Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1989. fþróttir Meistaramótið 1 frjálsmn innanhúss: Pétur náði þriðja besta árangrinum - kastaði 18,95 metra í ReiðhöUinni Pétur Guðmundsson, HSK, náði á laugardaginn þriöja besta árangri íslend- ings í kúiuvarpi innanhúss. Hann kastaði þá 18,95 metra á meistaramótinu innanhúss en kúluvarpskeppnin fór fram í Reiöhöllinni. Þessi árangur Péturs er á Evrópumælikvarða og sýnir að hann er til alls líklegur á árinu. Besta árangrinum hefur Hreinn Halldórsson náð en hann kastaði 20,59 metra þegar hann varð Evrópumeistari fyrir tólf árum. Þá kast- aði Óskar Jakobsson 20,37 metra innanhúss nokkru síðar. Guðni Sigurjóns- son, UMSK, varð annar með 15,22 metra sem er hans langbesti árangur. Aðstöðuleysi skemmirfyrir Góð þátttaka var í meistaramótinu en vegna aðstööuleysis þurfti aö halda það á þremur stöðum, í Bald- urshaga, Laugardalshöllinni og Reið- höllinni. Þetta skemmdi talsvert svip mótsins og sýnir vel hve mikil þörf er á að reisa fjölnota íþróttahús hér- lendis þar sem öll frjálsíþróttakeppni getur farið fram undir sama þaki. Keppendur sátu fastir Óveðrið í gær setti keppni nokkuð úr skorðum en þá sat hluti af keppn- ishði HSK fastur á Helhsheiðinni. Meðal þeirra var hinn fjölhæfi Jón Arnar Magnússon, Norðurlanda- meistari unglinga í tugþraut, sem átti góða sigurmöguleika í þrístökki. Samt áttu þeir Skarphéðinsmenn flesta sigurvegara á sunnudeginum. Jón Arnar vakti athygli Jón Amar vakti annars einna mesta athygh á mótinu er hann sigr- aði í 50 metra hlaupi karla á 5,8 sek- úndum og í langstökki með 7,19 metra. íslandsmetið í 50 metrunum er 5,7 sekúndur og árangur Jóns Arnars því frábær. Það skyggði þó á úrslitahlaupið að Einar Einarsson úr Ármanni, sem hafði náð sama tíma og Jón Arnar í undanúrshtum, var dæmdur úr leik fyrir að bregða tvisvar of skjótt við. I langstökkinu sýndi Jón Amar að hann getur bætt sig verulega því að hann átti óght stökk sem mældist 7,40 metrar. Tveir sigrar Súsönnu Súsanna Helgadóttir, FH, lék sama leik og Jón Arnar með því að vinna 50 metra og langstökk í kvenna- flokki. í 50 metra hlaupinu var um hörkukeppni að ræða því að Súsanna var aöeins sjónarmun á undan Heiöu Bjamadóttur, Aftureldingu, sem fékk sama tíma. Á hæla þeirra komu síðan hinar kunnu hlaupakonur, Geirlaug Geirlaugsdóttir og Oddný Ámadóttir. í langstökkinu stökk hún 5,68 metra, 28 sentímetrum lengra en hin skagflrska Berghnd Bjarnadótt- ir. Berglind sigraði hins vegar í 50 metra grindahláupi kvenna. Hún og Guðbjörg Svansdóttir, ÍR, hlupu báð- ar á 7,9 sekúndum en Berglind var sjónarmun á undan. Aðalsteinn bætti sig Aðalsteinn Bemharðsson, sem nú er orðinn 35 ára gamall, keppti á ný eftir nokkurt hlé og náði glæsilegum árangri í 50 metra grindahlaupi. Hann hljóp á 6,9 