Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1991. Hjúkrunarfræðingar Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ólafsfirði, auglýsir eftir hjúkrunarforstjóra frá og með 15. júlí '91. Upplýsingar um starfið og starfskjör, húsnæði og fríðindi veitir forstöðumaður, Kristján Jónsson, í síma 96-62480 Höfum opnað að nýju flísaverslun Nýborgar hf. að Skútuvogi 4. Vandaðar vörur á betra verði. Frá Spáni, Ítalíu og Þýskalandi. Fúgi og lím frá Kerakoll- verksmiðjunum á ítalíu. Leiðandi fyrir- tæki á sínu sviði. Leggjum áherslu á betra verð og gæði. Nýborg c§þ Skútuvogi 4, sími 82470. BORCARA FLOKKURINN Þorrablót Borgaraflokkurinn í Reykjavík heldur sitt árlega þorrablót í Drangey, Síðumúla 35, laugardaginn 23. febrúar kl. 1 9.30. Verð aðeins 2.800 kr. Takmarkað- ur miðafjöldi. Miðasala og frekari upplýsingar á skrifstofu flokksins í Síðumúla 33. S. 685211. Stjórnin FERÐAR HVÍTUR STAFUR TÁKN BLINDRA UMFERÐ FATLAÐRA ’ VIÐ EIGUM SAMLEIÐ í> Aukablað Hljómtæki DV-hljómtæki, sérstakt aukablað um hljómtæki, er fyrirhugað miðvikudaginn 27. febrúarnk. í DV-hljómtækjum er ætlunin að sega frá hljómtækjum, sem eru á markaðin- um, og slfyra út fyrir lesendum hin mis- munandi gæði hljómtækja. Bent er á að auglýsingum i þetta upplýs- ingablað þarf að skila í síðasta lagi fimmtudaginn 21. febrúar. ATH.! Póstfaxnúmerið okkar er 27079 og auglýsingasíminn 27022. Hinhliðin Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus. Egerfarand- verkamaður hin hliðin á Jóhannesi í Bónus Rétt fyrir áramótin var opnuö Bónusverslun á Smiðjuvegi i Kópa- vogi og var það fjórða verslunin af því tagi sem er opnuð á tæpum tveimur árum. Jóhannes Jónsson kaupmaöur, sem stýrir Bónus- verslununum, er enginn nýgræö- ingur í kaupmannastétt. Hann var um árabil verslunarstjóri hjá Slát- urfélagi Suðurlands meðan veldi þess reis sem hæst. Með tilkomu Bónuss kvað við nýjan tón í mat- vöruverslun á íslandi. Bónus legg- ur áherslu á lágt vöruverð og litla yfirbyggingu. Starfsfólk er fátt en vinnur mikiö. Innréttingar eru ekki eins íburðarmiklar og víða tíðkast og síöast en ekki síst var Bónus fyrst matvöruverslana til þess að taka upp strikamerkingar í matvöruverslun. Það stuðlar aö skjótari afgreiðslu og öruggari verðmerkingum. DV náði aðstöðva Jóhannes á sprettinum og fá hann til aö sýna lesendum hina hliðina á sér. Fullt nafn: Jóhannes Jónsson. Fæðingardagur og ár: 31. ágúst 1940. Maki: Ása Ásgeirsdóttir. Börn: Kristín, 28 ára lögfræðingur, og Jón Ásgeir, 23 ára verslunar- stjóri. Starf: Ég er svo mikið á ferðinni milll verslananna að ég kýs að kalla mig farandverkamann. Laun: Viðsættanieg. Áhugamál: Ég hef engan tíma til þess að rækja nein áhugamál önn- ur en starfiö sem ég hef mikinn áhuga á. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur íiottóinu? Ég spila ekki í lottó- inu. Þaö er nóg áhætta fólgin í kaupmennskunni. Hvað fmnst þér skemmtilegast að gera? Að gera viðskiptavininn ánægðan. Það er reglulega góð til- finning. Hvað fmnst þér leiðinlegast að gera? Að þurfa að reka fólk úr vinnu vegnaþess að það hefur ekki staðið sig sem skyldi. Uppáhaldsmatur: Þessa stundina er það saltkjöt og baunir að göml- um og góðum sið í tilefni sprengi- dagsins. Uppáhaldsdrykkur: Núorðiö drekk ég mest af Seltzer frá honum Davíð vini minum í Sól. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur i dag? Ég fylgist ekki nógu mikið með íþróttum til þess geta dæmt um það. Uppáhaldstímarit: Eg hef mikið dálæti á Frjálsri verslun og fylgist með þvi sem þar er skrifað. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Það eru allar konur fallegar hver á sinn hátt. Ég get þess vegna ekki gert upp á milli þeirra. Ertu hlynntur eða andvígur rikis- stjórninni? Ég er andvígur henni þó ég verði að viðurkenna að hún hefur komíð ýmsu þarílegu í verk. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Margréti Thatcher, fyrr- um forsætisráðherra Bretlands. Uppáhaldsleikari: Bessi Bjarnason. Uppáhaidsleikkona: Margrét Ólafs- dóttir. Uppáhaidssöngvai-i: Björgvin Hall- dórsson. Uppáhaidsstjórnmáiamaður: Dav- íð Oddsson borgarstjóri. Uppáhaidsteiknimyndapersóna: Denni dæmalausi. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir eru svo til það eina sem ég horfi á i sjónvarpinu. Ertu hiynntur eða andvigur veru varnarliðsins hér á landi? Andvígur en ég tel að við höfum ekki efni á aö missa það. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgjan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Eiríkur Jónsson á Bylgjunni. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Eg horfi áh'ka mikið á báðar rásir. Uppáhaidssjónvarpsmaður: Ég get ekki tekiö neinn einn fram yfir annan. Dálæti mitt á þeim fer eftir því hvað þeir eru að segja. Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer svo til aldrei út að skemmta mér nú í seinni tíð. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ég fylg- ist ekkert með íþróttum. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að efla Bónus og stuðla að því að okkar stefna verði almenningi tii heilla hér eftir sem hingað tiL Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Þaö er ekkert ákveðiö. Ég hef ekki tekið neitt frí að ráði síðustu ár og það verður sjálfsagt ekki nema vika í sumar. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.