Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Blaðsíða 2
0 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988. Fréttir Niðurfærslan er mjög erfið í framkvæmd: Kemur til greina að fella gengið samhliða niðurfærslu - segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar ..Þaö er mögnlegt aö stefna að hálf- urn árangrinum meö niðurfærsluleið og hinum helmingnum nteö gengis- fellingu. eöa uppfærsluleið. Þetta er nteðal annars það sem við erum að skoða og reikna út." sagði Þórður Friðjónsson. forstjóri Þjóðhagsstofn- unar. Þrátt fyrir að rikisstjórnin og ráð- gjafarnefnd hennar kanni nú niður- færsluleiðina gaumgæfilega er enn margt sem mæhr gegn því að hún verði farin. Það er ekki tilviljun að allar ríkisstjórnir hafi hafnað henni hingað til. Hún hefur aðeins einu sinni verið reynd. árið 1959. þegar framundan voru tvennar kosningar og stórfelldir efnahagsörðugleikar. Þegar viðreisnarstjórnin tók við að kosningunum loknum var þessari leið hafnað og gengið fellt. Það er því hvorki hægt að segja að niðurfærslan þá hafi tekist né mistekist. ..Kostir niðurfærsluleiðarinnar era þeir að það er hægt að ná skjótum árangri gegn verðbólgu ef vel tekst til. Ókostirnir eru hins vegar þeir að þessi leið er ákaflega torfarin í fram- kvæmd. Þó að það sé gefin út tilskip- un um lækkun launa er ekki víst að laun verði lækkuð nema hjá tak- mörkuðum hópi launþega. Þó mark- aðslögmál ráði sjálfsagt alltaf launa- kjörurn hjá einhverjum hluta laun- þega þá má gera ráð fyrir að torveld- ara verði að lækka laun þessa hóps beint heldur en rýra kaupmátt þeirra í gegnum gengisfellingu. Sömuleiðis er ákaflega erfitt að færa niður verð- lag. Það eru til í landinu birgðir af innflúttri vöru og það er ekki einfalt mál að lækka verð á þeim, svo tekið sé einfalt dærni. Árið 1959 vora nið- urgreiðslur stórlega auknar. Annað vandamál varðandi niðurfærsluleið- ina eru kaup- og verksamningar. Fjölskylda. sem er að kaupa íbúð og hefur gert kaupsamning í föstum krónum, getur átt í erfiðleikum með að kljúfa þessi kaup. Þó laun og verð- lag lækki þá lækkar samningurinn ekki. Sömu sögu er að segja af verk- samningum. Þeir samningar, sem gerðir voru fyrir niðurfærslu, verða mjög hagstæðir verktakanum og á sama hátt óhagstæðir verkkaupan- um. Svona mætti lengi telja. Það era mörg atriði framkvæmdalegs eðhs sem era afskaplega erfið í niður- færslunni. Það er náttúrlega skýr- ingin á því að stjórnvöld hafa ekki farið þessa leið hingað tiL,“ sagði Þórður Friðjónsson. Meðal þess sem er til skoðunar nú er hversu langt stjórnvöld geti gengið til þess að minnka áhrif niðurfærslu- leiðarinnar á kaup- og verksamn- inga. Slíkar aðgerðir gætu hæglega stangast á við ákvæði stjórnarskrár- innar um eignarrétt og verndun hans. Meðal annars af þessum sök- um stendur margt í veginum fyrir því að hægt verði að leysa allan þann vanda sem viö er að glíma með niður- færsluleiðinni. Það er því jafnframt til skoðunar að nýta hluta af báðum leiðunum, niðurfærslu og gengisfell- ingu. Þórður sagðist ekki muna neitt