Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Blaðsíða 1
Ustahátíðarauki í Laugardalshöll:
Leonard Cohen
I kvöld býöur Listahátíð 1988 til
sérstaks listahátíðarauka sem eru
tónieikar kanadíska tónlistar-
mannsins og rithöfundarins Leon-
ards Cohen í Laugardalshöll. Meö
honum á tónleikunum verður átta
manna hljómsveit.
Ljóðskáld og rithöfundur
Leonard Cohen innleiddi sígildan
skáldskap inn í rokkheiminn með
fyrstu plötunni sinni, Songs of
Leonard Cohen, sem kom út árið
1967. Hann var þá þegar viðurkennt
skáld og talinn ein bjartasta vonin
í kanadískum bókmenntum.
Hann lauk bókmenntanámi við
McGill háskólann í Montreal árið
1955 og var rétt tvítugur þegar
fyrstu ljóðabækurnar, Let Us
Compare Mythologies, The Spice-
Box og Earth, komu út. Þær vonir,
sem bundnar voru við hann, rætt-
ust svo meö útkomu skáldsagn-
anna The Favorite Game árið 1963
og Beautiful Losers árið 1966.
Hjólin taka að snúast
Þaö var þó ekki fyrr en hann fór
að semja lög við ljóðin sín að hjóhn
tóku að snúast og lög eins og Suz-
anne og So Long Marianne færðu
honum heimsfrægðina. Sjálfur seg-
ir hann að tónlistin hafi alltaf búið
að baki orðanna enda mikill áhuga-
maður um tónlist frá unga aldri.
Með tíu manns til aðstoðar
Leonard Cohen er nú nýbúinn aö
senda frá sér sína tíundu hljóm-
plötu, I’m Your Man, og í sumar
fylgir hann henni eftir með 50 tón-
leikum í Evrópu. Hljómsveitina,
sem spilar og syngur með honum,
skipa: Bob Furgo hljómborös- og
fiðluleikari, Bob Metzger gítarleik-
ari, Steve Meador trommuleikari,
Stephen Zirkel, sem leikur á bassa.
hljómborð og trompet, John Bilez-
ikjian, sem leikur á oud og mandól-
ín, Tom McMorran hljómborðs-
leikari og að lokum söngkonurnar
Perla Batalla og Julie Christensen.
En allt þetta tónhstarfólk er frá
Bandaríkjunum.
Stæði seld við inngang
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl.
21.00. Uppselt er fyrir löngu í öll
sæti en ákveðið hefur verið að selja
500 miða í stæði. Verða þessir mið-
ar eingöngu seldir við innganginn
og hefst salan tveim tímum fyrir
tónleikana eða kl. 19.00.
Enn er möguleiki að komast á iónleika Leonards Cohen í Laugardalshöll.
Grilluð
sjó-
bleikju-
flök
- sjá bls. 18
Norður-
landa-
mót í
bridge
- sjá bls. 19
íþróttir
helgar-
innar
- sjá bls. 31
Bat-
Yosef
1 F.Í.M.
- sjá bls. 20
s' B
Göngudagurinn er orðinn sannkallaður útivistardagur fjölskyldunnar.
Göngudagur fjölskyldunnar
- um allt land
Um helgina, á laugardag og sunnu-
dag, munu Ungmennafélag íslands
og Bandalag íslenskra skáta gangast
fyrir göngudegi íjölskyldunnar.
Vegna forsetakjörs á laugardag
verða nokkur félög með gönguna á
sunnudag 26. júní. Slíkt verður aug-
lýst sérstaklega á viðkomandi stöð-
um.
Þessi dagur hefur verið árviss við-
burður hjá ungmennafélögunum frá
árinu 1979. Á síðasta ári tók Banda-
lag íslenskra skáta þátt í framkvæmd
dagsins í fyrsta sinn og tókst það
vel. Svo verður einnig nú. Fram-
kvæmdin er í höndum ungmennafé-
laga og skátafélaga á hverjum stað
en landssamtökin sjá um sameigin-
legan undirbúning og kynningu og
viðurkenningu fyrir þátttöku í
göngunni.
Mikil þátttaka
Á síðasthðnu ári tóku á milli fimm
og sex þúsund manns þátt í göngu-
degi fjölskyldunnar. Þátttakan hefur
fariö sívaxandi frá ári til árs og hefur
margur maðurinn hafiö fastar
gönguferðir í framhaldi af göngudeg-
inum. Almennt taka gönguferðirnar
tvo til sjö tíma.
Kappkostað er að vanda valið á
leiösögumönnum sem þekkja vel
staðhætti. Þannig veröur reynt að
gera gönguna sem forvitnilegasta þar
sem lýst verður örnefnum, helstu
kennileitum og merkilegum atburð-
um er tengjast hinum ýmsu svæðum.
Mörg félög hafa verið með ýmiss
konar uppákomur á göngudeginum.
Þar má nefna grihveislur, fjölskyldu-
leiki og er göngudagurinn því víða
orðinn sannkallaður útivistardagur
fjölskyldunnar.
Ný kvik-
mynd um
Chuck
Berry
- sjá kvikmyndir
bls. 30
Heillaður
af fima-
stórum
fjöllum
! - sjá bls. 20
Blöðrum
sleppt
í loftið
- sjá bls. 19
Horft til
kristni-
töku-
afmælis
- sjá bls. 19