ÞRIDJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988. Fréttir Lenti á van- skilaskrá vegna einseyrings - fékk rukkunarbréf sem kostar 16 krónur að senda út ÆQaröuaöborgaþetta?" spurði Eva Arnþórsdóttir, gjaldkeri i lön- aðarbankanum i Lækjargötu, og ekki að furða þo að spurt væri. Örn Sigurðsson, sölustióri hjá tryggingafélagi, fékk nýlega í hend- urnar rukkun frá Iðnaðarbankan- um sem hhoðaöi uppáeinseyrings- skuld við greið^ukortaryrhtæki. Örn kippti sér ekki upp við það í fyrstu en fékk síðan ítrekun. Þeir gætu fariö aö hóta öllu illu ef maour greiddi ekM og ég hlýt að vöja borga fyrst ég skulda þetta. Annars skil ég ekki af hverju þeir eyða 16 krónum í fríraerki, auk annars kostnaðar við að senda mér þessa rukkun," sagði Örn. Örn raættí síðan galvaskur f Iðn- aðarbahkann og ætlaði að gera hreint fyrir sinum dyrum og borga með hundrað króna seöli. Var hon- um vísað frá gjaldkera og til Ónnu - Aldísar Víðisdðttur bankaritara sem felldi skuldina niður. Anna sagði að hún hefði aldrei séð annaðeins, slíkt væri venjulega fellt út og eiginlega ætti þetta ekki að geta komið fyrir. Hér hefðu orð- iö einhver mistök og þau sloppið framhjá öllu. Meö þessu fór Örn Sigurðsson einnig á vanskilaskrá sem þykir alls ekki eftirsoknarvert og getur orðið til verulegra óþæginda. Hon- um til huggunar gat þó Anna bent á að skuldaupphæðimar stæðu einnig á vanskðaskránni sem hefði sýnt fram á að hann værí ekki varasamur stórskuldari. -JFJ Á skrifstofu stuðningsmanna Vigdisar Finnbogadóttur að Garóarstræti 17 á þriöju hð hefur tclvutæknin ver- ið tekin í notkun og að sögn starfsmanna hringja 8 sím- ar látlaust. DV-mynd BG Stuðningsmenn Sigrúnar Þorsteinsdóttur eru nýbúnir að opna skrifstofu sína að Templarasundi 3 og segjast hafa ærið nóg að starfa. DV-mynd GVA Vigdis mætir ekki Sigrúnu - Dramblæti, segja stuðningsmenn Sigrúnar Við munum báöar hafa fallist á að flytja hvor mn sig 10 mínútna ávarp í sjónvarpi hinn 23. júni nk. Ég tel aö þessi ávörp séu til þess fall- in að koma málstað beggja frambjóð- enda til skila og lít svo á að ekki sé frekari þörf á að við komum per- sónulega fram í sjónvarpi." Svo hljóðar svar Vigdísar Finnbogadótt- ur, forseta íslands, við áskorun Sig- rúnar Þorsteinsdóttur um sjónvarps- einvígi þeirra tveggja sem Sigrún sendi á fóstudaginn. Stuðningsmenn Sigrúnar hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þeir segja Vigdísi neita Sigrúnu um sama rétt og hún sjálf hafði þegar hún var kjörin forseti. Segir í frétta- tilkynningunni að þetta tækifæri Vigdísar tíl að kynna sín sjónarmiö í samanburði við aðra frambjóðend- ur kunni að hafa riðið baggamuninn á þeim tíma. Síðar segir: Við spyrjum: Hvað óttast Vigdís svo mikið að hún víkur sér undan að ræða málefni kosning- anna fyrir opnum tjöldum eins pg Sigrún leggur tíl? Viðhorf Vigdísar er andlýðræðislegt og í því kemur fram dramblæti gagn- vart þjóðinni og mótframbjóðandan- um sem hæfir ekki sönnum lýðræð- issinna." f fréttatilkynningunni segir að Sigrún sé ekki að bjóða sig fram gegn forsetaembættinu heldur gegn Vig- dísi Finnbogadóttur og kosningar í lýðræðisríki séu á milli jafningja. Þjóðin þekki störf Vigdísar sem for- seta en sé lítt kunnug viðhorfum hennar til lýðræðisákvæða stjórnar- skrárinnar en um þau