sekúndum, sem er hans langbesti tími í greininni, og varð annar eftir hörkubaráttu við Stefán Þór Stefánsson sem sigraði á 6,8 sekúndum. íslandsmetið var í hættu en þaö er 6,7 sek. íslandsmethafinn Gunnlaugur Grettisson úr ÍR haföi mikla yfir- burði í hástökki karla. Hann fór yfir 2,05 metra og var 20 sentímetrum á undan næstu mönnum. í hástökki kvenna var hins vegar gífurlega tví- sýn keppni. Þrjár stúlkur fóm yfir • Pétur Guðmundsson býr sig undir að varpa kúlunni í Reiðhöllinni á laugardaginn. Þar var í fyrsta skipti keppt í frjálsum iþróttum og það endurspeglar nokkuð aðstöðuleysi íslenskra frjálsíþróttamanna að flytja þurfi hluta íslandsmóts þannig til og keppa á þremur stöðum innan borgarmarkanna. DV-mynd GS 1,60 metra en felldu allar 1,65. Síðan þurfti sérstaka aukakeppni milli Ehnar Jónu Traustadóttur, HSK, og Þóru Einarsdóttur, UMSE, um efsta sætið og þar hafði Ehn Jóna betur. Gott í þrístökkinu Mjög góður árangur náðist í þrí- stökki. Þar sigraði Ólafur Þórarins- son, HSK, með 14,20 metra en hinn 36 ára gamh Friðrik Þór Óskarsson varð annar með 13,95 metra, sem er nýtt íslandsmet í flokki 35-39 ára. FH-ingar voru nær einráðir í 800 og 1500 m hlaupum karla. Steinn Jóhannsson vann báðar greinar en Friðrik Larsen, HSK, kom í veg fyrir að Hafnfirðingar ynnu þrefalt í báð- um greinum með því að ná öðm sæti í 800 metrunum. Enn einn sigur féll HSK í skaut þegar Guðrún Bára Skúladóttir vann 800 metra hlaup kvenna á nokkuð öruggan hátt. Þá sigraði íris Grön- feldt, UMSB, í kúluvarpi kvenna. Utanbæjarfélög áberandi Keppendur frá utanbæjarfélögun- um vom mjög áberandi, ekki síst Skarphéðinsmenn sem áttu flesta sigurvegara. FH-ingar vora einnig sterkir og Skagfirðingar vöktu at- hygli en það er greinilegt að Reykja- víkurfélögin era að dragast aftur úr. ÍR-ingar eru alltaf með öfluga kepp- endur en minna bar á öðrum. Þó er margt efnilegt keppnisfólk að koma fram í höfuðborginni þannig að ekki þarf aö örvænta þó betur megi fara. Mótið fór vel fram og sýndi að greini- lega er um sókn að ræða í fijálsum íþróttum hér á landi. Efstu keppendur í einstökum greinum urðu eftirtaldir: 800 m hlaup kvenna: 1. Guðrún B. Skúladóttir, HSK ..2:30,3 2. Þorbjörg Jensdóttir, ÍR..2:36,3 3. Sigrún Gunnarsdóttir, ÍR..2:48,2 800 m hlaup karla: 1. Steinn Jóhannsson, FH.....2:05,3 2. Friðrik Larsen, HSK......2:06,0 3. Finnbogi Gylfason, FH.....2:06,3 Hástökk karla: 1. Gunnlaugur Grettisson, ÍR.2,05 2. Ólafur Guömundsson, HSK...1,85 3. Guðmundur Ragnarss., USAH .1,85 3. Kristján Erlendsson, UMSK..1,85 Kúluvarp kvenna: 1. íris Grönfeldt, UMSB......11,96 2. Guðbjörg Viöarsdóttir, HSK....11,26 3. Bryndís Guðnadóttir, ÍR...10,69 Kúluvarp karla: 1. Pétur Guðmundsson, HSK.....18,95 2. Guðni Sigurjónsson, UMSK ....15,22 3. Árni Jensen, ÍR...........14,51 