F 'R'É-TTASKOTI Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá I slma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýssngar - Askrift - Dreif:ng: Sími 27022 LAUGARDAGUR 20. FEBRUAR 1988. Hraðskákmótið í Kanada: ielgi komst áfram Hel Aðeins éinn íslendinganna komst áfram í 16 manna úrslitin í heims- meistarakeppninni í hraðskák sem nú fer fram í St. John í Kanada. Það var Helgi Ólafsson sem lagði Valery Salov að velli í bráðabana eftir aö staðan hafði verið 2-2 að loknum fjórum skákum. Tvær fyrstu skák- irnar í bráðabananum urðu jafntefii en Helgi lagði Salov í þeirri þriðju. Karl Þorsteinsson tapaði fyrir heimsmeistaranum Kasparov, '/i-2 'A, og átti Karl að hafa verið með unna stöðu í jafnteflisskákinni. Mar- geir tapaði á sorglegan hátt fyrir Nogueiras, 3-2,'eftir að hafa unnið tvær fyrstu skákirnar. Þeir sem komust áfram í 16 manna úrslitin voru Helgi Ólafsson, Kasp- arov, Karpov, Tal, Nogueiras, Dlugy, Wilder, Vaganian, Jusupov, Ehlvest, Georgiev, Ivanov, Spielman, Ivanow- itch, Chernin og ísraelsmaðurinn með erfiða nafnið, Dzindzichashvili. ÍS Jón Baldvin: Evropsk herstöð á íslandi? Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra viðraði í gæí hug- myndir um að Evrópubandalagið tæki að sér varnir íslands. Þetta kom fram á fundi ráðherrans með for- ystumönnum norrænna jafnaðar- mannaflokka í Svíþjóð. Jón Baldvin sagði þetta koma til greina gegn því að íslendingar fengju fríverslunar- samninga við bandalagið. Ekki komi til greina að veita löndum bandalags- ins réttindi til veiða í íslenskri lögsögu. Fjármálaráðherra vill því skipta á herstöð "Evrópuþjóða á Islandi, þar sem fylgjast má með umferð á og í hafinu, og tollfrjálsum fiskútflutn- ingi frá íslandi. -JH oteiLAsrCi ÞRÖSTUR 68-50-60 VANIR MENN LOKI Ef myndin prentast vel má greina fingrafar á húddinu! Handleggsbrotið á logregíustoöinni: Feðgamir settír af Böðvar Bragason, lögreglusrjóri í Reykjavík, ákvað í gær að leysa frá störfum tvo lögregluþjóna sem tengdust misþyrmmgunum á Sveini Jónassýni. Samkvæmt heimtídum DV eru það feðgarnir sem komu'sem mest við sögu í máttnu. Sonurirm á bö- inn sem málið snerist um og faðir- inn gekk hvað harðast fram í meðhöndluninni á Sveini, Málið fer nú til ríkissaksóknara. Þar hefur það sinn framgang og hlýtur að hafa sinn enda. Þeir eru ieystir frá störfum þar öl niður- staða fæst 1 þessu máli Þetta er gert samkyæmt logum um rétt og skyldur opinberra starfsmanna og verða þvi mennirnir áhálfum laun- um um einhvern tíma," sagði Böðvar Bragason lðgreglustjóri, Bððvar sagði að ítarlega hefði verið um málið fjallað innan lög- reglunnar. Niðurstaða þeirrar umfjöllunar hefði sem sagt verið sú að tveir. menn hefðu verið leyst- ir frá stðrfum en sagðist ekki vnja segfa öl um hverjir mennirnir væra. Böðvar Bragason lögreglustjóri hefur rætt þetta mál við dómsmála- ráðherra. Böðvar sagði að ákvörð- unin um tímabundna brottvísan væri alfarið frá sér kornin og að ráðherra hefði ekki haft nein af- skiptiafákvörðurimni. -sme LII * 'i Billinn margfrægi. Eigandinn ætlar að leggja fram bótakröfu á hendur Sveini Jónassyni fyrir að hafa unnið miklar skemmdir á vélarhlíf bílsins, eins og eigandinn segir. DV-mynd BG Kjafíháttur og písiarvottarsaga - segir annar lögregtumaðurinn sem leystur hefur verið frá storfum Það sá á bílnum og að sjálfsögðu mun ég leggja fram bótakröfu. Held- urðu að ég ætli að gefa manninum þetta?" sagði lögreglumaðurinn og eigandi bílsins sem Sveinn Jónasson hrasaði á og greint var frá í DV í gær. Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur nú leyst bíleigandann og föður hans frá störfum þar til meðferð málsins lýkur. Bíleigandinn sagði að um töluvert tjón á vélarhlíf bílsins væri að ræða. Ég get sagt þér annað, að það sem hefur komið fram í fjölmiðlum er allt tóm lygi. Þetta er bara píslarvott- ur og ekkert annað." í lok samtals DV við bíleigandann ítrekaði hann að saga Sveins Jónas- sonar væri kjaftháttur og píslarvott- arsaga sem fjölmiölar gerðu sér mat úr. -sme Sparisjóðimir lækkavexti Sparisjóðirnir hafa ákveðið að lækka vexti. Vextir almennra skuldabréfa lækka um 6%.Tnnláns- vextir lækka frá 2 til 7%. Vextir almennra sparisjóðsbóka lækka um 3%. -JH Kvosarskipulagið: Þorsteinn frestar afjgreiðslu Jóhönnu Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra óskaði eftir því við Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra í gær að hún frestaði afgreiðslu sinni á Kvosarskipulaginu til Reykjavík- urborgar. Þorsteinn vildi ekkert láta uppi um það í gær hvaða ástæða lægi að baki þessarar beiöni. Þegar þessi beiðni kom frá Þor- steini var máhð tilbúið frá hendi félagsmálaráðherra. Það kemur í ljós þegar ég afgreiði málið til borgar- innar," sagöi Jóhanna þegar DV innti hana eftir því hvort hún hefði afgreitt skipulagið athugasemda- laust eða sent það aftur til borgar- stjórnar. Jóhanna sagði að þessi ósk Þorsteins breytti engu um hennar ákvöröun. Hún sagði að afgreiðsla skipulagsins væri einvörðungu mál félagsmálaráðherra, ríkisstjórn eða forsætisráðherra gætu ekki breytt niðurstöðum hennar. Ég hef engar áhyggjur af þessu máli," sagði Davíð Oddsson borgarT stjóri í samtali við DV í gærkvöldi. Mér Uggur ekkert á að kanna það fyrr en ég mæti til vinnu á mánu- dagsmorgun." -gse 9 f% '^9^9 Veðrið um helgina: Él á Vesturlandi og bjart á Austurlandi Á morgun, sunnudag, verður suðvestanátt með éljum um landið vestanvert en bjart veður á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti um eða rétt undir frostmarki. Á mánudag verður vestan- og norðvestanátt með éljum vestan- lands og á annesjum norðanlands en bjart veður austan- og suðaustanlands.