Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1990, Blaðsíða 1
Leikhús Nildtas
gæslumanns
Leikflokkurinn Lilla Teatern frá
Helsinki er nánast fastagestur á
listahátíö. í þetta sinn kemur flokk-
urinn meö sýninguna Leikhús Nik-
ítas gæslumanns. Þetta er marg-
rómuð sýning sem verið hefur á
verkefnaskrá leikflokksins síöan
1988. Á síöasta ári ferðaðist flokk-
urinn til Norðurlandanna með sýn-
ingu þessa en í vor var hún sett
upp í Parma á Ítalíu.
Tveir leikendanna í sýningunni
ættu að vera íslendingum að góðu
kunnir. Annar er Borgar Garðars-
son sem hefur leikið hjá Lilla Teat-
ern í fjölda ára. Borgar leikur titil-
hlutverkiö í sýningunni, gæslu-
manninn Nikíta. Hinn er Asko Sar-
kola, einhver kunnasti leikari á
Norðurlöndum. Hann er mörgum
minnisstæður eftir að hann fór með
hlutverk Phileasar Fogg á listahá-
tíð 1972 er flokkurinn sýndi Um-
hverfis jörðina á áttatíu dögum en
hann hefur gert garðinn frægan í
mörgum kvikmyndum og sjón-
varpsleikritum. Hér þykir Sarkola
vinna mikinn leiksigur í hlutverki
Ragins læknis.
Sýningar Lilla Teatem um helg-
ina eru í íslensku óperunni á
sunnudag og mánudag kl. 20.30.
Sýning Lilla Teatern á Nikitas gæslumanni hefur alls staðar fengið mikið lof.
Eitt verka Einars Jónssonar sem sýnt verður á Kjarvalsstöðum.
DV-mynd GVA
Kjarvalsstaðir.
íslensk höggmynda-
list 1900-1950
Mynd þessi er tekin á æfingu á Abraham og ísak.
Listahátíð í Reykjavík:
Abraham og ísak
A Kjarvalsstöðum verður opnuð
2. júní sýningin íslensk höggmynda-
list 1900-1950. íslensk höggmyndalist
á ekki langa heíð. Samt má gera því
skóna að frumkvöðlar íslenskrar
höggmyndalistar hafi skapað vísi að
stíl sem telja má séríslenskan og er
kannski sprottinn af hrikalegri nátt-
úru landsins og úr glímunni við þann
grófgerða efnivið sem íslensk nátt-
úra býður upp á.
Sýningin er líklega kjörið tækifæri
til að sannprófa kenningu þessa.
Þetta er fyrsta yfirlitssýning á ís-
lenskum höggmyndum frá þessu
tímabili.
Einar Jónsson (f. 1874) er elstur
listamannanna en Sigurjón Ólafsson
(f. 1908) er þeirra yngstur. Auk þeirra
eru verk eftir Ríkharð Jónsson,
Gunnfríði Jónsdóttur, Nínu Sæ-
mundsson, Ásmund Sveinsson,
Magnús Á. Árnason, Guðmund Ein-
arsson frá Miðdal og Martein Guð-
mundsson. Hver listamannanna á
4-5 verk á sýningunni.
Kjarvalsstaöir eru allir lagðir und-
ir þessa viðamiklu sýningu sem
stendur frá 2. júni til 8. júlí.
Listahátíð
í Garðabæ
Efnt verður til listahátíðar í
Garðabæ 2. og 4. júní. Haldnir verða
tvennir tónleikar, hinir fyrri í ís-
lensku óperunni í Reykjavík á laug-
ardag kl. 13.30 en hinir síðari verða
í Kirkjuhvoli, Garðabæ, á mánudag-
inn kl. 13.30. Hátíöinni lýkur svo með
samsæti fyrir listafólkið og vensla-
fólk þess í Holiday Inn að kvöldi
sama dags.
Á listahátíðinni kemur fram hópur
hljóðfæraleikara, söngvara og ball-
ettdansara. Eitt tónskáld er í hópn-
um, Hildigunnur Rúnarsdóttir. Hef-
ur hún samið nýtt tónverk í tilefni
hátiðarinnar og verður það frum-
flutt. Af öðrum listamönnum, sem
koma fram á hátíðinni, má nefna
Maríu Gísladóttur ballettdansara,
Pétur Jónasson gítarleikara og Sig-
rúnu Eövaldsdóttur fiöluleikara.
