmálanum er líka gert ráð fyrir endurskoðun og brey ting- um á því. í hinu mikla tímahraki á Alþingi fyrir jól heföi ekki unnist timi til að ljúka þeirri endurskoð- un. Því hefði verið ákveðið að halda áfram endurskoðun á kvótakerf- inu. Einnig benti Jón á að þingmenn Alþýöuflokksins hefðu fengiö fram ákveðnar breytingar á frumvarp- inu, sem allar væm til bóta. Néfndi hann í því sambandi breytingar sem gerðar vom á 10. grein frum- varpsins, smábátagreininni og ákvæðinu um áframhaldandi end- urskoðun á kvótakerfmu. „Kvótakerfið er því ekki óbreytt frá því sem það var. Vaxandi óán- ægja er með þetta kerfi en menn hafa samt ekki bent á neinar lausn- ir í því sambandi. Því munum við vinna áfram aö breytingum á kerf- inu og þær munu koma í Ijós á næstu árum,“ sagði Jón Baldvin. -S.dór Tolla- og vörugjaldsbreytingin: Verið er að segja fólki rangtfrá staðreyndum - segir formaður Neytendasamtakanna „Eg gagnrýni það harðlega að stjórnvöld hafa verið að segja fólki rangt frá staðreyndum með yfirlýs- ingum vegna tolla og vömgjalds- breytinganna. Fólki hefur verið sagt að þessi eða hinn hluturinn lækki í veröi um ákveðna prosentutölu sem allir geta séð að mun aldrei stand- ast,“ sagði Jóhannes Gunnarsson, formaöur Neytendasamtakanna, í samtali við DV. Jóhannes nefndi sem dæmi að talað væri um aö álagning kaupmanna í krónutölu muni lækka vegna þess að vara lækkar vegna tolla og vöru- gjaldslækkunar og álagningin er í prósentum. Þetta mun ekki gerast því kaupmenn ætla að halda óbreyttri krónutöluálagningu. Annað dæmi nefndi Jóhannes sem er að erlendis hækka vörur bara einu sinni á ári og þá um áramót. Lang- flestar vörur sem við flytjum inn koma frá Evrópulöndum og vegna þess að dollarinn hefur verið að lækka hefur Evrópumyntin hækkað. Þegar nú þetta kemur saman Uggur ljóst fyrir aö vörurnar munu ekki lækka í verði. í besta falli munu þær verða á óbreyttu verði. Jóhannes benti á aö ef toUa- og vörugjaldslækkunin hefði ekki kom- ið til hefðu þessar vöru að sjálfsögðu hækkað í verði. „Það sem ég gagnrýni því er að fólki skuli ekki sagt satt og rétt frá. Varan lækkar ekki eins og yfirvöld hafa haldið fram og birt lista um. Síðan verður kaupmönnum kennt um allt saman,“ sagöi Jóhannes. Enn eitt dæmi nefndi hann sem er er lækkun á kjamfóðurgjaldi sem tók gildi um áramót. Sú lækkun á að verða tíl þess að svínakjöt og kjúkl- ingar eiga aö lækka í verði. Látiö hefur verið í veðri vaka að þessi hækkun komi þegar í stað til fram- kvæmda. Jóhannes sagði að aUir gætu séð hversu fiarstæðukennt það væri. Það yrði ekki fyrr en þeim dýr- um sem nú era alin á ódýrara kjarnfóðri verður slátrað að hægt er að vonast eftir verðlækkun. -S.dór Kaupmannahafnarflug: Tóf vegna vélarbilunar Mikil röskun hefur orðið á áætlun Hann sagði að fyrirgreiðsla hefði Flugleiða yfir helgina vegna bUunar verið mjög lítil á KastrupflugveUi og sem kom í ljós í DC-8 vél félagsins hefðiþaðtafiðfyrirviðgerðvélarinn- þegar hún var að undirbúa flugtak ar. Vélin var á leið til Gautaborgar úti í Kaupmannahöfn á fóstudaginn. og síðan til Keflavíkur. 50 farþegar, Að sögn Svavars Eiríkssonar, flug- sem voru á leið tU Keflavíkur, urðú umsjónarmanns hjá Flugleiðum, að dveljast í Kaupmannahöfn yfir vora farþegar komnir um borð og nóttina en leiguflugvél var fengin vélin á leið í flugtaksstöðu þegar bU- fyrir Gautaborgarfarþegana. Það tók un í mótor kom i ljós. þá um 13 tíma að komast á áfanga- „BUunin er innvortis í mótornum stað frá því þeir fóru frá Keflavík. en við þurftum að senda út varamót- _§MJ or og viðgerðarmenn," sagði Svavar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.