Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1989, Blaðsíða 4
20 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989. FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989. 21 Messur Guösþjónustur sunnudaginn 10. sept- ember 1989 Frá Æskulýössambandi kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmi Samvera í Langholtskirkju sunnudag kl. 17. Lokaþáttur söng- og dramanám- skeiðs. Komum og hefjum vetrarstarf ÆSKR saman. Árbæjar- og Grafarvogssókn Guðsþjónusta i Árbæjarkirkju kl. 11 árdegis. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ámi Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtskirkj a Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson Bústaðakirkja Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matthias- son. Dómkirkjan Messa kl. 11. Dómkórinn syngur. Org- anisti Marteinn Hunger Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. Frikirkjan í Reykjavík Guðsþjónusta kl. 11.00 (Athugið breytt- an tíma að þessu sinni.) Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson. Landakotsspitali Messa kl. 13. Organisti Birgir Ás Guð- mundsson. Sr. Hjalti Guðmundsson. Elliheimilið Grund Messa kl. 10. Organisti Kjartan Ólafs- son. Sr. Ólafur Jóhannsson. Fella- og Hólakirkja Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Guðný M. Magn- úsdóttir. Sóknarprestar. Grensáskirkja Messa kl. 11. Organisti Ámi Arinbjam- arson. Fyrirbænir eftir messu. Þriðju- dagur kl. 14. Biblíulestur fyrir eldri borgara. Umræður og kaflisopi á eftir. Laugardagur kl. 10. Bænastund UFMH. Prestamir. Hallgrimskirkja Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Láms- son. Organisti Hörður Áskelsson. Fé- lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða söng. Hádegisverður eftir messu. Þriðjudagur. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Landspitalinn Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. Háteigskirkja Messa kl. 11. Sr. Kristinn Ágúst Frið- finnsson prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Sóknarprestur. Kvöldbænir og fyr- irbænir em í kirkjunni á miðvikudög- um kl. 18. Hj allapres takal 1 Messa kl. 2 í messuheimili Hjallasókn- ar Digranesskóla. Altarisganga. Kór Hjallasóknar syngur. Organisti David Knowles. Sr. Kristján Einar Þorvarðar- son. Kópavogskirkja Messa kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns- son. Langholtskirkja Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjón- usta kl. 11. Ræðuefni æskulýðsmál. Organisti Jón Stefánsson. Samvera kl. 17 á vegum ÆSK, leiklist - dans - afriskir söngvar. Sr. Þórhallur Heimis- son. Laugarneskirkj a Kirkjuhátíö í Laugamesi. Laugames- kirlga verður aftur tekin í notkun sunnudaginn 10. sept. efifir gagngerar viðgerðir og lagfæringar., Hátíðarmessa verður kl. 14. Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, prédikar og vigir nýtt altari og skímarsá. Sóknarpresturinn sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari en einnig munu þeir sr. Guö- mundur Þorsteinsson dómprófastur og sr. Ingólfur Guðmundsson námsstjóri þjóna við altarisgönguna. Leikmenn munu lesa ritningarorð. Karl Ómar Jónsson verkfræðingur mun flytja ávarp. Ann Toril Lindstad verður org- anisti og kórstjóri og kór Laugames- kirkju syngur. Eftir athöfnina í kirkj- unni verður kirkjugestum boðið upp á kaffi og smákökur í safnaðarheimilinu kl. 20 en kl. 22 verður helgistund í kirkj- unni. Fimmtudag 14. sept. verður kyrrðarstund í hádeginu. Kl. 12 verður orgelleikur, kl. 12.10 helgistund með altarisgöngu og fyrirbænum og kl. 12.30 verður boðið upp á léttan hádegisverð í safnarðarheimUinu. Sóknarprestur. Tapað fundið Gleraugu töpuðusi Gleraugu í litlu dökkrauðú smelltu hulstri töpuðust 21. ágúst sl. