Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990. Word-Per£ect 5*0 Ittitritun stendur yflr. r—10 Tölvuskóll Reykjavíkur k-álBorgartúni 28, S.687590 i1, i i t i t í HH BLAÐ BURÐARFÓLK <X öMtrnv tdt£v\. í eýtx/tá&éiyv tweAsjjU ■ Blesugróf Öldugróf i i i i i íf i AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11 i i t i tt i t SIMI 27022 ÚTB0Ð h^RAR.K RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í reisingu á 113 staurastæðum í 66 kV háspennulínu milli Valla við Hveragerði og Þorlákshafnar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns- veitnanna, Gagnheiði 40, 800 Selfoss, Dufþaksbraut 12, 860 Hvolsvöllur, og Laugavegi 118,105 Reykja- vík, frá og með fimmtudeginum 20. september 1990 og kostar kr. 700 hvert eintak. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsyeitna ríkis- ins í Reykjavík fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 17. október 1990 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK- 90006 66 kV Þorlákshafnarlína. Staurareising". Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík '/Tn ixr.-sxi Frigor TILBÖÐ FRYSTIKISTUR MÁL H X B X D STÆRÐ GERÐ STAÐGR. VERÐ 90x73x65 1851 B20 31.950 90 x 98 x 65 2751 B 30 35.730 90x128x65 3801 B40 39.960 90x150x65 4601 B 50 43.470 ÁRATUGAREYNSLA DÖNSK GÆÐATÆKI Á GÓÐU VERÐI Samkort EUBDCABD o SAMBANDSINS VIÐ MiKLAGARD SÍMAR 68 55 50 - 6812 66 Útlönd_______________________________________pv Viðbrögð við árásinni á Sir Peter Terry: Thatcner vill dauðarefsingu - Terry liíir en er alvarlega sár, einkum á höfði „Svo gæti fariö að viö verðum aö taka upp dauðarefsingu á ný í barátt- unni gegn hryðjuverkamönnum," sagði Margret Thatcher, forsætisráð- herra Breta, í kjölfar árásar írska lýðveldishersins í fyrrakvöld á Sir Peter Terry, fyrrum landstjóra Breta á Gíbraltar. Forsætisráðherrann lét þessi orð falla í fréttatíma sjónvarps- stöðvarinnar Sky News í gærkvöldi. Terry var staddur á heimih sínu þegar vopnaðir menn hófu skotárás með þeim afleiðingum að hann særö- ist alvarlega og kona han einnig nokkuð. Læknar segjast hafa tekið níu kúlur úr andliti og líkama Terr- ys. Hann er nú.á batavegi þrátt fyrir alvarieg sár. Terry, sem er 63 ára gamall, kjálka- brotnaði í árásinni auk þess sem tvær kúlur sátu fastar í höfuðkúpu hans nærri heilanum. Þá hlaut hann alvarleg sár á hægri hlið og einnig á vistri fótlegg. Læknar sögðu að mörg bein hefðu brotnað en kúlur hefðu ekki hæft mikilvæg líffæri. írski lýðveldisherinn lýsti þegar veknaðinum á hendur sér og sagði að verið væri að hefna fyrir að Terry veitti heimild fyrir að lögreglumenn úr breskum sérsveitum gerðu árás á aðsetur manna sem grunaðir voru um aðild að lýðveldishernum. Þetta var meðan Terry var landstjóri á Gíbraltar en grunur lék á að menn- irnir ætluðu að ráðast gegn Bretum Margaret Thatcher boðar að dauða- refsing verði tekin upp á ný eftir árásina á Terry. Símamynd Reuter á Gríbraltar. Þrír liðsmenn írska lýð- veldishersins féllu þá í árás lögregl- unnar. Margaret Thatcher sagði í yfirlýs- ingu að árásin lýsti lítilmennsku og illmennsku. Thatcher er nú stödd í opinberu ferðalagi um Ungverjaland. Hún sagði að það sem hefði gerst nú hlyti að leiða til þess að Bretar skoð- uðu betur hvað hægt væri að gera til að stemma stigu við hryðjuverk- um. „Þeir eru í stríði viö okkur en við getum aðeins mætt þeim með borg- Sir Peter Terry, fyrrum landstjóri Breta á Gíbraltar, komst lífs af úr árásinni. Simamynd Reuter aralegum lögum,“ sagði Thatcher. Ummæli hennar síðar um að taka upp dauöarefsingu þykja koma í beinu framhaldi af þessum orðum. Mennirnir, sem gerðu árás á Terry, skildu engin spor eftir sig og hefur lögreglan ekki getað haft uppi á þeim. Þeir óku upp að heimili Terryhjón- anna og hófu skothríð inn um glugg- ana. Að þvLloknu óku árásarmenn- irnir á braut og hefur ekkeri til þeirra spurst. Reuter Indland: Þrír námsmenn kveiktu í sér - vildu mótmæla auknum réttindum lágstéttarfólks Einn námsmannanna brenndist illa eftir aö hann kveikti í sér í Nýju Delhi í gær. Lögreglunni tókst þó aö slökkva i honum áður en hann lét lífið. Simamynd Reuter Indversk stjórnvöld létu í gær loka öllum skólum í Nýju Dehli eftir að þrír námsmenn helltu yfir sig bens- íni og kveiktu í. Þeir voru að mót- mæla áformum stjómarinnar um að gefa lágstéttarfólki kost á fleiri störf- um á vegum ríkisins. Skólamir verða lokaðir næstu tíu daga og í háskólanum í Nýju Dehli verður ekki kennt það sem eftir er vikunnar. Ákvörðunin um lokum skólanna var tekin aðeins klukku- stund eftir að námsmennirnir kveiktu í sér. Sjálfsíkveikjumar komu í kjölfar mikilla mótmæla vegna áforma stjórnarinnar. Óeirðalögreglan var á staðnum og tókst henni að slökkva í námsmönnunum og sluppu tveir þeirra án verulegra meiðsla. Hinn þriðji brenndist illa. Þá brenndust nokkrir lögreglumenn viö að slökkva í námsmönnunum. í mótmælagöngunni voru hafðir á lofti borðar þar sem m.a. stóð „í dag er dagur sjálfsíkveikju". Mótmælin náðu hámarki í gær eftir að hafa staðið af og til síðustu fimm vikur. Mótmælendur vilja að hvergi verði vikið frá ævafomum hefðum um réttindi stétta í landinu og að lág- stéttarfólki verði ekki gefin aukin tækifæri. Stjónin hefur heitið því að láta mótmælin engin áhrif hafa á stefnu sína. „Stjórnin ætlar sér að bæta lág- stéttunum þúsund ára misrétti. Þess- ir námsmenn ættu ekki aö skipta sér af því,“ sagði Ram Vilas Paswan, fé- lagsmálaráðherra Indlands, eftir mótmælin. Paswan er sjálfur kominn af lág- stéttarfólki - hinum ósnertanlegu - en mótmælendurnir era komnir úr hástéttunum og óttast um sinn hag íframtíðinni. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.