Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1989, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989. Breiðsíðan „Ég get ekki svarað því hvenær Stöð 3 fer í loftið. Það stóð til að hefja útsendingar í haust en nú hefur ver- ið falliö frá því. Áhuginn fyrir stöð- inni er samt sem áður mikill ef dæma má af þeim fyrirspurnum sem við fáum frá aimenningi varðandi hana,“ segir Indriði G. Þorsteinsson. „Við stefnum að því að þetta verði lítil og ódýr stöð sem á að geta þjón- að bæði landsbyggðinni og höfuð- borgarsvæðinu. Við munum kapp- kosta að halda öllum kostnaði í al- geru lámarki. Til dæmis ætlum við okkur ekki að reka dýrar fréttastofur eins og Stöð 2 og Sjónvarpið gera. Samt sem áður komum við til með að vera með einhvers konar fréttir, til dæmis textafréttir eða eitthvað í þeim dúr. Við munum hins vegar ekki kosta þeim ósköpum til sem hin- ar sjónvarpsstöðvarnar gera til að reka fréttastofu. Dagskráin mun svo samanstanda af kvikmyndum og framhaldsþáttum auk þess sem við munum verða með innlent sjón- varpsefni sem við hyggjumst fram- leiða með tiltölulega htlum tilkostn- aði. Það verður ekki margt fólk sem kemur til með að vinna á Stöð 3, við stefnum að því að það verði ekki fleiri en 20-25 manns sem starfa við fyrirtækið. Að hluta til munum við fjármagna rekstur Stöðvar 3 með auglýsingum og svo áskriftargjöldum en þar sem við verðum með fátt fólk í vinnu og munum ekki kosta miklu fé til að reka fréttastofu komum við til með að geta boðið miklu mun lægri af- notagjöld en Sjónvarpið og Stöð 2.“ - Stjómendur Stöðvar 2 hafa lýst því yfir að þið getið ekki sent í gegn- um sömu afruglara og hún notar? „Dagskráin verður send út rugluð og því verður fólk að gerast áskrif- endur að henni. Að okkar mati eiga sjónvarpsáhorfendur að geta notað sömu afruglara fyrir sjónvarpsstöð- ina og fyrir Stöð 2. Það er almenning- ur sem kaupir þessi tæki og sam- kvæmt okkar mati á það afruglarann og hver og einn á að geta notað hann að eigin geðþótta. Það á að vera hægt að ná 10-20 stjónvarpsstöðvum í gegnum hvern afruglara og við sjáum ekki að það sé hægt að ein sjónvarpsstöð geti beitt einokun á tækið. Við myndum til dæmis aldrei setja okkur á háan hest þó einhverjir fleiri bættust í hópinn og vildu fara að sjónvarpa. Það er frjáls sam- keppni á þessum markaði. Annars er ekkert illt á milli okkar og Stöðvar 2 út af þessu máh og sjálfsagt getum við komist að einhvers konar sam- komulagi um það.“ Eins og áður sagði ér ekki ljóst hvenær Stöð 3 fer í ltíftið. Öh vinna við hina nýju sjónvarpsstöð er raun- ar á frumstigi og um þessar mundir er unnið að því að reikna út stofn- kosnað hennar og athuga hver rekstrargrundvöhurinn verði. Sótt var um leyfi til sjónvarpsrekst- urs síðastliðið haust og var leyfið veitt fljótlega eftir umsókn. Eigandi Stöðvar 3 er ísfilm en hluthafar í því fyrirtæki eru: Samband íslenskra samvinnufélaga, Almenna bókafé- lagið, Haust hf., Dagblaðið Tíminn, Aða hf., auk þess sem Frjáls fjölmiðl- un á hlut í fyrirtækinu. Að lokum vildi Indriði G. taka það fram að hann væri enginn prímus mótor í þessu máh. Hann væri ritari stjórnar ísfilm og hefði þar af leið- andi sótt um leyfið fyrir stöðina. „Síðan er þetta hengt á mig en það er ekki einugis ég sem á að svara fyrir Stöð 3 heldur er það öll stjórn ísfilm." -J.Mar - segir Indriði G. Þorsteinsson Indriði G. Þorsteinsson segir að það séu engin illindi á milli Stöðvar 2 og Stöðvar 3. Þú ert 2000 krónum rí kari! Þó að sumarið sé ekki alveg komið hvað veðurfar snertir hefur komið fyrir að sólin hafi látið sjá sig á höfuðborgarsvæðinu. Líklega rætist úr veðrinu nú þegar veðurfræðingar ganga aftur að störfum sínum. Maður má að minnsta kosti vona að veðurguðirnir hafi verið að sýna andúð sína á löngu verkfalli. Hvað sem því líður létu þessi litlu engan bilbug á sér finna og fengu sér is, rétt eins og sumarhitinn væri að kæfa þau. Við verðlaunum annað þeirra þessa vikuna með tvö þúsund krónum. Þeir peningar ættu að duga fyrir nokkrum íspinnum i sumar. Sá er hér hefur hring um höfuð sér er því tvö þúsund krónum ríkari og má vitja peninganna á ritstjórn DV, Þverholti 11. -ELA/ DV-mynd Brynjar Gauti Priscilla Presley, sú er leikur Jennu í Dallas, hefur þénáð heil ósköp á kvikmynd sem gerð var eftir bók hennar, Elvis og ég. Þeir peningar eru taldir í hundruðum milljóna og ekki er öll nótt úti enn í þeim efnum, Þá má geta þess að Priscilla verður amma í lok þessa mánaðar. Dóttir hennar og Elvis Presley, Lisa Marie, á von á sér innan skamms... Leikkonan fræga, Jane Seymo- ur, er um þessar mundir að leika í kvikmynd sem fjallar um Mari- e-Antoinetta og frönsku bylting- una. Það hefur vakið athygh að mótleikarar hennar í myndinni eru meðal annarra börn hennar, Katie, þriggja ára og Sean, sex ára. Tom Sellect, sem við þekkjum kannski best sem leynhögreglu- manninn Magnum, hefur hótað því að raka af sér skeggið enda segist hann vera orðinn leiður á því. Framleiðendur þáttanna um leynilögreglumanninn snjalla eru ekki sammála því og benda leikaranum á að ef hann bara snertir eitt hár þá verði samning- um rift umsvifalaust. Bítihinn fyrrverandi, Paul McCartney, er orðinn leiður á að hanga heima. Hann hefur nú í hyggju að. gera plötu með Elvis Costeho og síðsumars hyggur hann á tónleikaferð um heiminn. Það eru þrettán ár síðan hann fór í síðustu tónleikaferð svo vænt- anlega finnst sumum kominn tími til. Leikarinn Richard Chamberla- in er ekki bara hetja í kvikmynd- um. Nýlega sá hann hvar stórt og stæðilegt naut kom hlaupandi í átt að móður og barni sem voru á gangi nálægt húsi hans á Hawai. Chamberlain brá skjótt við og bjargaði baminu og móö- urinni. Hins vegar mun móður- inni hafa brugðið meira viö að sjá framan í bjargvættinn en nautið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.