LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. i DV á Crufts- hundasýningunni í Lundúnum Þetta vinalega hundakyn gengur undir nafninu Kalli prúöi. Þetta er ensk- ur hundur og mjög vinsæll sem heimil- ishundur. Englendingar halda mjög upp á hundana sína og þar í landi á hundarækt sér aldagamla hefð. Árlega eru þar haldnar fjölsóttar hundasýningar og um síðustu helgi stóð ein sú frægasta þeirra í Lundúnum, kennd við Charles Crufts. Nokkrir íslendingar fóru á sýninguna. Þar á meðal var Ragnar Sigurjónsson, ljósmyndari á DV og mikill hundavinur. Hann fylgdist grannt með sýningunni og tók þær myndir sem birtast hér í opnunni. Sýningin stóð í fjóra daga og á þeim tíma komu fram á 16. þúsund hundar enda er þetta ein stærsta hundasýning sem haldin er í veröldinni. Til samanburðar má geta þess að á síðustu hunda- sýningum hérlendis hafa hundarnir ekki verið nema nokkuð á annað hundrað. Síðustu fimmtíu árin hefur Kennel, klúbbur hundaræktenda, annast Crufts-sýninguna. Þetta er virðulegt félag sem telur sér það m.a. til tekna að hundavinir úr konungsfjölskyldunni hafa sýnt þar hunda sína. Núna er hans hágöfgi Prins Michael af Kent forseti kúbbsins. Á Crufts-sýningunni koma fram fulltrúar á annað hundrað hundakynja og afbrigða. Þó söknuðu íslendingarnir þess að sjá engan hund af íslensku kyni þótt nokkrir norrænir frændur væru þar. -GK gengu ¦ fyrir dómarana Konudagsblómvendir ^ií A '-'\ \ #N\\ #"\ ^*^i^í2£ Blómasúlur Hentugar til að skipta herbergjum Opið alla daga kl. 10-19 Áburður - Mold - Fræ Plastpottar ~ Leirpottar Sjálfvökvunarker Gróórarstööin ^|ÉJ GARÐSHORN 54 við Fossvogskirkjugarð sími 40500