Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. Andlát Halldór Guðmundsson skipstjóri, Kirkjubraut 51, Akranesi, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness þann 1. mars. Ingileif Kristjánsdóttir, Hringbraut 94, Keflavík, lést aðfaranótt 1. mars. Jón Indriði Halldórsson, Efstasundi 29, iést á Borgarspítalanum að kvöldi 1. mars. Jarðarfarir Ingólfur Þorsteinsson, fyrrv. yfirlög- regluþjónn, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. mars kl. 13.30. Guðni Guðmundsson, Aöalgötu 23, Súgandafirði, verður jarösunginn frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Elísabet G. Hálfdánardóttir, ísafirði, verður jarðsungin frá ísafjarðarkap- ellu laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Gunnar Haraldsson, Víðihlíö 1, Sauð- árkróki verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 4. mars kl. 14.00. María Helgadóttir, frá Vatnshóli, verður jarðsungin frá Krosskirkju, Austur-Landeyjum. laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Jón Halldórsson, frá Sellátrum, verð- ur jarðsunginn frá Eskiíjarðarkirkju í dag, fóstudag, kl. 14.00. Sigtryggur Jónsson verður jarðsung- inn að Nesi í Aðaldal laugardaginn \ mars kl. 13.30. Sigríður Sesselja Sveinsdóttir frá Viðfirði lést í Fjórðungssjúkrahús- inu Neskaupstað aðfaranótt 28. fe- brúar. Jarðarfórin fer fram í Norð- fjarðarkirkju laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Tilkyimingar Ný regnfataverslun opnaöi aö Laugavegi 21 þann 25. febrúar sl. Verslunin er fyrsta sérverslun sinnar fegundar hér á landi og hefur á boðstól- um regnfatnað fyrir alla aldurshópa. Ættfræðinámskeið í Reykjavík og víðar Ættfræðiþjónustan ráðgerir að halda nokkur ættfræðinámskeið á næstunni, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Haldin verða 7 vikna grunnnámskeið í Reykjavik og helgarnámskeið í bæjarfé- lögum á landsbyggðinni. Skráning þát- takenda er hafin hjá Ættfræöiþjón- ustunni í síma 27101. Auk námskeiða- halds tekur Ættfræðiþjónustan að sér rannsóknir á ættum fólks og annast sölu á ættfræðiritum og hjálpargögnum við ættrakningu. Sumaráætlun Sjálfboðaliða- samtaka um náttúruvernd er nú komin út. Famar verða 6 vinnu- feröir þar sem unnið er að verkefnum 'sem stuðla að náttúruvemd. Fyrsta ferð- in verður farin í Kerið í Grímsnesi þann 3.-4. júrú nk. Heimilisfang samtakanna er: Sjálfboðaliðasamtök um náttúra- vemd, Pósthólf 8468, 128 Reykjavík. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardag- inn 4. mars. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Birtan eykst og vorið nálgast. Á góðum laugardegi komum við saman í molakafiinu og röltum síðan um götur bæjarins. Laugardagsganga Hana nú er fyrir alla unga sem aldna sem vilja kynn- ast skemmtilegum félagsskap. Átthagasamtök Héraðs- manna halda árshátíð (Góublót) í Domus Medica laugardaginn 4. mars nk. Aðgöngumiðar verða seldir í anddyri Domus Medica í dag, 4. mars, kl. 17-19. Neskirkja Félagsstarf aldraðra Samverustund verður á morgun, laugar- dag, kl. 15.00 í safnaðarheimili kirkjunn- ar. Baldur Jónsson segir frá Grænlands- ferð og sýndar verða myndir frá starfmu. Ráðstefnur Ráðstefna Rannsóknar- stofu mjólkuriðnaðarins Á vegum Rannsóknarstofu mjólkuriðn- aðarins verður haldin ráðstefna dagana 9. og 10. mars nk. á Hótel Sögu. Aðalfyrir- lesari verður professor dr.med.vet Ole Aalund frá Konunglega landbúnaðar- og dýralæknaháskólanum í Kaupmanna- höfn. Tapað fimdið Köttur í óskilum úr Fossvogi Grár og hvítur heimihsköttur með svarta rófu tapaðist frá Fossvoginum síöasthð- inn fimmtudag. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 27511, 37302 eða 67314. Fundir Aðalfundur kven- félags Laugarnessóknar sem féll niður 6. febrúar sl. vegna óveð- urs, verður haldinn 6. mars kl. 20 í Safn- aðarheimilinu. Venjulegaöalfundarstörf. Einnig verður rætt um heimsókn til kvenfélags Langholtskirkju. Hádegisverðarfundur presta veröur haldinn í safnaðarheimili Bú- staðakirkju mánudaginn 6. mars n.k. Félagsfundur Safnaðar- félags Ásprestakalls verður haldinn þriðjudaginn 7. mars nk. í félagsheimilinu. Fundarefni: spilað verður páskaeggjabingó og fleira. Allir velkomnir. Ferðalög Ferðafélag íslands Dagsferðir sunnudaginn 5. mars: 1. Kl. 10.30. Litla kaffistofan - Marar- dalur - Þingvallavegur. Gengið á skíð- um í um 5 klst. Góð æfmg fyrir páskaferð- imar. Verö kr. 600. 