Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 34
50 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990. Sviðsljós Ólyginn sagði... Fred Dryer eða Hunter eins og sjónvarpsá- horfendur þekkja hann best hef- ur löngum langað til að verða alvörulögga. Honum fmnst að hann gæti leikið betur lögregluna í sjónvarpinu ef hann fengi smjörþefin af því hvernig lífið hjá lögreglumönnum væri í alvör- unni. Hann hefur nú látið þennan draum rætast. Hann fékk inn- göngu á sex vikna námskeið hjá lögreglunni og stóð sig með prýði og hefur fengið leyfi til aö starfa eitt kvöld í viku á strætum Los Angeles borgar. Ekki fær hann að vera jakkaklæddur, heldur verður hann að klæðast fullum skrúða eins og aðrir nýliöar. Roseanne Barr hatar Arsenio Hall eins og áður hefur komið fram í þessum dálki. Er það vegna brandara sem hann á til að segja um hana í sjónvarps- þætti sinum. Nú er verið að und- irbúa framhald af Look Who’s Talking og var Roseanne fengin til að tala fyrir stúlkubarn eitt og fær milljón dollara fyrir. Hún varð samt alveg brjáluö og vildi hætta við allt saman þegar hún frétti að Arsenio Hall hefði verið fenginn til að tala fyrir dreng. Framleiðendur myndarinnar brugðust hinir verstu viö og sögðu að hún væri búin að skrifa undir samiúng og hún yrði að standa við hann. Sættir tókust á þann veg að upptökur með þeim tveimur fara fram í sitthvoru lagi og passað verður upp á að þau hittist aldrei. Farah Fawcett ásamt eiginmanni sínum Ryan O’Neal þurfti að halda tvisvar upp á fimm ára afmæli sonar þeirra. í fyrra skiptið leigðu hjón- in bíó fyrir afla krakkana sem komu í afmælið. Afmælið leystist aftur á móti upp þegar O’Neal fannst Fawcett láta einum og vel að sýningarmanninum og varð brjálaður af aíbrýðisemi og mun- aöi engu aö rifrildi þeirra endaði með slagsmálum. í seinna skiptið var ekki tekinn nein áhætta og afmælið haldið heima. Það fór þó ekki betur en svo að einn krakk- inn braut antikvasa sem metinn er á sex hundruð þúsund krónur. Fnimleg listaverk á Kjarvals- stöðum Tvær sýningar voru opnaðar á Kjarvalsstööum á laugardaginn, í vestursal opnaði Steinunn Þórarins- dóttir sýningu á höggmyndum og í austursal var opnuö sýning á út- skriftarverkum nemenda í Myndlist- ar- og handíðaskóla íslands. Gestum á laugardag þótti mikiö til sýninganna beggja koma og er óhætt að segja að frumleikinn hafi verið í fyrirrúmi hjá hinum ungu myndlist- armönnum. Þá vakti einnig mikla athygli sýning Steinunnar, en aust- ursalur var myrkvaöur að því und- anskildu að ljós lýstu upp myndverk- in. Hvað skyldi nú þetta vera? gæti farið um huga litlu stúlkunnar sem hér virðir fyrir sér eitt verkið á sýningu myndiistarnemanna. Hér má sjá eitt myndverka Steinunnar Þórarinsdóttur. Eins og sjá má er aðeins lýsing á verkið. Sjálfsagt lætur hann ekki mikið ofan i sig þessi furðukarl sem situr hér til borðs. DV-myndir BG Það er tilfinning í blúsnum Eins og alkunnugt er var djassað úti um alla borg i síðustu viku á Djass- dögum útvarpsins. Er það mál manna að djassvikan hafi tekist með eindæm- um vel og var vel mætt á krárnar öll kvöldin. Blúsin var ekki útundan þótt ekki hafi farið eins mikið fyrir honum. Á fimmtudagskvöld lék Tregasveitin á Fimmunni og var mikið fjör. Þessi mynd er tekin af þeim Halldóri Braga- syni til vinstri, sem að vísu er ekki í tregasveitinni en lék með þeim smá- tíma, og Pétri Tyrfingssyni þar sem þeir kyrja blúsinn af mikilli tilfinningu. írskir þjóð- lagaboltar í Ölveri Um helgina skemmti borgarbúum hin frábæra írska þjóðlagasveit Stockt- on’s Wing i Ölveri i Glæsibæ. Gestir tóku þeim með miklum fagnaðarlátum enda er hér á ferðinni sveit sem hefur ferðast um allan heim og hlotið mjög góðar viðtökur. Myndin var tekin af þeim á sviðinu í Ölveri. DV-mynd Hanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.