Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 2
2 MÁNUDÁGUé'á. JÚS1 iéáá. Fréttir________________________________________________________________________dv Jóhannes Páll páfi n. við hámessu á Landakotstúni: Við allsnægtirnar er auðvelt að gleyma guði Yfirlitsmynd frá Landakoti þegar kaþólskur páfi flutti messu í fyrsta sinn á íslandi. Fremstur er pólski krossinn sem páfi blessaði og færði islenskri æsku að gjöf. Við altarispallinn er Filharmóníukórinn og meðlimir kaþólska safnaðarins á íslandi. DV-mynd KAE Mikill fjöldi safnaðist saman á Landakotstúni og hlýddi á kaþólska messu í gærmorgun þrátt fyrir mik- inn kulda. Athöfnin fór fram á palli við Landakotsspítala sem sérstak- lega var reistur á horni Ægjsgötu og Túngötu. Helgigripir voru fengnir að láni frá Þjóðminjasafni en páfastóll- inn var úr Kristskirkju. Svæði fyrir kaþólikka á íslandi var sérstaklega afmarkað á Túngötunni og við jaðar Landakotstúns. Aðrir messugestir voru á svæðinu til hliðar við kirkj- una. Klukkan hálfiiíu var klukkum hringt í dómkirkju Krists konungs. Rúmum fimm mínútum síðar hóf söngsveitin Fílharmónía að flytja Ave Maria, Arcadelt og Exultate Deo eftir Scarlatti. Meðan Jóhannes Páll páfi fl„ kardínálar, biskupar, prestar og messuþjónar gengu í skrúðgöngu úr kirkju að altarispalli var sufiginn sálmurinn Við skímarheitið í þýð- ingu Matthíasar Jochumssonar. Nunnur úr Karmelklaustrinu í Hafn- arfirði stráðu rósablöðum yfir páfa er hann nálgaöist altarispallinn. Nuimumar, sem allajafna fara ekki út fyrir veggi klaustursins, fengu Páfi flytur stólræðu sína og talar til íslensku þjóðarinnar. í tilefni af sjómannadegi minntist hann íslenskra sjómanna. DV-mynd Bynjar Gauti Messugestir voru hrifnir Messugestir á Landakotstúni fylgdust af miklum áhuga með hámessu páfa í gærmorgun. Var svæðinu sérstaklega skipt þannig að katólskir vora næst sviðinu, þá bandarískir hermenn og fjöl- skyldur þeirra og loks almennir gestir. Virtist almenn ánægja vera með messuna meðal þeirra sem DV ræddi við. „Það er mjög athyglisvert að sjá þetta og heyra. Við skiljum kannski ekki allt sem fram fer en ég er á því að þetta snerti okkur á vissan hátt, sérstaklega þar sem þetta er svo hátíðlegt. Ég hef trú á því að þessi heimsókn hafi áhrif á fólk,“ sagði Kjartan Gíslason sem hélt á lítilli dóttur sinni, Ingi- björgu Rós. „Maður reynir að fylgjast með í bókinni en við skiljum ekki lat- ínu. Messan hefur góð áhrif á okkur og heimsóknin er ömgg- lega góð fyrir þjóðina. Það er heiður að fá páfa í heimsókn. Þó hann sé á móti getnaðarvömum og hafi stífar skoðanir í því sam- bandi ffla ég hann ágætlega. Hann er svo góðlegur að sjá,“ sagöi Lísa Kristjánsdótir sem var á túninu með vinkonum og litlu systur. -hlh sérstaka imdanþágu páfa til að sækja messuna. Fyrsta athöfn páfa var að blessa pólska stálkrossinn sem helg- aður er íslenskri æsku og verður framvegis við Úlfljótsvatn. Messan var flutt á ensku, latinu og íslensku og stóð í tvo og hálfan tíma. Páfi, messuþjónar og aðrir þeir sem sungu með honum heilaga messu heilsuðu altarinu með því að kijúpa að því og kyssa það. Aö því var síðan borið reykelsi og því næst gekk páfi til sætis. íslendingar meö hlýtt hjarta og stóra sál Páfi sneri sér því næst að söfhuðin- um og tónaði á latínu: „í nafni foður og sonar og heilags anda“ og söfnuð- urinn svaraði með amen. Því næst rétti páfi út höndina og heilsaði á latínu: „Friður sé með yður“ og söfn- uðurinn svaraði „Og með þínum anda“. Kaþólski biskupinn á íslandi, Herra Alfreð Jolson, heilsaði páfa á íslensku og ensku. Biskup þakkaði páfa fyrir heimsókn hans og sagðist vona að hún yrði til að stuðla aö gagnkvæmri virðingu lúterskra og kaþólskra. Hann sagði einnig aö nærvera páfa færði söfnuöinn nær Kristi og fyrir þvi bæm allir vissa lotningu. Hann þakkaði páfa fyrir að heiðra íslensku þjóðina því að þrátt fyrir fámennið hefði hún gjöfult hjarta og stóra sál. Því næst fór fram syndajátning og páfi hvatti hina trúuðu til að viður- kenna syndir sínar. Lesin var saman syndajátningin og páfi veitti syndug- um aflausn. Miskunnarbænin „Kirie, eleison" var sungin á grísku og er það eini hluti messunnar sem enn er notaður