2. Kl. 13. Öxarárfoss í klakaböndum. Ekið a 6 Almannagjá og gengið eftir henni að Öxarárfossi. Nú er rétti timinn til þess að skoða Öxarárfoss í vetrarbúningi. Missið ekki af þessari ferð. Verð kr. 800. 3. Ki. 13. Skíðaganga á Mosfellsheiði. Létt gönguferð við allra hæfi. Verð kr. 600. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir böm i fylgd fullorðinna. Otivistarferðir Sunnudagsferðir 5. mars. Kl. 10.30. Gullfoss í klakaböndum Geysir. Nú er Gulifoss í faliegri klaka- brynju. Aðeins þessi eina ferð. Einnig farið að sprengigígnum Keri, fossinum Faxa, Brúarhlöðum og Geysissvæðið skoðaö. Verð 1.400 kr. Kl. 13. Landnámsgangan, 6. ferð. Saltvík - Kléberg. Létt strandganga frá Saltvík um Brimnes, Hofsvík að Klébergi Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 Menning dv Stund hef ndarinnar Ógurlega er veturinn oröinn lang- ur og leiðinlegur. Ég þori samt að veðja að hann er ekki nærri búinn. Það langversta er eftir. Hláka kem- ur ekki næstu vikurnar. Snjórinn mjatlast þetta í burtu i sólbráðinni í aprílhörkunum. í wunderschönen Monat maí verða þurrir kuldar en mikil sól. Heimskautafílingur. í júní taka við suðvestanrosamir. Eins og fyrri daginn. Svo mígandi rigningar og allir mígandi fullir af bjór fram á haust. Þá kemur heims- endir. Ef þessi veðurspá stenst ekki þá stenst bara andskotann ekkert á þessum óstöndugu tímum. En menn voru að reyna að búa til dálítinn sumardraum á sinfó- níutónleikunum í gærkvöldi með því að spila pastoralsinfóníu Beet- hovens. Stjómandi var Aldo Cec- cato frá Ítalíu. En sumarið kom samt ekki. Flutningur þessa dýr- lega verks (já já, dýrlegt er það en ekki dýrslegt eins og einhver les-' andi um daginn vildi meina að orð- Tónlist Sigurður Þór Guðjónsson ið þýddi og hringdi ævareiður í mig til að láta mig vita það) rann alveg út í sandinn. Það var engin sól í músíkinni. Enginn ylur, engin lý- rík, engin fegurð. Og enginn storm- ur. Bara spilirí. Sömu sögu er að segja um La valse eftir Ravel. Einhver sagði mér að hann hefði verið skrýtinn kall. Það sem honum fannst mest gaman, fyrir utan það að kompón- era og hommast, hafi verið að leika sér að leikföngum en þau átti hann víst í tonnatali í stofunni heima hjá sér. Einu sinni þegar Stravinsky heimsótti hann fóru þeir saman í bílaleik snilUngarnir. Brrrrrrrrrrrrrr! Aeeeejjj!! Krrkkrr!!!! En það var enginn drif- kraftur í valsinum hans Ravels núna og enginn stífl. Svo var flutt kansóna eftir norska tónskáldið Arne Nordheim. Hann tók forðum daga við tónskálda- verðlaunum Norðurlandaráðs hér í Reykjavík. í flugvélinni á leiðinni heim fóru tvær íslenskar fylUbytt- ur að faðma hann og óska honum óskaplega til hamingju. Og tón- skáldið varð yfir sig glatt að tvær fylUbyttur á Islandi skyldu þekkja sig og faðma sig óskaplega til ham- ingju. En svo ældu þær upp í hann. Þá tók kompónistinn ógleði mikla og hugsaði grautfúll: Þetta skuUð þið fá borgað, helvítis íslensku fyU- ibytturnar ykkar. Og nú var dísæt stund hefndarinnar upprunnin. Kansóna eftir Ame Nordheim. Stjórnandi signor Cecconi. Það voru niðurbrotnar íslenskar bjórfylUbyttur sem skjögruðu út í snjóinn og frostið í gærkvöldi. Og aldrei kemur vor í dal. Aldrei. Sigurður Þór Guðjónsson Þá riðu hetjur um héruð Myndverk Kjartans Ólasonar aö Kjarvalsstöðum eru óneitanlega hetjusamlegri en flest annað sem hér er sýnt undir merkjum mynd- listar. Hér á ég ekki einasta við umfang þessara verka, sem eru stór um sig, mikilfengleg ásýndar og aug- ljóslega ávöxtur mikillar vinnu, heldur vísa ég til meðvitaðrar notk- unar listamannsins á þeim ímynd- um hetjuskapar sem fylgt hafa vestrænni menningu allt frá gull- öld Grikkja til nasistatímabflsins. í myndum hans mæta örlögum