50 m hlaup karla: 1. Jón Arnar Magnússon, HSK...5,8 2. Stefán Þór Stefánsson, ÍR.6,0 3. Guðni Sigurjónsson, UMSK....6,1 50 m hlaup kvenna: 1. SúsannaHelgadóttir, FH......6,5 2. Heiða B. Bjarnadóttir, UMSK.6,5 3. GeirlaugGeirlaugsd., Ármanni..6,6 Langstökk karla: 1. Jón Arnar Magnússon, HSK...7,19 2. Ólafur Guðmundsson, HSK...7,08 3. Jón Oddsson, KR...........6,99 50 m grindahlaup karla: 1. Stefán Þór Stefánsson, ÍR.6,8 2. Aðalsteinn Bernharðss, UMSE.,.6,9 3. Þorsteinn Þórsson, ÍR......7,1 50 m grindahlaup kvenna: 1. Berglind Bjarnadóttir, UMSS.7,9 2. Guöbjörg Svansdóttir, ÍR..7,9 3. Anna Gunnarsdóttir, ÍR....8,1 Langstökk kvenna: 1. SúsannaHelgadóttir, FH....5,68 2. Berglind Bjarnadóttir, UMSS ...5,40 3. Björg Össurardóttir, FH...5,22 Þrístökk: 1. Ólafur Þórarinsson, HSK...14,20 2. Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR..13,95 3. Hjálmar Sigurþórsson, HSH ...12,56 1500 m hlaup karla: 1. Steinn Jóhannsson, FH.....4:13,1 2. Jóhannlngibergsson, FH....4:15,5 3. Frímann Hreinsson, FH.....4:17,2 Hástökk kvenna: 1. Ehn Jóna Traustadóttir, HSK ...1,60 2. Þóra Einarsdóttir, UMSE...1,60 3. Björg Össurardóttir, FH...1,60 -ÓU/VS smmmmi Heiða Heiðarsdóttir skrifstofutæknir, útskrifuð í desember '88. „Námið hjá Tölvufræðslunni kom mér skemmtilega á óvart. Kennararnir eru mjög góðir og námið í heild vel skipulagt og skemmtilegt. Ég lít á þetta sem góða fjár- festingu sem á eftir að skila sér margfalt til baka“. Nám í skrifstofutækni opnar þér nýja möguleika í starfi. Kenndar eru allar helstu viðskipta^ og tölvugreinar, sem gera þig að úrvals starfskrafti. Innritun og upplýsingar í símum 68 75 90 & 68 67 90. Hringdu og við sendum þér nýja bæklinginn um skrifstofutækninámskeiðið. Tölvufræðslan Borgartúni 28 Ótrúleg sala á tvöföldum Evrópumeistara; MilHénamaður - Koeman fer M PSV til Barcelona fyrir 500 milljónir Spænska knattspymustórveldið Barcelona festi í gær kaup á liinum snjalia hollenska varnarmanni, Ronaid Koeman. Forráðamenn fé- lagsins vildu ekki gefa upp kaup- verðið en tahð er að það nemi 10 mihjónum dollara, eða um 500 mihjónum íslenskra króna. Til samanburðar má geta þess að Ruud Guhit kostaði 8,5 miHjónir dollara og Diego Maradona 7,5 mihjónir. Barcelona mun hafa greitt PSV Eindhoven 6 milljónir dohara en Koeman fær sjálfur fjórar, eina á Ronatd Koeman frá PSV. an i hogur ar. Að auki tær hann að sjálfsögðu sín laun og bónusa sem væntanlega eru ekki skomir við nögl. Koeman er 25 ára gamall og hefur leikið 29 landsleiki fýrir Holland. Hann komst svo sannarlega í sviðs- Ijósið á síðasta ári þegar hann varð Evrópumeistari, bæði með PSV og hohenska landsliðinu, og skapaði sér nafn sem einn albesti knatt- spymumaðnr heims. -VS Börsunqa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.