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 17639. Námskeið Vetrarnámskeið Norræna heilunarskólans Vetramámskeið Norræna heilunarskól- ans em að hefjast og er skráning hafin í símum 624464, 674373 og 74074. Kynning- arfundur verður haldinn fimmtudaginn 14. september kl. 20 að Laugavegi 163, 3. hæð. Dagsnámskeið verður á Selfossi sunnudaginn 17. september kl. 10-16 en vetramámskeið hefst helgina 30. sept- ember í Reykjavík. Norræni heilunar- skólinn hefur verið starfandi í Reykjavík frá 1985 og á Akureyri frá 1987. i skólan- um er veitt fræðsla i andlegum málum og komið inn á flest svið þar að lútandi. Ennfremur er farið í hugleiöslu, þjálfaðar heilunaraöferðir og æfingar hvers konar er stuðla að andlegu jafnvægi og und- irbúa komu nýrra tíma. Á skrifstofu fé- lagsins era ennfremur seldar spólur með tónlist til slökunar og hugleiðslu, bækur, sem félagið hefur gefið út, og steinar ýmiss konar. Annað hvert fimmtudags- kvöld kl. 20 er opið hús fyrir almenning þar sem hægt er að fá heilun. Ferðalög aö vekja athygli á happdrætti Félags- heimilis tónlistarmanna en dregið verður 23. október nk. Fjöldi vinnmga er í boði, m.a. Skoda Favorit 1990 að verðmæti kr. 435.000 og ferðavinningur að verðmæti kr. 75.000 en heildarverðmæti vinninga er um kr. 1.000.000. Fjöldi miða er 5000 og kostar hver kr. 1000. ræktarátaki Skógræktarfélags íslands andvirði um 4000 trjáplantna. Skógrækt- arátakið í heild stefnir hins vegar að tveim miUjónum plantna. Farandsýning á gömlum meistara- verkum kvikmyndasögunnar í tilefni af 50 ára afmæh Alþjóðasamtaka kvikmyndasafna, FIAF, hefur verið efnt til farandsýninga á gömlum meistara- verkum kvikmyndasögunnar viös vegar úr heiminum. Hér er um að ræða 10 myndir sem kvikmyndasöfn hafa bjargað frá eyðileggingu og endurgert. Nú er þessi sýning komin hingað til lands og fram til 12. september gengst Kvik- myndasafn íslands fyrir sýningum á myndunum í Regnboganum. Hér gefst kvikmyndaunnendum einstakt tækifæri til að sjá ýmis snilldarverk allt frá upp- hafi kvikmyndasögunnar. Athygli skal vakin á þvi að sumar þessara mynda verða sýndar aðeins einu sinni. Vetrarstarf eldri borgara í Árbæjarkirkju hefst miðvikudaginn 13. september kl. 13.30. í safnaðarheimilinu verður opið hús á miðvikudögum. Leikfimi verður á þriðjudögum kl. 14. Fyrsti tíminn verður 3. október. Fótsnyrting verður á mánu- dögum. Upplýsingar gefur Svava í síma 84002. Símatími verður kl. 13-14 á þriðju- dögum fyrir eldri borgara og aðstandend- ur þeirra. Happdrætti Félagsheimilis tónlistarmanna Föstudaginn 1. september sl. var dreginn út á rás 2 aukavinningur í happdrætti Félagsheimilis tónlistarmanna að Vita- stíg 3, Reykjavik. Vinningurinn, sem er ferðavinningur frá Evrópuferðum, að verðmæti kr. 80.000, kom á miða nr. 669. Aukavinningurinn var dreginn úr núm- erum miða sem vora til sölu í verslunum Kaupstaðar og Miklagarðs í tengslum við „íslenska daga“ þar sem tónlistarmenn koma fram í nafni Félagsheimilis tónlist- armanna og aðstoðuðu jafnframt við sölu happdrættismiða. Það skal tekið fram að eingöngu var dregið úr númerum seldra miða. Vinningshafi getur vitjað vinnings hjá Evrópuferðum, Klapparstig 25-27. í undirbúningi era frekari uppákomur til Útivistarferðir Dagsferðir sunnudaginn 10. sept. Kl. 8, Þórsmörk-Goðaland. Stansað 3-4 klst. í Mörkinni. Verð 1.500 kr. Kl. 10.30, Álftavatn-Þórustaðir. Létt láglendisganga meðfram Alftavatni og hlíðum Ingólfsfjalls. 