34 MtáfUDAGúkl'kAh&'lí Afmæli Ingi Gunnarsson Ingi Gunnarsson, Hólagötu 43, Njarövíkum, er sextugur í dag. Starfsferill Ingi fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í vesturbænum. Hann gekk í Miöbæjarbarnaskólann og lauk þaðan miðskólaprófi árið 1945 sem gaf honum möguleika á framhalds- námi. Hann hélt þó ekki áfram en gekk tvo vetur í kvöldskóla KFUM. Ingi hóf störf á Keflavíkurflugvelli í september 1948, fyrst sem hlað- maður hjá ýmsum bandarískum fyrirtækjum en síðan hjá ríkinu frá árinu 1951 er það tók við flugvellin- um. Þá starfaði hann sem af- greiðslumaður í farþegaafgreiðslu og síðar sem vaktstjóri. Árið 1962 tóku svo Loftleiðir við starfseminni og fluttist Ingi þá í Flugumsjón en prófi flugumsjónar- manns og í hleðslustjórn lauk hann í Bandaríkjunum árið 1960. Allt til þessa árs hefur Ingi því starfað við flugstarfsemi, eða í sam- tals 43 ár, og síðustu árin sem að- stoðarstöðvarstjóri hjá Flugleiðum og svo stöðvarstjóri Arnarflugs. Fjölskylda Ingi kvæntist 4.7.1953 Guðrúnu Ólafíu Guðnýju Ólafsdóttur, f. 20.11. 1929. Hún er dóttir Ólafs B. Ólafs- sonar (Óla Guðnýjar) og Guðlaugar Einarsdóttur. Ingi og Guðrún eignuðust tvö börn. Þau eru: Ólafur Gunnar, f. 25.4.1955; ogÁstþór, f. 10.6.1964. Ingi átti fimm systkini, þrjú þeirra eru nú látin, og einn uppeldisbróð- ur, Magnús A., f. 26.10.1924, Ólafs- son, Aðalsteinssonar. Magnús starf- ar í Bandaríska sendiráðinu. Systkini Inga eru: Katrín, f. 13.4. 1927,húsmóðir;OskarFinnur,f. - 21.7.1929, d. 14.12.1981; Kristjana Matta (Stella), f. 25.10.1932, d. 15.2. 1965; Svanhvít, f. 16.7.1935, d. 20.6. 1982; og Karl Magnús, f. 20.4.1938. Ingi er sonur Gunnars Bjarnason- ar, f. 10.11.1892, d. 7.6.1980, að Ný- lendu í Meðallandi, af Síðupresta- ætt, og Margrétar Ágústu Magnús- dóttur, f. 21.8.1894, að Klasbarðs- hjáleigu í Landeyjum, af Víkings- lækjarætt. Ingi Gunnarsson Til hamingju með daginn 2. maí 90 ára Ragnar Pétursson, Rannveigarstöðum, Geithellna- hreppi. Urðarbakka 30, Reykjavík. Hann verður að heiman á afmælis- daginn. 50ára 85ára Guðrún Bjömsdóttir, Bogaslóð 8, Höfn í Hornafirði 80ára Reynir Sveinsson, Faxatúni 36, Garðabæ. Septína Rósantsdóttir, Tjarnarlundi 15j, Akureyri. PéturElíasson, Lindarflöt21, Seltjarnarnesi. Guðný Kris tinsdó ttir. Espihóli, Hrafnagilshreppi. Guðrún Gísladóttir, Brávallagöfu 44, Reykjavík. Astrid Hannesson, Asparfelli 10, Reykjavík. 40ára 75ára Elísabet Sigurðardóttir, Kirkjubraut 46, Akranesi. 70ára Lára Kristín Sigurðardóttir, Laugateigi 54, Reykjavík. Guðrún Sigurðardóttir, Kirkjuvegi 11, Keflavík. 