Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1990. 5 r>v Viðtalið dv Fréttir ----- ■ —1* Skemmtilega kærulaus > „ Nafn: Guðjón Bjarnason Aldur: 31 árs Staða: Arkitekt og listamaður „Ég er Reykvíkingur í húð og hár og ofan I kaupið ættaður úr vesturbænum, maður gerist ekki meiri Reykvíkingur en þaö. Ég gekk í skóla í fyrir vestan læk og þegar ég hafði aldur til fór ég í MR. Það var gaman í menntó. Þar gerðist maöur skemmtilega kærulaus og gerði á hverjum tíma þaö sem manni sjálfum lík- aði best og komst upp með það. Síðan hef ég verið að gera það sem mig langar,“ segir Guðjón Bjarnason, arkitekt og myndlist- armaður, sem sýnir nú verk sín á Kjarvalsstöðum Áhugi á að læra „Þegar ég var orðinn stúdent ákvað ég að fara í lögfræði í Há- skóla íslands og lagði stund á lög- fræði í tvö ár. Hins vegar blund- aði áhuginn á að teikna alltaf í mér og á endanum hafði sá áhugi vinninginn og ég ákvað að fara i arkitektúrnám. Guðjón hélt til Bandaríkjanna árið 1981 og hóf nám í Rhode Is- land School of Design í Provid- ence á Rhode Island. „Rhóde Is- land er ekki ósvipað íslandi. Þar er allt fullt af litlum Eyrarbökk- um og togarabæjum. Þetta er skemmtilegt sveitasamfélag. Meðan ég var í námi kerrndi ég með skólanum og tók alla þá kúrsa sem boðið var upp á i myndlist. Þegar ég var útskrifað- ur langaöi mig að taka myndlist- ina alvarlega og þá lá leiðin til Nevv York. Hún er mikil listaborg og þar heltekur listin fólk. Ég fór svo í framhaldsnám þar, bæöi í arkitektúr og myndlist og lauk námi á síðasta ári. Ég rek mína eigin teiknistofu og er með ýmsis verkefni héðan að heiman. Það er ágætt að búa í útlöndum og vinna að verkefn- um á íslandi. Ég verð á landinu þangað til i maí og á meðan ég er hér ætla ég að undirbúa fleiri sýningar og taka þátt i sam- keppnum um byggingarlist. Það er afar gaman að taka þátt 1 þeim. Á meðan maður vinnur að ein- hverri samkeppni er maður hald- inn þráhyggju og kemst í algert algleymi. Ég sinni fáu öðru en arkitektúr og myndlist. Það er fátt annað sem ég vil gera og ég er þakklátur fyrir að hafa ekki tíma til að gera annað. Ef ég fer á hljómleika er ég að byggja í huganum og ég er yfirleitt alltaf með hugann við þetta tvennt. Það er auðvelt aö sameina þess- ar tvær greinar, myndlistina og arkitektúrinn, báðar greinarnar ber að sama brunni. Arkitektúr verður til fyrir ákveöna sköpun og myndlistin sömuleiðis. Vinn- an í öðru faginu verkar örvandi á hitt og öfugt.“ Gaman að ferðast Ég hef gaman af að ferðast og hef ferðast víða um heim. í fram- tíðinni langar mig til að skipu- leggja ferðir til fjarlægari staða og skoöa forn mannvirki og kynna mér siöi og venj ur annarra menningarsamfélaga i nútíö og fortíð. Ferðalög eru örvandi fyrir sálina og líf mitt einkennist af þvi að skil á milli vinnu og frítíma eru lítil. Ég veit stundum ekki hvort éger að vinna eða í fríi.“ -J.Mar Tannlæknadeild neydd til að flölga nemendum: Nemandi felldur eft- ir að hann náði próf i . - háskólaráð tók mannlega þáttinn með 1 reikninginn „Það er rétt að við vildum halda í reglurnar eins og þær höfðu verið samþykktar í fyrra og taka aðeins sjö nemendur inn á annað misseri. Háskólaráð komst að annarri nið- urstöðu og vildi taka mannlega þáttinn með í reikninginn," sagði Örn Bjartmars Pétursson, forseti Tannlæknadeildar Hákóla íslands, í samtali við DV. Eftir síðustu jólapróf kom upp óánægja meðal nemenda með hverjir fengju að halda áfram námi. Tannlæknadeild telur sig geta tekið við sjö nemendum og til- kynnti þeim sjö efstu á prófmu að þeir gætu haldið áfram námi. Sá áttundi í röðinni kærði