ákvæöi snúist kósningarnar. I lokin er skorað á þjóðina að styðja áskorun Sigrúnar um sjónvarpseinvígi. Þann níunda þessa mánaðar vor- um við fulltrúár beggja framþjóð- enda, ég og Áshildur Jónsdóttir, boð- aðir á fund hjá ríkissjónvarpinu þar sem okkur voru kynnt drög að þeirri kynningu sem sjónvarpiö ætlaði að hafa fyrir forsetakosningarnar. Þar var þetta ákveðið og annað stóð ekki til boða. í svari forseta til Sigrúnar kemur það fram sem segja þarf. í. ávörpum framþjóðendanna mun málstaðurinn koma fram. Okkur var boðin þessi dagskrá, hún var sam- þykkt af báðum aðilum og fleira er ekki um þetta að segja," sagði Jón Bjarman á skrifstofu stuðnings- manna Vigdísar Finnbogadóttur. -JFJ Foreldrar í Ölduselsskóla: Telja sér misboðið Við samþykktum á fundinum í gær ályktun sem við munum senda fjölmiðlum, menntamálaráðherra og fræðsluráði. Þar mótmælum við þeirri afgreiðslu menntamálaráð- herra að ráða Sjöfn Sigurbjörnsdótt- ur eftir að foreldrar höfðu látið í tíós það áht sitt að þeir vildu að Daníel Gunnarsson hlyti stööuna," sagði Sigrún Helgadóttir. I gær hélt fulltrúaráð foreldrafé- lags Ölduselsskóla fund þar sem fjall- að var um skipun Sjafnar Sigur- björnsdóttur í starf skólastjóra skól- ans. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem segjr meðal annars að foreldrar tehi sér stórlega mis- boðið þegar skólastjóri er ráðinn í trássi við óskir foreldra 92,3% barna skólans. Er jafnvel dregið í efa að fræðsluráð hafi fjallað um máhð á faglegan hátt. Segir í ályktuninni að hluti af fag- legri umfjöllun sé að kanna aðstæður í Olduselsskóla en þar hafi skapast sérstætt umhverfi sem erfitt sé að lýsa formlega. Foreldrar skynji þó að börnunum líði vel, þau nái góðum námsárangri í prófum, fiosni ekki upp frá námi og leggi metnað sinn í að vera skóla sínum til sóma. Þetta er sagt vera flókið samspil nemenda, kennara og foreldra og ekki megi miklu muna til þess að það raskist. Er að lokum lýst áhyggjum foreldra og ábyrgð á hendur fræðsluyfirvöld- um að hrófla við skólastarfinu sem geti haft alvarlegar afleiöingar í svo nýju hverfi sem Seþ'ahverfi. -JFJ Ólatur Ragnarsson einn eigenda tívolísins: Var blekktur til samstarfs Sigurður Kárason blekkti mig til samstarfs um áramótin 1986 og 87. Þegar ég gekk til liðs við Skemmti- garðinn hf. lágu ekki fyrir ársreikn- ingar undirritaðir af endurskoðanda. Mér var sýndur skuldalisti sem reyndist rangur svo munaði tugum milljóna," sagði Ólafur Ragnarsson, einn af eigendum tívolígarðsins í Hveragerði, í samtah við DV. Það er ekki rétt aö ólóglega hafi verið boðað til aðalfundarins síðast- liðinn föstudag. Ég fékk aðstoð við- skiptaráðuneytisins samkvæmt 70. grein hlutafélagalaga til aö boöa til fundarins. Baldur Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður var skipaður til að boða til aðalfundar fyrir työ siðastliðin ár og sfjórna honum. Ég hafði áður ítrekað reynt að fá Sigurð Kárason til að leggja fram ársreikn- inga fyrir 1986. Hann lofaði því stöð- ugt en sveik það jafnharðán. Baldur Guðlaugsson lagði fram rökstuddan úrskurð á aðalfundinum um eignar- hluta hvers hluthafa. Ég á 50% og einn félagi minn á 1%. Ég ræð því yfir meirihluta í fyrirtækinu. Hús- eignirnar eru alfarið mín eign. Sigurður Kárason hafði ekki feng- ist til að halda