Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 98. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						EIMMTUDAGUR 2. MAÍ/^lj

Fréttir

Karl Steinar Guðnason um viöreisnarstjórnina:

Ríkisstjórnin hef ur

á sér harðan svip

- segir ráöherraval krata hafa byggst á ólýðræöislegum vinnubrögðum

„Formaöur flokksins hafði farið

þess á leit viö mig að ég tæki að mér

félagsmálaráðuneytið. Að baki lá

mikill þrýstingur af landsbyggðinni,

einkum frá verkafólki og atvinnu-

rekendum. Vinnumarkaðinumhefur

ekki verið sinnt í ráðuneytinu sem

skyldi á undanfórnum árum og þykir

mörgum að þar þurfi að taka til

hendinni. Á síðustu stundu neitaði

hins vegar Jóhanna aö flytja sig yfir

í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið,

eins og gert hafði verið ráð fyrir.

Fyrir vikið hefur þessi ríkisstjórn á

sér harðan svip en vonandi ber hún

gæfu til að koma ætlunarverki sínu

í framkvæmd," segir Karl Steinar

Guðnason.

Samkvæmt heimildum DV varð

þingflokki krata fyrst kunnugt um

afstöðu Jóhönnu á þingflokksfundin-

um sem haldinn var nokkrum mín-

útum áður en flokkstjórnarfundur-

inn hófst á mánudagskvöldið. Að

sögn eins þingmanns Alþýðuflokks-

ins var þingflokkinum mjög brugðið

þegar afstaöa Jóhönnu varð kunn.

Vegna tímaskorts og hversu ákveðin

Jóhanna var lét þingflokkurinn hins

vegar undan kröfu hennar. Engu að

síður er talið að meirihluti þing-

flokks hafi viljað að hún flytti sig um

set og Karl Steinar tæki sæti hennar

í félagsmálaráðuneytinu.

Aðspurður kvaðst Karl Steinar

hafa talið fráleitt að fellaframkomna

tillögu þingflokksins á flokkstjórnar-

fundinum, enda hefði ekki verið gerð

önnur tilíaga um skiptingu ráðu-

neytanna. I raun hefðu menn því

staðið frammi fyrir þeim kosti einum

að fella tillöguna og þar með öll ráð-

herraefni flokksins.

Karl Steinar segir að Alþýðuflokk-

urinn í Reykjaneskjördæmi hafi

fengið um 40 prósent af samanlögðu

fylgi flokksins í kosningunum. Því

skilji hann vel þá miklu reiði sem

gripið hafi um sig meðal Reyknes-

inga á flokksstjórnarfundinum þegar

í ljós kom að hann var ekki eitt af

ráðherraefnum flokksins. Einnig

segir hann að mönnum hafi ofboðið

að vilji formanns flokksins, Jóns

Baldvins, væri hundsaður með þess-

umólýðræðislegahætti.           -kaa

.

Ný ríkisstjórn, viöreisn Davíðs Oddssonar, tók við völdum á ríkisráðsfundi

sem haldinn var að Bessastöðum klukkan 14 á þriðjudaginn var. Á mynd-

inni eru, talið frá vinstri: Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra, Halldór Blóndal, landbúnaöar-

og samgönguráðherra, Eiður Guönason, umhverfismálaráðherra og sam-

starfsráðherra Norðurlanda, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Vigdís Finn-

bogadóttir, forseti islands, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra,

Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, Jóhanna Siguröardóttir félagsmála-

ráðherra, Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra og Þorsteinn Pálsson

sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra.           DV-mynd GVA

Rikisstjóm Steingrims Hermannssonar lét af störfum á rikisráðsfundi sem

haldinn var að Bessastöðum laust fyrir hádegi á þriðjudaginn. Á myndinni

eru, talið frá vinstri: Júlíus Sólnes, Guðmundur Bjarnason, Svavar Gests-

son, Jón Baldvin Hannibalsson, Steingrimur Hermannsson, Halldór Ás-

grimsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Sigurðs-

son og Óli Þ. Guöbjartsson. Á myndina vantar Steingrím J. Sigfússon en

hann var erlendis þegar þessi síðasti fundur rikisstjórnarinnar var haldinn.

Eftir ríkisráðsfundinn hélt Vigdís Finnbogadóttir fráfarandi ráöherrum og

mókum matarboð. í aðalrétt var smokkfiskur og mun hann hafa bragðast

vel.                                                                                                  DV-mynd GVA

Hópferðabílstjóri dæmdur vegna átaka við tjaldbúa í Skaftafelli:

Fangelsisdómur fyrir

alvarlega líkamsárás

- sakborningur greiði miskabætur, fót, tanngóm og lögmannskostnað

Hæstiréttur hefur dæmt karl-

mann úr Kópavogi í þriggja mán-

aða fangelsi, þar af tvo mánuði skil-

orösbundið, vegna líkamsmeið-

ingamáls sem átti sér staö við

Skaftafell sumariö 1987. Hann var

einnig dæmdur til að greiða manni

miskabætur og ýmsan annan

kostnað, samtals um 250 þúsund

krónur með vöxtum, vegna meiðsla

sem hann varð fyrir í átökum við

sakborninginn.

Málsatvik voru að sakborningur-

inn fór ásamt öðrum inn á tjald-

svæðið í Skaftafelli að kvöldlagi.