19. ferð í Landnáms- göngunni. Verð 1.000 kr. Kl. 13, Tannastaðir-Þórustaðir. Sam- einast morgungöngunni undir hliðum Ingólfsíjalls. Verið með í síðustu land- námsgönguferðunum. Verð kr. 1.000. Miðvikudagur 14. sept., kl. 20. Tungl- skinsganga i Viðey. Brottfor frá Viðeyj- arbryggju, Sundahöfn. Verð kr. 400. Helgarferðir 8.-10. sept. 1. Hrafntinnusker-Krakatindsleið. Spennandi ferð. Gist í skála við Land- mannahelli. Ekið í áttina að íshellunum og síðan gengið. 2. Þórsmörk-Goðaland. Góð gisting í Útivistarskálunum í Básum. Gönguferð- ir. Uppl. og farm. á skrifst., Grófmni 1, símar 14606 og 23732. Félagsmenn, vin- samlegast greiðið ársgjald Utivistar 1989 og fáið nýja ársritið. Sjáumst. Ferðafélag íslands Helgarferð Ferðafélags Islands 8.-10. sept. Landmannalaugar - Eldgjá. Á föstu- dagskvöld kl. 20 er ekið í Landmanna- laugar. Á laugardag er farið í Eldgjá og gengið að fossinum. Á sunnudag er farið um nágrenni Landmannalauganna og gist í upphituðu sæluhúsi. Nánari upp- lýsingar og farmiðasala á skrifstofunni. Dagsferðir sunnudaginn 10. september. Kl. 10.30, Harðarsaga og Hólmverja. Ekið um Hvaltjörð og Borgarfjörð um söguslóðir þessarar kunnu ísl. sögu und- ir leiðsögn kunnugs fararstjóra. Verð kr. 1.500, greitt við bílinn. Kl. 13, Meðalfell í Kjós. Meðalfellið Ugg- ur miðsvæðis í Kjósinni. Tiltölulega létt ganga. Verð kr. 1.000, greitt við bilinn. í dagsferðir er frítt fyrir böm og unglinga, 15 ára og yngri. Farið fTá Umferðarmið- stöðinni að austanverðu. Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 Kjarvalsstaðir: Nútímalist ljós- myndir og Kjarval Þremur stórsýningum lýkur á Kjarvalsstöðum um helgina, eru þetta sýningamar Alþjóðleg nútí- malist, ljósmyndir Karsh og sum- arsýning á verkum eftir Kjarval. Sýning Yosuf Karsh er tilkomin vegna áttræðisafmælis hans og gef- ur góða mynd af verkum hans, sem eru portrett myndir af frægum ein- staklingum, listamönnum, vísinda- mönnum, stjómmálamönnum og þjóðhöfðingjum. Myndir Karsh er víöa að fmna í merkustu listasöfnum heims og er mikill fengur að því að fá sýningu þessa til íslands. Það er Ljósmynd- arafélag íslands sem gengst fyrir symngunm. Mikil aðsókn hefur verið að sýn- ingunni Alþjóðleg nútímahst sem er skiljanlegt, því á sýningunni eiga verk margir af umdeildustu Ustamönnum síðastUðinna tuttugu ára. Má þar nefna menn eins og Andy Warhol, Joseph Kosuth, Frank Stella og Dan Flavin. Þessum tveimur sýningum lýkur á sunnudaginn. Þá lýkur einnig hinni árlegu sumarsýningu á verk- um eftir Jóhannes Kjarval. Sýning- in er að þessu sinni helguð uppstill- ingum og kyrralífsmyndum meist- arans. Ein mynda Davíðs Þorsteinssonar á Ijósmyndasýningu hans. Þessi mynd var tekin í Dundee í Skotlandi í fyrra. Ljósmyndir á Mokkakaffi Davið Þorsteinsson opnaði í gær á Mok- kakaffi við Skólavörðustíg sýningu á ljós- myndum eftir sig. Myndimar, sem eru um það bil þrjátíu talsins, eru allar svart- hvítar. Þær eru eru úr borgarlandslagi og sýna mótíf eins og tré, glugga, múrveggi og mannfólk. Flestar eru teknar á síðastliðn- um fjórum ámm í gamla bænum í Reykja- vík og nokkrar á ferðalögum í Skotlandi og Frakklandi. Davíð hefur tvisvar áður sýnt á Mokka, fyrst árið 1985. Þá sýndi hann myndir frá götum Reykjavíkur og síðastliðið sumar sýndir Davíð portrett af gestum Mok- kakafíis. Sýningin mun standa næstu þrjár vik- ur, eða til 28. september. Kvikmyndasýningar MÍR: Gamlar og nýjar kvikmyndir Kvikmyndasýningar MÍR hefjast að nýju aö loknu sumarleyfi í bíósal félags- ins