60ára Þórunn Gísladóttir, Brún, Grímsneshreppi Stefanía Björnsdóttir, Dofrabergi 11, Hafnarfirði. Ingi Friðbjörn Gunnarsson, Hólagötu 43, Njarðvíkum. Grettir Björnsson, Flosi A.H. Kristjánsson, Sörlaskjóli54, Reykjavík. Þorvaldur Jónasson, Kársnesbraut 115, Kópavogi Baldvin Steindórsson, Vesturási 52, Reykjavík. Sigbjörn Gunnarsson, Dalsgerði 2c, Akureyri. Helga Valdimarsdóttir, Útkoti, Kjalarneshreppi. Þórdís Þórðardóttir, Álfheimum 50, Reykjavík. Már Gunnarsson, Faknafold 235, Reykjavík. Gunnar Björnsson, Suöurbraut 17, Hofshreppi Sigríður Ólafsdóttir, Hvassaleiti 14, Reykjavík. Þórarna V. Jónasdóttir, Skaftahlíð 30, Reykjavík. Hún verður stödd í Álftamýri 32 á afmælisdaginn. Margrét Gunnarsdóttir, Reynigrund 40, Akranesi Stefán Jón Heiðarsson, Einholti4a, Akureyri. Flosi Kristjánsson Flosi Kristjánsson grunnskóla- kennari, Sörlaskjóli 54, Reykjavík, erfertugurídag. Starfsferill Flosi fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands og stúd- entsprófi frá sama skóla. í ágúst árið 1975 lauk hann BA- prófi frá University of Wisconsin í Eau Claire og hóf kennslu í Haga- skóla á haustdögum sama ár. Flosi hefur starfað þar alla tíð síðan, að frátöldum 26 mánuðum er hann starfaði sem skrifstofustjóri hjá Freyju hf. í Kópavogi. Flosi sat í stjórn Skólafélags Kenn- araskóla íslands frá 1969-1972 og síðasta árið sem formaður stjórnar- innar. Hann var trúnaðarmaður HÍK í Hagaskóla um tveggja ára skeið frá árinu 1982 og trúnaðar- maður Kennarasambands íslands fráhaustil987. Fjölskylda Flosi kvæntist 14.10.1972 Rögnu Þórhallsdóttur, f. 4.10.1950, ritstjóra tímaritsins Nýtt:af nálinni Hún er dóttir Þórhalls Ásgeirssonar, fyrrv. ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðu- neytinu, og Lilly Ásgeirsson hús- móður. Flosi og Ragna eiga þrjá syni. Þeir eru Þórhallur Örn, f. 25.4.1974, nemi í MR; Kristján Haukur, f. 25.3.1976, nemi í Hagaskóla, og Ásgeir Valur, f. 21.11.1979, nemi í Melaskóla. Systkini Flosa eru Ólafur Tryggvi, verkstjóri flugvirkja hjá American Airlines, Oklahoma; Guðný Ólöf, sálfræðingur í Svíþjóð; Gísli Sigur- björn, verktaki í Reykjavík; Þor- valdur Kristinn, lögreglumaður í Reykjavík; Sævar Jósep, múrari í Reykjavík; Pétur Kristinn, skip- stjóri í Reykjavík, og Ólafur Grétar, járniðnaðarmaður og nemi í Reykjavík. Foreldrar Flosa eru Kristján Ól- afsson, f. 4.8.1923, járniðnaðarmað- ur í Reykjavík, og Ósk Jóhanna Kristjánson, f. 8.4.1919, húsmóðir. Ætt Kristján, faðir Flosa, er fæddur að Syðra-Velli, Gaulverjabæjarhreppi í Ámessýslu, sonur Ólafs Sveins Sveinssonar og Margrétar Steins- dóttur. Kristján starfaði lengi sem sjómaður en sneri sér seinna að járnsmíðum og hefur verið verktaki við hitaveitulagnir í Reykjavík og víðar frá því haustið 1966. Ósk, móðir Flosa, er fædd í Lund- arbyggð í Manitoba í Kanada. For- eldrar hennar voru Sigtryggur Kristjánsson frá Ytri-Tungu á Tjör- nesi í Þingeyjarsýslu og Kristín Helgadóttir frá Hreimsstöðum í Norðurárdal. Afi og amma afmælisbarnsins bjuggu í byggðum Vestur-íslendinga í Manitoba í Kanada. Móðir Flosa hefur starfað að veitingasölu við Súlnasal Hótel Sögu síðastliðin þrjá- tíu ár. Astrid S. Hannesson Astrid Skarpaas Hannesson. Astrid Skarpaas Hannesson hjúkrunarkona, Asparfelli 10,7c, Reykjavík, er áttræð í dag. Astrid fæddist í Vestfold í Noregi og ólst upp í Stabekk. Hún giftist 5.11.1938 Jóhanni Hannessyni, f. 17.11.1910, d. 21.9. 1976, kristniboða, prófessor í guð- fræði í Hong Kong og við HÍ og þjóö- garðsverði á Þingvöllum á árunum 1953-59, en foreldrar hans voru Hannes Gíslason, b. að Stóra-Hálsi í Grafningi, og kona hans, Margrét Jóhannsdóttir frá Nesjavöllum. Börn Astrid og Jóhanns eru Gun- hild, f. 20.10.1942, gift Sigurvin Ól- afssyni og eru börn þeirra Astrid Linda og Jóhann Finnsson; Hannes, f. 5.11.1949, kvæntur Kristínu Ein- arsdóttur, og eru börn þeirra Jó- hannogÁsta. Astrid verður að heiman á af- mælisdaginn. Andlát Benedikt Blöndal Benedikt Blöndal hæstaréttardóm- ari, til heimihs að Lindarbraut 25, Seltjarnarnesi, lést í Reykjavík mánudaginn 22.4. sl. en hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn2.5., klukkan 15.00. Starfsferill Benedikt fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR1954, embættisprófi í lögfræði frá HÍ1960 og stundaði nám í sjórétti í London 1960-61. Hann öölaðist hdl.-réttindi 1961 og hri- réttindil966. Benedikt var lögfræðingur BÚR 1960-65 en rak jafnframt lögmanns- skrifstofu frá 1961, um skeið í félagi með Benedikt Sveinssyni hrl. og síð- ar lengst af með Ágústi Fjeldsted hrl. og síðar jafnframt með Hákoni Árnasyni hri Benedikt var skipað- ur varaformaður kjaradóms 1971 og formaður hans 1977, var í Lands- kjörstjórn frá 1983 og formaður hennar frá 1986. Hann var skipaður hæstaréttardómari í febrúar 1988 og gegndi því embætti til dauðadags. Benedikt var ritstjóri Úlfljóts 1956-57, formaður Stúdentafélags Háskólans, formaður Starfsmanna- félags Reykjavíkurborgar 1964-66, átti sæti í stjórn Lögmannafélags íslands í nokkur ár og var formaður þess 1971-73, sat í stjórn Lífeyrissjóðs lögmanna um skeið, sat í stjórn Stúd- entafélags Reykjavíkur um tíma og var formaður þess 1970-71, átti sæti í stjórn Rauða kross íslands frá 1973 og var formaður 1982-86. Hann var safnaðarfulltrúi í Dómkirkjunni 1975-81. Þá átti Benedikt sæti í stjórnum nokkurra hlutafélaga og var aðallögfræðingur Sjóvátrygg- ingafélags íslands 1966-88. Fjölskylda Benedikt kvæntist 6.2.1960 Guö- rúnu Karlsdóttur, f. 14.9.1936, hús- móður, en hún er dóttir Karls Krist- inssonar, forstjóra í Bjórnsbakaríi, og konu hans, Önnu Margrétar Jónsdóttur húsmóður. Börn Benedikts