Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 98. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						36

FIMMTUDAGUR-2.- MAÍ-1991.

Afmæli

Ragnar Pétursson

Ragnar Pétursson, fyrrv. bóndi aö

Rannveigarstöðum í Álftafirði í

Suður-Múlasýslu, nú til heimilis að

Skjólgarði, Höfn í Hornafirði, er ní-

ræðurídag.

Starfsferill

Ragnar fæddist í Tungu í Fá-

skrúðsfirði en fluttíst ársgamall

með foreldrum sínum að Rannveig-

arstöðum þar sem hann ólst upp og

kynntist öllum almennum sveita-

störfum. Er hann var ungur maður

stundaði hann vegavinnu og önnur

almenn störf. Hann stundaði síðan

búskap á Rannveigarstöðum, fyrst

ásamt foreldrum sínum en tók síðan

alfarið við búskapnum og var þar

bóndilengstaf.

Fjölskylda

Kona Ragnars hét Magnhildur

Magnúsdóttir, f. 17.7.1898, d. 9.5.

1976, húsfreyja, ættuð úr Bjarnar-

eyjum á Breiðafirði í föðurætt en

móðurættin var af Vestfjörðum.

Börn Ragnars og Magnhildar eru

Hlíf Ingibjörg, f. 16.2.1932, húsmóðir

á Höfn í Hornafirði, gift Þorsteini

Gíslasyni söðlasmið; Borghildur, f.

25.3.1934, en hún er látin; Pétur, f.

6.9.1935, b. á Rannveigarstóðum,

kvæntur Guðmundu G. Pétursdótt-

urhúsfreyju.

Einnig ólu þau Ragnar og Magn-

hildur upp bróðurson Ragnars,

Helga Helgason, f. 30.7.1943, en

hann var á fyrsta ári er hann missti

föður sinn. Kona Helga er Auður

Gústafsdóttir frá Papey en þau eru

búsett á Höfn og eiga þau tvo upp-

komna syni.

Barnabörn þeirra Ragnars óg

Magnhildar eru átta og barnabarna-

börnin eru orðin sjö.

Systkini Ragnars: Einar, f. 1.12.

1903, nú látinn; Kristinn Bergur, f.

15.4.1905; Ragnhildur, f. 15.11.1907;

Unnur, f. 31.10.1908; Garðar, f. 26.10.

1910; Skafti, f. 12.4.1912; Margrét, f.

21.12.1913, nú látin; Helgi, f. 17.6.

1916, nú látinn; Gunnlaugur, f. 7.11.

1918, nú látinn; Kristín, f. 24.5.1924.

Eina hálfsystur átti Ragnar sem

var eldri en hann. Hún hét Magnea

Pétursdóttir, f. 3.4.1893, en er nú

Ragnar Pétursson.

látin.

Foreldrar Ragnars voru Pétur Pét-

ursson, f. 29.3.1868, d. 19.7.1961, frá

Bessastaðagerði í Fljótsdal, bóndi,

og kona hans, Ragnhildur Eiríks-

dóttir, f. 18.12.1877, d. 12.3.1964, frá

Flatey á Mýrum í Austur-Skafta-

fellssýslu.

Menning

Frábær sellóleikur

Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari hélt einleiks-

tónleika í Bústaðakirkju í gærkvöldi. Lék hún verk

eftir íslensk tónskáld, Hauk Tómasson, Atla Heimi

Sveinsson, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og Guðmund

Hafsteinsson.

. Tónleikarnir hófust á Eter eftir Hauk Tómasson.

Þetta er djúphugsað og flókið verk og liggur ekki í

augum uppi hvernig það er saman sett fyrir utan að

tónmáhð virðist byggjast á þróun tónbila og umbreyt-

ingum nokkurra lengdargilda. Það fer hins vegar ekki

fram hjá neinum að byggingin er mjög sterk og fram-

vindan í senn sannfærandi og fjölbreytt. Áferð verks-

ins er að sumu leyti loftkennd en jafnframt mjög

stefnuvirk og gefur þetta mjög sérkennilega fegurð.

Dal regno del silenzio eða Þagnarheimur eftir Atla

Heimi hefur, ef gagnrýnanda misminnir ekki, áður

verið flutt í vetur af Erhng Blöndal Bengtsyni. Hér

svífur skáldlegur andi yfir vötnum. Verkið er kyrrlátt

í meginatriðum. Stefjabútar flögra um frjálslega en

þó eins og eftir duldu lögmáli. Stundum er eins og

höfundi hafi tekist að læsa part af eilífðinni í þetta

fallega verk. Flakk eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson

var einnig nýlega flutt á tónleikum hér í borginni. Það

skiptist í nokkra kafla þar sem ákveðin blæbrigði ríkja

sem yfirleitt skapa andstæður. Höfundur heldur sig

við takmarkaðan efnivið í senn og þróar hann á

skemmtilegan hátt. Þetta er heildstætt verk í dálítið

rómantískum anda og mjög vel gert.

Lengsta verkið á tónleikunum var Spuni I eftir Guð-

mund Hafsteinsson. Þetta verk hefur einnig nýlega

verið flutt opinberlega eins og flest hin verkin og er

tíl þessa tekið hér vegna þess að allt of algengt er að

ný tónverk fái aðeins einn flutning og Uggi svo í þagn-

Tónlist

Finnur Torfi Stefánsson

argildi, stundum árum saman. Verk af þessu tagi þola

svo sannarlega meira en einn flutning og eru þessi

vinnubrögð, að safna saman til endurflutnings verkum

með þessum hætti, mjög til fyrirmyndar. Spuni I er

um marga hluti athyglisvert verk. Þaö er á yfirboröinu

einfalt verk að formi og efni en leynir þó mjög á sér.

Það skiptist í kafla sem eru andstæðir en tengjast þó

hver öörum með ýmsum hætti. Þaö er áberandi að

höfundur er alls óhræddur við að leita fyrirmynda um

vinnubrögð aftur í söguna. Framan af lítur út fyrir

að verkið ætli að vera í frekar akademískum anda en

eftir því sem á líður höfðar það meira til tilfinning-

anna og endar í mjög dramatískum tón.

Áður hefur verið vikið að leik Bryndísar Höllu í

þessum pistlum og um hann höfð ýmis lýsingarorð

af hástemmdara taginu. Hér brást henni ekki bogahst-

in frekar en endranær. Verkin sem hún flutti voru öll

mjög erfið og gera fjölbreyttar kröfur um túlkun og

tækni. Hvert verk hefur sinn stíl og gerir sínar sér-

stöku kröfur og þarf mikla breidd til að ráða við slík

viðfangsefni. Bryndís hafði þetta allt auðveldlega á

valdi sínu og flutti verkin með tilþrifum. Má sérstak-

lega til þess taka hve blæbrigðaríkur leikur hennar

var og nákvæmur. Var henni innilega þakkað af áheyr-

endum.

Andlát

Jóhann M. Kjartansson verslunar-

maður, Hólmgarði 15, lést í Borgar-

spítalanum 29. apríl sl.

Þuríður Kristjánsdóttir, Strandaseli

9, lést á heimih sínu 28. apríl.

Gísli    Björnsson    lögreglufulltrúi,

Framnesvegi 61, lést 27. apríl.

Friðrik H. Guðjónsson fv. útgeröar-

maður, Siglufirði, lést í Landspítal-

anum 28. apríl.

Margrét Sigurðardóttir frá Torf-

garði, til heimilis í Lönguhlíð 3,

Reykjavík, andaðist að kvöldi sunnu-

dagsins 28. apríl á lyflækningadeíid

St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.

Ólafur Kjartansson frá Seli í Gríms-

nesi andaðist á Ljósheimum, Sel-

fossi, 29. apríl.

Jarðarfarir

Adolf Theódórsson málari, Vitastíg

18, lést 23. apríl í Landspítalanum.

Jarðarförin fer fram frá Fossvogs-

kirkju fóstudaginn 3. maí kl. 15.

Hörður Sigurður Jónsson frá Hafn-

arnesi, Suðurvangi 19a, Hafnarfirði,

verður jarðsunginn frá Víðistaða-

kirkju fóstudaginn 3. maí kl. 13.30.

Ólafur   Sigfússon,   Suðurgötu   76,

Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá

Háteigskirkju í dag, 2. maí, kl. 13.30.

Valtýr Guðmundsson,  Granaskjóli

42, verður jarðsunginn frá Neskirkju

fóstudaginn 3. maí kl. 15.

