36 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991. Menning I tröllahöndum Á Akureyri stendur nú yflr kirkjulistavika og einn þáttur hennar er flutningur leikritsins Skrúösbónd- anum í Akureyrarkifkju. Verkiö er eftir Björgvin Guðmundsson og byggist á þekktu þjóðsagnaminni um tröll sem heillar til sín unga prestsdóttur. Verkið fjallar um baráttu góðs og ills, um ferð manns- sálarinnar um dimman dal og það hvernig hún um síðir snýr aftur til ljóssins. Það er þess vegna ekkert illa við hæfi að flytja leikritið í kirkju þó að illar vætt- ir fari þar á kreik um skeið því að kærleikurinn og hið góða sigrar að lokum. Leikfélag Akureyrar flytur verkið í samvinnu við kór Akureyrarkirkju. Inn í sýninguna er fléttað tón- list eftir Björgvin, bæði.lögum úr upphaflegu leik- geröinni og einnig öðrum tónsmíðum hans. Björn Steinar Sólbergsson stjórnar tónlistinni, sem er fallega flutt og vönduð, bæði orgelleikur, kórsöngur og ein- sóngur. Hún á að sjálfsögðu einkar vel heima í þessu umhverfi og tækifærið var snoturlega nýtt til þess að koma á framfæri ýmsum þeim verkum tónskáldsins sem ekki heyrast á hverjum degi. Skrúðsbóndinn er í frumgeröinni harla viðamikið verk og ef dæma má af lýsingum hafa fyrri sýningar L.A. á því (1941 og 1966) verið veglegar skrautsýning- ar, bæði fjölmennar og mikið í þær lagt. Leikgerðin, sem Jón St. Kristjánsson leiksfjóri.vann fyrir þessa sýningu, er hins vegar bæði stytt og ein- folduð. Hún byggir mikið á flutningi textans en ytri umgjörð er höfð sem látlausust. Leikið er fyrir altari kirkjunnar og kórinn myndar eðlilegan bakgrunn. Mér er líka til efs að uppbygging og texti verksins stæði undir viðameirí uppfærslu í dag. Sjálfsagt hefur verkið fyrst og fremst tilfinningalegt og sögulegt gildi og þess vegna er það vel við hæfi að halda minningu höfundarins á lofti á þennan hátt. Eins og fyrr sagði er efnisþráðurinn byggður á þjóð- söguminnum og línurnar skýrar á milli góðs og ills. Höfundi er töluvert niðri fyrir og boðskapurinn er ekkert látinn liggja í láginni. Persónurnar eru ýmist algóðar eða alvondar, allar nema aðalpersónan, Heið- ur. Hún er breysk og fellur fyrir ímynduðum ævintýra- ' prinsi, öðlast beiska reynslu og fær fyrirgefningu í lokin. í fyrri hluta verksins segir frá því aö þessi unga prestsdóttir er haldin einhverjum óróa, enda þótt hún sé heitbundin vænum pilti. Ráðskonan, Gríma, á trún- að hennar en sú reynist vera hið versta flagð í tygjum við tröllin. Skrúðsbóndinn sjálfur (tröllið) birtist Heiði í líki jarðfræöings og Gríma telur henni trú um að hann sé konungssonur. Heiður verður bergnumin, ástvinir hennar mega sín einskis og foreldrar hennar Ufa ekki sorgina af. Eftir margra ára vist meðal illvætta er Heiður orðin hugstola en þá birtist henni vættur eða förukona sem vísar henni heim og þar hlýtur hún um síöir frið. Hlutverki Heiðar er skipt í tvennt. í fyrri hlutanum leikur Helga Hlín Hákonardóttir Heiði unga og túlkar hlutverkið einlægt og fallega. Hún hefur góða rödd og framsögn og eðlilegar hreyfmgar en á í nokkrum vand- Leiklist Auður Eydal ræðum með hendurnar á sér. Vilborg Halldórsdóttir lék Heiði í seinni hlutanum, þegar hún er orðin vit- stola eftir dvölina hjá Skrúðsbóndanum. Vilborg túlk- ar hugarangur og iðrun Heiðar á lágu nótunum og vinnur vel úr hlutverkinu, svo langt sem það nær, en persónana verður hálf utangátta þegar horflð er aftur í tímann og rifjað upp hvernig Heiður hljópst á brott forðum í miðri messu. Illþýðið, Grímu og Friðþjóf, Skrúðsbónda, leika þau Kristjana Jónsdóttir og Valgeir Skagfjörð. Kristjana fór út á ystu nöf í formælingaatriðum en var að öðru leyti prýðilega lymskuleg og flá, eins og til stóð. Val- geir fór létt meö hlutverk Skrúðsbónda, slægur og ógnvekjandi í senn án þess