að Vatnsstíg 10 á sunnudaginn kl. 16. Sýningar verða síðan hvem sunnudag á sama tíma og verða sýndar gamlar og nýjar sovéskar kvikmyndir. Nikita Mikhalov er leikstjóri myndar- innar sem sýnd verður á sunnudaginn. Nefnist hún Einn af okkur meðal ókunn- ugra, ókunnur okkar á meðal. Þetta er fyrsta kvikmynd þessa þekkta leikstjóra og leikara. Gerist myndin á dögum borg- arastyrjaldarinnar í Rússlandi. Skýring- artextar eru á ensku. Aðrar myndir, sem sýndar verða í spet- ember, eru Uppgangan, leikstjóri Larisa Shepitko, og Komdu og sjáðu, leikstjóri Ehm Klímov. Október er helgaður Mikhaíl Romm og verður sýnd heimildarmynd um hann og fjórar kvikmyndir hans verða sýndar, Lenín í október, Lenín 1918, Níu dagar af einu ári og Venjulegur fasismi. Nóvembermánuður verður svo helgað- ur Sergei Eisenstein og verða sýndar myndirnar Verkfall, sem er fyrsta kvik- mynd Eisensteins, frá árinu 1925, Lifi Mexíkó, sem er myndin sem Eisenstein lauk aldrei við, og báðir hlutar ívans grimma. í desember verða svo ballett- myndir á dagskrá. Neskirkja Guösþjónusta kl. 11. Orgel- og kórstjóm Reynir Jónasson. Sr. Olafur Jóhanns- son. Miðvikudagur. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 18.20. Seljakirkja Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Kjartan Ól- afsson syngur einsöng. Organisti Kjart- an Sigurjónsson. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja Messa kl. 11. Organisti Sighvatur Jón- asson. Prestur sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir. Kirkja óháða safnaðarins Guðsþjónusta kl. 2. Svala Nielsen syng- ur einsöng. Kaffiveitingar eftir messu. Sr. Þórsteinn Ragnarsson safnaðar- prestur. Frikirkjan Hafnarfirði Guðsþjónusta safnaðarins verður að Hrafnistu Hafharfirði kl. 11. Orgel- og kórstjóm Smári Ólason. Einar Eyjólfs- son. Stokkseyrarkirkja Messa kl. 2. Sóknarprestur Kefla vikurkirkj a Guðsþjónusta lú. 11. Kór Keflarvíkur- kirkju syngur. Organisti Öm Falkner. Sóknarprestur. Fundir Söng- og skemmti- félagið Samstilling heldur fyrsta fund vetrarins mánudaginn 11. september í Risinu, Hverfisgötu 105, kl. 20.30. Allir velkomnir. Hádegisverðarfundur presta að loknu sumarhléi verður í Bústaða- kirkju mánudaginn 11. september kl. 12. síðan með hópinn um nágrennið og kynna einstaka staði og byggingar. Kaffi- veitingar verða seldar í Viðeyjarstofu en að öðru leyti býður safnaðarstjóm til þessarar ferðar, þ.e. flutning frá Hafnar- firði og heim aftur. Félag eldri borgara í Kópavogi Munið að spiluð verður félagsvist í fé- lagsheimili Kópavogs í kvöld, fóstudags- kvöld 8. september, og hefst hún kl. 20. Kirkjuhátíð í Laugarnesi Sunnudaginn 10. september verður Laug- ameskirkja aftur tekin í notkun eftir gagngerar endurbætur. Hátíðarmessa verður kl. 14. Biskup íslands, herra Ólaf- ur Skúlason, predikar og vigir nýtt altari og nýjan skimarsá. Auk biskups mun sóknarpresturinn, sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson, þjóna fyrir altari og sr. Guð- mundur Þorsteinsson dómprófastur og sr. Ingólfur Guðmundsson námsstjóri aðstoða við altarisgönguna. Ann Toril Lindstad verður organisti og kór kirkj- unnar syngur. Eftir hátíðarmessuna verður öllum kirkjugestum boðið upp á kaffi og smákökur í safnaðarheimili kirkjtmnar. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, mun koma til kirkjuhá- tiðarinnar og samfagna Laugnesingum á þessum degi. Einnig munu borgarstjór- inn í Reykjavík og fulltrúar úr kirkju- málaráðuneytinu koma til athafnarinn- ar, svo og margir prestar Reykvíkinga ásamt fleiri gestum. Öllum er að sjálf- sögðu heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Félag eldri borgara Göngu-Hrólfur fer á Þingvöll nk. laugar- dag kl. 10 frá Nóatúni. Fólk hafi með sér nesti. Menntaskólinn á Egilsstöðum: Afmælis- og vígsluhátíð Nú í haust eru liðin 10 ár frá stofnun Menntaskólans á Egils- stöðum en hann tók til starfa 11. september 1979. Fyrstu stúdentarn- ir brautskráðust 1981 en alls hafa 308 stúdentar útskrifast. Verið er að leggja síðustu hönd á 1. áfanga kennsluhúss skólans sem verður afhent fullbúið við upphaf haustannar. Hér er því um tíma- mót að ræða í sögu skólans. í hinu nýja húsi eru niu fullkomnar kennslustofur, þar af tvær til- raunastofur fyrir raungreinar, ásamt góðri vinnuaðstöðu kenn- ara. Sunnudaginn 10. september verð- ur afmælis- og vígsluhátíð í skólan- um sem hefst kl. 14. Á dagskránni eru meðal annars ræður, ávörp, einsöngur og hljóðfæraleikur. Þá er þess vænst að stúdentar frá skó- lanum fjölmenni og að lagður verði grundvöllur að frekari samskipt- um einstakra stúdentsárganga í framtíðinni. Allir velunnarar og vinir skólans eru velkomnir og boðið að þiggja kaffíveitingar að athöfn lokinni. Nýbygging Menntaskólans er í forgrunni á þessari mynd. FÍM-salurinn: Kjarvalsstaðir: Píanótónleikar Vilberg Viggósson píanóleikari heldur tónleika að Kjarvalsstöðum sunnudaginn 10. september kl. 17. Vilberg er fæddur á ísafirði 1960, sonur hjónanna Kristjönu V. Jóns- dóttur og Viggós Norquist. Átta ára gamall hóf hann nám í Tónlistar- skóla ísafjarðar undir handleiðslu Ragnars H. Ragnar. Vilberg lauk burtfararprófi úr Tónlistarskólanum í Reykjavík 1982. Veturinn 1983-84 var hann gestanemandi við Tónlistarskól- ann í Köln og í einkatímum hjá rússneska píanóleikaranum Pavel Gililov. Haustið 1984 hóf Vilberg nám viö Sweelinck Conservator- ium í Amsterdam og tók þaðan lokapróf í vor. Á efnisskrá Vilbergs á tónleikun- um á Kjarvalsstöðum eru verk eftir Chopin, Beethoven, Debussy, Kab- alevski, Bartok og Hjálmar H. Ragnarsson. listamannahúsið: Sýning Dags Sigurðarsonar í Listamannahúsinu við Hafnar- stræti 4 stendur yfir sýning á myndverkum eftir Dag Sigurðar- son. Á sýningunni eru þrjátíu myndverk sem hann hefur málað hérlendis og erlendis undanfarin ár. Listferill Dags er heill og sam- felldur frá upphafi. Hann hefur aldrei látiö hiö hversdagslega líf rjúfa samhengi listalífs síns til langframa heldur haldið sínu striki með einlægni hins sanna lista- manns. Verk hans, bæði ljóðverk og myndverk, hafa oft vakið hneykslan. Sýningar Dags eru ekki margar. Síðast, þegar hann sýndi hér í borg- inni fyrir nokkrum árum, seldust flestallar myndimar fljótlega eftir opnun sýningarinnar. Sýningin er opin daglega frá kl. 10-18. Frístundahópurinn Hana nú Félagar í frístundahópnum Hana nú hafa átt skemmtilegt og viðburðaríkt sumar. Það markverðasta í starfinu í sumar var opnun púttvallarins á Rútstaðatúninu sem Hana nú stóð að í samvinnu við Tómstundaráð Kópavogs. Náttúraskoð- unarklúbbur stóð fyrir margvíslegum ferðum í sumar. Það næsta sem á döfinni er verður gönguferð um Öskjuhlíð laug- ardaginn 9. september sem lýkur í Kjarv- alsgarði. Leiðsögumaður verður Hafliði Jónsson, fyrrum garðyrkjustjóri Reykja- víkurborgar. Að lokinni gönguferð veröa skoðaðar listsýningar á Kjarvalsstöðum. Lokaferð sumarsins verður for til Stokkseyrar og Eyrarbakka laugardag- inn 23. september undir öruggri leiðsögn Þorleifs Guðmundssonar. Að venju era allir Hana-nú félagar boðnir velkomnir „ísland er land þitt“ selst í yfir eitt þúsund eintökum. Hljómplatan ísland er land þitt, sem