sínum stæltir og hugumstórir garpar, annaðhvort einir saman eða með fákum sínum sem einnig eru eöalbomir, eins og Sleipnir, hestur Óðins, eða Búsefalos, stríðs- hestur Alexanders mikla. En Kjartan virðist hafa annað og meira að markmiði en að vekja upp einhvers slags hetjumóral - slíkir uppvakningar hafa ekki orðið siö- menningunni til framdráttar, sjá Ust fasismans, nasismans og stahn- ismans. Tilfinningalegur vísdómur Af samhenginu má ráða að ætl- unarverk Ustamannsins sé fyrst og síðast að virkja hugmyndaafl goð- sagnanna og gera það aftur að afl- vaka í samfélagi þeirra sem fást við að brjóta til mergjar tilveruna, hvort sem er í heimspeki eða Ust- Það er einmitt skoðun margra spekinga að í goðsögnunum sé að finna „tilfinningalegan vísdóm" mannkyns og að firring sú sem nútímamaðurinn upplifir sé ekki síst að kenna því að hann sé kom- inn úr tengslum við goðsagnirnar. í verkum Kjartans er hin heillega veraldarsýn goðsagnanna, sem lík- amnast í hetjunum, notuð sem nokkurs konar mótvægi eða andiag við brotakennda tílveru nútíma- mannsins sem tjáð er með tilvísun- um í óheftan expressjónisma eða slettutækni gamaUa afstraktmál- Kjartan Olason - Fylgjur, 1988-89. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson ara. En Kjartan virðist hafa annað og meira í huga en að setja upp svo einfaldar andstæður. í meðförum hans fær hin hetju- lega ímynd stundum á sig ómennskt, allt að því vélrænt svip- mót, sjá hið fútúríska vélmenni í „Doctus poeta“ eða hörkulega and- litsdrætti mannsins í „Fylgjur" (sem er nánast tvífari Eichmanns), um leið og marglitur óskapnaður- inn (Kaos) einn virðist þess megn- ugur að varðveita lífshræringuna, forsendur sköpunarinnar. Hugtök sem orkulindir Þriðja túlkunarmöguleika þess- ara mynda er að finna í hugtökum eða frösum sem stækkuð eru upp og notuð til myndbygginga til að tengja saman eða aðgreina hina ólíku reiti. Flest hugtökin eru úr latínu eða grísku, dauðum og þar með hlut- lausum málum, og eru í senn svo óhlutstæö og víðtæk að þau virka Kjartan Ólason - Homo homini lupus, 1988. sem sérstök vídd, eða orkulindir, innan hverrar myndheildar. í bestu verkum Kjartans á sér stað stöðug og lífleg togstreita milli þeirra merkingarsviða sem hann drepur á, togstreita sem áhorfand- inn skynjar með huga fremur en hjarta. Ef til vill gerir þessi stórhuga ungi listamaður sig ánægðan með þau viðbrögð. Ekki væri síðra ef einhverjir op- inberir aðilar sæju sér fært að festa sér verk eftir Kjartan Ólason og gerðu honum þannig kleift að halda áfram að vinna í sama dúr. -ai. á Kjalamesi. Söguslóðir og merk nátt- úrufyrirbæri. Verið með í þessari skemmtilegu ferðasyrpu en ætlunin er að ganga á mörkum landnáms Ingólfs í 21 ferð. Safnið ferðum. Viðurkenning veitt fyrir góða þátttöku. Verö 800 kr. Kl. 13. Skíðaganga austan Grímmanns- fells. Gengið í áttina að Borgarhólum á Mosfellsheiði. Verð 600 kr. Frítt í ferðim- ar fyrir böm með fullorðnum. Brottfór frá BSÍ, bensínsölu. Ný helgarferð á skíðum 11.-12. mars: Bláfjöll - Krísuvik. Gist í mjög góðum skála við Kleifarvatn. Munið páskaferð- imar í Þórsmörk, á Snæfellsnes - Snæ- fellsjökul og gönguskíðaferð. Uppl. á skrifst., Grófmni 1, símar 14606 og 23732. Myndakvöld Útivistar verðir í Fóst- bræðraheimilinu fimmtud. 9. mars kl. 20.30. Fyrirlestrar Platón og skáldskapur Laugardaginn 4. mars nk. mun Eyjólfur Kjalar Emilsson halda fyrirlestur er hann nefnir „Hvað haföi Platón eiginlega á móti skáldskap?” Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 101 í Odda, Háskóla ís- lands, og hefst kl. 14.00. Námskeið Námskeiö um nýjungar í matvæla- og efnaiðnaði Endurmenntunamefnd Háskóla íslands mun standa fyrir námskeiði um liftækni- legar nýjungar í matvæla- og efnaiðnaði þann 10. mars nk. Námskeiðið er opið öllum sem tengjast matvæla- og efnaiðn- aði en er einkum ætlað þeim er starfa að rannsóknum og vömþróun á því sviði. Nánari upplýsingar veitir endurmennt- unarstjóri í símum 694925, 694923 og 694924.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.