Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Blaðsíða 32
ff""*" 9...*"
r"' n d
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rltst|órn -Auglýsingar - Askrift - Dreíítng: Sími 27022
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989.
Umferðin:
Lögreglan gerir
ekki skýrslur
-um minni óhöpp
Lögreglan í Reykjavík mun ekki
lengur gera skýrslur vegna umferð-
aróhappa nema sérstök ástæða þyki
til. Skýrslur verða gerðar ef slys hafa
orðið á fólki, grunur er um ölvun
ökumanns, grunur er um réttinda-
leysi, í þeim tilvikum sem tjónvaldur
fer af óhappastað án þess að tilkynna
atvikið og öðrum þeim einstöku til-
vikum að sérstök ástæða mæli með
skýrslugerð.
í þeim tiifellum þar sem ekki verða
gerðar skýrslur tekur lögreglan
myndir af óhappinu - ef ástæða þyk-
ir til. Tryggingafélögin hafa aðgang
að myndunum óski þau þess.
Lögreglan vill koma vinsamlegum
tilmælum til fólks um að það kynni
sér tjónstilkynningareyðublöðin og
varðveiti þau í ökutækjum sínum.
-sme
íslensk stjómvöld:
Dauðadómum í
Kína mótmætt
Söluskattsaðgerðimar í Reykjavík:
700 milljónir tapaðar
vmii#i aÍAldhmbi
Vvl^llCI l||CIIU|li VlCI
- á armað hundrað fyrirtækjum hefur verið lokað
„Það er óraunhæft að segja aö Búið er að loka á annað hundrað öðrum hibýlum, og þvi ekki hægt mjög annasöm hjá innheimtu-
vangoldnar söluskattsskuldir séu fyrirtækjum i Reykjavík. Mörg aðinnsiglaþar.Þáerulíkatildæmi mönnum. Eins og áður hefur kom-
tveir milljarðar. Það hafa til dæmis þeirra hafa verið opnuö aftur - þar um að fieiri en eitt fyrirtæki sem ið fram í DV er þetta aöeins upphaf-
tapast um 700 milljónir hjá gjald- sem annaðhvort hefa verið gerð eru með sameiginlega aöstööu - og ið að öðru og meira. Snorri Olsen,
þrotafyrirtækjum. Þá hafa tugir skil á söluskattsskuldum eða þá að því ekki hægt að loka þar sem önn- lögfræðingur í fjármálaráðuneyt-
milljóna verið felldir niður afáætl- viðkomandi fyrirtæki hafi fengið ur fyrirtæki á sama stað hafa verið inu, hefur sagt að loknum aðgerð-
uðum söluskatti,“ sagði Þuríður niöurfellingu af áætluðum solu- í skilum. í einstaka tilfellum liafa um vegna vangoldins söluskatts
Halldórsdóttir yfirlögfræðingur skatti. skrifborð, húsgögn og tölvur verið verði tekið við að innheimta fleiri
hjá tollstjóraembættinu. Ekki hefur allstaðar verið hægt innsigluð. opnber gjöld sem eru í vanskilum.
Þuríður sagði að innheimst hefðu að innsigla - þó ástæða hafi verið Þessi fyrsta vika, þar sem gengið Snorri og Ólafur Ragnar Grímsson
tugir milljóna - en hversu margir til. Til eru dæmi þar sem fyrirtæki var hart fram í innheimtu á van- fjármálaráðherra hafa báðir sagt.
varhúnekkitilbúinaðsegjatilum. er skrásett á heimili eigenda, eða goldnum söluskatti, hefur verið aðafnóguséaðtaka. -sme
íslensk stjómvöld fordæma hand-
j*tökur og beitingu ofbeldis gegn
námsmönnum, verkamönnum og
þeim sem hafa tekið þátt í friðsam-
legum mótmælaaðgerðum í Kína og
haft að markmiði aö auka lýðræði
og frjálsa stjómarháttu.
Þetta fékk kínverski sendiherrann
að heyra þegar hann var kallaður í
utanríkisráðuneytið og afhent mót-
mæli íslenskra stjómvalda.
Þá mótmæla íslensk stjómvöld
dauðadómum yfir þessum mönnum
og óska þess að þeim verði breytt.
Kínversk stjómvöld era hvött til að
halda á ný inn á braut þeirrar opnu
póhtísku umbótastefnu er mörkuð
hefur verið og byggir á auknum
mannréttindum þegnunum til
handa. -gse
Eldur á Höfn
- og talsverðar skemmdir
Júlía Imsland, DV, Höfru
Eldur kom upp í eldhúsi leikskól-
ans á Höfn í hádeginu í gær, fimmtu-
dag. Enginn var í húsinu þar sem
allir fara heim í hádegismat en ná-
granni sá eld leggja út um glugga og
loftop og gerði slökkviliði viðvart.
Talsverður eldur var í eldhúsinu og
reykinn lagði víöa um húsið. Greið-
lega gekk að slökkva en töluverðar
skemmdir urðu af eldi og reyk. Elds-
upptök er ókunn ennþá. Engin starf-
semi verður í húsinu á næstunni
meðan viðgerð fer fram.
íþróttasamband Föroya og Havnar Sjónleikarfélag verða með tvær gestasýningar í Þjóðleikhúsinu um helgina.
Sýnir hópurinn leikritið Framá eftir Sigvald Olsson undir leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur. Gerist leikritið í bún-
ingsklefa þar sem segir frá samskiptum í knattspyrnuliði fyrir og eftir leik. Myndin er tekin við komu hópsins til
Reykjavíkur í gær. DV-mynd GVA
Jón Baldvin
Geri ekkert á
fastandi maga
„Ég geri alla vega ekkert í þeim
málum á fastandi maga,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra í viðtali við DV í morgun um
málefni Hannesar Jónssonar sendi-
herra.
Sem DV hefur skýrt frá hefur
Hannes Jónsson neitað að verða við
tilmælum Jóns Baldvins um að hann
biðjist afsökunar á ummælum sínum
um „fúskara" í starfsliði utanríkis-
ráðherrans. Fyrr í vikunni sagðist
Jón Baldvin ætla að taka mál sendi-
herrans fyrir þegar hann kæmi af
fundi alþjóðasamtaka sósíaldemó-
krata í .Stokkhólmi.
í morgun vildi Jón Baldvin ekkert
um hugsanlegar aðgerðir gegn
Hannesi segja. HV
Henry A. Hálfdansson:
Sækir vélar-
vana smábát
Henry A. Hálfdansson, björgunar-
bátur Slysavarnafélagsins, fór í
morgun til að sækja bilaðan smábát.
Einn maður mun vera um borð í bil-
aða bátnum. Vél bátsins bilaði norð-
an við Þormóðssker. Þar er veður
gottogreklítið. -sme
LOKI
Þá er bara að fá sér
lifur hjá Bryndísi.
Veðrið á morgun:
Þunt nyrðra
- rigning
syðra
Á morgun er gert ráð fyrir aust-
an- og suðaustanátt á landinu. Um
sunnanvert landið verður því all-
víða rigning en að mestu þurrt
norðanlands. Hitastigið verður
svipað og undanfama daga, á bil-
inu 7 til 14 stig.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJORAR