Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Side 1
Gríniðjan:
Brávallagatan
- Arnarnesið
Á miðnæturfrumsýningu á laugar-
daginn frumsýnir Gríniðjan gaman-
leikinn Brávallagatan - Arnarnesið.
Aðalpersónur eru hin landsþekktu
Halldór og Bibba sem hafa skemmt
hlustendum Bylgunnar á undanfóm-
um misserum við miklar vinsældir.
Gamaleikurinn fjallar um búferla-
flutninga sæmdarhjónanna. Komatil
leiks ýmsar kostulegar persónur,
sumar nýskapaðar og aðrar sem
komu fyrir eyru Bylgjuhlustenda.
Bibbu og Halldór leika Edda Björg-
vinsdóttir og Júlíus Brjánsson.
Margir aðrir þjóðkunnir leikarar
taka þátt í gleðileik þessum.
Eins og áður segir er frumsýning á
laugardagskvöld. Önnur sýning
verður á sunnudagskvöld kl. 20.30
og þriðja sýning á mánudagskvöld á
sama tíma. Miðasala er í gamla bíói
kl.16-19. Sýningardag er opið fram
að sýningu.
Ballettsýning leikársins hjá íslenska dansflokknum verður annað kvöld. Þá
verða fluttir fjórir baliettar eftir Hlíf Svavarsdóttur.
Þjóðleikhúsið:
Hvörf
- ballettar eftir Hlíf Svavarsdóttur
Annað kvöld frumsýnir íslenski
dansflokkurinn fjóra balletta eftir
Hlíf Svavarsdóttur við undirleik
hljómsveitar undir stjóm Hjálmars
H. Ragnarssonar. Þetta er jafnframt
síðasta frumsýning leikársins í Þjóð-
leikhúsinu.
Fyrsti ballettinn, sem verður frum-
sýndur þetta kvöld, heitir Rauður
þráður og hefur Hjálmar H. Ragnars-
son samið tónhstina.
Annar ballettinn, Innsýn I, var
frumfluttur á Akureyri síðastliðið
haust. Hlíf samdi hann við tónlist
eftir Erik Satie og gerði einnig bún-
ingana.
Þriðji ballettinn, Innsýn II, er hka
saminn við tónlist eftir Erik Satie.
Hann hefur ekki verið fluttur fyrr
en nu.
Fjórði og síðasti ballett kvöldsins,
Af mönnum, hlaut 1. verðlaun í sam-
keppni dansskálda á Norðurlöndum
sem haldin var í Osló í maí 1988. í
kjölfar þess sigurs hefur Hlíf og dans-
flokknum veriö boðið að vera með
hehs kvölds sýningu eftir Hlíf í öllum
helstu ópemhúsum Norðurlanda í
ágúst. Tónlistina við Af mönnum
samdi Þorkell Sigurbjörnsson en
búninga teiknaði Sigrún Úlfarsdótt-
ir.
Hlíf Svavarsdóttir sviðsetti alla
ballettana en aðstoðarmaður hennar
við þjálfun dansaranna og sýninguna
er Auður Bjarnadóttir. Sveinn Bene-
diktsson lýsir aha sýninguna og sýn-
ingarstjóri er Kristín Hauksdóttir.
A Kjarvalsstööum verður opnuð
sýning á nýjum verkum eftir Helga
Þorgils Frðjónssonar á laugardag-
inn. Sýningin er á vegum Meiming-
armálanefndar Reykjavíkurborg-
ar. Þetta er önnur boðsýning Lista-
safns Reykjavíkur á þessu ári og
stendur hún til 21. maí.
Sýningin mun síðan fara utan,
fyrst til Norrænu listamiðstöðvar-
innar í Sveaborg þar sem hún verð-
ur opnuð 16. júní, þá til gallerís
NEMO í Eckernfórde og loks til
Rovaniemi lístasafnsins í Finn-
landi.
Helgi Þorgils Friðjónsson vakti
strax mikla athygh og umtal er
hann kom fram á sjónarsviðið í ís-
lenskri myndlist í lok 8. áratugar-
ins. Hann var þá einn af fáum lísta-
mönnum af yngstu kynslóðinni
sem hélt sér við heföbundin efni
og aðferðir í málverkinu. Því er
ekki að neita að konsepthstin, sem
var allsráðandi víöast hvar á þess-
um tíma, hafði afgerandi áhrif á
myndhugsun listamannsins er
hann dvaldi viö nám í Hollandi á
árunum 1976-1979.
Þótt Helgi legði stund á málara-
list gekk hann á engan hátt inn í
þann formalisma sem ríkt hafði í
íslensku málverki um áratuga-
skeið. Hugmyndin eða myndefnið
hefur ávallt gegnt jafnstóru hlut-
verki og hin formræna útfærsla í
verkum hans. Verk Helga eru í
hæsta máta vitsmunalegjafnframt
því sem listræn næmi hans hefur
ahð af sér nýja og persónulega fag-
urfræöhega sýn innan málverks-
ins.
Helgi Þorghs Friðjónsson hefur á
undanförnum árum haldið einka-
sýningar, bæði hér heima og er-
lendis. Ennfremur hefur hann tek-
ið þátt í fjölda samsýninga, th dæm-
is sýningunni Nordanad í Musée
des Arts Décoratifs i París 1986,
Scandinavian Art f Seibu-safninu í
Tokýo 1987 og í Rooseum safninu í
Malmö 1988.
Helgi Þorgils Friðjónsson er einn
af fáum íslenskum myndlistar-
mönnum sem náö hafa alþjóðlegri
athyglí, sérstaklega í Norður-Evr-
ópu en verk eftir hann er meðal
annars að finna í Rooseum safninu
í Malmö, Statens museum for
kunst í Kaupmannahöfn og Kunst-
halle í Kiel í Þýskalandi.
Bibba og Halldór eru leikin af Júlíusi Brjánssyni og Eddu Björgvinsdóttur. Þau snúa hér baki í myndavélina. Á
milli þeirra eru Bessi Bjarnason og Rúrik Haraldsson í hlutverkum sínum.
Veitingahús
vikunnar:
Grillið á
Hótel Sögu|
- sjá bls. 18
Viðar í
Heita
pottini
- sjá bls. 19
Kirkju-
lista-
hátíð
- sjá bls. 20
Atkvæðaseðill
íyrir söngva-
keppnina
- sjá bls. 21
Hættu-
leg
samböndl
- sjá bls. 30