Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Síða 28
52 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990. Merming Persónuleg steypa Þennan mánuö hefur staðið yílr mjög athyglisverð styttusýning á Kjarvalsstöðum. Þar er um að ræða yfirlit verka Brynhildar Þorgeirsdóttur; álfastein, bæj- arfiall, mann með bindi og margt fleira. Brynhildur er atorkumikill og hugmyndaríkur styttusmiður en það orkar tvímælis hvort vænlegt sé að efna til yfirlits- sýningar svo ungs listamanns. Sú spurning verður áleitnari fyrir það að u.þ.b. helmingur verkanna er nýr, þ.e. frá þessu ári og því síðasta. Og einnig eru efnistök breytt í flestum hinna nýrri verka; steypan og glerið eru eftir sem áður frumefni Brynhildar en endanleg útfærsla er blæbrigðaríkari og mýkri. Hvasst stálið hefur að mestu vikið fyrir mýkri efnum, s.s. marine-texi, en áferð þess minnir helst á gúmmíkennt blý. Undirritaður skrifaði einnig um síðustu einkasýn- ingu Brynhildar hér á landi en hún var í Galleri Svörtu á hvítu við Laufásveg fyrir tveimur árum. Á þeirri sýningu voru nokkur verk sem einnig eru nú á Kjarvalsstöðum. En það verður að segjast að þessi til- teknu verk, t.a.m. „landvisar" og „riddarar", hafa að þessu sinni allt önnur áhrif á undirritaðan. Leikræn lýsing Leikræn og heit svæðalýsingin á Kjarvalsstöðum sníður verkunum umgjörð sem er í senn lífræn og dauö i þeim skilningi að hún minnir um margt á forn- gripasafn. Þar meö týnist talsvert af þeim hráleika og utandyraham sem einkennir a.m.k. elstu verk Bryn- hildar en í heildiria verður lýsing sýningarinnar að teljast mjög vel heppnuð. Það er óvenjulegt að svo mikið sé lagt í lýsingu sýninga en Kjarvalsstaðir hafa gert kærkomna bragarbót í þessu efni á liðnum mán- uðum. Til dæmis er það að mínu mati rétt ráðstöfun að hafa elstu „pönkverurnar“ í forsal þar sem mestrar útibirtu nýtur. Einnig tekur hin tignarlega „Lady“ sig vel út við innganginn. Það verk er að auki góður tengi- hður við nýrri verkin í salnum; frjósemisgyðja með þrjú brjóst sem geymir í rökkvuðum kviðnum á þriðja tug steinbarna. Mögnun efnis Viðfangsefni Brynhildar virðist vera í auknum mæh efnið sjálft; steinninn fær að vera steinn og er ekki persónugerður eins og áður. Þess í stað gefur listamað- u'rinn verki sínu innri persónulega mögnun. Samsvör- un má e.t.v. finna í þeirri spennu sem orsakast af eld- stöðvum undir jökli. Við slíkar kringumstæður mynd- Brynhildur Þorgeirsdóttir er hér við eitt verka sinna. Myndlist Ólafur Engilbertsson ast bergtegundir sem vísindamenn hallast nú í æ rík- ari mæli að að verði rafhlöður framtíðarinnar; saman- þjöppuð orka. í þeim mögnunaranda eru flest eftir- minnilegustu verkin á þessari sýningu; „Álfasteinn“, „Bæjarfjall“ o.fl. SUk verk bera það með sér að höfund- ur þerra er óspar á orku og kann að veita henni í far- veg upprunans. BæjarfjalUð er sennilega alltaf handan við hornið, jafnvel á Manhattan. Brynhildur Þorgeirs- dóttir sýnir, svo ekki verður um viUst á þessari sýn- ingu, að hún er meðal okkar fremstu skúlptúrista. Sýningunni lýkur nk. sunnudag. Andlát Jóhanna Böðvarsdóttir Áðils lést á Landakotsspítala 26. þ.m. Ingveldur Jónsdóttir, Skeggjastöð- um, Garði, andaðist á heimili dóttur sinnar 25. nóvember. Sigríður Sigurðardóttir, Álftahólum 6, lést að morgni 27. nóvember. Unnur Thoroddsen lyíjafræöingur lést í Landakotsspítala 27. nóvember. Hjörtur Oddsson læknir lést í Uppsöl- um í Svíþjóð 26. nóvember. Jarðarfarir Guðrún Guðfinna Þorsteinsdóttir, Króksstöðum, Miöfirði, verður jarð- sett frá Melstaðarkirkju fóstudaginn 30. nóvember kl. 14. Þórir Halldórsson, Hátúni lOb, lést 12. nóvember. Jarðarfórin hefur far- ið fram í kyrrþey. Henry Franzson, lést þriðjudaginn 13. nóvember sl. Jarðarfórin hefur farið fram. Milutin Kojic veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtu- daginn 29. nóvember kl. 13.30. Skarphéðinn Jónatansson, írabakka 12, sem lést á heimili sínu 20. þ.m., verður jarðsunginn frá nýju Foss- vogskapellunni fimmtudaginn 29. nóvember kl. 13.30. Gústav B. Jónasson rafvirkjameist- ari lést 20. nóvember. Hann var fæddur á Þingeyri við Dýraíjörð þann 16. nóvember árið 1911. Hann var sonur hjónanna Jónasar Jónas- sonar og Ingibjargar Bergsdóttur. Gústav lauk námi í rafvirkjun og starfaði lengst af við iðn sína. Hann giftist HUn Jónsdóttur, en hún lést árið 1973. Þau eignuðust þrjú böm. Útför Gústavs verður gerð frá Akur- eyrarkirkju í dag kl. 13.30. Tapað fundið Fór einhver bílavillt Aðfaranótt sunnudagsins var af mis- skilningi sett ritgerð og 4 geisladiskar í biffeið sem stóð fyrir utan Fjölbrauta- skólann í Ármúla. Upplýsingar í síma 78698. Fundir ITC deildin Melkorka heldur fund í kvöld í Menningarmiöstöð- inni Gerðubergi kl. 20. Fundarstef: Sá sem þekkir aðeins eina hUð á málinu þekkir litið til þess. Meðal efnis á fundin- um eru kvikmynda- og leikhúspistlar, íslenskt mál og fleira. Fundurinn er öll- um opinn. Upplýsingar veita Guðrún s. 67806 og Ólöf S. 72715. Tilkynmngar Geðhjálp komið út Út er komið 2. tbl. tímaritsins Geöhjálpar 1990. í blaðinu er að finna margvíslegar greinar sem tengjast geðhjálp og starf- semi Geðþjálpar. Halla Þorbjömsdóttir bamageðlæknir fjallar um svoköiluð „vegalaus böm“, Auður Gunnarsdóttir skrifar um nýja valkosti í meðferö áfeng- ismisnotenda. Pétur Hauksson geðlæknir gerir grein fyrir líkamlegum óþægindum af andlegum toga. Þormóður Svavarsson félagsráðgjafi skrifar grein um eftirköst skilnaðar og úrvinnslu. Ljóð og styttri greinar em ennfremur hluti af efni blaðs- ins. Geðhjálp vekur ennfremur athygli á ráöstefnu sem haldin verður á vegum félagsins í Rúgbrauðsgerðinni, Borgar- túni 6, þann 29. nóvember. Jólakveðjur í útvarpi íMalmö Útvarp íslendingafélgsins í Malmö og nágrenni - útvarp Imon - býður lands- mönnum að senda ættingjum og vinum í Malmö jóla- og áramótakveðjur. Kveðj- umar verða lesnar á Þorláksmessu. Sendingar útvarps Imon nást um alla Malmöborg og svo sem fimmtíu kíló- metra út frá henni. Þeir sem hug hafa á að gleðja ættingja og vini í þeim lands- hluta Svíþjóðar með kveðju em beðnir t Eiginmaður minn og faðir Henry Franzson lést þriðjudaginn 13. nóvember sl. Jarðarförin hefur farið fram. Guðbjörg Guðmundsdóttir og Hólmar Henryzson um að sendahana á korti eða í bréfi sem allra fyrst. í síðasta lagi 10. desember. Utanáskriftin er: Útvarp Imon, P.O. Box 283, 20122 Malmö, Sverige. Einnig má senda kveðjuna á myndrita (faxi). Núm- erið er 904640124661. íslenskar hestaættir Fræðslufundur um íslenskar hestaættir verður haldinn í Félagsheimili Fáks í Víðidal fimmtudaginn 29. nóvember kl. 20.30. Ræðumenn kvöldsins verða Gunn- ar Bjarnason, fyrrum hrossaræktarráöu- nautur og höfundur bókaflokksins Ætt- bók og saga, og Jónas Kristjánsson, höf- undur bókanna Heiðajarlar og Ættfeður. Á fundinum verður m.a. sagt frá breytt- um ættfærslum í þekktum hestaættum. Fundurinn er haldinn á vegum fræðslu- nefndar Hestamannafélagsins Fáks. Hans Petersen styrkir Krabbameins- félagið með sölu jólakorta Eins og undanfarin ár selja verslanir Hans Petersen h/f jólakort sem ætluð eru til þess að setja myndir í og eru öll kort- in til styrktar Krabbameinsfélagi íslands. Af hverju seldu korti í verslunum Hans Petersen renna 5 kr. til Krabbameins- félagsins. í ár er sérstaklega vandað til þessara korta og var Jón Reykdallistmál- ari fenginn til þess að teikna myndir framan á tvö kortanna. Einnig er það nýjung að boðnar eru fallegar vetrar- myndir í kortin fyrir þá sem ekki hafa myndir handbærar en vilja senda kort til styrktar Krabbameinsfélaginu. Félag eldri borgara Opið hús í dag að Hverfisgötu 105, Risinu frá kl. 14. Fijáls spilamennska. Margrét Thoroddsen frá Tryggingastofnun rikis- ins verður til viðtals á morgun, fimmtu- dag, frá kl. 13-15. Besti vinur Ijóðsins Skáldakvöld á Hótel Borg í kvöld, miðvikudagskvöldið 28. nóvemb- er kl. 21, efnir Besti vinur ljóðsins til skáldakvölds á Hótel Borg. þar verða kynntar ýmsar þær bækur sem koma út nú fyrir jólin. Eftirfarandi ljóðskáld og rithöfundar munu lesa úr verkum sínum: Baldur Gunnarsson, Stefán Sigurkarls- son, Melkorka Tekla, Sigurður Pálsson, Jón Stefánsson, Árni Ibsen, Kristján Kristjánsson, Fríða Á. Sigurðardóttir, Þórarinn Eldjám og Rúnar Helgi Vignis- son. Kynnir er Kristján Þórður Hrafns- son. Listaverkakortfrá Safni Asgríms Jónssonar Út er komið listaverkakort sem Safn Ás- grims Jónssonar gefur út fyrir þessi jól. Kortið er eftir vatnslitamynd Ásgríms Strútur og Eiríksjökull frá 1948. Kortið er til sölu í safni Ásgrims Jónssonar, Bergstaðastræti 74, á þeim tíma sem safn- ið er opið; þriðjudaga, fimmtudaga, laug- ardaga og sunnudaga kl. 13.30-16 og enn- fremur í Listasafni íslands þegar það er opið. Jólakort Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNIC- EF, hefur selt jólakort til fjáröflunar fyr- ir starfsemi sína síðan 1949. Fyrsta UNIC- EF kortið var mynd eftir tékkneska stúlku en hún gaf mynd sína í þakklætis- skyni fyrir þá aðstoð sem þorpið hennar varð aðnjótandi í kjölfar síðari heims- styijaldarinnar. Allar götur síðan hafa UNICEF kortin verið listaverkamyndir, bæöi verk stóm meistaranna, nútímalist, höggmyndalist og klippimyndir. Þessi listaverk em frá yfir 200 þjóðlöndum en ágóðinn af sölunni fer allur til starfsemi Bamahjálparinnar meðal bama í þróun- arlöndunum. Hér á íslandi er það Kven- stúdentafélag íslands sem sér um sölu jólakorta Barnahjálparinnar. Skrifstofa félagsins er að Hallveigarstöðum, Öldu- götumegin, og er opin fram að jólum milli kl. 16-18. Þar er hægt að nálgast jólakortin og aðra hluti sem Bamahjálpin selur, auk þess sem kortunum hefur ver- ið dreift í allar helstu bókabúðir landsins. Kort frá Listasafni Islands Undanfama áratugi hefur Listasafn ís- lands látið gera eftirprentanir af verkum íslenskra myndlistarmanna í eigu safns- ins og em þau tilvalin sem jólakort. Nú em nýkomin út þrjú kort litprentuð á tvöfaldan karton af eftirtöldum verkum: Gullfiöll, 1946 eftir Svavar Guðnason, Is- landslag eftir Jóhannes S. Kjarval og National Museum Washington, 1979, eftir Erró. Kortin, sem eru tnjög vönduð, em til sölu í Listasafni íslands, Fríkirkjuvegi 7, sími 621000, opið daglega kl. 12-18 nema mánudaga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.