dæmi þess að niðurfærsluleið hefði verið farin í löndum sem hafa sam- bærilegt efnahagslíf og á íslandi. -gse Arsafmæli Kringlunnar: Sumir duttu í lukkupottinn - og komu ríkari úr verslunarferöinni Kringlan átti ársafmæli um helg- ina. Zóphanias Sigurðsson, tækni- stjóri Kringlunnar, sagði að af- mælisdagskráin hefði tekist mjög vel. Um 35 þúsund manns komu á föstudag og laugardag í Kringluna. Atriðin á dagskránni voru fjöl- mörg. Hafnfirska blásarasveitin lék og gömludansahljómsveitin Neistar lék danslög fyrir eldri kyn- slóðina. Blöðrar, sirkus og ofur- hugar styttu gestum stundir. Fyrirtæki í Kringlunni gáfu af- slátt af vöruverði í tilefni dagsins og ýmis kynningarstarfsemi var í gangi. íshöllin opnaði einn stærsta ísbar í heimi og bauð gestum að bragða á nýjum jógúrtis. Ferðaget- raunir, peningavinningar og ýmiss konar lukkupakkar urðu til þess að margir viöskiptavinir komu fjáðari úr verslunarferðinni en þegar þegar þeir lögðu af staö. -EG Skákþing Islands hafið: Stuttar og snarpar skákir Fymsta umferð á skákþingi ís- lands hófst í gær í Hafnarborg í Hafnarfirði. Leiknar voru sex skákir sem allar voru stuttar og snarpar og leikjafjöldi á bilinu 32-37. Ekkert var gefið eftir enda til mikils að vinna því sigurvegar- inn fær 130.000 krónur í sinn hlut. Sá sem lendir í öðru sæti fær 90.000, sá þriðji fær 50.000, en alls fá 8 efstu menn vinning. í fyrstu umferð urðu úrslit þessi: Hannes Hlífar Stefánsson - Ágúst Sindri Karlsson 1-0 Jón L. Ámason - Róbert Harðarson 1-0 Þröstur Þórhallsson - Þráinn Vig- fússon 1-0 Karl Þorsteins - Ásgeir Þór Árna- son 1-0 Jóhannes Ágústsson - Davíð Ólafs- son Ví-'A Margeir Pétursson - Benedikt Jón- asson 1-0 Önnur umferð skákþingsins hefst klukkan 18.00 í Hafharborg en alls veröa tefldar ellefú umferðir. JFJ Gudmundur Arni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, leikur fyrsfa leik- inn á skákþingi íslands fyrir Margeir Pétursson, handhafa meistaratitils- ins. Mótherji Margeirs I fyrstu umferð var Benedikt Jónasson en hafði ekki erindi sem erfiði. DV-mynd JAK Stór hópur barna tók á móti forseta Islands, frú Vigdisi Finnbogadóttur, við komu hennar til Siglufjarðar í tilefni af 70 ára afmæli kaupstaðarins. Stúlk- an, sem færði forsetanum blómvönd, varð fyrir nokkrum vonbrigðum. „Þetta er bara venjuleg kona,“ sagði hún þegar hún sneri aftur til hópsins. DV-mynd Guðmundur Daviðsson Siglufiaröarkaupstaöur sjötugur: Afmælisgestimir skiptu hundruðum Um helgina vora sjötiu ár liðin síð- an Siglufjarðarkaupstaður fékk kaupstaðarréttindi. Bæjarbúar minntust afmælisins með ýmsum hætti. Hæst bar komu forseta ís- lands, frú Vigdísar Finnbogadóttur. Forsetinn flutti ræðu í Siglufjarðar- kirkju. Þá vora einnig meðal gesta menntamálaráðherra, Birgir ísleifur Gunnarsson, og Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra. Bæjarsjóði var afhent afmæhsgjöf, fjárhæð sem var þrjár milljónir króna, sem nota skal til uppbyggingar á skíðalyftu. Eins og menn muna misstu Siglfirðingar skíðalyftu sína í snjóflóðum síðastliðinn vetur