Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 94. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

							

	Ul

	o^aa

	o™_.___

	

	

	

	-\1---------------

	

Hafir þú ábendingu eða vitneskju um

frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir

hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað

í DV, greiðast 2.000 krónur.

Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku

greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-

leyndar er gætt. Við tökum við frétta-

skotum allan sólarhringinn.

Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27Q22

FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.

Stjórnarmyndun:

Davíðfær

líklegaum-

boð í dag

Þótt engin formleg ákvöröun hafi

veriö tekin um þaö á fundi þingfiokks

Alþýðuflokksins í nótt að leggja til

við forseta íslands að Davíð Odds-

syni, formanni Sjálfstæðisflokksins,

verði veitt umboð til stjórharmynd-

unar teija heimildir DV nær öruggt

að sú verði niðurstaðan. Forsetinn

ræðir við foringja stjórnmálaflokk-

anna síðdegis.

„Um tveir þriöju hlutar flokks-

stjórnarmanna voru fylgjandi við-

ræðum við Sjálfstæðisflokkinn í gær

og fáir hinna mjög á móti því. Ég

held að það sé raunsætt mat, miðað

við þá vitneskju sem við búum við

núna, að viðræðurnar við Sjálfstæð-

isflokkinn séu fremur líklegar til að

mikilvæg stefnumál Alþýðuflokks-

ins nái fram að ganga. "Það var

ágreiningur um ýmis veigamikil mál

meðal fyrrverandi stjórnarflokka. Ég

sé ekki að sá ágreiningur hafl horfið

á'einni nóttu þó að menn tali þann-

ig," sagði Eiður Guðnason, formaður

þingflokks Alþýöuflokks.

Eiður segir að á óformlegum þing-

flokksfundi, sem haldinn var í nótt,

hafi engin ákvörðun verið tekin um

næstu skref.

Jón Baldvin Hannibalsson og Jón

Sigurðsson sögðu við DV í morgun

að ákvörðun um að mæla með því

við forseta að Davíð Oddsson fengi

stjórnarmyndunarumboð háfi enn

ekki verið tekin. Samkvæmt heim-

ildum DV bendir hins vegar flest til

að svo muni verða.

Foringjar flokkanna munu hitta

forseta að máli í dag.         -hlh/kaa

Kærðurfyrir

að nauðga

dóttur sinni

Karlmaður á flmmtugsaldri hefur

verðið úrskurðaður í gæsluvarðhaid

vegna kæru um nauðgun á dóttur

sinni. Atburðurinn átti sér stað í

sjávarplássi á Norðurlandi í síðustu

viku.

Grunur leikur á að maðurinn hafi

ógnað stúlkunni með skotvopni við

verknaðinn. Hann var ölvaður.

Lögregluhni var gert viðvart og

úrskurðaði héraðsdómari hann í

gæsluvarðhald til 30 apríl. Ekki er

ljóst hvort kraflst verður úrskurðar

um áframhaldandi gæsluvarðhald.

Maðurinn er vistaður í Síðumúla-

fangelsinuíReykjavík.            -ÓTT

»

LOKI

Jón Baldviner

semsagtámóti

hlekkjaðriást!

Jón Baldvin Hannibalssonnm viöræður sínar við Davíð Oddsson:

Ótrúlega góðar undir

tektir við stef numál

„Undirtektir formanns Sjálf-

stæðisflokksins gagnvart heistu

stefnumálum Alþýðuflokks hafa

verið ótrúlega góðar. Þessar srjórn-

axmyndunarviðræður hafa verið

óvenjulegar að því leyri að þær

hafa eingöngu farið fram rnilli for-

ystumanna fldkkanna. Þess vegna

hh'óta þær að lokum að byggjast á

gagnkvæmu trausti mílli þessara

manna og standa og falla með því,"

sagði Jón Baldvin Hannibalsson í

samtali við ÐV um þær yiðræður

sem hann hefur átt við Davíö Odds-

son síðustu daga,

Jon Baidvin segir útilokaö að

horfa fram hjá þeím ágreiningi sem

einkennt hefur stjórnarsamstarf

fráfarandi rMsstjómar. Ef koma

eigi saman starfhæfri ríkisstjórn,

sem skilað geti árangri, verði að

nást trúveröug samstaða um

hvernig eigi að taka á málunum á

kjörtímabilinu.

„Það verður ekkert spaslað eða

púslað yfir þau ágreiningsmál sem

hafa verið í ríkisstjórninni, enda

eiga þau sér djúpstæðar rætur.

Hvaö varðar til dæmis Alþýðu-

bandalagið hefur saga þess flokks

ðneitanlegá einkennst af einangr-

unarstefnu og andúð á samningum

við erlenda aðila. Ég ber mikla

virðingu fyrir sjónarcniðum and-

stæðinga minna. Ég tek það ékki

mjög trúanlegt aö menn, sem ég

veit að eru á öndverðri skoöun við

mig á heiðarlegum forsendum, af-

sali sér sannfæringu sínni, hlekkj-

aðir á höndum og fótum í heilt kjör-

tímabil."

