Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 192. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						10

FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988.

Utlönd

Stjóm Sósíalistaflokksins

í Burma riðar til falls

Stjómvöld í Burma hafa látið und-

an þrýstingi íbúa landsins og til-

kynnt að löggjafarþingið muni koma

saman til sérstaks neyðarfundar 12.

september til að ákvarða hvort leggja

eigi framtíð einræðisstjómar sósía-

listaflokksins í hendur almennings.

Ef þingið ákveður að láta fara fram

þjóöaratkvæðagreiðslu um tillögur

um fjölflokkakerfi yrði hún að öllum

líkindum haldin í október. Maung

Maung, nýsettur forseti, sagði í gær

að tæki almenningur þá ákvörðun

að fjölflokkakerfi skyldi tekið upp

færu kosningar fram eins fljótt og

auðið væri.

Þrátt   fyrir   þessar   yfirlýsingar

stjómvalda telja margir fréttaskýr-

endur að stjórnvöld hafi e.t.v. tekið

of seint við sér. Róstur héldu áfram

í landinu í morgun og allsherjarverk-

fall lamar allt atvinnulíf í Rangoon,

höfuðborginni. Mótmælendur krefj-

ast tafarlausrar afsagnar ríkisstjóm-

arinnar -og að Sósíalistaflokkurinn

verði leystur upp.

Einræði í aldarf jóróung

Burma hefur verið undir einræðis-

stjóm Sósíalistaflokksins frá því í

mars árið 1962 þegar Ne Win steypti

borgaralegri stjóm U Nu forsætis-

ráðherra. Frá því landið fékk sjálf-

stæði frá Bretum, árið 1948, og þar

Á Bakkastæði við

Tryggvagötu kostar

klukkutíminn 30 kr.

og40 kr. í Kolaporti.

Á Tollbrú kostar

hálfur dagur 80 kr.

og heill dagur 150kr.

Bítastæðasjóður

Reykjavíkurborgar

Mótmæli í Burma héldu áfram í morgun. Þessir stúdentar mynda með sér orðið lýðræði þar sem þeir mótmæla

einræöi sósialista í Rangoon, höfuðborginni.                                                   .                                        Símamynd Reuter

til herinn tók völdin í sínar hendur

ríkti þingræði í landinu. U Nu var

forsætisráðherra nærfellt allan tífn-

ann en vaxandi óánægja með stjórn

hans leiddi til þess að Ne Win tók

við og sat við völd í 26 ár.

Þremur mánuðum eftir valdatök-

una stofnaði herinn Sósíalistaflokk

Burma og bannaði alla aðra stjórn-

málaflokka. Árið 1974 var samþykkt

stjómarskrá landsins sem enn er í

gildi og samkvæmt henni er flokkur-

inn einráður.

Sósíalistaflokkurinn undir forsæti

Ne Win lofaði „búrmönskum sósíal-

isma", að mestu leyti grundvölluðum

á búddatrú. Sósíalismi í Burma hvet-

ur til sameignarskipulags þjóðfélags-

ins og baráttu almúgans gegn kapít-

alisma. En heimspekin að baki hon-

um er byggð á búddatrú; óstöðug-

leika og breytileika.

Stjómvöld í Burma hafa lagt

áherslu á að halda sósíalismanum í

landinu aðskildum frá marxisma og

segja að hið besta úr marxisma skuli

tekið upp í Burma. Æðsta valdið er

í höndum löggjafarsamkundu sem

ráða skal ríkjum í nafni fólksins.

Forsetinn er æðsti maður landsins

og í stjórnartíð Ne Wins gegndi hann

bæði embætti forseta og flokksfor-

manns. í hans höndum var því vald-

iö.

Sósíalisminn í landinu er einráður.

Allt efnahagslíf er þjóönýtt og fjöl-

miðlar voru teknir í þjónustu ríkis-

ins. Þó að ekki sé um samyrkjubú

að ræða í landbúnaði eiga bændur

engra annarra kosta völ en að selja

ríkinu afurðir sínar.

Burma var eitt sinn meðal ríkustu

þjóða Asíu. Vegna ósrjórnar og ein-

angmnar í tíð Ne Wins er það nú

talið meðaí þeirra vanþróuðustu

samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu

þjóöanna. Árstekjur íbúanna voru

670 dollarar árið 1960 en í fyrra voru

HALFAN MANUÐ

SPORTBÍLL OG SPÍTTBÁTUR

þær 197 dollarar. Erlendar skuldir

Burma eru nú taldar nema þremur

milljörðum dollara.

Einangrun landsins er nær alger.

Landamærin eru lokuð og samskipti

við nágrannaríkin lítil sem engin.

Stjómvöld hafa haldið sig utan póli-

tískrar baráttu stórveldanna en

haldið góðum tengslum við Kína.

Fréttaskýrendur telja að samband

Burma og Kína hafi kólnað á fyrri

hluta þessa áratugar vegna stuðn-

ings Kínverja við kommúnista í

Burma en sá stuðningur hefur smám

saman minnkað.

Hið ríkjandi þjóðarbrot í Burma

eru Burmar. Þeir em taldið um 70

prósent ríflega 38 milljóna íbúa. Hin

þrjátíu prósentin eru margs konar

önnur þjóðarbrot sem alla tíð hafa

barist fyrir sjálfstæði. í norðri ráða

kachinar, vesturhlutinn er að mestu

byggður chin- og arkenese-ættbálk-

unum, í suðri eru shanar og karenar

byggja suðausturhlutann.

Burmar eru ráðandi í stjórnmálum

en í flestum ríkisstjórnum síðan

sjálfstæði var lýst yfir hafa setið full-

trúar minnihlutahópa. Flestir íbú-

anna eru búddatrúar en nokkrir

minnihlutahópanna eru ýmist

kristnir eða múhameðstrúar.

Stjórnarandstaða minnihlutahóp-

anna, s.s. sjálfstæðishreyfing kac-

hena og frelsisher karena, hefur ekki

ógnað einræði sósíalista svo orð sé á

gerandi. Kommúnistar og stjómar-

hermenn hafa marga hildi háð en

hernum hefur ekki tekist að brjóta á

bak aftur andstöðu kommúnistanna.

Það eru stúdentar og munkar sem

borið hafa hitann og þungann af

þeim róstum sem geisað hafa i

Burma mestan hluta þessa árs. Báðir

þessir hópar eiga að baki langa sögu

mótmæla gegn einræöi sósíahsta en

það er ekki fyrr en nú að þeir virð-

ast hafa náð undirtökunum. Tveir

leiðtogar landsins hafa sagt af sér

embætti og ríkisstjórn þess þriðja,

Maung Maung, riðar nú til falls.

Mótmælin í Burma hófust fyrir al-

vöru í désember þegar hluti gjald-

miðils landsins, kyat, var lagður nið-

ur. Æ meira fór að bera á kröfum

um aukið lýðræði og bætt lífskjör og

í mars á þessu ári brutust út blóðug

uppþot. Mótmælin breiddust fljótt

úi og vom barin niður af óeiröalög-

reglunni undir stjórn Sein Lwin sem

síðar var útnefndur forseti. Mörg

hundruð manns létu lífið og Ne Win,

þáverandi forseti, sagði af sér.

Sein Lwin tók við af Ne Win 26.

júlí sl. og hélt völdum í átján daga.

Hann kom á herlögum í landinu og

hermenn og lögregla reyndu án ár-

angurs að berja almenning til hlýðni.

Tahð er aö a.m.k. þúsund manns

hafi fallið í valinn.

Maung Maung, sem tók við af Lwin

nú fyrr í ágúst, lofaði úrbótum. Hann

setti á laggirnar nefnd til að kanna

vilja almennings, lofaði að létta ein-

ræði ríkisins á efnahagslífinu og að

ferðafrelsi yrði rýmkað. í gær beygði

stjórnin sig svo loks fyrir kröfum

íbúanna og lofaði að kanna hvort

vilji væri fyrir fjölflokkakerfi.

Fréttskýrendur telja aö stjómvöld

hafi e.t.v. tekið of seint við sér. Bar-

áttuvilji fólksins hefur aukist og það

vill láta einræði sósíalista lokið. En

margir óttast að stjórnleysi fylgi í

kjölfarið ef einræðinu verður aflétt

strax. Stjómarandstaðan á engan

sameiginlegan leiðtoga. Aung Gyi,

einn helsti andófsmaður landsins,

sem látinn var laus úr fangelsi í

gær, er talinn Mklegur til að taka við

þvíhlutverki, að áliti fréttaskýrenda.

Annar hugsanlegur stjórnarand-

stöðuleiðtogi er Aung San Suu Kyi.

Samvinna þeirra tveggja er talin

óhugsandi.

Bengal-

fflói

Rangoon

Landamæri Burma hafa verið lokuð

frá því að sósialistar komust til valda

fyrir 26 árum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48