Alls munu koma fram rúmlega tutt-
ugu ungir Ustamenn, allir úr
Garðabæ.
Listafólkið velur sjálft þau verk
sem það flytur. Tólf listamannanna
eru við nám og störf erlendis, flestir
í Bandaríkjunum. Nokkrir koma
gagngert til að taka þátt í hátíðinni
og hverfa af landi brott að henni lok-
inni. Listamennirnir eru langflestir
fæddir á sjöunda áratugnum og voru
skólasystkini og margir þeirra bekkj-
arsystkini.
Listahátíðin í Garðabæ á að minna
á tvennt. í fyrsta lagi á þennan glæsi-
lega hóp ungs fólks á framabraut sem
er í stöðugri leit að hinum eina sanna
tóni og í öðru lagi á listahátíöin að
minna á þörfina á því að byggð verði
sem fyrst menningar- og listamiðstöð
í Garðabæ. Sala aðgöngumiða er haf-
in og fást þeir í bókabúðinni Grímu
við Garðatorg í Garðabæ og er verð
miðans 1000 kr. Aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn í íslensku
óperunni og í Kirkjuhvoli.
Á annan í hvítasunnu verður flutt
kirkjuóperan Abraham og ísak eftir
John Speight í Háteigskirkju í
Reykjavík. Texti óperunnar er tek-
inn úr Biblíunni og einnig eru notað-
ir gamlir sálmar úr safni Bjarna Þor-
steinssonar. Óperan tekur um það
bil fjörutíu mínútur í flutningi.
Níu söngvarar og þrettán hljóð-
færaleikarar taka þátt í sýningunni
en hljómsveitarstjóri er Guðmundur
Óli Gunnarsson. Leikstjóri er Geir-
laug Þorvaldsdóttir en Snorri Sveinn
Friðriksson hefur hannað leikmynd
og búninga. Lýsingu annast Árni
Fyrir ofan garð er sýning sem
verður opnuð í Hallargarðinum við
Fríkirkjuveg á laugardaginn kl.
16.00. Þátttakendur í sýningunni eru
tuttugu og sjö, frá Englandi, V-
Þýskalandi, Noregi, Svíþjóö, Sviss og
íslandi, og hafa þeir unnið rýmis-
verk, myndbönd, skúlptúra, hljóð-
Baldvinsson.
í hlutverki Abrahams er Viðar
Gunnarsson en ísak syngur Hrafn-
hildur Guömundsdóttir. Aðrir
söngvarar eru Sigríður Gröndal,
Signý Sæmundsdóttir, Þorgeir Andr-
ésson, Sigrún V. Gesisdóttir, Elísabet
Waage, Sigursveinn Magnússon og
Halldór Vilhelmsson.
Að sýningunni standa nokkrar
söngkonur í Háteigssókn, Háteigs-
kirkja og hstahátíðarnefnd. Þetta
mun vera fyrsta íslenska kirkjuóp-
eran sem samin hefur verið og er hún
framlag Háteigskirkju á listahátíð.
verk og myndhreyfingar fyrir garða
og opin svæði í Þingholtunum.
Á veggspjaldi sýningarinnar er
kort af hverfinu sem auðveldar gest-
um að rata frá einu verki til annars.
Sérstök dagskráratriði eru kynnt í
auglýsingum frá framkvæmdastjórn
Listahátíðar í Reykjavík.
Nýlistarsafniö í Hallargarðinum:
Fyrir ofan garð og neðan
Nokkrir listamenn, sem eiga verk á sýningunni í Hafnarborg, samankomnir i sýningarsalnum. DV-mynd GVA
Einfarar í ís-
lenskri list
Á sýningu í Hafnarborg, sem ber
yfirskriftina Einfarar í íslenskri list,
eru um áttatíu verk eftir á annan tug
listamanna. Innbyrðis eru þeir ólíkir
í myndsköpun sinni en eiga það sam-
eiginlegt að vera sjálfmenntaðir og
hafa þróað með sér afar persónulega
myndsýn óháða ríkjandi hefðum í
hst.
Þetta er í fyrsta sinn sem sett er
upp sýning á verkum flestra þessara
listamanna. Verkin spanna rúmlega
eina öld eða allt frá Sölva Helgasyni
til nútímans. Yngstu þátttakendurn-
ir eru fólk á þrítugsaldri.
Sýningin er sem fyrr segir í Hafn-
arbor, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, og stendur frá 2. júní
til 24. júni.