gefin var út í samvinnu við Skógræktarfélag íslands fyrr í sumar, hefm- nú selst í yfir eitt þúsund eintökum. Á þessari skóg- ræktarplötu leiða saman hesta sína Magnús Þór Sigmundsson, Bubbi Mort- ens, Rúnar Marvinsson, Kristján frá Djúpalæk og margir fleiri. Sala plötunnar hefur nú þegar fært yfirstandandi skóg- Tveir á ferð Eitt verka Jón á sýningu hans í Gallerí Borg. Gallerí Borg: Gler- list Jón Jóhannsson sýnir verk sín í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9. Á sýningu Jóns eru glerverk sem öll eru til sölu. Þetta er fyrsta einka- sýning Jóns hérlendis en hann hef- ur tekiö þátt í sýningum í Banda- ríkjunum, Englandi og Þýskalandi. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10-18 og um helgar frá kl. 14-18. Henni lýkur þriðjudaginn 19. sept- ember. Gjöf til Jósefsspítala Nýlega gaf Lionessuklúbbur Reykjavíkur St. Jósefsspítala í Reykjavík Danica Tel- emonitor (hjarta-sívaka), tæki sem kem- ur að margvislegum notum við eftirht og meðferð hjartasjúklinga, einkum þeirra sem komnir eru af gjörgæslu og hafa fóta- vist. Tækið er sett saman úr sendi sem nemur rafboð hjartans og sendir þau síð- an þráðlaust til greiningartölvu sem varpar þeim á skjá. Komi fram óregla á hjartslætti er hægt að skrá óregluna ná- kvæmlega og beita viðeigandi meðferð. Síðan er hægt að fylgjast með árangri. Einnig er hægt að fylgjast með blóð- þrýstingi og súrefnismettun blóðs. Það er því Ijóst að tæki þetta kemur að mikl- um notum við eftirht og meðferð hjarta- sjúklinga. í mörgum tilvikum er hægt að flýta útskrift af gjörgæslu og einnig stytta heUdarlegutíma sjúklinga. St. Jósefsspít- afi þakkar Uonessum góða gjöf. Myndin TiJkyimingar Viðeyjarferð Hafnar- fjarðarsóknar Nk. sunnudag, 10. september, standa Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju og safn- aöarstjóm fyrir safnaðarferð út í Viðey. Farið verður með rútu frá Hafnarfjarðar- kirHju kl. 12.15 og ekið til Sundahafnar að Viðeyjarfeiju Hafsteins Sveinssonar sem flytur þátttakendur tíl Viðeyjar á skammri stund. i Viðey mun staðar- haldari, séra Þórir Stephensen, taka á móti gestum og leiða helgistund í Viðeyj- arkirkju, segja frá sögu staðarins og fara með gesti sína, vini og vandamenn, böm og bamaböm. Þeir sem vUja koma með era beðnir að hringja í síma 45700 daginn fyrir brottför. Minnt skal á að göngu- klúbbsfélagar ganga aUa laugardags- morgna ffá Digranesvegi 12 eitthvað út í bláinn og allir Kópavogsbúar era vel- komnir með. er af Ástu Sigvaldadóttur, formanni Lio- nessuklúbbs Reykjavíkur, afhenda Loga Guðbrandssyni framkvæmdastjóra gjöf- ina. Tveir á ferð nefnist sýning þeirra feðgina Margrétar Jónsdóttur og Jóns Benediktssonar sem opnuð verður á morgun, laugardaginn 9. september, í FÍM-salnum, Garða- stræti 6, kl. 16 og stendur sýningin til 26. september. Margrét sýnir ohumálverk og Jón sýnir högg- myndir unnar í eir. Margrét hefur verið starfandi myndlistarmaður í 15 ár og á þessu ári tók hún þátt í sýningunum Jóla- sýning FÍM, Tvíæringur á Kjarv- aisstöðum, Á tólfæringi í Hamra- borg og Sumarsýningu FÍM. Jón Benediktsson hefur verið starfandi myndlistarmaður í yfir 40 ár og var einn af þekktari mynd- höggvurum þjóðarinnar. Undan- farin ár hefur hann haft hijótt um sig en byrjaði aftur að vinna á fullu þegar FÍM-salurinn tók til starfa sem gallerí því það vakti með hon- um gamlan eldmóð, enda gamail FÍM-ari. Sýningamar, sem Jón tók þátt í á þessu ári, eru Jólasýning FÍM og Sumarsýning FÍM. Jón Benediktsson og Margrét Jónsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.