matið á prófinu og reyndist hafa rétt fyrir sér. Hann var því færður í sjöunda sætið en sá sem hafði áður verið þar í röðinni var útilokaður frá frekara námi. Sá sem þarna var felldur, eftir að hafa áður fengið heimild til að halda áfram námi, kærði þessa nið- urstöðu. Á endanum fór málið fyrir háskólaráð í lok febrúar og þar var úrskurðað að átta nemendur gætu haldið áfram námi. „Við getum ekki með góðu móti haft átta nemendur í árgangi vegna aðstöðuleysis. Eina lausnin, sem við sjáum, er aö minnka kennsluna sem hver og einn fær,“ sagði Örn Bjartmars. Aður hafa hliðstæð mál komið upp í Tannlæknadeild og hefur þá einnig orðið að úrskurða um hverj- ir geti haldið áfram. Örn sagði að upphaf málsins nú mætti rekja til mannlegra mistaka og það væri ástæðan fyrir því að háskólaráð heföi ákveðið að ijölga í deildinni. -GK Fimm nýjar vísitölur: Verðhjöðnun í byggingar- kostnaði Vísitala byggingarkostnaðar lækk- ar í næsta mánuði um 0,5 prósent. Þessi lækkun jafngildir um 6,2 pró- sent verðhjöðnun á ársgrundveÚi. Þetta er í fyrsta skipti síðan í árs- byrjun 1988 að vísitalan lækkar á milli mánaða en þá lækkuöu ýmis aðfóng umtalsvert vegna tollalækk- unar. Ástæða fyrir lækkuninni nú er annars vegar lækkun á útseldri vinnu í kjölfar banns verðlagsráðs og hins vegar vegna lækkunar á leigu á byggingamótum. Eins og fram hefur komið hækkaöi framfærsluvísitalan um 0,8 prósent um daginn, launavísitalan nú mest, eða um 1,2 prósent. Þetta þýðir að lánskjaravísitalan hækkar nú um 0,53 prósent í næsta mánuði sem jafngildir um 6,5 prósent árshækkun. Ef gamh grunnur láns- kjaravísitölunar væri enn í gildi hefði vísitalan ekki hækkað nema um 0,37 prósent sem jafngildir um 4,5 prósent á ársgrundvelli. Lántak- endur eru því byrjaðir að bera kostn- að af breytingum á grunni vísitölun- ar í stað sparifjáreigenda. Vísitala húsnæðiskostnaðar hækk- ar um 1,8 prósent frá og með 1. apríl. Vísitalan hækkar á þriggja mánaða fresti. Þessi hækkun jafngildir því um 7,4 prósent hækkun á árgrund- velli. -gse Keflavik og Hveragerði: Litlar tekjur en hækka ekki skatta Mörg þeirra sveitarfélaga sem hafa hækkað aðstöðugjöld sín aö undan- förnu eru meðal verst settu sveitarfé- laga á landinu, til dæmis Hofsós og Siglufjörður. Önnur illa stæð sveitar- félög sjá ekki ástæðu til að auka tekj- ur sínar á sama tíma, eins og til dæmis Hveragerði og Keflavík. Þessi tvö síðastnefndu sjá sér jafnframt fært að lækka fasteignaskatta. Þegar litið er til hvaða sveitarfélög það eru sem hækka mest aðstööu- gjöld sín á útgerð og fiskvinnslu kem- ur í ljós að þaö eru flest illa stæð sveitarfélög. Einu sveitarfélögin, sem lentu á lista DV yfir þau 20 verst settu en hækka ekki gjöldin, eru Keflavík og Hveragerði. Einn lielsti vandi þessara tveggja sveitarfélaga er hins vegar lágar tekjur og skáru þau sig nokkuð úr öðrum á listanum sökum þessa. -gse DASAMLEGT í einu orði sagt Þýska verksmiðjan Klose Kollektion framleiðir svo frábærlega vönduð og falleg borðstofuhúsgöng að hrein unun er að snerta þau og strjúka. Á húsgagnasýningunni í Köln núna í janúar keyptum við dágott úrval afþessum hágæða borðstofusettum í mörgum viðartegundum. ftomdu og ersvo einstaklega fallegur. REYKJAVÍK Sjáumst Húsgagmt-höllin Bíldshöfða 20 sími 68-11-99 Það mun vissulega koma þér á óvart hvað Húsgagnahöllin á mikið til af borðstofusettum frá Fiorðuriöndum - Ítalíu - Þýskalandi og fleiri löndum í öllum hugsanlegum verðflokkum. Við leggjum áherslu á gæði og hagstæð innkaup til þess að þú fáir reglulega mikið fyrir peningana þína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.