Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER Í9Ö8. 3 Bergsteinn Jónsson: Jóhann skapar fordæmi með þvl að sitja áfram á þingi „Það heíur veriö óskað eftir því að menn yrðu sviptir þinghelgi svo hægt væri að ákæra þá. En það hefur aldrei verið um aö ræða neitt afbrotamál áður þegar ósk- að hefur verið efúr sviptingu þinghelgi. Þetta hafa verið meið- yrðamál og þess háttar þar sem beiðni um ákæru hefur verið haftiað til að skapa ekki fordæmi þar sem ekki þótti fært að þing- menn væru eltir inn á þing vegna einkamála," sagði Bergsteinn Jónsson, dósent í sagnfræði, í samtali við DV. Bergsteinn sagði að í máli Magnúsar Guðmundssonar ráö- herra, sem fékk dóm árið 1932, hefði Magnús vikið úr ráðherra- stóli eftir að dómur féll í héraði 9. nóvember 1932 meðan Gúttó- slagurinn geisaði. Dómarinn, sem dæmdi hann þá, var Her- mann Jónasson. Þing sat ekki á rökstólum meðan hann beið eftir dómi hæstaréttar og því reyndi ekki á þingsetu hans sem ákærðs manns eða dæmds. Ólafur Thors hljóp í skarðið þar til hæstiréttur dæmdi í málinu í desember sama ár og sýknaði Magnús sem tók við ráðherraembætti aftur. „Ég býst við að Magnús hefði vikið á meðan mál hans var fyrir rétti en þá var engum varamönn- um til að dreifa eins og í dag. Nú eru varamenn en Jóhann tekur ákvörðun um að sita áfram og skapar þannig fordæmi. Það er enginn sekur fyrr en hann hefur verið dæmdur." -hlh Jón Baldvin hafnar Palestínu- ferðinni „Ég ætla að vona einlæglega að hvorki Elías Davíðsson sjálfur né nokkur kynslóð gyðinga muni nokkurn tíma þurfa að lifa aftur þá helfór, ekki bara pyndingar, heldur kerfisbundna og skipu- lagöa útrýmingu sem Evrópubú- ar hjuggu kynkvísl hans og leiddi til stofnunar Ísraelsríkis,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra er DV spurði hann hvort hann myndi þekkjast boð Elíasar Daviðssonar, skólastjóra Tónlistarskólans í Olafsvik, um kynnisferö til Palestinu. Elías sendi utanríkisráðherra skeyti á dögunum, eins og DV hefur greint frá. Innihald þess var að bjóða Jóni Baldvin til Pa- lestínu, svo að hann gæti af eigin raun kynnt sér ástandið í flótta- mannabúðum og fangelsum. „Segðu Elíasi frá mér að mig undri stórum að gyðingur, sem uppi er á þessari öld, með þessa reynslu sinnar þjóðar, skuli ekki þykjast skilja að viðurkenning á tilverurétti ísraelsríkis er að minnsta kosti jafngildur málstað- ur og krafan um sjálfsákvörðun- arrétt Palestínumanna. Að lokum, mér þykir raiður að hann skuli hafa svo alvarlegt mál í flimtingum með aulafyndni.“ - Ætlarðu þá ekki að þiggja Palestínuferðina? „Ég hef ekki fleira að segja.