þannig að þessir peningar voru kærkomnir. Meðal annars var haldið kaffisam- sæti í stóra tjaldi. Þar gátu bæjarbú- ar og gestir fengið kaffi og með því. Þá var efnt til hátíðarkvöldverðar á hótelinu þar sem forseti og ráðherrar vora heiðursgestir. Að honum lokn- um var dansgólfið rýmt og bæjarbú- ar skemmtu sér við dans fram eftir nóttu. Knútur Jónsson bæjarritari taldi bæði Siglfirðinga og gesti hafa skemmt sér vel á þessum afmælis- degi og sérlega ánægjulegt hafi verið að fá burtflutta Siglfiröinga í heim- sókn. Þeir skiptu hundraðum sem heimsóttu Siglufjörð á afmælinu. -EG Jón Baldvin ósammála Þórði „Ég er ekki sammála Þórði. Ég er þeirra skoöunar aö það sé tæknilega óframkvæmanlegt að fara bæði niöurfærslu- og upp- færsluleið,“ sagöi Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra. - Hvers vegna? „Ég vil fyrst heyra rökin fyrir því hvers vegna menn vilja grípa til tveggja aðgerða sem hvor um sig fer í öfúga átt við hina.“ - Þú vilt þá meina að niðurstað- an yrði núll? „Já.“ -gse Stjómarherínn nær Kunduz á ný Þegar DV var að fara í prentun í morgun bárast fréttir af því að stjómarherinn í Afganistan heföi náð höfuðborg Kunduz-héraðs á sitt vald á nýjan leik. Skæruliöar börðust fyrir því að ná borginni á sitt vald þegar Sovétríkin fluttu herlið sitt á brott úr héraðinu og í gær viðurkenndi yfirmaður so- véska heraflans að borgin væri fallin. Najibullah, forseti Afganistan, til- kynnti svo í, morgun að stjómar- herinn hefði á ný náö yfirráöum í borginni. Bridge í Búlgaríu: 17. sæti af 21 Evrópumóti yngri spilara í bridge lauk nú um helgina með sigri Frakka. íslensku strákamir hófnuðu í 17. sæti af 21 en fyrirfram var ekki búist við að liðið myndi blanda sér í toppbaráttuna. Lokastaðan í keppn- inni varð þannig að Frakkar urðu efstir með 398 stig, ítalir í öðru sæti með 393, Norðmenn 388, Svíar 378, Grikkir 360,5 og Pólverjar í sjötta sæti með 348 stig. Reykjavík í gær: Sjö olvaöir við akstur í gær tók lögreglan í Reykjavík sjö ökumenn fyrir meinta ölvun við akstur. Sex ökumenn vora teknir fyrir að aka of hratt. Þá urðu sex árekstrar í Reykjavík í gær og einn útafakstur. Engin slys urðu á fólki. -sme Sjóður til að- stoðar ungum söngvuram Áttatíu og sex ára gamall Vest- ur-íslendingur, Anna Nordal að nafni, hefur gefið veglega upp- hæð til styrktar efnilegum söng- nemendum á íslandi. Anna Nordal er fædd í Kanada og eru foreldrar hennar Lárus og Rósa Nordal. Hún byrjaði aö læra söng á yngri árum en varð að hætta sökum efnaleysis. Með stofnun sjóðs, þar sem 15.000 kanadiskir dalir (um 570 þúsund íslenskar krónur) era stofnfram- lag, vonast Anna til að geta stutt við bakið á efnalitlum söngnem- endum hér á landi. Sjóöurinn verður ávaxtaður eins og best þykir og munu síöan veittir styrkir úr honum sem samsvara ársvöxtum. Að sögn Júlíusar Viflls Ingvarssonar, sem ásamt Kristni Hallsyni er i sjóð- sfjórn, mun þetta vera fyrsti sjóð- urinn, gefmn af einkaaðila, sem hefur að markmiði að aðstoða unga söngvara. -EG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.