aðalfundi fyrir 1986 og '87. Það er mikp bókhaldsóreiða hjá fyrirtækinu. Ég vildi áður að gripið yrði til greiðslustöðvunar eða annarra ámóta aðgerða svo hægt yrði að endurskipuleggja fjárhag fyr- irtækisins. Það féllst Sigurður Kára- son ekki á. Eftir að ég var kosinn stjórnar- formaður á aðalfundinum gekk Sig- urður Kárason og hans félagar af fundi. Hann fékk síðan rafvirkja til að loka fyrir rafmagnið. Þetta eru ólögmætar aðgerðir sem stórskaða þennan æ-stíðabundna og viðkvæma rekstur. Ég vinn að því af heilum hug að opna tívolíið hið fyrsta," sagði Ólafur Ragnarsson, stjórnarformað- urSkemmtigarðsins hf. í Hveragerði. Ólafur sagði einnig að hann hefði farið í útburðarmál vegna þess að hann hefði ekki fengið eina krónu greidda í húsaleigu frá áramórum og eins til að eyða óvissu sem verið hef- ur milli hluthafa. Ólafur sagði enn- fremur að hugsanlega myndi hann óska eftir greiðslustöðvun til aö fá ráðrúm til endurskipulagnmgar. Ólafur sagðist neita að hafa nokk- urn tíma farið inn í tívolíið að nætur- lagi. Hann sagðist hafa mætt klukk- an níu einn morguninn og farið inn í sitt eigið hús. Þá hefði verið gert samkomulag, fyrir tílstillli fulltrúa sýslumanns, sem þegar væri búið að brjóta. -sme Hilmar Jónsson stortempíar: Rógburður um forystu- menn Stórstúkunnar - mun þar eiga við stúkublaðið Einherja Ég ætla ekki að segja hvaða blöð er átt víð innan okkar raða. Þetta er innbyrðiságreiningur og ég stend við það sem ég segi," sagði Hilmar Jóns- son stórtemplar í samtah við DV í morgun um ummæli þau er hann hefur látið hafa eftir sér um ágrein- inginn en þau voru m.a. þessi: Jafhvel eru gefin út blóð innan okkar raða þar sem einstakir reglu- menn og forystumenn hreyfingar- innar eru lagðir í einelti með róg- burði og ósannindum." Samkvæmt heimildum DV mun hér vera átt við stúkublaðið Ein- herjann sem gefið er út innan sam- takanna. En þar munu vera nokkrir stjórnarandstæðmgar Hilmars á ferð. Þessi ummæli Hilmar koma í kjól- far árskýrslu samtakanna þar sem ráðist er á marga kanta mannlífsins. -Gkr Bæjarrftarinn í Njarðvík rekinn: Segjum ekkert Þetta er ekki blaðamál. Þetta mál er einungis bundið við þennan stað. Málið er þannig vaxið og snertir ákveðinn mann. Það eru samantekin ráð hjá okkur að láta ekkert hafa eftir okkur um þetta mál," sagði Guðjón Sigurbjörnsson, fulltrúi bæj- arsrjóra í Njarðvík, um fyrirvara- lausan brottrekstur Sigurðar Gunn- ars Olafssonar bæjarritara. Hann sagði'ennfremur að fullyrðingar þær sem birtust um þetta mál í síðasta tölublaði Reykjanessins væru rang- ar. DV hafði einnig samband viö Sig- urð Gunnar og sagðist hann ekM vilja ræða málið á opinberum vett- vangi. -GKr Anna Jóna Jónsdóttir. Konan sem lést í Skúlagötuslysinu Konan, sem lést í umferðarslysinu á Skúlagötu aðfaranótt laugardags, þegar drukkinn ökumaður á stolnum bíl ók framan á bfl, sem hún og eigin- maður hennar voru í, hét Anna Jóna Jónsdótttr, 31 árs, fædd 2. júh 1956, til heimilis að Ásvaflagötu 15 í Reykjavik. Anna Jóna var þekkt í leiklistarlífi borgarinnar en hún starfaði sem búningahönnuður. Eiginmaður hennar, Jóhann Sigurðarson leikari, skarst mikið á fótum í slysinu og Ugg- ur á sjúkrahúsi. 10 ára gamall sonur Önnu var er- lendis þegar slysið varð. Hann kom til landsins í gær. -JGH