Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Blaðsíða 1
l k : . DAGBLAÐIÐ - VlSIR 151. TBL. - 80. og 16. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 5. JÚLl 1990. I VERÐ í LAUSASÖLU KR. 95
Dómur í Hafskipsmálinu 1 morgun:
Fiórtán voru svknaðir
W #
Björgólfur Guömundsson, fyrr-
verandi forstjóri Hafskips, og Páil
Bragi Kristjónsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri íjármálasviös
fyrirtækisins, voru dæmdir í skil-
orðsbundið fangelsi vegna þátttöku
í Hafskipsmálinu í sakadómi í
morgun. Björgólfur fékk fimm
mánaða dóm en Páll Bragi tveggja
mánaða. Fullnustu dómsins var
frestað í tvö ár og munu þeir því
ekki sitja hann af sér nema þeir
gerist brotlegir á þeim tíma.
Helgi Magnússon, endurskoð-
andi fyrirtækisins, var dæmdur til
100 þúsund króna sektar sem telst
að fullu greidd með 20 daga gæslu-
varöhaidi.
Fjórtán hinna ákærðu voru sýkn-
aðir í sakadómi. Ragnar Kjartans-
son var sýknaöur af öllum kröfum
ákæruvaldsins. Aðrir fyrrum
starfsmenn Hafskips voru einnig
sýknaðir. Þeir voru: Ámi Árnason,
Sigurþór Charles Guðmundsson og
Þórður Hafsteinn Hilmarsson.
Bankastjórar Útvegsbankans,
Halidór Guðbjarnason, Lárus
Jónsson, Ólafur Helgason og Axel
Kristjánsson, voru einnig sýknað-
ir. Endurskoðandi bankans, Ingi
R. Jóhannsson, var einnig sýknað-
ur. Þá var og bankaráð Utvegs-
bankans sýknað af öllum ákæru-
atnðum.
Ákæruvaldið krafðist óskílorðs-
bundins fangelsisdóms yfir þeim
Björgólfi, Ragnari, Páli Braga og
Helga Magnússyni. Það krafðist
einnig dóms yfir öðrum en skil-
orðabundins.
„Hafskipsmálið er hrunið. Þeir
sem voru viðstaddir dómsrami-
sókn i vetur sáu að Hafskipsmálið
var ofblásin blaðra og ofblásnar
blöðrur springa. Ég kom ekki til
að hlusta á dómsmorð,“ sagði
Ragnar Kjartansson.
Dómsformaður, Sverrir Einars-
son, las upp dómsorðin í sakadómi
í morgun. Meðdómendur hans
voru Ingibjörg Benediktsdóttir og
Arngrímur ísberg.
-sme/gse
Kapphlaup um álver:
Keilisnes,
Dysnes
eða Reyðar-
fjörður?
-sjábls.7
Fram-
kvæmda-,
Fiskveiða- og
Iðnlánasjóður
í eina sæng?
-sjábls.4
Vestur-Þýska-
landíHM-
úrslitum
-sjábls. 16og25
DV-viötalið:
Pólitík og
útivist
-sjábls.5
Vonsviknir
Englendingar
genguber-
serksgang
-sjábls.9
Fjölnismenn,
forneskjan
ogprófessor
Sigurður
-sjábls. 14
Haukur Halldórsson, myndlistarmaður og krýndur keisari Atlantis, og Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði halda kórónu Atlantis á milli sín uppi á
Stóra-Dímoni i gær. Það var Sveinbjörn sem krýndi Hauk en þeir áttu báðir afmæli í gær. DV-mynd Brynjar Gauti
Krýndur keisari Atlantis
- sjá bls. 2
Landsmót hestamanna:
sjábls,2
Norðurlandamótið í bridge:
Stórsigur á Færeyingum og
kvennasveitin langefst
-sjábls.2