Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritsljórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 - Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989. Jón Baldvin Hannibalsson: Gleðitíðindi frá Berlín • > „Hlutirnir eru farnir aö gerast svo hratt í Mið- og Austur-Evrópu aö ég er hættur aö veröa hissa. Ég álpaðist til aö segja í samtali við sendiherra í gær aö ekki kæmi mér á óvart þó að Berlínarmúrinn myndi falla á morgun og sameining Þýskalands yrði aö veruleika hinn daginn," sagöi Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráöherra um atburðina í Austur- Þýskalandi. „Þetta eru auðvitað gleðitíöindi. Þaö rifjast upp fyrir mér persónulega að ég var á ferð í Austur-Berlín sem stúdent um það leyti sem múrinn var reistur og var á seinni skipunum að koma mér vestur fyrir. Berlínarmúr- inn var hið stóra tákn um lok seinni heimsstyrjaldarinnar, um nýlendu- veldi Sovétríkjanna í Austur-Evr- ópu. Að þetta tákn skuli vera fallið staðfestir aö þetta nýlenduveldi er að hrynja innan frá. Það eru mikil gleðitíðindi fyrir hundruð milljóna Austur-Evrópubúa," sagði Jón Bald- vin. -gse Húsnæðislán: _ Steingrímur vill hækka vextina „Eg tel að sá vaxtamunur sem nú er sé allt of mikill og kostnaðarsamur fyrir ríkissjóð. Ég heföi frekar kosið að okkur hefði tekist að lækka raun- vextina meira og draga þannig úr vaxtamuninum en ég sé ekki að það verði önnur leið, vegna stöðu sjóðs- ins, heldur en að hækka útlánsvexti eitthvað,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra þegar hann var spurður um afstöðu hans til hækkunar á vöxtum húsnæðis- >*■ stjórnarlána. Hart er nú lagt að stjórnvöldum úr öllum áttum að hækka útlánsvexti, sem eru núna 3,5%. Á ríkisstjómarfundi í morgun var þetta til umræðu en forsætisráð- herra átti ekki von á aö það tækist að komast að niðurstöðu strax. - Kemur meira en 1% hækkun til greina? „Það kemur ekki til greina á þessu stigi, nei.“ - En yröi þá hugsanleg 1% hækk- un til skemmri tíma? „Það er æði mikið af skuldabréfum núna með heimild til að hækka vexti og mér finnst nú að það þurfi aö at- huga það hvort ekki sé rétt aö hafa hækkunina minni en láta hana ná til —-KÚlra slíkra lána,“ sagði forsætisráð- herra. -SMJ >• LOKI Já, allt má nú misskilja! Sovétmenn hafna síldarsölusanmingi: Of mikið magn a of hau verði - drögin gerðu ráð fyrir 150 þúsund tunnum á sama verði og í fyrra Sovéski sjávarútvegsráðherrann Sovétmenntilbúnirtilaökaupal20 Þess má geta aö á hverju hausti hafnaöi í gær samningi sem tals- til 130 þúsund tunnur af síld. í hafa íslendingar þurft að standa í menn Síldarútvegsnefndar höfðu fyrradag tókst svo að koma magn- löngum og erfiðum samningum við gert við innkaupastofnun Sovryb- inu upp 1150 þúsund tunnur. Það Sovétmenn í sildarsölunni. Sann- flot um að Sovétmenn keyptu 150 þóttá sjávarútvegsráðherranum of leikurinn er sá að þeir geta fengið þúsundtunnurafverkaðrisíldfyr- mikið. Það er þó sama magn og síld annars staðar á lægra verði en ir sama verð í dollurum og var í selt var héöan til Sovétríkjanna í við bjóðura. Kanadamenn hafa ár íyrra. Sjávarútvegsráöherrann fyrra. eftir ár veriö tilbúnir til að sefia sagði einfaldlega að þetta væri of Kristmann Jónsson, formaður Spvétmönnum síld á mun lægra mikið magn fyrir of mikið verð. Síldarútvegsnefndar, sagði í morg- verði en við þurfum að fá fyrir Þeir Gunnar Flóvenz, forstjóri un að menn heföu ekki gefist upp, hana. Sildarútvegsnefhdar, og Einar þrátt fyrir þetta mótlæti. Fulltrúar Þeir Gunnar Flóvenz og Einar Benediktsson, aðstoðarmaður Sovrybflot væru