Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1988, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1988, Blaðsíða 28
44 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988. Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 Fréttir ■ Tilsölu Nýjar prentvélar - gyllingarvélar til sölu. Hitastig 100-3000 C. Hægt að prenta á pappír, leður, plast, tré o.fl. Nánari uppl. í s. 45622 e.kl. 18, einnig i s. 652265. Furuhúsgögn Braga Eggertssonar, Smiðshöfða 13, augiýsa. Ný gerð af stækkanlegum hvítum barnarúmum ásamt hvítri hillusamstæðu nýkomin, einnig úr furu, barnarúmin vinsælu, stök skrifborð, stólar og borð. Sýning um helgina. Sími 685180. Við smiðum stigana. Stigamaðurinn, Sandgerði, sími 92-3763lög 92-37779. Þeir borga sig radarvararnir frá Hitt. Verð aðeins frá kr. 7.950. Hringdu og fáðu senda bæklinga, sendum í póst- kröfu. Uppl. í síma 656298, símsvari e.ki. 19. Hitt hf. r ■ Iwwaill F ebrúar- heftið komið út Barnavagnar, rúm, baðborð, kerrur, leikgrindur, stólar, göngugrindur, burðarrúm, bílstólar, hlið fyrir stigaop o.fl. Gott verð. Pantanir óskast sóttar. Heildsala, smásala. Dvergasteinn, Skipholti 9, II. hæð, sími 22420. "SÍMASKRÁIN NOTENDAHANDBÓK Tölvúsímaskráin, stærð 87x54x2,5 mm. Notendahandbók. Símaskráin tekur við og geymir tölur, nöfn, heimilisföng og upplýsingar í minni sínu, allt að 250 nöfn. Einnig venjuleg reiknivél. Islenskur leiðarvísir. Póstsendum. Leikfangahúsið, Skólavörðustíg 10, sími 14806. ■ Verslun Teikna fnyndir eftir Ijósmyndum, inn- römmun, handunnár gjafavörur, ýmis heilræði brennd á leður, skrautrita á kort og bækur. Þóra (vinnustofa), Laugavegi 91,2. h. City 91, sími 21955. Pearlie tannfarðinn gefur 'aflituðum tönnum, fyllingum og gervitönnum náttúrulega og hvíta áferð. Notað af sýningarfólki og fyrirsætum. KRIST- ÍN - innflutningsverslun, póstkröfu- sími 611659. Sjálfvirkur símsvari tekur við pöntunum allan sólarhringinn. Box 290, 172 Seltjarnarnes. Verð kr. 490. WENZ vor- og sumarlistinn 1988 er kominn. Pantið í síma 96-21345. Wenz-umboðið, box 781,602 Akureyri. ■ Bátar 5,5 tonna bátur til sölu, smíðaður ’74, vél 73 ha GM. Mikið endurbyggður ’86. Nýupptekin vél, nýlegur litamæl- ir, sjálfstýring og afdragari. Uppl. í síma 97-.71351. ■ BOar tíl sölu Skíðafólk - góða ferð! Þessir hentugu skíðakassar taka 5-6 pör af skíðum ásamt skóm o.fl. Gott verð. Mjög létt- ir. Hjólbarðastöðinf Skeifunni 5, símar 689660,687517. . Blazer 62 dísil, ’82, til sölu, sjálfskipt- ur, splittað drif, útvarp og segulband, CB-talstöð, lakk gott. Skipti á fólksbií á verðbilinu 300-600 þús., helst BMW, Volvo, Saab o.fl. Uppl. í síma 99-5643 eða 985-21803. Wagoneer '78 til sölu, 8 cyl., 360, sjálf- skiptur, ekinn 98 þús. km, einn eigandi, upphækkaður, ný 35" Mudder radialdekk o.fl. Verð 370 þús. Uppl. í síma 30262. Mazda 626 GTI ’87 til sölu, rauður, 5 gíra, ekinn 38 þús., verð 750 þús., skipti á ódýrari. Uppl. í síma 13037 eftir kl. 18. Toyota Corolla DX '87 til sölu, ekinn 12 þús., litur rauður, verð 485 þús. Uppl. í síma 985-27778. M. Benz 230 E ’83 til sölu, sjálfskiptur, sóllúga, ekinn 115 þús. Skipti á ódýr- ari. Uppl. í síma 99-4370. Steingnmur Hermannsson á almennum fundi: Gengisfelling um helgina Steingrímur Hermannsson utan- við að til greina kæmi að takmarka ríkisráðherra sagði á almennum fundi í Kópavogi í gærkvöldi að ef samið yrði í Garðastræti fyrir helgi yrði ríkisstjórnin að ná samkomulagi um efnahagsaðgerðir um helgina. Steingrímur sagði að ekki þyrfti að fara í felur með það að einhveijar breytingar yrðu á genginu um helg- ina ef samningar næðust. Önnur ráð til hjálpar fiskvinnslunni, sem ríkis- stjórnin hefur nú á borðinu, eru endurgreiðsla á söluskatti, niðurfell- ing launaskatts og skuldbreytingar lána. Þá nefndi Steingrímur lækkun raforkuverðs til fiskvinnslunnar og sagði að Landsvirkjun hefði stefnt að því að verða skuldlaus um alda- mótin með slíku offorsi að undir- stöðuatvinnuvegunum væri hætta búin. Steingrímur nefndi þau atriði til að slá á þenslu sem væru til umræðu í ríkisstjórninni. Hann sagðist litla trú hafa á hækkun á lántökugjaldi erlendra lána þar sem slíkt væri í raun tvöföld gengisskráning. Heldur kysi hann að takmarka erlend lán við þá atvinnuvegi er sköpuðu gjald- eyristekjur. Um innlendan lána- markað sagði Steingrímur að frumvarpsdrög Jóns Sigurðssonar um hinn svokallaða frjálsa fiár- magnsmarkað væru til bóta og bætti kaupleigu á sama hátt og erlend lán. Þá nefndi hann skylduspamað og að lánastofnanir settu fram ákveðnar kröfur um hlutfall eiginfiár hjá lán- takendum. Steingrímur sagðist mótfallinn aukinni bindiskyldu við- skiptabankanna við Seðlabanka, þó slíkt hefði verið rætt í ríkisstjórn- inni. Steingrímur upplýsti að ríkis- stjórnin væri með á prjónunum að hækka vexti á húsnæðislánum og einnig að draga úr útgáfu lánslof- orða. Þá sagði Steingrímur að nauðsynlegt væri að draga úr opin- berum framkvæmdum og nefndi þá Reykjavíkurborg sérstaklega til sög- unnar. Sérstakur fiárfestingarskatt- ur á allar nýjar framkvæmdir kæmi einnig vel til greina, að sögn Stein- gríms. Þetta sagði Steingrímur að væru allt aðgerðir sem mætti framkvæma strax og í raun hefði mátt fram- kvæma þær síðastliðið haust. Þrátt fyrir árangurinn af efnahagsaðgerð- unum 1983 væri ástandið síst betra nú. Þær aðgerðir hefðu verið dýrar en Steingrímur sagði að betra væri að reka ríkissjóð með halla en undir- stöðuatvinnuvegina. -gse Karvel Pálmason: Það falla engin gleðitár vegna þessa samnings „Það falla engin gleðitár vegna svona samnings, en miðað viö allar kringumstæður hafa menn sennilega náð því landi sem gert var ráð fyrir. Ég tel líka að ýmis réttindamál hafi náðst fram að þessu sinni,“ sagði Karvel Pálmason, varaformaður Verkamannasambandsins, í samtali við DV að lokinni undirskrift samn- inganna í nótt. - Þiö háfið talað um nauðsyn þess að leiðrétta þurfi kjör fiskvinnslu- fólks verulega, telurðu að það hafi tekist? „Það er alltaf spurning hvað er verulegt. Hitt er staðreynd að þarna er betur gert við fiskvinnslufólk en oft hefur verið gert áður. Þó tel ég að þurft hefði að gera meira fyrir fiskvinnslufólkið og raunar marga aðra líka.“ - Mun kaupmáttur aukast við þessa samninga? „Hann heldur tæpast í við kaup- máttinn frá miðju síðasta ári. Við gerðum okkur grein fyrir því að kröf- ur okkar myndu tæpast fela það í sér að viðhalda kaupmættinum," sagði Karvel Pálmason. -S.dór - sjá samningafréttir bls. 2 Jón Baldvin Hannibalsson: Efhahagsaðgerðir tilbúnar „Menn verða að átta sig á við hvaða skilyrði þessir samningar eru gerðir. Þeir snúast um að bæta kjör hinna lægst launuðu þegar útflutn- ingsatvinnuvegirnir eiga í miklum erfiðleikum. Þeir eru augljóslega gerðir í þvi markmiði að fólk fái al- vöru krónur í umslögin sín en kauphækkanirnar brenni ekki upp strax,” sagði Jón Baldvin Hannibals- son fiármálaráðherra í morgun. Um ummæli Steingríms Her- mannssonar utanríkisráðherra varðandi efnahagsráðstafanir helg- arinnar sagði Jón: „Steingrímur hefur engar tillögur lagt fram í ríkis- stjórninni. Við höfum hins vegar unnið þær og þær eru tilbúnar." Skákmótið á Spáni: Jafntefli varð hjá Nicolic og Jóhanni í þriðju umferð skákmótsins í Lin- ares á Spáni í gærkvöldi gerðu þeir Nicolic og Jóhann Hjartarson jafn- tefli í 40 leikjum. Þeir tefidu Benoní- byrjun og að sögn eins starfsmanns mótsins, sem DV ræddi við, þótti skákin fiörug. í dag verður biðskák Jóhanns og Spánverjans Illescas úr 2. umferð tefld áfram. Þeir skákmenn hér á landi, sem skoðað hafa skákina og DV hefur rætt viö, eru á því að Jó- hann sé með unna skák, alla vega mun betri stöðu. Önnur úrslit á mótinu í Linares í gærkvöldi urðu þau að skák Nunns og Timmans fór í bið. Portisch og Georgiev gerðu jafntefli, Beljavsky sigraði Chandler en skákir Mayu Chiburdanidze og Yusupov og Illesc- as og Ljubojavic fóru í bið. Beljavsky hefur þá tekið fprystu á mótinu með 2,5 vinninga. Óljóst er vegna biöskáka um röð næstu manna en Timman, Yusupov og Nunn gætu orðið jafnir honum ef þeir vinna biðskákir sínar. Fjórða umferð verður tefld á laug- ardag. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.