Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 94. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						I*1

FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.

Spurningin

Hver verður næsti

forsætisráðherra?

Jakob Guðnason sjóm.: Jón Baldvin

Hannibalsson.

Gunnhildur Gestsdóttir sjúkral.: Jón

Baldvin.

Lesendur

Elín Hjálmsdóttirnemi: Jón Baldvin.

Una Sigurðardóttir húsm.: Ég vona

Jón Baldvin.

Sigurður Gunnarsson verkam.:

íð Oddsson.

Dav-

Hafsteinn   Ólafsson   símam.:   Jón

Baldvin.

Þaðáaðgefa

Framsókn frí

Páll Jóhannsson skrifar:

Ég hefði talið aö nú væri komið

kjörið tækifæri til að flokkarnir þrír,

Sjálfstæðisflokkur, Alþýðubandalag

og Alþýðuflokkur, mynduðu hér rík-

isstjórn. Það yröi góð, sterk og hugs-

anlega langlif ríkisstjórn sem gæti

unnið gott starf fyrir þjóðiiia. Flestir

þjóðhollir íslendingar munu telja að

Framsókn sé löngu búin að renna

sitt skeið á enda og eigi því að gefa

henni frí og losa hana úr stólunum.

Bolabrögð Framsóknar hafa ber-

lega komið í ljós í sambandi við þess-

ar kosningar, t.d. varðandi prófkjör,

og viðbrögð flokksformannsins er

hann taldi að hann þyrfti ekki að

segja af sér nema fram á það væri

fariö af samstjórnarflokkum hans.

Það hefur raunar ekki verið margt

sem er eðlilegt við Framsóknarflokk-

inn, þegar málin eru skoðuð, og m.a.

það hvernig flokkurinn hefur haldið

á mikilvægum málum, bæði í land-

búnaði, sjávarútvegsmálum, afstöðu

tiL samvinnu við erlenda aðila og

margt, margt fieira.

Margt af því sem við íslendingar

búum við og okkur finnst vera úrelt

og staðnað má rekja til stefnu Fram-

sóknarflokksins og lykilaðstöðu

hans í ríkisstjórnum hér á landi.

Hvernig væri borgarmálum í

Reykjavík komið ef þar hefði t.d.

verið samsteypustjórn með eins

miklum áhrifum Framsóknar og hún

hefur haft í ríkisstjórnum? Það væri

ekki vænlegt um að litast hér í borg.

- Líklega svipað og nú í landsmálum.

Ég skora á formann Sjálfstæðis-

flokksins, og formann ilokkanna

tveggja, Alþýðuflokks og Alþýðu-

bandalags, að taka saman höndum

og gefa landsmönnum raunhæfa og

sterka ríkisstjórn sem hugsar um

heill landsins og íbúa þess. Ég tel að

stjórn flokkanna tveggja, Sjálfstæð-

isflokks og Alþýðuflokks, verði varla

nógu sterk til að ráða við þau vanda-

mál sem nú eru í sjónmáhV

Bréfritari höfðar til formanna Sjálfstæöisflokks, Alþýöubandalags og Alþýðuflokks um stjórnarmyndun.

Fiskmarkaðir færast vestur um haf

Hólmsteinn skrifar:

Það kann að fara svo að fljótlega

verði afdrifarík breyting á fisksölu-

fyrirkomulagi hjá okkur. Nú er að

koma að því að Bandaríkjadollar

styrkist með hverjum degi en þýska

markið veikist. Enska pundið gæti

einnig orðið illa úti hvað líður. Þetta

allt yeldur því að smám saman fórum

við íslendingar að hugsa til verulegr-

ar hreyfingar með fisk til Bandaríkj-

anna. Við höfum að undanfórnu lagt

talsvert undir í Evrópu við að kynna

og selja fisk þangaö og í ýmsu

ástandi, þó mestmegnis óunninn.

Þetta var aldrei góð viöskiptapólitík.