Þeir voru báðir bifreiðastjórar á

hópferðabílum með erlenda ferða-

menn. Mennirnir rjölduðu ekki en

ætluðu að hafast við í bílum sínum.

í dómi Hæstaréttar segir meðal

annars að þeir hafi „þrengt sér inn

í fortjald" fólks á svæðinu „án þess

að vera þangaö boðnir". Þeir yfir-

gáfu þó fortjaldið eftir ítrekuð til-

mæli. Nokkru síðar upphófust deil-

ur sem leiddu til átaka. Um það sem

síðan gerðist ber aðilum verulega

á milli. Allir þrír málsaðilarnir,

bílstjórarnir tveir og fórnarlambið,

voru undir áhrifum áfengis.

Hæstiréttur taldi líkur benda til

aö bifreiðastjórarnir hefðu verið

upphafsmenn að átökunum. Þó svo

að þeir hefðu báðir verið kærðir til

lögreglu ákærði ríkissaksóknari

aöeins annan þeirra. Sannað þótti

að sá sem var ákærður hefði veitt

tjaldbúanum áverka bæði á kjálka

og barkakýli með hnefahöggi og

sparki og valdið honum ýmsum

lemstrum. Brotið telst vera alvar-

leg líkamsárás.

Við átökin hlaut maðurinn þver-

brot í gegnum neöri kjálka, brotna

tönn og góm, áverka á barka með

lömun á raddbandi. Lömuð tauga-

grein olli raddbreytingu og vand-

kvæðum „fyrst og fremst vegna

þess að hann hefur ekki lengur

söngrödd," sagði meöal annars í

læknisvottorði. Vegna þessara at-

riða var sakborningurinn dæmdur

til að greiða manninum 200 þúsund

krónur í miskabætur með vöxtum

frá 1987. Auk málskostnaöar, upp

á 80 þúsund til verjanda og ríkis-

saksóknaralauna, var maðurinn

einnig dæmdur til að greiða fórnar-

lambinu kostnað vegna raddþjálf-

unar og læknisþjónustu, vegna

skemmdra fata, nýs tanngóms og

vegna kostnaðar við aöstoð lög-

manns í héraði við gagnaöflun og

kröfugerð.

Krafa var einnig lögð fram um

bætur vegna tapaðra vinnutekna.

Hæstiréttur féllst ekki á hana

vegna skorts á gögnum. Sakborn-

ingurinn hafði ekki komið áður við

sögu í sakamálum.

-ÓTT

Þeir Kjartan Pétursson og Ró-

bert Bentsson sögöust ekki hafa

fengió neitt en höfðu misst góðan

silung rétt áður en myndin var

tekin.

DV-mynd G.Bender

EHiöavatnið opnað:

Hundruð

veiðimanna

veíddu fyrsta

daginn

„Veiðin hefur verið frekar róleg

í morgun en margir veiðimenn

að renna, strákurirm veiddi þessa

bleikju, en vatniö er ennþá of

kalt,"

sagði Einar Páll Garðarsson og

hélt áfram að kasta flugunni.

Nokkrum metrum fyrir innan

Einar Pál var Quðmundur

Agústsson, fyrrverandi álþings-

maður, og sagðist hann Mð hafa

orðið var ennþá. Hann sveiflaði

flugustönginni. Jón Petersen

hafði veitt tvo silunga og Geir

Thorsteinsson 3 punda urriða. En

Geir hefur áður fengið vænan

fisk fyrsta veiðidaginn. Veiöin

var frekar treg enda vatnið ekki

nema 5 gráður.

„Þetta hefur verið gott í dag og

veiðimenn hafa veriö margir,

ennþá fleiri hafa bara verið að

Mkja," sagöi Vignir Sigurðsson.

„Það sáust nokkrar uppitökur og

vatnið fer lilýnandi meö hverjum

deginum. Dagurinn kostar 800

heill og 550 hálfur. Sumarkortið

er selt á 7500," sagði Vignir enn-

fremur.

-G.Bender

Landbúnaðarráðherra:

Bændurverða

aðtengjastbet-

urmarkaðínum

„Það leggst mjög vel í mig að

takast á við málefni landbunað-

arins enda að mörgu að huga í

því sambandi. Ætli mitt fyrsta

verk veröi ekM að huga að fram-

gangi búvörusamningsins. Þá

þarf að kanna hvort ekki sé hægt

að koma fiskeldinu á einhvern

hátt til hjálpar en sú atvinnu-

grein á í miklum erfiöleikum,"

sagði Halldór Blöndal í samtali

viö DV þegar hann settist í fyrsta

sinn í stól landbúnaðarráðherra.

Halldór sagði að sér hefði gefist

UtíLÖ tóm til að hugleiða hver hans

fyrstu verk í landbúnaðarráðu-

neytinu yrðu. Einungis væru

liðnar nokkrar klukkustundir frá

því það var ákveðið að hann tæki

að sér þennan málaflokk. Að-

spurður kvað Halldór þó Uóst að

bæta yrði verulega samkeppnis-

stöðu bænda, efla tengsl þeirra

við markaðínn, draga úr miili-

liöakostnaðínum og auka hag-

ræðinguna á vinnslu- og dreifing-

arstigi landbúnaðarframleiðsl-

unnar.

-kaa

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40