Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 1990. Aðeins 100% hreinan Floridana safa í (------------------ ) umbúðum! Munið orðaleitina! BÍLASALAN TÚN Mazda 626 GLX árg. 1986, ekinn 83.000 km, rafmagn í rúöum, vökv- ast., centrallæsing, 4ra dyra, litur hvítur. Audi 80, árg. 1988, ekinn 40.000 km, vökvastýri, ABS bremsur, topplúga, litaö gler, centrallæsing, litur rauö- ur. Ford Sierra 2000 IS árg. 1986, vökvastýri, álfelgur, ekinn 53.000 km, litur rauöur, 3ja dyra. MMC Lancer 1500 GLX, árg. 1987, ekinn 60.000 km., vökvastýri, raf- magn í rúðum, samlæsing, litur gullsans. Ford Sierra 1600 árg. 1985, 5 dyra, ekinn 95.000, litur hvitur, topplúga. Óskum eftir bílum á skrá og á staðinn BÍLASALAN TÚN Höföatúni 10 sími 622177 Utlönd Hvað verður um Trump? Donald Trump er nú í kröggum. Teikning Lurie Fyrstu merki þess að Donald Trump, hinn litríki kaupsýslumaður vestan hafs, kúnni að hafa færst of mikið í fang komu í ljós fyrir helgi þegar honum tókst ekki að greiða vaxta- og höfuðstólsgreiðslur af tveimur veðlánum, alls um þrjátíu milljónir dollara. Þó ekki sé um formleg vanskil að ræða fyrr en eftir tíu til þrjátíu daga, að sögn íjármála- sérfræðinga, er ljóst að lausafjár- staða fyrirtækis hans er mun verri en talið hefur verið og skuldasöfnun hans þeim mun meiri. Útistandandi skuldir Trumps nema þremur mill- jörðum dollara. Á fostudag átti Trump að greiða vaxtagreiðslur af tveimur lánum vegna Trump Castle hótelsins og spiiavítisins í Atlantic City og vegna Trump Plaza spilavítisins. Forráða- menn fyrirtækis hans tilkynntu fyrir helgi að staðið yrði við skuldbinding- ar vegna Trump Plaza en að ekki tækist að standa í skilum vegna Trump Castle. Takist Trump ekki að greiða skuldina, sem tryggð er með veði í hótelinu og spilavítinu, innan gefins gjaldfrests gæti svo farið að lánardrottnar hans neyddu hann til að lýsa sig gjaldþrota að þeirra kröfu, þ.e. gengju að veðinu. Fáir telja þó að svo verði nema viðræður hans og lánardrottna hans fari út um þúfur. Af stallinum fallinn? Trump virtist standa heimurinn til boða fyrir eigi svo löngu. Hann byggði upp veldi sitt á níunda ára- tugnum, baðaði sig í frægðarljóma auðæfa sinna og varö jafnþekktur og margar Hollywood-stjömur. En fljótt skipast veður í lofti. Nú á hann í greiðsluvandræðum og samninga- viðræðum við lánardrottna sína og síðast en ekki síst em hjónabands- mál hans og eiginkonunnar, Ivönu, á forsíðum margra blaða. Fjármálastaða Trump-fyrirtækis- ins hefur gefið sérfræðingum tilefni til að velta fyrir sér framtíð og stöðu Donalds Trump. Verður hans hlut- skipti hið saman og margra annarra pappírs-milljarðamæringa sem fóru of geyst og færðust of mikiö í fang? Síðasta dæmið um slíka ævintýra- mennsku var gjaldþrot hins kana- díska Roberts Campeau en hann átti keðju stórverslana. Fyrirtæki Cam- epaus fór á hausinn fyrr á þessu ári. Trump hefur átt í samningavið- ræðum við lánardrottna sína síðustu daga og vikur. Fjórir helstu við- skiptabankar hans féllust á að lána honum sextíu milljónir dollara fyrir viku. Þessi fjárhæð átti aö fleyta hon- um yfir helstu vandræðin þar til hann gæti komið einhverium af eign- um sínum í verð. En nokkrir smærri viðskiptabanka hans eru ekki á eitt sáttir um samkomulag þetta vegna þess að í því felst m.a. að einhverium vaxtagreiðslum verði frestað. Bæði Campeau og Trump tryggðu sér stöðu í sviðsljósinu vegna sér- kunnáttu sinnar í fasteignaviðskipt- um. En þeir eiga það einnig sameig- inlegt að hafa teflt frama sínum og þúsunda starfsmanna sinna í tvísýnu vegna óviturlegra fjárfestinga á öðr- um sviðum. Fyrirtæki Campeau varð gjaldþrota en honum tókst að halda í sín persónuleg auðæfi. Hvað verður um Trump? Reuter Dellan um aðlld sameinaðs Þýskalands að Nato: Málamiðlun hugsanleg Utanríkisráðherrar Vestur- Þýskalands og Sovétríkjanna koma saman til fundar í dag til að ræða sameiningu þýsku ríkjanna og hemaðarlega stöðu sameinaðs Þýskalands. Sterkar líkur benda nú til þess að Sovétmenn kunni að fallast á kröfur Vesturlanda um að sameinað Þýskaland eigi aðild að Nato, Atlantshafsbandalaginu, en sú krafa hefur hingað til reynst ein erfiðasta hindrun sameiningarinn- ar. Gorbatsjov Sovétforseti hefur haldið fast við þá afstöðu sína að aðild Þýskalands framtíðarinnar að Nato kunni að ógna öryggis- hagsmunum Sovétríkjanna. Hann hefur lagt til ýmsar málamiðlanir, s.s. að sameinað Þýskaland verði hlutlaust. í síðustu viku lagði hann til að Þýskaland eigi aðild að báð- um hernaðarbandalögunum en þeirri hugmynd var hafnað á Vest- urlöndum. Einn vestrænn stjórn- arerindreki í Moskvu sagði aö svo virtist sem Moskvustjórnin hefði mfldað afstöðu sína eilítið. Fundurinn í dag verður sjöundi fundur Sévardnadzes, sovéska ráð- herrans, og Genschers, þess vest- ur-þýska, á sex mánuðum er snýst nær einvörðungu um öryggissjón- armið varðandi sameininguna. Sameiningarmálið er nú komið á skrið en eftir aðeins tvær vikur sameinast efnahagur og gjaldmiðl- ar ríkjanna að fullu í samræmi við myntbandalag Austur- og Vestur- Þýskalands sem undirritað var fyrr áárinu. Reuter Spennandi nýjung fyrir viðskiptavini Hagkaups lUú kemstu í sólina á Hagkaupsverði Á þriðjudaginn kl. 14-16 bjóðum við ákveðinn fjölda sæta í sólarlandaferðir á sannkölluðu Hagkaupsverði! HAGKAUP K r i n g 1 u n n i Álfabakka 16. Sími 60 30 60 Pósthússtræti 13. Sími 2 69 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.