En hvað áttum við að gera? Hér er

fiskur fyrst og fremst hráefni og í

flestum tilvikum verður hann aldrei

meira en þaö. Hann er fluttur út til

vinnslu að mestu leyti. Segja má að

saltfiskurinn sé eina fiskafurðin sem

staðist hefur tímans tönn hvað varð-

ar verulega eftirspurn. Hann hefur

verið okkar besta og traustasta afurð

áratugum saman. - Þetta er ekki

hægt að segja um ferskfiskinn svo-

kallaða sem er ýmist frosinn eða ýs-

aður. Hann lýtur lögmálum markað-

ar sem er síbreytilegur og vandmeð-

farinn.

Það sem mestu máli skiptir hins

vegar fyrir okkur er aö fá verðmætan

gjaldeyri fyrir fiskinn.Ef þýska

markið á undir högg að sækja, sem

allar líkur eru á, þá er vá fyrir dyrum

annars staðar í Evrópu líka. Aðrir

gjaldmiðlar á meginlandinu era líka

í hættu. Það má svo rekja til óvissu-

ástands sem ríkir í hinum „ný-

frjálsu" Austur-Evrópuríkjum. Þau

munu ekki reynast það mikla mark-

aðstorg viðskipta og sumir bjuggust

við, a.m.k. ekki í bráð.

Allt bendir því til þess að við is-

lendingar munum sækja fast í að

senda og selja meira af fiski til

Bandaríkjanna. Þar vantar fisk og

hann er að verða í enn meiri metum

þar en nokkru sinni fyrr. Ekki síst

þorskur. Nú er illt að hafa ekki hafið

viðræður um fríverslunarsamning

við Bandaríkin samhliða hinum

gangslausu viðræðum um aðild að

evrópsku markaðssvæði.

íslahdsmeistaramótið í dansi:

Nánast sniðgengið af fjölmiðlum

Aldís Gunnarsdóttir skrifar:

íslandsmeistaramótiö í dansi var

haldið hér á landi dagana 13. og 14

apríl sl. Það stóð í heila tvo daga,

byijaði kl. 11 f.h. og stóð til kl. 23.00

báða dagana. Mótið var haldið í Ás-

garði í íþróttahúsinu í Garðabæ og

varla er hægt að halda því fram að

það hafi verið úr alfaraleið, þannig

að fjölmiðlar hafi ekki getað komið

því við að afla góðra og nákvæmra

frétta. En þannig fór að fjölmiðlar

nánast sniðgengu fréttir af þessu vel

heppnaða móti og þess var lítið og

stundum alls ekki getið í fréttum.

Hér var um mót að ræða sem var

einkar glæsilegt í alla staði eins og

svona mót eru reyndar oftast. Margt

var um áhorfendur og því tel ég að

hér hafi verið um alveg kjörið tæki-

færi til að sýna frá í sjónvarpi og

jafnvel til þess að sýna sem viðbótar-

eða aukafrétt í þeim fjölmiðli.

Á mótinu var keppt í ýmsum ald-

ursflokkum, t.d. 7 ára og yngri, síðan

&-9 ára, 9-10 ára og allt til 14-15 ára.

Þá komu 16-24 ára aldurshópur, og

25-34 ára, 35-49 ára og loks 50-66 ára

aldurshópur. Þetta var mjög hörð

keppni eins og gefur að skilja þar sem

íslandsmeistararnir i suður-amerískum (Latin-American) dönsum, þau Hild-

ur Ýr Arnars og Þröstur Jóhannsson. - Þröstur var einnig íslandsmeistari

í „Ballroom"-dansi.

dansarar höfðu góða þjálfun eftir að

hafa æft sleitulaust í marga mánuði,

sumir árum saman. - Ég vil fullyrða

að hér er um einhverja bestu

skemmtun að ræða sem við höfum

upp á að bjóða hér á lartdi og því er

skaði að tækifærið var ekki vel nýtt

til að kynna þessa sígildu íþrótt fyrir

almenningi.

