FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991. 33 Lífestm ±'fit 1 ^PÁPRIKA _+í6% 1 ! ¦ OQ 1 1 746 339 1/ r||h IrtJn" GURKUR -72% i 402 271 549 487 VINBER +13% I 5 376 198 fHl KARTOFLUR (íslenskar) +3% 89 s c vo OQ 55 DV kannar grænmetismarkaðinn: Paprika hækkar stoðugt í verði - yflr tvöföldun á einum mánuði Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð á grænmeti í eftirtöldum verslunum; Bónusi í Skútuvogi, Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, Hag- kaupi, Skeifunni, Kjötstöðinni, Glæsibæ og Miklagarði í Mjódd. Bónusbúðirnar selja grænmetið í stykkjatali en hinar samanburðar- verslanirhar selja eftir vigt. Til að fá samanburð þar á milli er grænmeti í Bónusi vigtað og umreiknað eftir meðalþyngd yfir i kílóverð. Meðalverð á tómötum er nánast það sama og í síðustu viku en það er nú 333 krónur. Tómatar voru á lægsta verði í Bónusi á 182 en þar á eftir kom verðið í Fjarðarkaupum 294, Hagkaupi 369, Kjötstööinni 399 og Miklagarði 423. Kjötstöðin og Hag- kaup seldu einnig íslenska tómata á 599 krónur. Munur á hæsta oglægsta verði á erlendum tómötum er 132%. Meðalverð á gúrkum var eina með- alverðið sem lækkaði eitthvað að ráði milli vikna. Lækkunin nam 12 af hundraði og er meðalverðið nú 313 krónur. Gúrkur voru ódýrastar í Bónusi á 271 krónu. Næst kom Hag- kaup 295, Fjarðarkaup og Kjötstöðin 298 og Mikligarður 402. Munur á hæsta og lægsta verði var 48 af hundraði. Fimm prósent hækkun varð á með- alverði á sveppum frá síðustu könn- un og er það nú 516 krónur. Lægsta verið á sveppum var í Bónusi 487, en á eftir kom verðið í Kjötstöðinni 498, Fjarðarkaupi 499, Miklagarði 545 og Hagkaupi 549 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði á sveppum var óvenjulítill eöa 13%. Hækkun um 13% varð á meðal- verði á grænum vínberjum milh vikna og er meðalverðið nú 307 krón- ur kílóið. Græn vínber fengust að þessu sinni ekki í Bónusi en lægst var verðið í Fjarðarkaupi, 198 krón- ur. Næstlægst var verðiö í Hag- kaupi, 299, en síðan kom 356 í Mikla- garði og 376 í Kjötstöðinni. MUnur á Neytendur hæsta og lægsta verði á grænum vín- berjum var 90%. Sextán prósent hækkun varð á meðalverði á grænni papriku og er það nú 544 krónur. Græn paprika var ódýrust í Bónusi þar sem kílóverðið var 339 krónur. Síöan kom Kjötstöðin með 480, Hagkaup 559, Fjarðarkaup 594 og Mikligarður 746 krónur. Fjarð- arkaup var einnig með íslenska papriku á 660 kg verð. Munur á hæsta og lægsta verði á grænni pa- priku er 120%. Hækkun varð á meðalverði á kart- öflum um 3 af hundraði og meðal- verðið er nú 72 krónur á hvert kg. Kartöfiur voru á lægsta verðinu í Bónusi á 55 en á eftir fylgdu Hagkaup 64, Kjötstöðin 74,50, Fjarðarkaup 75,50 og Mikligarður 89 krónur. Mun- ur á hæsta og lægsta verði er 62 af hundraði. Meðalverð á blómkáli lækkaði að þessu sinni um 3% og er það nú 201 króna. Blómkál fékkst ekki í Bónusi en lægsta verðið er í Fjarðarkaupi 135. Næst kemur verðið í Miklagarði 206, Hagkaupi 225 og Kjötstöðinni 237 kr. kg. Munur á hæsta og lægsta verði er 76%. Eins prósent hækkun varð á með- alverði á hvítkáli frá í síðustu könn- un og er það nú 95 krónur á hvert kíló að jafnaði. Hvítkál var ódýrast í Bónusi á 67, næst kom Fjarðarkaup og Hagkaup 79, Mikligarður 119 og Kjötstöðin 132 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði á hvítkáli er 97%. Meðalverð á gulrótum lækkaði um 2% milli vikna og það er nú 149 krón- ur. Gulrætur voru á hagstæðasta verðinu í Bónusi á 98 krónur en á eftir fylgdu Fjarðarkaup 136, Hag- kaup 139, Mikkgarður 165 og Kjöt- stöðin 208 krónur. Munur á hæsta og lægsta veröi á gulrótum er 112%. ÍS Meðalverö á grænni papriku hefur meira en tvöfaldast á rúmum mánuði. Sértilboð og afsláttur: Unghænur og örbylgjupopp í Bónusi gat að líta umhverfisvænt Bluevit compact þvottaefni, 1,3 kg á 414 krónur á tilboðsverði. Einnig Campbells sveppasúpu í dós, 295 g á 72, íscola, 1 Vz 1 á 86 krónur stykkið og Papco eldhúsrúllur, 4 stk. í pakka, á 158 krónur. Fjarðarkaup var með niðursoðið rauðkál, 570 g á 99 krónur og 1070 g á 174 krónur á tilboðsverði. Club salt- kex var á sértilboði, 100 g á 66 krón- ur, Bold þvottaefni, 4 kg á 779 sömu- leiðis og Olof bruður, 200 g á 117 krónur. í Hagkaupi, Skeifunni, var hálfur lambaskrokkur á sértilboðsverðinu 486 krónur kílóið, Home McVities súkkulaðikex, 400 g á 99, Krakus jarðarber, 850 g á 89 krónur, og Lotus dömubindi, Scipella og Futura á 259 krónur. í Kjötstöðinni Glæsibæ gat að líta á tilboðsverði Brink kremkex, 250 g á 85, Arlex salernispappír, 12 rúllur á 239 krónur, og Blutex þvottaefni, 2 x 1,2 kg, á 299 krónur. Á tilboðsvegg þar voru Gité hreinsi- og þvottaefni á kynningarverði. Mikligarður, Kaupstaður í Mjódd er með tilboðsverð á unghænum á 198 krónur kílóið, framhryggur þar var á20% afsláttarverði á 689 krónur kgverð, Hy Top örbylgjupopp á 99 og Rynkeby appelsínusafi á 74 og epla- safi á 69 krónur lítrinn. ÍS Paprika Verð í krónum ............................544 Sept Okl NOv. Des Jan Feb Mars April 9Gúrkur . Verð í krónum _313 300 ' Sepi Okt Nov Des Jan Feb M.ts Apni ^ Tómatar Verð í krónum 333 Sept Okl. Nóv Des Jan Feb Mars April eA Sveppir Verð í krónitm 516 m Sep! OKt Nov Des Jan. Feb Mars Apnl % Vínber Verð í krónum 307 Sept Okl NOv Des Jan. Feb Mars Aprit Kartöflur Verð í krónum Sepl Okl. Nov. Oes Jan. Feb. Mars April