FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988. 13 Lesendur Lesandi hefur áhyggjur af þvi að bjórdrykkjumenn koml til með að van- meta styrkleika bjórsins og keyri bíl eftir nokkra bjóra. BJórinn og bílstjórarnir Adda hringdi: Hvernig er það, mega menn nokk- uð setjast undir stýri og keyra þegar þeir hafa drukkið bjór? Svarið hlýtur að vera nei en það þyrfti að brýna þessa hluti vel fyrir fólki nú áður en byrjað verður að selja bjórinn hér á landi. Nú nálgast það að hægt verður að fá bjórinn hér og hef ég miklar áhyggjur af því. Bjórinn hefur verið bölvaldur víða um heim og reyndar alls staðar þar sem hann er seldur. Alveg er ég viss um að fólki, sem búið er að drekka 1-2 bjóra, kemur til með að fmnast það lítið mál að setjast upp í bíl og keyra af stað. Ég er hrædd um að fólk vanmeti styrk- leika bjórsins og finnist það bara hafa verið að drekka gos. Þetta er hræðileg tilhugsun og verður að byrja strax í dag að vara fólk við þessu. Ég bý á stað þar sem oft verða al- varleg umferöarslys og er ömurlegt að verða vitni að þvílíku fyrir framan gluggann sinn. Ennþá ömurlegra verður lífið hjá þeim sem lendir í slíku. Hingað til hef ég verið stolt af því að vera íslendingur og getað stært mig af því að hér sé enginn bjór seld- ur. Nóg er nú áfengisbölið samt. Það er skylda okkar allra að taka á þess- um vanda sem við munum upplifa samfara bjórnum. Mikið er ég hrædd um að þetta stressaða þjóðfélag okk- ar komi ekki til með að þola bjórinn. Hátt verðlag á Blönduósi Húsmóðir á Blðnduósi hringdi: Ég bý á Blönduósi og er orðin dálít- ið leið á því háa verðlagi sem hér er. Vissulega eru allir, alls staðar af landinu, að kvarta undan háu verðlagi en það er alltof hátt hér úti á landi. Tökum sem dæmi gos. Einn og hálfur lítri af kóki kostar tæpar 130 krónur út úr búð hér en um 100 krón- ur út úr búð í Reykjavík. Kókið er svo enn dýrara í söluturnum. Hér áður, þegar maður krafðist skýringa, var svarið sem gefið var að það væri svo dýrt að flytja glerflöskurnar út á landsbyggðina. En nú er öldin önnur, allt gos í plastbrúsum eða áldollum þannig að varla er hægt að skýra þennan mikla verðmun enn með því. Einnig hafa gjöld á leikskóla hækk- að óeðlilega mikið hér að minu mati. Ég er með barn 4 klst. á dag í leik- skóla og borga 4.800 krónur á mán- uði sem er helmingi hærra en á sama tíma í fyrra. Er þetta eðlileg hækkun og hvað kostar leikskólapláss í Reykjavík? Hxixiciið í sutiH 2 7 O 2 2 míUi kL 13 og 15 eða skrifiö VERIDISTILLT!!! SPORTBÍLL OG SPÍTTBÁTUR BESTU BIIAKJORIN 9,9% ÁRSVEXTIR ENGIN VERDTRYGGING LANAKJOR: Við lánum kaupendum nýrra bíla frá FORD, FIÁT, HYUNDAI og SUZUKI, allt að 50% af kaupverði, til 12 mánaða, með 9,9%föstum ársvöxtum, - án verðtryggingar. DÆMI UM BILAKAUP: Nýr bíll.Verð 400.000 kr. Útborgun (eða eldri bíll uppí) 200.000 kr. Lán 200.000 kr. með 9,9% ársvöxtum, án verðtryggingar. Endanlegt verð bílsins 411.926,- kr. LÁNSUPPHÆÐ 200.000 MANUÐUR AFBORGUN VEXTIR AÆTL BANKA POKNUN MANAOAFl GREIÐSLA l.alb. 16.667 1.650,00 100 18.417 2. alb. 16.667 1.512,60 100 18.279 3. afb. 16.667 1.375.00 100 18.142 4. alb. 16.667 1.237,50 100 18.004 5. alb. 16.667 1.100,00 100 17.867 6. alb. 16.667 962,60 100 17.729 7. alb. 16.667 825,00 100 17.592 8. afb. 16.667 687,50 100 17.454 9. alb. 16.667 550.00 100 17.317 lO.afli 16.667 412.50 100 17.179 11.afb. 16.667 275,00 100 17.042 12.afb. 16.667 137,50 100 16.904 Samtals 211.926 F I AT &U7HÍ STIMPILGJALD OG LANTÖKUGJAL0 EKKI INNIFALID. ^SUZUKI 4m SKIPTIBORÐ 685100, FORD 689633, FIAT 688850, SUZUKI 689622 ÖKUMENN! Tökum tillit til annarra vegfarenda Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar