Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990. 27 fþróttir • Nick Faldo, Bretlandi, fagnar sigrinum á US Masters á 2. braut í bráöabana gegn Raymond Floyd, til vinstri. Faldo er annar kylfingurinn sem vinnur US Masters tvö ár í röð. Símamynd Reuter US Masters 1 golfi á Augusta National: Faldo vann í bráðabana Fótbolta- stúfar Úrslit í 1. deild ítöisku knatt- spyrnunnar um helgina: Ascoli-Udinese.. 1-0 Atalanta-Napoli...0-0 Bari-Lazio........0-0 Bologna-AC Milan.........0-0 Verona-Genoa.............1-1 Inter Milan-Cesena.......1-1 Juventus-Cremonese.......4-0 Roma-Fiorentina..........0-0 Sampdoria-Lecce..........1-0 • Staða efstu liöa: ACMilan...31 20 5 6 50-25 45 Napoli....31 17 10 4 47-29 44 Inter.....31 16 9 6 50-28 41 Juventus...31 14 12 5 51-32 40 • Athygli vekur að aöeins voru skoruö 10 mörk um helgina og hafa þau ekki verið ferri áður á yfírstandandi tímabiii. • Leikmenn Real Madrid viröast vera búnir að ná áttum á ný eftir tapið gegn Barcelona í bikar- keppninni á Spáni. Liðiö hélt uppteknum hætti í l. deildinni um helgina og sigraði Celta, 3-0. Markatala liðsins er skrautleg eins og sést hér að neðan. Önnur úrslit urðu þessi: Tenerife-Logrones..........3-1 Sociedad-AtleticoMadrid....0-0 Vallecano-SportingGijon....1-2 Barcelona-Valencia.........2-1 RealMallorca-Cadiz.........5-1 Castellon-Malaga...........1-1 Real Oviedo-Sevilla........0-3 Osasuna-A. BHbao..........0-0 Valladolid-Real Zaragosa..2-1 • Staða efstu liða: RealMadrid.,33 24 7 2 94-30 55 A.Madrid....33 18 9 6 46-27 45 Barcelona...33 20 4 9 73-34 44 Kvennahandbolti: FH varð í þriðja sæti Um helgina var lokaumferðin i 1. deild kvenna i handknattleik, þrír leikir fóru fram og veröur síðasti leikurinn spilaður í kvöld í Höllinni kl. 19 en þá mætast ís- landsmeistarar Fram og KR. • Gróttulíðið tók á móti Val á Seltjarnarnesinu á fóstudags- kvöldið. Valur sigraði i viður- eigninni með 27 mörkum gegn 23 eftir að hafa haft yflr í hálfleik, 15- 10. Hjá Gróttu bar mest á Lauf- eyju en einnig var Elísabet góð á línunni Valsliðið var mjög jafnt. • Mörk Gróttu: Laufey 11/8, El- ísabet 5, Gunnhildur 3, Brynhild- ur, Ema, Sigríöur og Sara eitt mark hver. • Mörk Vals: Guðrún 8, Margrét 6/2, Katrin 5, Una 4, Kristín Þ. 2, Berglind og Kristín P. eitt mark hvor. • Stjömustúlkur fengu Hauka í heimsókn í Garðabæinn á laugar- daginn. Stjaman vann stóran sig- ur, 30-17. • Mörk Stjörnunnar: Erla og Guöný, 7 hvor, Ragnheiöur 6, Her- dís 5, Ásta 3, Kristín og Sif 1 mark hvor. • Mörk Hauka: Björk og Ragn- heiöur, 5 mörk hvor, Halldóra 3, Halla 2, Ása og Guöbjörg 1 mark hvor. • FH-stúikur tryggöu sér þriðja sætiö í deildinni með því að ná jafnteflí á móti Víking á iaugardag- inn í hinu nýja íþróttahúsi FH. Mikil spenna var allan tímann þar sem bæði liðin áttu möguleika á sætinu. Leiknum lauk lfr-16 eftir aö FH-liöið haföi leitt í hálíleik, 9-7. Vikingsliöið kom mjög ákveð- iö tíl leiks í síðari hálfleik og náöi fljótlega forystunni. Þegar 3 mín- útur vom til leiksloka var staöan 16- 14 fyrir Víking þá klippti FH- liðið þrjár Vtkingsstúlkur út og gaf þaö góða raun og FH liðið náði að bæta við tveimur mörkum fyrir leikslok sem dugði þeim til að fá bronsið, • Mörk FH: Rut 4, María og Berglind, 3 hvor, Eva og Björg, 2 hvor, Helga G. og Helga E. 1 mark hvor. • Mörk