Jón Baldvin segist ekki vera mjög

trúaður á að Frarasóknarflokkur-

inn sé í raun tilbúinn að fram-

kvæma nauðsynlegar bréytingar í

sjávarútvegi og landbúnaöi. Stefna

Alþýðuflokks sé meðal annars aö

koma á gjaldtöku fyrir fiskveiðar>

auknu frjálsræði í markaðsmálum,

sjávarútvegs- og landbúnaðarmái-

um, uppbyggingu fiskmarkaða og

uppstokkun í millniðakerfi land-

búnaðai ins. Hann segir Framsókn-

arfiokkinn hafa staðið alfarið gegn

slikum breytingum í atvránulfíinu

í fráfarandi ríkisstjóm og þannig

staðið í vegi fyrir nýju vaxtarskeiði

og auknu frelsi í íslensku atvinnu-

iifi.

Jón Baldvin kvaðst ekki óttast

þau hörðu s.koöanaskipti sem eiga

sér stað innan ílokksins.

„Það væri dauður flokkur þar

sem allir væru einhuga í máli áf

þessu tagi. Póhtik er allt í senn:

trúnaður við málefni, spurning um

hæfni manna og getu til aö bera

þau fram og heitar tilfinningar

bundnar sögulegum táknum. Ég

skil þvi ákaflega vel það fólk sem

kann að hafa eitthvert ahnað mat

en ég á hvað heppilegast sé að gera

í stöðunni," segir Jón Baldvin. __

-kaa

Jeppamenn í hrakningum á Vatnajökli:

Misstu einn bíl

niður í snjópott

- vitlaust veður að skella á og 12-13 stiga frost

„Það er að koma 50-70 hnúta brjál-

að veður eftir örfáa tíma. Það eru

alla vega 2-3 dagar í að við komumst

niður. Við hreyfum okkur ekkert í

Það getur verið þreytandi að renna sér á skiðum og því (engu þessir krakk-

ar að kynnast í gær. Þoir eru þátttakendur í Andrésar andar leikunum sem

nú eru haldnir á Akureyri. Þetta er í 16. skipti sem leikamir eru haldnir.

Þeir eru eitt stærsta íþróttamót sem haldió er því að þátttakendur eru 750

talsins á aldrinum 6-12 ára. Þeir koma frá 14 stöðum á landinu og með

þeim eru 200 þjálfarar og fararstjórar. Sjá nánar á bls. 16 og 25.

DV-mynd GK

svoleiðis veöri. Eg sé aðeins um 10

metra út núna. Þetta er ekkert venju-

legt. Það er 12-13 stiga frost núna,"

sagöi Benedikt Eyjólfssoh, forystu-

maður í 30 manna hópi á 12 jeppum

sem tókst að koma jeppabifreið upp

á Hvannadalshnjúk á Vatnajökli í

gær.

DV ræddi við hann á áttunda tím-

anum og voru menn þá um það bil

að ákveða hvort þeir ætluðu að hald-

ast við í bílunum eða brjótast áfram.

„Við sendum fyrst tvo léttustu bíl-

ana niður við hnjúkinn á meðan við

vorum að fara niður með bílinn og

ganga frá vírum og festingum," sagði

Benedikt. „Við biðum í eina sjö tima

eftir þeim. Þeh duttu síðan niður í

eina sprungu. Þetta er mjög sprungið

svæði þannig að við treystum ekki

stærri bílunum niður. Þeir eru enn

að berjast þarna við Rótarfellsjökul

niður af Öræfajökli og gengur mjög

seint. Síðan höfum við verið að beri-

ast upp á Snæbreiðina í 7-8 tíma.

Við erum komnir en urðum að

skilja eftir einn bíl sem fór í snjópott

en fólkið er komið upp úr honum.

Mannskapurinn er orðinn úrvinda.

Flestir eru búnir að ganga þrisvar

upp á tindinn á tveimur dögum og

það var gífurleg vinna að hreinsa upp

anker og víra og koma bílnum aftur

niður. Við sendum tvo bíla á undan

okkur inn að Grímsfjalli, þeir eru

hálfnaðir þaðan og eru orðnirfrekar

bensínlitlir. Síðan eru menn uppi í

Grímsvötnum og þeir eru að leggja í

hann með 300 lítra af bensíni til okk-

ar. Það sem er verst er að nú er að

koma brjálað veður.

Við ætlum að ganga núna niður að

jeppanum sem fór niður í snjópott-

inn. En það líður engum illa. Omar

Ragnarsson henti mat niður fyrir

okkur," sagði Benedikt. Hann sagði

einnig að hópurinn hefði lent í ýms-

um hrakningum: „Við urðum að toga

bílinn, sem fór upp á hnjúk, yfir eina

sprungu sem hefði gleypt 10 hæða

blokk. Við urðum að draga hann yfir

en ísinn ofan á hélt. Við vorum með

tryggingar beggja megin," sagði

Benedikt.                             -ÓTT

Veðriðámorgun:

Slyddaá

Vestfjörðum

Á morgun verður breytileg

vindátt, víða allhvöss. Slydda

verður á Vestfjörðum en annars

staðar skúrir. Hiti verður á biknu

-2 til 4 stig.

NEYÐARHNAPPUR

FRÁ VARA

fyrir heimabúandi siúklinga

og aldraSa

©• 1-29399

|

IILO/        Alhliða

tmÆr        öryggisþjónusfa

VARI       slðan 1969

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40