Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989. Fréttir____________________________________________________________________dv Húnaversmálið komið til skattstjóra Norðurlandsumdæmis vestra: Ákvörðun skattstjórans verður stefnumarkandi - segir Snorri Olsen í ármálaráðuneytinu „Málið er komið til skattstjórans í Norðurlandsumdæmi vestra. Hann mun ákvarða hvort innheimtur verður söluskattur af útihátíðinni sem haldin var í Húnaveri. Sú ákvörðun, sem hann tekur, mun verða stefnumarkandi. Ef hann ákveður að innheimta söluskatt verða eldri mál skoðuð,“ sagði Snorri Olsen, lögfræðingur í íjármálaráðu- neytinu. Jón ísberg, sýslumaður í Húna- vatnssýslu, segist telja aö ölium skil- yrðum til undanþágu frá söluskatti hafi verið fullnægt á hátíðinni í Húnaveri. Hann hefur sent fjármála- ráðuneytinu greinargerð um máhð þar sem hann tekur fram að hann treysti sér ekki til að innheimta sölu- skatt. „Ef skattstjóri úrskurðar að sölu- skattur skuli innheimtm- þá geri ég það að sjálfsögðu sem innheimtu- maður ríkissjóðs," sagði Jón ísberg. Fj ármálaráöuneytinu hafa ekki borist beiðnir um undanþágu frá mótshöldurum í Vestmannaeyjum og í Galtarlækjarskógi. Ævar Þóris- son, starfsmaður Knattspymufélags- ins Týs í Vestmannaeyjum, sagði að þeir væru að skoða þessi mál og óvíst væri hvort óskað yrði eftir undan- þágu frá söluskatti vegna þjóðhátíð- arinnar. „Þjóðhátíðin er menningarhátíð sem haldin hefur verið í 107 skipti. íþróttafélögin hér í Eyjum fá ailan hagnaðinn og peningamir fara til uppbyggingar á æskulýðsstarfi í bænum,“ sagði Ævar Þórisson. „Mér hefur ekki borist beiðni frá templurunum. Enda hafa þeir alltaf borgað allt sem þeim ber og ég á ekki von á neinni breytingu þar á. Hitt er annað mál að það dugir ekki að veita einni hljómsveit undanþágu en ekki öðmm. Stuðmenn voru með dansleik í Njálsbúö fyrir skömmu. Þeir vom með undanþágubréf frá ráðuneytinu. Eftir því sem ég best veit var þetta óbreyttur dansleikur. Það mál verður rannsakað," sagði Friðjón Guðröðarson, sýslumaður í Rangárvallasýslu. „Viö munum greiða söluskatt. Okkar dagskrá var á þá leið að skil- yrði til undanþágu em ekki fyrir hendi,“ sagöi Karl Helgason sem var mótsstjóri í Galtarlækjarskógi um verslunarmannahelgina. Snorri Olsen sagði að dansleikir eða tónleikar Stuðmanna frá því fyr- ir verslunarmannahelgi yrðu skoð- aðir ef úrskurður skattstjóra yrði sá að greiða ætti söluskatt af Húnavers- hátíðinni. -sme Ógnaði konu með hníf og bað um „kortið“ sitt - árásarmaöur farinn til Svíþjóöar Tveir menn, sem vom á leið heim úr vinnu snemma aðfaranótt laugar- dagsins, tóku par upp í bíl til sín á Suðurlandsbrautinni, sænskan mann og íslenska konu. Fljótlega sinnaðist parinu og dró sá sænski upp hníf og lagði að kviði hennar. Parið sat í aftursæti bílsins. Þegar komið var inn á Kársnesbraut í Kópavogi tók Svíinn aö ókyrrast og virtist bílstjóranum hann leita á kon- una. Skömmu seinna bað hann bíl- stjórann á ensku að nema staðar. Þegar bílstjórinn stöðvaði bílinn var sá sænski orðinn mjög æstur og bað konuna í sífellu um „kortið“. „Komdu meðkortið en mér er sama um peningana," æpti hann. Svo fór að Svíinn brá hníf á loft og lagði að kviði konunnar. Þá tók bO- stjórinn til fótanna og hljóp í burtu eftir hjálp. Þegar hann kom til baka reyndi Svunn að komast út úr bíln- um en félagi bOstjórans reyndi að vama honum útgöngu þar til lög- regla kæmi á vettvang. Það tókst þó ekki, Svunn slapp í burtu. Fóm þá þau þrjú, sem eftir vom, á lögreglu- stöðina í Kópavogi og var þar tekin af þeim skýrsla. Veski Svíans með hárri peningaupphæö fannst í aftur- glugga bifreiðarinnar. Skömmu seinna bámst upplýsing- ar um að Svíinn væri á leið tíl Hohday Inn hótelsins í leigubifreið. Fór lögreglan þá á vettvang og færði Svíann í fangageymslur lögreglunn- ar þar sem hann sat inni fram á næsta dag. Hann mun nú vera kom- inn heim til Svíþjóðar. -ÓTT Þar sem atvinnulífið byggist fyrst og fremst á fiskveiðum og vinnslu aflans er jafnan lif og fjör við höfnina. Svo var á Húsavík einn morguninn er ver- ið var að landa úr togbátnum Björgu Jónsdóttur ÞH-321 þar. DV-mynd gk í dag mælir Dagfari