Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1988, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 20. OKT0BER 1988. Fréttir Jón Baldvin um viðræöumar við Shultz: Hugmyndinni um fnversl- unarsamning vel tekið Steinunn Böðvaisdóttir, DV, Washington; „Hugmyndinni um fríverslunar- samning milli Bandaríkjanna og ís- lands var engan veginn hafnað. Henni var þvert á móti vel tekið,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra í samtali við DV í gær, í kjölfar fundar hans og banda- ríska utanríkisráðherrans, Georges Shultz. Utanríkisráðherramir funduðu í klukkustund í bandaríska utanríkis- ráðuneytinu í Washington í gær- morgun. Að sögn Jóns Baldvins var fundurinn mjög gagnlegur og voru umræðurnar um möguleika á frí- verslunarsamningi ríkjanna, líkum þeim sem Bandaríkin og Kanada hafa gert, mjög fróðlegur þáttur við- ræðnanna. ' „Ég gerði grein fyrir sérstöðu ís- lendinga gagnvart þróun mála og samningaumleitunum við Efnahags- bandalag Evrópu,“ sagði Jón Bald- vin. Utanríkisráðherrann sagði að íslendingar gætu ekki fallist á kröfu EB um fiskveiðiréttindi fyrir hönd - engin breyting á afstöðu til hvalveiða bandalagsþjóðanna innan íslenskrar efnahagslögsögu, þar sem þjóðin byggði tilveru sína á yfirráðaréttin- um yfir þessum auölindum. „í ljósi þessa höfum við-mikinn áhuga á frí- verslunarsamningi Bandaríkjanna og Kanada," sagði utanríkisráð- herra. Að sögn Jóns Baldvins kvað Shultz Bandaríkjastjórn reiðubúna til að láta íslendingum í té allar þær upp- lýsingar um samning Kanada og Bandaríkjanna sem þeir kynnu að óska eftir. Að auki sagði Shultz Bandaríkin reiðubúin til viðræðna við íslendinga um þesi mál. Shultz vakti hins vegar athygli á því aö Bandaríkin hefðu þá meginreglu að leita eftir samkomulagi um afnám tollfríðinda og verndarstefnu á grundvelli GATT-samkomulagsins. Frekari • viðræðurr voru ekki ákveðnar. Á fundinum vakti Jón Baldvin einnig máls á hvalveiðum íslendinga í vísindaskyni og samkomulagi þjóð- anna um þau mál. í Bandaríkjunum hafa fjölmiðlar fjallað um hugsan- George Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, tekur á móti Jóni Baldvin Hannibaissyní utanríkisráðherra við upphaf viðræðna í gær. DV-mynd Reuter lega stefnubreytingu íslenskra stjómvalda hvað varðar visindaveið- ar. í samtalinu við DV kvaðst Jón Baldvin hafa fullvissað Shultz um að engin slík breyting hefði átt sér staö. „Við gerðum grein fyrir því að við værum undir verulegri pressu frá fyrirferðarmiklum áróðursaðilum og sdmannasamtökum sem byggðu mál- flutning sinn á verulegum skiln- ingsskorti á sérstöðu okkar. Við áskiljum okkur að sjálfsögðu allan rétt til aö meta það í ljósi breyttra aðstæðna hvemig við höldum á okk- ar vísindarannsóknum, ‘ ‘ sagði utan- ríkisráðherra. Hann tjáði Shultz að íslenska ríkisstjórnin myndi fjalla um þessi mál á fundi sínum í dag en að engrar niöurstööu væri að vænta. Auk ofangreindra atriða ræddu ráðherramir um flutninga vamar- liösins og endumýjanir vatnsbóla og vatnslagna á Suðurnesjum vegna mengunar sem rekja má til dvalar vamarliðsins á stríðsámnum. Að