“ -JSS Fréttir Jóhann Einvarðsson um væntanlega ákæru: Tel mig saklausan og sit áfram á þingi „Mér kom mjög á óvart aö banka- ráð skyldi ákært i Hafskipsmálinu. Ég hafði hugleitt þann möguleika en tel mig alls ekki sekan af þeim ákærum sem fram hafa komið. Ég gætti hagsmuna bankans í hví- vetna meðan ég sat í bankaráði," sagði Jóhann Einvarðsson við DV eftir að efri deild hafði samþykkt að veit saksóknara í Hafskipsmál- inu leyfi til að birta honum ákæru. Jóhann er fyrsti þingmaðurinn sem sviptur er þinghelgi vegna ákæru og sagði leiðinlegt að vera á þann hátt þáttur af þingsögunni. En situr Jóhann áfram á þingi? „Þinghelgi minni hefur verið lyft í þessu máli en ég sit á þingi og mun sitja á þingi. Ákæran hefur engin áhrif á þingsetu mína. Ég mun sitja þar til annaðhvort kjör- tímabilinu lýkur eða dómur í mál- inu fellur á þann veg að ég taki þingmennsku mína til endurskoð- unar.“ Um lekann af þinginu þegar spurðist út að hann yrði ákærður ef þinghelgi hans yrði aflétt sagði Jóhann að það væri leiðindamál. Hafi félagar hans í bankaráðinu ekkert vitað um væntanlegar ákærur þegar nafn hans og mynd kom í sjónvarpinu. -hlh Jóhann Einvarósson flytur ræöu sina á Alþingi í gær áöur en samþykkt var að svipta hann þinghelgi. DV-mynd: GVA Samþykkt efri deildar um rof á þinghelgi: Enginn greiddi at- kvæði á móti Efri deild Alþingis samþykkti ósk .sérskipaðs saksóknara í Hafskips- málinu á fundi sínum í gær þess efn- is að þinghelgi Jóhanns Einvarðs- sonar, þingmanns Framsóknar- flokksins í Reykjaneskjördæmi. yrði rofin svo hægt væri að birta honum ákæru í málinu. Voru 18 samþykkir en enginn greiddi atkvæði á móti. Þinghelgi Jóhanns Einvarðssonar var fyrsta mál á dagskrá efri deildar Alþingis í gær. Eftir að forseti deild- arinnar, Guðrún Agnarsdóttir. haföi lesið upp þessa ósk Jónatans Þór- mundssonar, sérsskipaös ríkissak- sóknara í Hafskipsmálinu, var opnað fyrir umræður. Aðeins Jóhann Ein- varðsson tók til máls. „Ég hlýt að mæla með því að efri deild veiti sérstökum saksóknara leyfi til að birta mér ákæru," sagði Jóhann meðal annars en hann sat i bankaráði Útvegsbankans frá jan- úarbyrjun 1985. Hafa allir þeir eru sátu í bankaráði Útvegsbankans á þessum tíma verið ákærðir í Haf- skipsmálinu. Er þeim gefið að sök að hafa brugðist eftirlitsskyldu sinni varðandi viöskipti Útvegsbankans við Hafskip og þannig gerst brotlegir í opinberu starfi. Jóhann sagði ennfremur að hann teldi sig saklausan af öllum ákærum í málinu. Þó bæri að virða ósk sak- sóknara enda bæri hann fullt traust til réttarkerfisins. \ Forseti efri deildar mun senda Jón- atan Þórmundssyni niðufstöður þessarar atkvæðagreiðslu. \ -hlh Hárlos ? ÁSTA KAREN VAR ORÐIN ÞREYTT Á AÐ HAFA BURSTANN ALLTAF FULLAN AF HÁRUM. Hún gerði sér grein fyrir að þéttur og góður hár- vöxtur krefst réttra næringarefna, sem stundum skort- ir í fæðuna. Þess vegna reyndi hún HÁRKÚR töflurnar. Hálfum mánuði eftir að hún byrjaði að nota þær var hún laus við hárlosið og hefur það ekki angrað hana síðan. HÁRKÚR töflurnar innihalda næringarefni sem eru nauðsynleg góðum hárvexti. FÆST í HEILSUBÚÐUM, APÓTEKUM, HÁRSNYRTI- STOFUM, HEILSUHILLUM MATVÖRUVERSLANA OG HJÁ HÁRSKERUM. Éh eilsuhúsið Skólavörðustíg 1 Sími 22966 • Kringlunni Sími 689266

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.