Menningarsjokk á Kjarvalsstöðum? Daglega og stundum tvisvar á sólarhring hefur Dagfari gert sér ferð út að öskutunnu með það rusl sem til feUur á hverju heimOi. í mslapokanum, sem kaupmaður- Om selur í nafni Landverndar, er svona venjulegt sorp, það er að segja kartöfluhýði, tómar niður- suðudósir, leifar af fiski og kjöti ásamt vindilstubbum. Aldrei hefur það hvarflað að Dagfara að nein verðmæti geti faUst í þessum úr- gangi heldur hugsaö hlýlega tíl hreinsunarmanna borgarinnar sem sjá um aö tæma sorptunnur reglulega án tiUits tíl árstíma eða tíðarfars. í gærmorgun uppgötvaði Dagfari hins vegar sér til mikOlar skelfingar að hann hefur verið að kasta gífurlegum verðmætum á glæ árum saman. I Morgunblaöinu í gær var grein eftir Guömund Guðmundarson um hámenningarUstsýningu á Kjar- valsstöðum. Kemur þar í ljós að ýmsir aðilar úti í hinum stóra heimi hafa safnað saman sorpi sínu og flytja nú mOU landa í nafiO margslunginna og sjónrænna lista- verka. Að vísu er Guðmundur Utt hrifinn af þessu framtaki og telur að margur maöurinn ætU að þessi sorplistaverk hámenningarinnar séu fengin frá geðveikrahælum. Þessir sleggjudómar Guðmundar skýra sig sjálfir þegar rýnt er í texta hans því þar kémur í ljós að greinarhöfundur hefur verið næst- um því dottinn um sum Ustaverkin þar sem þau voru svo samUt gólf- inu. Sem betur fer tókst Guðmundi þó aö verjast falU enda hefði það orðið óbærilegt slys hefði hann faU- ið um sjálfan sig þama á Kjarvals- stöðum. Nema slíkt óhapp hefði fittaö inn í hámenninguna og verið tekið sem enn eitt Ustaverkið af menningarvitum þjóðarinnar. Guðmundur tekur fram að ýmsir hljóti að verða fyrir andlegu áfalU á þessari sýningu; nefnir til dæmis skítuga kommóðu, kökukefli, múr- skeið og náttborðsræfil. Bætir við að þama sé að finna heysátu á stól- ræfli en heyið sé að vísu hálmur. Eftir þessar lýsingar treystir Dag- fari sér ekki til að sæKja umrædda listsýningu en rennir hins vegar hýra auga til stólræfla og grassins sem kemur undan sláttuvélinni. Hér eftir verður passað upp á aU- an úrgang þvi það er aldrei að vita hvemig megi koma honum í verð í nafni hámenningarinnar. Eini ókosturinn er sá aö helst þyrfti að flylja drasUð úr landi og fá á það erlendan stimpU áður en íslenska menningarmafían setur sinn stimpU á afurðina. En það kostar nú ekki svo mikið aö flytja 10 dósir undan afurðum frá Ora úr landi að það borgi sig ekki að gera tilraun til að skáka Andy Warhol. Svo er aldrei að vita nema maður fengi mni fyrir kartöfluhýði í Listasafni íslands ef svo illa færi aö Kjarvals- staðir væra uppteknir. AUa vega segir Guðmundur frá því að í Lista- safninu hafi verið sturtað fimm Ujólbörum af mold og dreift í fer- hyming. Fyrst hélt Dagfari að góð- kunningjar lögreglunnar hefðu verið valdir að þessum skemmdar- verki. En viö frekari lestur kom í Ijós að auk moldarinnar lá gömul ryksuga á gólfi safnsins og strau- borð þar fyrir utan. Þá hlýtur hver og einn, nema náttúrlega Guð- mundur, að skilja að hér er um að ræða listaverk en ekki skemmdar- verk. Ekki þar fyrir að stundum er erfitt að greina þama á milU og þvi skulu menn fara að öUu með gát þegar þeir fara að diskútera list. Dagfari tekur stundum þátt í opn- un málverkasýninga með því að dreypa á hvítvínsglasi og reyna að vera gáfulegur í framan þá hann horfir á hin og þessi skOerí uppi á vegg. En það skal viðurkennt að öUu erfiðara mun reynast að halda gáfumannasvipnum við að horfa á fimm hjólbörufarma af mold, svo ekki sé nú talað um ónýtar ryksug- ur og önnur fyrrverandi heintil- istæki. Gæti verið að maður missti þá út úr sér setningu eins og til dæmis: Er þetta ekki gamla ryk- sugun min sem ég henti á haugana í fyrra? Það fer ekki milU mála að slík athugasemd nægði til að úti- loka viökomandi frá því að vera viöstaddur fmmsýningu siíkra há- tíöahalda um aUa framtíð. Þá er f nú betra að halda áfram þeim [ gamla sið að humma, draga andann djúpt og skála svo við finnendur gamalla ryksugna á öskuhaugun- um, með þeim ummælum að sjald- an hafi maðurinn komist nær úpp- runa sínum en með þessu Usta- verki. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.