og Guðrúnar eru Karl, f. 6.11.1961, nemi í stjórn- málafræði í Bandaríkjunum, kvæntur Stefaníu Þorgeirsdóttur háskólanema; Lárus, f. 19.11.1964, nemi í srjórnmálafræði við HÍ en sambýliskona hans er Anna Kristín Jónsdóttir háskólanemi; Anna, f. 8.12.1968, háskólanemi á Spáni, gift Ólafi Einari Þorvaldssyni, nema í gítarleik. Systkini Benedikts: Halldór Blön- dal, f. 24.8.1938, landbúnaðar- og samgönguráðherra, var kvæntur Renötu Kristjánsdóttur, sem nú er látin, og áttu þau tvær dætur en kona Halldórs er Kristrún Ey- mundsdóttir frönskukennari og eiga þau einn son; Kristín Blöndal, f. 5.10.1944, BA í þýsku og íslensku og kennari í Reykjavík, gift Árna Valdimar Þórssyni barnalækni og eiga þau þrjá syni; Haraldur Blön- dal, f. 6.7.1946, hri í Reykjavík, og á hann fjögur börn; Ragnhildur Blöndal, f. 10.2.1949, bókavörður, gift Knúti Jeppesen arkitekt og eiga þautvöbörn. Foreldrar Benedikts voru Lárus H. Blöndal, f. 4.11.1905, borgar- skjalavörður og alþingisbókavöröur í Reykjavík, og fyrri kona hans, Kristjana Benediktsdóttir, f. 10.2. 1910, d. 17.3.1955, húsmóðir. Seinni kona Lárusar var Margrét Ólafs- dóttir, f. 4.11.1910, d. 7.6.1982, hús- móðir. Ætt Lárus er sonur Haralds Blöndal, Ijósmyndara í Reykjavík, bróður Jósefínu, móður Lárusar hæstarétt- ardómara og ömmu Matthíasar Jo- hannessen skálds og ritstjóra. Har- aldur var sonur Lárusar Blöndal, amtmanns á Kornsá, Bjömssonar Blöndal, sýslumanns í Hvammi í Vatnsdal, ættföður Blöndalsættar- innar. Móðir Haralds var Kristin Ásgeirsdóttir, dbrm. á Lambastöð- um á Seltjarnarnesi, Finnbogason- ar, bróður Jakobs, prests í Steinesi, langafa Vigdísar forseta. Móðir Kristínar var Sigríður, systir Þuríð- ar, langömmu Vígdísar forseta. Sig- ríður var dóttir Þorvalds, prófasts og skálds í Holti undir Eyjafjöllum, Böðvarssonar, prests í Holtaþingum Högnasonar, prestaföður á Breiða- bólstað, Sigurðssonar. Móðir Lárus- ar var Margrét, systir Sigríðar, ömmu Styrmis Gunnarssonar rit- stjóra.Margrétvardóttir Auðuns,, b. á Svarthamri í Álftafirði, Her- mannssonar, b. á Vífilsmýrum í Önundarfirði, Jónssonar. Móöir Hermanns var Herdís Ámadóttir, b. í Dalshúsum, Bárðarsonar, b. í Benedikt Blöndal. Arnardal, Illugasonar, ættfóður Amardalsættarinnar. Meðal móðursystkina Benedikts var Bjarni forsætisráðherra. Krist- jana var dóttir Benedikts alþingis- forseta Sveinssonar Víkings, gest- gjafa á Húsavík, Magnússonar. Móðir Kristjönu var Guðrún Pét- ursdóttir, b. í Engey, Kristinssonar. Móðir Péturs var Guðrún, systir Guðfinnu, ömmu Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Guðrún var dóttir Péturs, b. í Engey, Guðmundssonar. Móðir Guðrúnar var Ragnhildur Ólafsdóttir, amma Ragnhildar Helgadóttur, fyrrv. alþingismanns.