jafnvonsviknir og Benediktsson verða áfram i hans, hafa verið í tvær vikur í Sov- íslensku samningamennirnir. Þeir Moskvu til að reyna að ná samn- étríkjunumísamningaþófi viðþar- hefðu viljað þetta magn og þyrftu ingum. lenda. Fyrir nokkrum dögum voru á því að halda. -S.dór Misþyrmdi hvolpi Ungur maður var handtekinn í gær eftir að hafa misþyrmt schafer-hvolpi í húsi við Laugaveg. Grunur lék á að maðurinn hefði neytt fíkniefna. Hvolpurinn var Ula útleikinn og talið að hann væri fótbrotinn. Var hann fluttur á Dýraspítalann. Maðurinn var í fangageymslum lögreglunnar í nótt og var síðan yfirheyrður í morg- un. -ÓTT íslendingar í undanúrslit Skáksveit Taflfélags Reykjavíkur er nú komin í undanúrslit Evrópu- keppni skákfélaga en sveitin vann ungversku sveitina NTK glæsUega í 8-liða úrslitum. í seinni umferð í gær gerði Jóhann jafntefli við Portisch. Jón L. vann Zsuzsa Polgar. Margeir vann Judit Polgar, Helgi og Barbero gerðu jafntefli, Hannes Hlífar vann Forintos og Karl vann Zsofiu Polgar. TR vann fyrri umferðina einnig. -SMJ Töluvert mikill eldur kviknaði i nýrri amerískri bifreið við Bústaöaveg i gærkvöldi. Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði eldur i farangursgeymslu bílsins sem er af gerðinni Dodge Aspen. Upptök eldsins voru talin i aftur- Ijósstæði. Afturhluti bílsins skemmdist töluvert mikið. -ÓTT/DV-mynd: S Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Ráðherrar meti hagsmunaárekstra „Ég hef sett það skUyrði að ef stjómarstarfið er launað eigi menn að fara úr stjóm en ef það er ólaunað þá komi þetta almenna ákvæði sem felst í því að menn verði að meta það hvort um hagsmunaárekstur er að ræða,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra um setu ráðherra í stjómarstörfum. Það hef- ur komið í ljós að Steingrímur situr sjálfur í stjóm Prentsmiðjunnar Eddu og þar að auki sagðist hann eiga sæti í Þingvallanefnd. Bæði störfin eru ólaunuð og ætlar forsæt- isráðherra að sitja þar áfram. „Menn verða að meta það hveiju sinni hvort um hagsmunaárekstra getur verið að ræða og ég leyfi mér að fuUyrða að gagnvart þessu litla fyrirtæki, sem Framsóknarflokkur- inn stofnaði fyrir 50 árum, hefur aldrei verið um minnstu hags- munaárekstra að ræða. Enda er þetta nú bara til að halda tengslum þarna.“ - En hefði þá verið nóg fyrir Júlíus Sólnes að þiggja ekki laun og sitja áfram í stjórn Stálvíkur? „Þú mátt nú ekki rangfæra þetta. Skipasmíðastöðvarnar eru allar inni á borði ríkisstjórnarinnar og það er töluvert annað mál. Þær era til um- ræðu á Alþingi og mjög líklegt að einhvers konar aðstoð þurfi að koma til,“sagðiforsætisráðherra. -SMJ Jón Baldvin: Ekki í stjórnum „Ég er í stjórn Djúpmannafélags- ins en ég er hræddur um að sú upp- hefð mín sé gleymd,“ sagði Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra, aðspurður hvort hann gegndi stjórn- ar- eöa trúnaðarstörfum í félögum eða fyrirtækjum jafnhliða setu i rík- isstjórn. Jón sagði þetta þá einu stjórn sem hann sæti í. „Djúpmannafélagið hefur þá hug- sjón að veita verðlaun fyrir fegursta býliðviðDjúp." -gse Veðrið á morgun: Bjart á sunnanverðu landinu Á morgun verður fremur hæg norðanátt á landinu, él á annesj- um norðan- og austanlands, en bjart veður um sunnanvert landið. Hitinn verður undir frost- marki á Norður- og Austurlandi en 1-3 stiga hiti á Suður- og Vest- urlandi. Á hálendinu getur fros- tið farið í allt að 10 stig. UmAmsterdam fil allra átta ARNARFLLIG KLM Lágmúla 7, Austurstræti 22 ® 84477 & 623060 ÞR0STUR 88-50-60 VANIR MENN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.