í þeirri mynd. Á eftir kom dýrðarsöngur en þá tónar páfi en kór og söfnuöur svarar. Safnbæn kom næst í messunni og þá biðja all- ir saman í hljóði. Fyrri ritningarlest- ur var úr I. Konungabók 8, 41-43, en sá síðari var Galatabréfið 1,1-2,6-10 og lesin var stuttur kafli úr bréfi Páls postula til Galatamanna. Færði íslenskum börnum krossinn aö gjöf Guðspjall dagsins var Lúkas 7, þar sem segir frá hundraðshöfðingjanum í Kapernaum og þjóni hans. Páfi hóf ræðu sína á orðum hundraðshöfð- ingjans viö Jesú: Herra, ég er ekki verður þess að þú gangir undir þak mitt. Hann ávarpaði fyrst bömin sem gengu í fyrsta sinn til altaris og færði þeim, ásamt öðrum íslenskum böm- um og ungmennum, krossinn aö gjöf tíl minningar um heimsókn sína. Ávarpið til bamanna var á íslensku og tókst páfa einstaklega vel að koma kveöju sinni á framfaeri á tungumáli sem hann nýlega hefúr kynnst. í ræðu sinni fagnaði hann 1000 ára afmæli kristnitöku á íslandi og minntist fyrstu munkanna frá ír- landi, fyrsta íslenska biskupsins, ísleifs Gissurarsonar, Þorláks Helga, þjóðheljunnar Jóns Arasonar bisk- ups, jesúítaprestsins Jóns Sveinsson- ar og fyrsta íslenska kaþólikkans á síðari tímum, Gunnars Einarssonar, og hans sonar, Jóhannesar, sem varö fyrsti kaþólski biskupinn á islandi á síðari tímum. í tilefni af sjómanna- degi minntist páfi íslenskra sjó- manna, þeirra sem týnt hafa lífi eða slasast fyrir þessa gamalgrónu at- vinnugrein íslendinga sem útheimtir mikinn dugnað, hugrekki og þraut- seigju. Auðvelt að missa sjónar af skaparanum Páfi vék næst að íslensku þjóðfélagi og sagði að í slíku velferðarþjóðfé- lagi, þar sem allir hefðu nóg viður- væri, menntím og heilsugæsla stæði öllum til boða og félagslegt réttlæti ríkti, væri auðvelt að missa sjónar af skaparanum og lifa eins og Guð væri ekki til. En ef við gleymum Guði glatast fljótt skilningur á dýpri merkingu tilverunnar. Og hann spurði hvort þetta væri ekki ástæða fyrir þeirri óánægju sem viða verður vart í velferðarþjóðfélögum. í ræðu sinni fjallaði hann einnig um skynsamlega nýtingu mannsins á auðlindum jarðar og á sviði mann- legra samskipta bæri okkur að byggja upp heim réttlætis, friðar og kærleika. I lokin þakkaði hann ís- lendingum hlýjar móttökur og bað Guð að blessa íslensku þjóðina. Því næst var farið með trúaijátn- inguna á latínu. Áður en kom að alt- arisþjónustunni vora fluttar al- mennar fyrirbænir. Hinir trúuðu sýndu þátttöku sína við fómina með því að færa gjafir. Nunnumar 1 Kar- melreglunni færðu páfa mynd af Maríu mey, sem príórínan málaði, og kmpu fyrir honum. Frá Blindrafé- laginu fékk hann þríkross en forseti íslands og biskup íslands hafa áður fengiö slíkan kross aö gjöf frá blind- um. Kaþólsk börn gengu til altaris Eftir bænina Faðir vor ámaði páfi messuþjóni friðar, hann lét kveðjuna ganga áfram til messugesta og þeir heilsuðust með handabandi. Um fimmtíu kaþólsk böm, á aldrinum 8-9 ára, gengu í fyrsta sinn til altaris við messuna. Stúlkumar vom allar klæddar hvitum kjólum en drengim- ir svörtum fótum. Þau gengu í röð upp að páfa og þáöu heilagt sakra- menti, oblátuna. Á eftir þeim gengu nokkrir safhaöarmeðhmir upp til páfa og þáðu altarissakramentið. í messulok blessaði páfi messugesti með útbreiddum höndum og kyssti altarið, eins og við upphaf messunn- ar. Páfi fór síðan í Landakotsspítala þar sem hann afskrýddist og bjó sig undir brottforina. Aö baki altaris- pallinum beið bflalestin við austur- gafl Landakotsspítala. Þegar Jó- hannes Páll páfi II. kom út gekk hann ekki beint að bílnum heldur hélt í átt að Túngötunni og kvaddi nokkra messugesti með handabandi. Við þessa óvæntu uppákomu kom mikið fát á alla öryggisverði og fjölmiðla- fólk. Að síðustu kvaddi hann nokkr- ar nunnur, sem biðu þess að sjá hans heilagleika, Jóhannes Pál páfa II„ blessaöi þær og óskaði velfarnaðar.’ -JJ Um fimmtiu kaþólsk börn á Islandi gengu i fyrsta sinn til altaris og þáöu sakramenti úr höndum páfa. Börnin gengu i einfaldri röð, stúlkurnar skrýdd- ust hvítu og drengirnir svörtu, og fóru siðan til sætis. Græni liturinn i skrúða páfa tilheyrir þessu tímabili í kirkjuárinu. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.