Vikings: Halla 10, Jóna og Anna, 2 hvor, Kristin og Matt- hildur 1 mark hvor. -ÁBS Breski kylflngurinn Nick Faldo gerði sér lítið fyrir og sigraði á US Masters stórmótinu í golfi en mótinu lauk í nótt. Faldo þurfti þó að hafa mjög mikið fyrir sigrinum því hinn 47 ára gamli Raymond Floyd lék glæsilegt golf og voru þeir jafnir eftir 72 holur, báðir á 278 höggum, 10 und- ir parinu. Faldo fór eins aö og í fyrra á US Masters. Þá sigraði hann einn- ig, eftir að hafa haft sig lítið í frammi framan af, eins og að þessu sinni, og vann á 2. holu í bráðabana. „Mér líður vel og ég hef á tilfinn- ingunni að ég hafi brotið blað í golf- sögunni," sagði Faldo eftir sigurinn. „Þetta var aldrei í hættu,“ sagði Leifur Harðarson, fyrirliði Þróttar, eftir leikinn. Og þaö eru orð að sönnu því munurinn á leik liðanna var allt of mikill. „Við lékum mjög vel allir sem einn en KA-menn veittu mun minni mótspymu en við höfðum átt von á,“ sagði Leifur ennfremur. Þróttarar léku mjög vel en KA- menn náöu sér hins vegar aldrei á strik og léku flestir undir getu. „Lykilmenn brugðust“ „Ég er ósáttur við leik minna manna, lykilmenn brugðust gjörsamlega. Kannski hafa leikmenn verið of upp- teknir af þessu tilstandi varðandi deilurnar um leikstað en húsið hér á Húsavík var þó næstbesti kosturinn fyrir okkur,“ sagöi Haukur Valtýs- son, fyrirliði KA. Einungis þrjár hrinur íþróttahúsið á Húsavík var nokkuð þéttsetið af áhorfendum. Allir áttu von á langri og spennandi viðureign enda bikarmeistaratitillinn í húfi og tvö sterkustu lið landsins að kljást um hann. Reyndin varð þó aðeins Hann er annar kylfingurinn til að vinna US Masters tvö ár í röð, Jack Nicklaus hafði áður unnið það afrek. Raymond Floyd var sár eftir tapið: „Þú getur ekki ímyndað þér hve það hefði verið mér mikils viðri aö sigra. Ég lék mjög vel alla dagana nema í dag. Þá lék ég einfaldlega ekki nógu vel til aö vinna svona mót,“ sagöi hann. Annars var US Masters að þessu sinni mót eldri kylfmga. „Gamlir ref- ir“ komu fram á sjónarsviðið og stálu senunni, einu sinni enn. „Rebbar" eins og Raymond Floyd, Jack Nick- laus, sem varð í 6. sæti, Gary Player, önnur. Viðureignin var spennandi en einungis þrjár hrinur. Fyrsta hrinan var æsispennandi, Þróttarar höfðu yfirhöndina mestan tímann en KA-ingar skriðu fram úr, komust í 14-12 og fengu nokkur tæki- færi til að útkljá hrinuna en voru klaufar. Með góðum leik tókst Þrótt- urum að ná forystunni aftur og sigr- a, 17-16. KA-menn áttu fá svör við góðum uppgjöfum og sterkri sókn Þróttara í annarri hrinu, henni lykt- aði 15-12. KA-menn náðu fljótt forystunni í þriðju hrinu og náðu í nokkuð gott forskot (11-6). Með þá Jón Árnason og Einar Þór Ásgeirsson í farar- broddi tókst Þrótturum aö saxa á forskotið. Seint í hrinunni kom síðan Lárentsínus Ágústsson inn á og átti stóran þátt í aö skapa sigur liðsins með frábærum varnarleik á aftur- velli. Þriðju hrinunni lauk með 15-12 sigri Þróttara. Níundi bikartitillinn Þetta er í níunda sinn, sem Þróttarar hampa bikarmeistaratitlinum og þaö og Lee Trevinu. Ef Floyd heföi tekist að sigra heföi hann sett met, orðiö elsti sigurvegari mótsins frá upphafí, 47 ára. Fyrir síðasta hringinn í gærkvöldi haföi Floyd tveggja högga forskot. Hann lék fyrri 9 á parinu en Faldo, sem var 3 höggum á eftir Floyd fyrir