sögn Jóns Baldvins er svars um það að vænta innan tíðar. Hótel Ork seld Framkvæmdasjóði: Tilboð Helga Þórs ekki nógu traust - eftir standa um 200 miUjónir króna Uppboðshaldarinn í Ámessýslu myndi leita sölu á hótclinu. Hann skyldu sinni, Hótel Örk h/f. Það hefurákveöiðaðhafiiatilboðiHót- sagðist ekki vita á þessari stundu félag á alla innanstokksmuni á el Arkar h/f í Hótel Örk. Gengið hvað gert yrði varðandi þá leigu- Hótel Örk. Þaö munu vera verð- hefur verið að tUboði Fram- samninga sera Helgi Þór Jónssón mæti upp á tugi milljóna. Þær tvö kvæmdasjóðs en það var 200 millj- hefur gert. Hróbjartur sagði að hundraö milljónir, sem Fram- ónir króna eða 30 milljónum lægra meta yrði hvort þeir væri hagstæð- kvæmdasjóður greiðir iyrir Hótel en tUboð Hótels Arkar h/f. Þorgeir ir sjóðnum eða ekki. Þeir trj’ggja Örk, koma á móti um helmingi Imp Njálsson, fuUtrúi sýslumanns eigendahótelsinsákveðnartekjur. þeirra skulda sem til hefur veriö í Árnessýslu, komst að þessari niö- Ef Framkvæmdasjóöur selur hót- stofhað vegna hótelsins. Það er þvi urstööu í gær. elið þá sagði Hróbjartur söluveröiö sýnt að Helgi Þór Jónsson skuldar Hróbjartur Jónatansson, lögmaö- verða hærra en uppboðsverð þess enn um 200 miUjónir króna. ítrekað ur Framkvæmdasjóðs, sagði að var. var reynt að ná tali af Helga Þór hann teldi líklegast að sjóðurinn Helgi Þór Jónsson á, ásamt fiöl- Jónssynienánárangurs. -sme Utandagskrárumræða á Alþlngi um Marokkótogarana: 14 togarar fyrir Irani fylgdu í kaupbæti Ef ekki verður stutt við íslenskan iðnað þá stefnir fljótlega í þaö að ís- lenska þjóðin búi á Mallorca og fái atvinnuleysisbætumar sendar þang- að. Þannig komst Júlíus Sólnes, þing- maður Borgaraflokksins, að orði þegar hann var að ræða um synjun ríkisstjómarinnar á ríkisábyrgð fyr- ir Stálvík til smíði 10 skuttogara en hann krafðist utandagskrárumræðu í sameinuðu þingi í gær vegna þess máls. í ræðu sinni rakti Júlíus tilurö málsins og hvemig hefði verið staðið að allri ákvarðanatöku hér innan- lands. Sagði Júlíus að það væri mjög forvitnilegt í alla staði. Sagði Júlíus að skipasmíðaiðnaður okkar væri illa samkeppnisfær og sama mætti segja um allan okkar iðnaö enda væri svo komið aö menn mættu ekki framleiða hér neitt leng- ur. Hvemig komið væri í skipa- smíðaiðnaði væri meðal annars stefnu stjómarinnar varðandi rað- smíðaverkefnin að kenna. Júlíus sagði að enginn vafi væri á því að íslendingar gætu verið vel samkeppnishæfir þegar komið væri að því að smíða þróðuð fiskiskip. Hann hefði víða fengiö staðfestingu á því. Sagði hann t.d. að Marokkó- menn treystu aðeins tveim þjóðum til þessa verkefnis, íslendingum og Norðmönnum. Teldu þeir þó að ís- lendingar væra betur til þess fallnir meðal annars vegna þess hve vel smíðað skip Ottó N. Þorláksson væri en orðspor þess skips hefði farið víða. Þá sagði Júlíus að öll arabaríkin hyggðu á útgerð skipa af þessu tagi og hefðu þeir fengið fyrirspum frá íran um að smíða 14 skuttogara fyrir þá. Einnig ræddi Júlíus um hlut bankakerfisins og það ábyrgðakerfi sem hér ríkti. Gagnrýndi hann harð- lega hlut Landsbankans í þessu máli og sagði að bankinn hefði ætlað að kreíjast 50 milljóna kr. í þóknun og þar að auki hefði fjármagnskostnað- ur orðið 110 milljónir. Iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson, sagði að ekki hefði komiö til greina að keppa við iðnað sem væri niöur- gréiddur í nágrannalöndunum. -SMJ Þing BSRB: Landsbyggðarfulttrúar standa saman Talið er víst að sú lagabreyting verði samþykkt á þingi Bandalags starfsmanna ríkis og báeja að íjölgað verði í aöalstjórn bandalagsins úr 11 í 19 eða, 21 stjórnarmann, en á móti komi að engin varastjórn verði. Þetta hefur leitt til þess aö þingfulltrúar utan af landi hafa ákveðið að standa saman við stjómarkjör fil aö tryggja hlut landsbyggðarinnar. Þær við- ræður, sem átt hafa sér stað til að mynda þessa blokk, leiddu af sér aö landsbyggðarfulltrúarnir ætla einn- ig að standa saman við formannskjör og styðja Ögmund Jónasson. í gærkvöldi stóð til að landsbyggð- arfulltrúamir héldu með sér sér- stakan fund um þessi mál en af hon- um varð ekki, meðal annars vegna þess að það var talið óþarfi, samstað- an væri alger hvort eð væri. Lands- byggðarfulltrúar á þinginu era 60 talsins. Þessi samstaða þeirra breytir mjög miklu varðandi spár manna um úr- sht formannskjörsins. Sumir heim- ildarmenn DV segja að þetta geti orð- ið til þess að Ögmundur nái kjöri strax í fyrstu umferð, aðrir telja að svo verði ekki en að hann veröi mjög nálægt því. Nái Ögmundur ekki kjöri í fyrstu umferð er óvissan jafnmdkil og fyrr um úrsht í annarri umferð, þegar kosið er á milli tveggja efstu. Þingfuhtrúar era 209 og því þarf í þaö minnsta 105 atkvæði til að ná kjöri í fyrstu umferðinni. í dag er síðasti eiginlegi starfsdagur þingsins og verða þá allar mikilvæg- ustu thlögumar um lagabreytingar og fleira afgreiddar. Á morgun verð- ur eingöngu um að ræða kosningar til stjómar og trúnaðarstarfa fyrir bandalagið. -S.dór litur hun ut, Boeing 757 þotan. Það er Borge Boeskov, sölustjóri Boeing i Evrópu, sem tekur hér í hönd Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flug- leiða, og sýnlr honum risastórt líkan af þotunni. DV-mynd Brynjar Gauti Flugleiðir: Skrífað undir Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, og Borge Boeskov, sölustjóri Boeing-verksmiðjanna í Evrópu, imdirrituðu í gær samning um kaup Flugleiða á tveimur Boeing 757-200 þotum og kauprétt á þeirri þriðju. Þotumar verða notaðar í Atlants- hafsflugi félagsins. Þær verða af- hentar í febrúar og mars árið 1990. Hvor Boeing 757 þota kostar um 45 mihjónir dohara. Kaupverð beggja þotnanna er því á fimmta milljarð íslenskra króna. Boeing-kaupin Boeing 757 þotmmar eyða aUt aö 43 prósent minna eldsneyti á hvert sæti en DC 8 þotumar sem Flugleiöir hafa veriö með í notkun á Atlants- hafsleiðinni. í fyrravor skrifuöu þeir Siguröur Helgason og Borge Boeskove undir samning um kaup Flugleiða á tveim- ur Boeing 737400 þotum og kauprétt á tveimur til viðbótar. Sú undirritun fór fram á Akureyri í tilefni af 50 ára afmæh atvinnuflugs á íslandi. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.