Herdís  Jóhannsdóttir.Dalbraut  27,

verður   jarðsungin   frá   Áskirkju

fóstudaginn 3. maí kl. 13.30.

Magnús   Guðjónsson   bifvélavirki,

Langholtsvegi 71, verður jarðsung-

inn frá Fossvogskirkju í dag, 2. maí,

kl. 15.

Vilborg Helgadóttir frá Móeiðarhvoli

verður jarðsungin frá Oddakirkju

laugardaginn 4. maí kl. 14.

Ingileif Brynjólfsdóttir,   Hellisgötu

12b, Hafnarfirði, verður jarðsungin

frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fóstu-

daginn 3. maí kl. 15.

Sveinn Pálsson, fyrrverandi mennta-

skólakennari, andaðist 18. apríl. Út-

fór hans hefur verið gerö í kyrrþey.

Sigurbjörg Jónasdóttir frá Litla-Dal,

verður jarðsungin  frá  Blönduós-

kirkju laugardaginn 4. maí kl. 14.

Tflkynningar

Félag eldri borgara

Opið hús í Risinu í dag, funmtudag. Fé-

lagsvist kl. 14, kl. 20.30 dansaö.

Félag eldri borgara,

Kópavogi

Þriðja umferð í þriggja kvölda keppninni

hefst aö Auðbrekku 25 fóstudagskvöldið

3. maí kl. 20.30. Dans á eftir aö venju.

Rannsóknastofnun bygging-

ariðnaðarins

fær tölvubúnað að gjöf

Hinn 16. apríl sl. færði Frosti Bergsson,

forstjóri Hewlett Packard á íslandi,

Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins

töivubúnað að gjöf. Gjöfin er veitt í tflefhi

af 25 ára afmæli stofnunarinnar sem var

á síðasta ári. Rannsóknastofnunin hefur

notað HP 9000 tölvu frá byrjun árs 1990.

Á myndinni veitir Hákon ólafsson, for-

stjóri Rb (t.h.), gjöfinni viðtöku og færir

Frosta Bergssyni þakkir fyrir hina veg-

legu gjöf.

Flóamarkaður FEF

Flóamarkaður Félags einstæðra foreldra

á hverjum laugardegi í maí í Skehahelli,

Skeljanesi 6. A boðstólum er fatnaður,

búsáhöld og alls kyns dót. Sjón er sögu

ríkari. Opið kl. 14-17.

Sumarbúðir fyrir fatlaða

á Laugarvatni

fþróttasamband fatlaðra starfrækir sum-

arbúðir fyrir fatlaða á Laugarvatni í sum-

ar. í boði eru þrjú vikunámskeið, 19.-26.

júli, 26. júli-2. ágúst og 2.-9. ágúst. Lögð

verður áhersla á útiveru og íþróttir við

hæfi hvers og eins. Faglært fólk tryggir

ógleymanlega dvöl á Laugarvatni. Upp-

Myndgáta

¦wv-

-**r-

•w-


)OXS

-w.

-A^N.

-E^ÞOrV



n

Myndgátan hér að ofan

lýsir orðatiltæki.

Lausngátunr. 17:

Fjárveitingar.

lýsingar og umsóknareyðublöð fást á

skrifstofu íþróttasambands fatlaðra,

fþróttamiðstöðinni, Laugardal, símar

83377 og 686301. Umsóknarfrestur er til

17. maí.

Gangleri kominn út

Tímaritið Gangleri, síðara hefti 65. ár-

gangs, er komið út. Það flytur greinar

um andleg og heimspekileg mál og alls

eru 17 greinar í þessu hefti auk smáefn-

is. Helstu titlar eru: Hvernig guð varð

staðreynd, Elfur innsæis, Listin að elska,

Hið áhættusama ævintýri lifs og dauða

og Hvað er líforkuheilun. Efnið er eftir

innlenda og erlenda höfunda. Gangleri

er ávallt 96 bls. og kemur út tvisar á ári.

Áskriftargjald er kr. 1200. Sími 39573 eftir

kl. 17.

Skrifstofur Stjórnar-

ráðs íslands

Frá 1. mai 1991 til 30. september 1991

verða skrifstofur Stjórnarráðs Islands

opnar kl. 8-16 mánudaga til fóstudaga.

Trúnaðarbréf afhent

Hinn 12. apríl sl. afhenti Ingvi S. Ingvars-

son Yang Shang Kun, forseta Kina, trún-

aðarbréf sem sendiherra fslands í Kína

með aðsetri i Kaupmannahöfn.

Stúdenta leikhúsið - síðustu

sýningar

Sýningum Stúdentaleikhússins á þremur

leikþáttum undir samheitinu Menn

Menn Menn er að ljúka. Ásgeir Sigur-

vaidason er leikstjóri verkanna en höf-

undarnir eru þau Melkorka Tekla Ólafs-

dóttir, Sindri Freysson og Berghót Arn-

alds. Leikmynd og búningar eru unnin

af nemendum úr Myndlista- og handíða-

skóla íslands. Eyþór Arnalds semur tón-

list og flytur, auk nema úr Tónlistarskóla

Reykjavíkur, og lýsingu hönnuðu Jó-

hann Pálmason og Egill Örn Arnarson

en alls hafa um 60 manns starfað að sýn-

ingunni. Leikverkin eru frumraun höf-

undanna þriggja. Þættirnir eru ólíkir að

efhi og framsetningu en eiga þó sitthvað

sameiginlegt, eins og ástina og togstreitu

milli kynjanna. Sýningar eru i Tjarnar-

bíói og hefjast kl. 20.

Fyrirlestrar

Fyrirlestur um kennslufræði

í dag, fimmtudaginn 2. mai, kl. 16 heldur

prófessor Erik Wallin fyrirlestur við

Kennaraháskóla íslands í stofu B-201.

Heiti fyrirlestrarins er: Kennslufræði.

Hvorki fugl né fiskur? Þáttur kennslu-

fræði í kennaramenntun og skólastarfi.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og þeir

sem hafa áhuga á skólamálum eru hvatt-

ir til að koma. Erik Wallin dvelur hér á

landi dagana 1.-10. maí. Hann er prófess-

or við Uppsalaháskóla í Sviðþjóð. Starf-

svið hans er fyrst og fremst mennta- og

uppeldismál. Hann er hér á ferð til að

skoða framhaldsskóla en af ýmsum

ástæðum hefur áfangakerfið hér á landi

vakið athygli í Sviþjóð.

Ráðsteíhur

Ráðstefna um kirkjugarða

Dagana 2.-4. maí 1991 er haldin ráðstefna

á vegum Skipulagsnefndar kirkjugarða

og stjórnar kirkjugarðasjóðs í Garð-

yrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi.

Er þetta fyrsta ráðstefna sinnar tegundar

hér á landi. Rætt er um flest það sem

snertir skipulag og hirðingu kirkjugarða.

Erindi flytja sérfræðingar, hver á sínu

sviði. Ennfremur verða farnar skoðunar-

ferðir um kirkjugarða Reykjavíkur og á

nokkra staöi á Suðurlandi. Ráðstefnuna

sækja kirkjugarðsverðir svo og aðrir sem

áhuga hafa á fegrun og skipulagningu

kirkjugarða. Biskup íslands, herra Ólaf-

ur Skúlason, mun heiðra ráðstefnuna

með heimsókn sinni einn af ráðstefnu-

dögum.

Tapað fundið

Grár fressköttur í óskilum

Grár fressköttur tapaðist frá Stórholti 25.

Hann er eyrnamerktur R-8033. Ef einhver

hefur orðið var við hann eða veit hvar

hann er niðurkominn er viðkomandi vin-

samlegast beðinn að hringja í síma 14013.

Gústi í Garðabæ er týndur

Hann er sjö ára högni, gulbröndóttur og

rauðgulur á baki, hvítur á kvið, trýni og

loppum. Hann er með ól og orangelitaða

tunnu með nafni og heimilisfangi. Hann

sást síðast við heimili sitt að Markaflöt

2, Garðabæ, föstudaginn 26. apríl. Gústi

er styggur við ókunnuga. Ef einhver héf-

ur orðið var við kisa, þá vinsamlegast

hringið í síma 657655.

Gullúr tapaðist

Gullúr tapaðist þriðjudagsmorguninn sl.

á leið frá Skálholtsstíg 7, niður Þingholts-

stræti og upp Bankastræti. Finnandi vin-

samlegast hringi í síma 636144 á daginn

eða 14193 á kvöldin.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40