lokaátökin, var einn undir. Þaö var svo á lokasprettinum sem „gamli mað- urinn" varð að gefa eftir og Faldo fagnaði sigri. Greg Norman, Paul Azinger, og Sandy Lyle, komust ekki áfram eftir 36 holur. -SK voru vanar hendur sem handléku bikarinn á laugardaginn var. Bikarmeistarar Þróttar eru: Leifur Harðarson, Jason ívarsson, Jón Árnason, Sveinn Hreinsson, Örn Kristján Arnarsson, Einar Þór Ás- geirsson, Gunnlaugur Jóhannsson, Lárentsínus Ágústsson og Guð- mundur Elías Pálsson. Þjálfari þeirra er Jia ChiangWen. Hafsteinn langbestur Hjá KA-mönnum léku flestir undir getu. Haukur Valtýsson átti þó ágæt- an leik en langbestur KA-manna var Hafsteinn Jakobsson en Þróttarar réðu ekkert við smöss hans. Athygli vakti að Gunnar Garðarsson fékk lítið að spreyta sig en hann lék mjög vel þá sjaldan hann fékk að reyna. Dómarar leiksins voru þeir Björg- ólfur Jóhannsson og Amgrímur Þor- grímsson. Þeir dæmdu prýðilega og af festu. -gje Norðmenn sigruðu í c-keppninni Norska landsiiðið i handknaatt- leik bar sigur úr býtum í c- keppninni í handknattleik sem lauk í Finnlandi um helgina. Norðmenn léku til úrslita gegn Finnum og sígruðu 32-27. Vestur Þjóðveijar urðu að gera sér þriðjá sætið aö góðu en um það léku þeir gegn Búlagörum og sigruðu 25-17. Var búist við auð- veldum sigri Vestur Þjóðverja í keppninni Hollendingar höfnuðu í fimmta sæti eftir sigur gegn ísraels- mönnum, 23-21. -SK Bodén er í góðu formi Sænski spjótkastarinn Patrik Bodén, sem setti ótrúlegt heims- met á dögunum er hann kastaði 89,10 metra sýndi það og sannaði í Texas í Bandaríkjunum i gær að það var engin tilviljun þegar hann náði risakastinu. Bodén sigraöi á mótinu i Texas og kast- aði 83,56 metra sem er mjög góður árangur, vissulega nokkuð frá heimsmetinu en slíku kasti ná menn ekki á hverjum degi. -SK Framstúlkur fá verðlaunin í Höllinni Framstúlkur hafe veriö í ótrú- legum sérflokki í kvennahand- knattieik hér á landi undanfarin 14 ár. Á þessum 14 árum hefur Fram unnið íslandsmeistaratitil- inn í 12 skipti og á dögunum vann Fram titilinn í sjounda skipti í röð. í kvöld leikur Fram siðasta leikinn í 1. deildinni í ár gegn KR og fá Framstúlkur bikarinn af- hentan eftir leikinn sem hefst klukkan 19.00 í Laugardalshöll. -SK Öruggt hjá Boston Celtics Boston Celti.es vaim öruggan sigur gegn nýliðum Maimi Heat í NBA-deildinni í körfuknattleik um helgina. Lokatölur urðu 115-105 en leikið var á heimavelli MaimL Úrslit í öðrum leikjum um helgina: Atlanta-76ers...........108-112 DaUas-Chicago. ........108-109 MUwaukee-Washington...U0-100 Sacramento-S A Spurs....93-111 LAClippers-Phoenix......108-115 -SK Allt fór í hundana Til óláta kom á leUi Carl Zeiss Jena og FC Berlin í austur-þýsku knattspymunni um helgina. Slagsmál brutust út á leiknum og eftír leikinn gengu áhorfendurnir um götur Jena og hrutu rúður og létu öllum Ulum látum. Sumir ólátaseggjanna, sem sagðir voru frá Vestur-Berlín, báru grímur og særðu sjö lögreglumenn. Verð- ir laganna notuöu hunda við skyldustörf sín en engu aö síður fór aUt í 'hundana. Ólæti hafa aukist í austur-þýsku knatt- spymunni eftir aö landamærin til vesturs voru opnuð. -SK Bikarúrslit í blaki á Húsavik Einungis þrjár hrinur - Þróttur sigraði KA, 3-0-9. sigur liðsins á 16 árum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.