að ofgera. Aörir leikarar stóðu vel fyrir sínu. Þau Sunna Borg og Þráinn Karlsson léku fremur stöðluð hlutverk prestshjónanna, Þórey Aðalsteinsdóttir fór með hlut- verk fórukonu og Eggert A. Kaaber lék Hjálmar. Freygerður Magnúsdóttir annaðist ágæta hönnun búninga sem flestir voru vel við hæfi. Þó fannst mér búningur fórukonunnar" misheppnaður og þykk- botnaðir skórnir gerðu leikkonunni óþarflega erfitt um hreyfingar. Flutningur Leikfélags Akureyrar og kirkjukórsins á Skrúðsbóndanum var myndarlegt innlegg í kirkjuhst- arviku. Lelkfélag Akureyrar sýnlr í Akureyrarkirkju ásamt kór kirkj- unnar: SKRÚÐSBÓNDINN Hölundur texta og tónllstar: Björgvin Guðmundsson Lelkgerð og leikstjórn: Jón St. Kristjánsson Tónlistarstjórn: Björn Steinar Sólbergsson Búningar: Freygerður Magnúsdóttir Lýsing: Ingvar Björnsson Andlát Guðmundur Gíslason, fyrrv. bóndi, Ölfusvatni, Grafningi, lést á Sólvangi í Hafnaríirði 23. apríl sl. Adolf Valdimar Theodórsson málari, Vitastíg 18, lést 23. apríl á Landspítal- anum. Páll Sveinsson, Miðleiti 3, Reykjavík (áður Háaleiti 24, Keflavík), lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans þriöjudaginn 23. apríl. Jarðarfarir Októ Guðnason, Svalbarðseyri, sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri laugardaginn 20. apríl verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju laugardaginn 27. apríl kl. 14. Kristinn Friðbjörnsson bifreiðar- stjóri, Hlégerði 3, Hnífsdal, lést á heimili sínu 22. apríl sl. Jarðarfórin fer fram frá Hnífsdalskapellu laugar- daginn 27. apríl kl. 11. Óskar Bergsson, Bragagötu 24, Reykjavík, andaðist á heimili sínu hinn 15. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigríður Ingibjörg Hannesdóttir, sem lést á heimili sínu 22. apríl, verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 27. apríl kl. 14. Ólafur Páll Pálsson, Skúlagötu 9, Borgarnesi, sem lést af slysfórum aðfaranótt 21. apríl, verður jarðsung- inn frá Borgarneskirkju laugardag- inn 27. apríl kl. 14. Útfór Ragnars Runólfssonar, Ból- stað, Eyrarbakka, yerður gerð frá Eyrarbakkakirkju íaugardaginn 27. apríl kl. 14. Auður Helga Óskarsdóttir, Skúla- götu 40a, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni þriöjudaginn 30. apríl kl. 13.30. Hólmfríður Margrét Jóhannsdóttir, sem andaðist í Borgarspítalanum þann 21. apríl, verður jarðsungin mánudaginn 29. april kl. 10.30 frá Fella- og Hólakirkju. Minningarathöfn um Sigurð Hj. Sig- urðsson, Hlíf 2, ísafirði, fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 26. apríl. Athöfnin hefst kl. 10. Jarðsett verður frá ísafjarðarkapellu mánudaginn 29. apríl kl. 16. Ásta Teitsdóttir verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, 26. apríl, kl. 15. Valgerður Brynjólfsdóttir, áður Hverfisgötu 9, Hafnaríirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 26. apríl kl. 13.30. Tilkynningar Félag eldri borgara Opiö hús í Risinu í dag kl. 13-17. Frjáls spilamennska. Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík Hiö árlega síðdegiskaffiboð félagsins fyrir eldra fólk og gesti þess verður hald- ið í Félagsheimili Askirkju sunnudaginn 5. maí nk. kl. 15.00 að aflokinni guðs- þjónustu í kirkjunni. Prestur séra Árni Bergur Sigurbjörnsson. Auk þess sem að framan greinir verður sýnd kvikmynd af kaffiboðum félagsins árin 1986 og 1987 og úrdráttur úr myndaflokki sem nefn- ist: Ekið og gengið um Svæfellsnes 1987." Myndirnar tók Heiðar S. Valdi- marsson. Þá mun Snæfellingakórinn syngja nokkur lög. Aöalfundur félagsins hefst síöan kl. 17.30. Þar verður rætt um hvort félagið eigi að selja húseign sína að Dugguvogi 15, annað hvort að hluta til eða alla. Þá hefur veriö ákveðið að efna til þriggja vikna sólarlandaferðar næsta haust. Farið verður til Portúgals. Hefst ferðin 12. sept. nk. Nokkrum sætum í þessa ferð er enn óráðstafað. Fundur hjá Aglow Aglow, Reykjavík, sem eru kristileg sam- tök kvenna, verða með mánaðarlegan fund sinn í kaffisal Bústaðakirkju mánu- daginn 29. apríl. Fundurinn hefst með kafflveitingum kl. 20. Gestir fundarins verða Einar Gautur Steingrímsson lög- fræðingur, sem verður ræðumaður kvöldsins, og kona hans, Auðbjörg Reyn- isdóttir, og munu þau sameiginlega þjón- usta í fyrirbæn í lok fundarins. Fyrirlestrar Málstofa í hjúkrunarfræði Helga Jónsdóttir lektor flytur fyrirlestur- inn: Tengsl hjúkrunarrannsókna og hjúkrunarstarfsins mánudaginn 29. apríl kl. 12.15-13 í setustofu á 1. hæð í Eir- bergi, Eiríksgötu 34. Fjallað verður um POKON - BLÓMAÁBURÐUR LIFSKRAFTUR BLÓMANNA TONUST/1RSKOU KÓPRJOGS FRÁ TÓNLISTARSKÓLA KÓPAVOGS Aðrir vortónleikar skólans verða haldnir í salnum, Hamraborg 11, 3. hæð, laugardaginn 27. apríl kl. 11.00. Nemendur í efri stigum koma fram. Skólastjóri Myndsjá L EVÞba-A- Myndgátan hér að ofan lýsir kvenkynsorði. Lausn gátu nr. 13: Fara í hár saman. j ákveðna hugmyndafræði rannsókna í hjúkrun þar sem rannsakandinn líkt og hjúkrunarfræðingurinn tekur virkan þátt í upplifun skjólstæðinga á lífi þeirra. Leitast er við að skih'a þá merkingu sem fólk gefur atburöum í lífi sínu. Á þaö sérstaklega viö um samspil sjúkdóma og lífsferil fólks. Við þessi samskipti, sem eru aðallega í formi viðtala, verður til ný þekking. Með þátttöku í rannsóknar- ferúnu er vonast til að skilningur bæði hjúkrunarfræðingsins og skjólstæðinga á þeim sjálfum og manninum almennt auk- ist. Því getur þátttaka í sllkri rannsókn veriö hjúkrunarmeðferð í sjálfu sér. Mál- stofan er öllum opin. Nauðungaruppboð þriðja og siöasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum á neðangreindum tíma: Ásvegur 27, Breiðdalsvík, þingl. eig. Þórey Ingimarsdóttir, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Breiðdalshreppur, Gjaldheimta Austurlands, Veðdeild Landsbanka íslands, Bjarni G. Björgvinsson hdl., Magnús M. Norðdahl hdl., Jón Þórar- insson hdl., Jón Ingólfeson hrl. og Ásgeir Thoroddsen hrl. Búland 16, Djúpavogi, þingl. eig. Ágúst Guðjónsson og Bergþóra Birg- isdóttir, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson hdl., Búnaðarbanki Is- lands, Gjaldheimta Austurlands, Landsbanki íslands lögfrdeild, Ólaíur Axelsson hrl. og Valgarður Sigurðs- son hdl. Hammersminni 28, Djúpavogi, þingl. eig. Víkingur Birgisson, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 16.30. Uppboðsbeiðend- ur eru Sigríður Thorlacius hdl., Magnús M. Norðdahl hdl. og Grétar Haraldsson hrl. Lambeyrarbraut 12, Eskifirði, þingl. eig. Ah Ragnar Mete, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Magnús M. Norðdahl hdl., Lands- banki Jslands Eskifirði, Búnaðar- banki íslands og Veðdeild Lands- banka íslands. Réttarholt 2, 2.h.t.h., Reyðarfirði, þingl. eig. Jón Hreiðar Egilsson, föstu- daginn 3. maí 1991 kl. 11.00. Uppboðs- beiðendur eru Magnús M. Norðdahl hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Túngata 8, Stöðvarfirði, þingl. eig. Grétar Jónsson, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Ásgeir Thoroddsen hrl. Sýslumaðunnn í Suður-Múlasýslu Bæjarfógetinn á Eskifirði Leikhús ¦ Wzpb STÚDENTALEIKHÚSIÐ sýrtir í Tjamabæ MENNMENNMENN þrjá leikþætti eftir Melkorku Teklu Ólafsdóttur, Sindra Freysson og Bergljótu Arnalds. Leikstjóri: Ásgeir Sigurvaldason. Föstud. 26.4. Síðasta sýning. Takmarkaður sýningafjöldi. Sýningarnar hefjast kl. 20.00. Slmsvari 11322 allan sólarhring- inn. sýnir: Dalur hinna blindu í Lindarbæ Leikgerð úr sögu eftir H.G. Wells Laugard. 27.4. kl. 20.00. Sunnud. 28.4 kl. 20.00. Mánud. 29.4. kl. 20.00. Sýningum fer fækkandi Símsvari allan sólarhringinn. Miðasala og pantanir i síma 21971 i 1 < < 4 4 é 4: