Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1989, Blaðsíða 32
A K O I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháð dagblað FOSTUDAGUR 18. AGUST 1989. Bretunum seinkar: bk niðri við Sandgerði Bátur Bretanna þriggja, sem ætla m aö setja met á siglingu yfir Atlants- hafiö í opnum gúmbáti, tók niðri á Bæjarskerseyri fyrir utan Sandgeröi í gær. Skemmdust báöir utanborös- mótorarnir eitthvað en þeim tókst þó aö koma öörum í gang aftur og sigla inn til hafnar í Sandgerði. Þar tóku slysavarnamenn á móti þeim, komu bátnum í hús og reyndu aö aðstoða viö aö koma mótorunum í lag aftur. Gistu Bretarnir í Sandgerði í nótt. Von er á þeim til Reykjavíkur síðdegis í dag. Bretamir lögöu af staö frá Eng- landi 2. ágúst en takmarkið er aö sigla þaöan til New York á sem skemmstum tíma. Á leið frá Færeyj- um til Hafnar fengu þeir slæmt veður <g#og voru mun lengur á leiöinni en áætlað var í upphafi. Næsti viökomu- staður, eftir Reykjavík, er Ang- magsalik á Grænlandi. Bretarnir munu hafa ætlaö aö fara leiöina yfir Atlantshafið á 10 dögum en óvíst er hvortþaðtekstúrþessu. -hlh Holland: Fíkniefnasalar á Islendingaslóðum T Hollenska lögreglan handtók í gær einn Hollending og fjóra Belga grun- aöa um sölu og dreifingu á þúsund- um hylkja er innihalda fíkniefniö „alsælu“. Mennirnir voru teknir í bænum Valkenswaard sem er aðeins um 5 kílómetrum frá Kempervennen þar sem fjöldi íslendinga dvelst í sumarhúsum. Að sögn íslendinga þar syöra var sagt frá þessari handtöku í sjónvarpi en slíkar fréttir munu vera algengar og vekja ekki sérstaka athygli. Yrði ekki vart viö neitt þessu líkt á íslend- ingaslóöunum og atburðir sem þessir lítið ræddir. Söluverðmæti þessa fíkniefnis, sem byggir á amfetamíni, mun vera um ^fjórar og hálf milljón íslenskar krón- urkomiöágötuna. -hlh Flateyri: Stórmeistarar á helgarmóti Reynir Traustason, DV, Hateyri: 37. helgarskákmótiö hefst á Flat- eyri í kvöld kl. 17. Alls munu um 50 manns taka þátt í því, þar á meðal stórmeistararnir Helgi Olafsson, Jó- hann Hjartarson, Jón L. Árnason og Margeir Pétursson, auk íjölda ann- arra fremstu skákmanna Islendinga. Tímaritið Skák og Flateyrarhreppur ■ standa fyrir mótinu og hafa nokkrir einstaklingar lagt mikla vinnu í und- irbúning þess. LOKI Það passar að stranda í Sandgerði á leiðinni London-New York Tilboð Alþýðuflokksins í viðræðum við borgara: Buðum ígildi tveggja ráðuneyta segir Jón Baldvin Hannibalsson „Til aö mæta ásökunum um að Alþýðuflokkurinn vildi ekkert af hendi láta í viðræðum við Borgara- flokkinn setti ég fram tillögu um að Alþýðuflokkurinn léti af hendi utanríkisráðuneytið sem hefur verið metið sem eitt og hálft ráðu- neyti í stjómarmýndunarviðræð- tun. Auk þess bauð ég fram starf samstarfsráðherra Norðurlanda, forráð yfir ferskfiskútflutningi og starf forseta neðri deildar Alþingis. Við buðum þama ígildi tveggja ráðuneyta," sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra en viðræöur við Borgaraflokkinn eru nú í biðstöðu eftir að þessum tiflögum Alþýðuflokksins var hafh- að af sarastarfsflokkunum en það vora sérstaklega framsóknarmenn sem lögðust gegn þessu. Að sögn Jóns Baldvins hefur Borgaraflokkurinn sagt að hann gæti sætt sig við tvö ráðuneyti ef annað væri veigameira - því hefði hann sett fram þessa tillögu. Jón Baldvin tók fram að utanríkisráð- herraembættið hefði veriö ætlað Borgaraflokknum, ekki Alþýðu- bandalaginu. í staðmn hefði Al- þýðuflokkurinn viljað fa land- búnaðar- og umhverfisráðtmeyti. „Það er þvi ekki rétt að Alþýðu- flokkurinn standi eftir þetta í vegi 'fyrir þeim tilmælum forsætisráð- herra að hver flokkur láti af hendi eitt ráðuneyti - það höfum við gert og ríflega það.“ Þar með hefur tillögum allra sfjómarflokkanna verið hafhað í þessari lotu viöræðnanna við Borg- araflokkinn en allir flokkarmr hafa boðist til að láta eitthvað af hendi en í ólíku tillöguformi. Framsóknarmenn eru hrifnastir af þeirri hugmynd að þeir láti dóms- og kirkjumálaráðuneytið af hendi, Alþýöubandalagið sam- gönguráðuneytiö og Alþýðuflokk- urinn samstarfsráöherrann, for- ræðið yfir ferskfiksútflutningi og forseta neðri deildar. Því hafnaði Alþýðubandalagið. Álþýðubandalagið vili að sam- göngu- og iðnaöarráöuneyti fari til borgara en umhverfisráðuneytið þegar þaö verði stofnað og dóms- og kirkjumálaráðuneytið fari til Alþýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins. Að sögn Jóns Baldvins hafa ekki fleiri tillögur verið ræddar á grund- vefli óbreyttrar verkaskiptingar ráðuneytanna. -SMJ Nýi einkaskólinn: Ráðherra synjaði um starfsleyfi Þessi risasveppur, sem börnin halda á, er ekki útlenskt fyrirbæri, eins og einhverjir gætu haldið, heidur hreinræktaður íslendingur. Hann fannst uppi í Heiðmörk þar sem hann hafði vaxið og dafnað. Krakk- arnir heita, f.v., íris Dögg, Kolbrún Lára og Daníel Árni sem heldur á sveppnum væna. DV-mynd KM í bréfi, sem Svavar Gestsson menntamálaráðherra sendi Braga Jósepssyni ritara skólanefndar Mið- skólans í morgun, synjaöi ráðherra skólanum um starfsleyfi. Raunar höfðu forráðamenn skólans tekið þá ákvörðun í gær að skólinn yrði ekki starfræktur í vetur eins og. fyrir- hugað hafði verið. Með synjun ráðherra fylgdi grein- argerð þar sem segir að ekki þyki fært að veita skólanum starfsleyfi þar sem undirbúningur undir starf- semi hans sé ekki nægilega góður. Samkvæmt skólalögum yrðu börnin sem stunduðu þar nám undanþegin almennri skólaskyldu og á því vilji menntamálaráðherra ekki taka ábyrgð. Fjárhagur sé ótraustur og ljóst að skólagjöld verði mjög há. Þá séu umsagnir þær sem borist hafi frá fræðslustjóra og Kennarasamband- inu svo eindregnar gegn því að starfsleyfi verði veitt aö vafasamt sé aðgangaíberhöggviðþær. -JSS Veðrið á morgun: Hægviðri Á morgun verður hæg, breyti- leg átt á landinu, skýjað með köfl- um, en víðast þurrt. Sést til sólar á Suður- og Vesturlandi. Hitinn verður 7-13 stig. Heitast á Suður- landi. Kgntucky Fried Ghicken Kjúklingursem bragö erað. Opið alla daga frá 11—22. Um allan heím alla daga ARNARFLUG •22! KLM Lágmúla 7, Austurstræti 22 <S 84477 & 623060 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.