Eitthvaðmeira

en170þúsuncSin

Halldóra hringdi:

Nú eru okkur sýndir í sjón-

varpsfréttum nýir þingmenn með

sælubros á vör, kýssandi og

faðmandi hver annan. Það er eins

og þeir hafi himin höndum tekið

í bókstaflegri merkingu. Þeir sem

féllu i kosningunum eni hins veg-

ar allir undrandi á útkomunni og

skilja ekki hvers vegna þeir féDu.

En hvað um það. Mér finnst

þessi gleði yfir að ná þingsæti

vera oeðlileg ef miðaö er við laun-

in ein, kr. 170 þúsund á mánuði.

Ég trui því ekki aö þetta fólk sé

að sækjast svona ofboðslega eftír

þessum launum einum. Það rilýt-

ur aö vera eitthvað annað og

meira að sæjtiast eftir á Alþingi.

Það skyldi $ó ektó vera að þing-

mannsstarfiö gefi af sér mun

meira en upp er gefið? Því má

ekki rninnast á lauhuð nefnda-

störf, fríðindin, feröalögin og dag-

peningana? Gáum vel að þessu

öllu.

Vilji þjódar

vínstrístjórn

Bárður R. Jónsson skrifar:

Sjálfstæðisflókkurinn bauð

fram gegn glundrpða vinstri-

stjórnarstefnii í landínu. Þjóðin

hlýtur að hafá tekið tillit til þeirra

skiiaboða flqkksins. Hún kváð

upp úrskurð sinn í nýafstöðnum

kosningum.

Þá kom í Ijós að Sjálfstæðis-

flokkurinn hlaut 38,6% atkvæða

í landinu, „Vinstri glundroðinn"

fékk 61,3%. Vilji þjóðarinnar er

skýr, þjóðin viil áfram vinstri

stióra í landinu.

Endaslepptnjá

KRON

Félagsmaður skrifar:

Mér finnst það lítilmótieg og

niðurlægjandi endalok hjá einu

elsta káupfélagi landsins að verða

gjaldþrota. Það sýnir ekki mikla

reisn eða srjórnvisku hjá þeim

mönnum sem hafa farið meö völd

í KRON að draga allt á langinn

þar til þurfti að óska eftir gjald-

þrotaskiptum.

Fyrrum var KRON öflug versl-

ímareining með marga félags-

menn. Síðan tók að halla undan

fæti. Allir vissu hvert stefndi, En

að biða eftir þyf að þurfa að láta

félagið enda sem gjaldþrota ves-

aling er meira en margir vih'a

kyngja. Ég gagnrýni stjórnar-

menn KRON harðlega undanfar-

in ár ög get ekki séð að þeir eigi

neins staðar innhlaup þar sem

versltm og viðskipti eru stunduð.

Konur i rádherra-

stóla fyrir Sjáff-

stæðisflokk

Guðmundur Kristinsson skrifar:

Það ætti reyndar að vera öþarfi

að vera að skrifa um það sem mér

Iiggur á hjarta, en læt samt fiakka,

þótt ég þykist vita að forusta Sjálf-

stæðisflokksins muni ekki snið-

ganga konu eða jafnvel konur þeg-

ar skipaö verður í ráöherrastóla

ef til kemur að sá flokkur taki að

sér stjórnarmyndun.

Nefna má Sólveigu Pétursdótt-

ur og Láru Margréti Ragnars-

dóttur. Þær eru báðar vel hæfar

til ráðherraembættis. Lára

Margrét gæti gegnt embætti heil-

brigðisráðherra og Sólveig t.d.

ráöherraembætti dóms- og

kirkjumála. - Þrlðja þingkona

þeirra sjálfstæðismanna, Salome

Þorkelsdóttir, ætti svo að fá emb-

ætti forseta Sameinaðsþings, Það

værí algjört hneyksli ef ekki

a.m.k. annaöhvort Lára Margrét

eöa Sólveigskipuöu ráöherrasæti

hjá Sjálfstæðisflokknum. Sjálf-

stæðismenn ættu þó að geta stað-

ið jafnfætís krötum með sinn

ágæta kvenráöherra sem þeir

hafa haft um árabil.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40