m FR ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-leyndar er gætt. Við tökum við frétta-skotum allan sólarhringinn. iim^LjlJili ~ rWJÍxflyOfflVjflf T "o" FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1991 Stokkseyri: Maður um þrítugtfórstí eldsvoða Karlmaður um þrítugt lést í elds- voöa í íbúðarhúsi við Stjömusteina á Stokkseyri snemma í gærmorgun. Árrisull vegfarandi varð fyrstur var við eldinn um klukkan sex og gerði slökkviliði aðvart. Þegar aö var kom- ið stóð húsið, sem er gamalt og lítiö timburhús, í björtu báli. Ekki tókst að bjarga manninum út. Hann bjó einn í húsinu. Slökkvistarfi var að mestu lokiö um klukkan sjö. Húsið er taliö gjörónýtt eftir eldsvoöann. Eldsupptök eru ókunn en rann- sóknadeild lögreglunnar á Selfossi og menn frá Rafmagnseftirliti ríkis- ins rannsökuðu vettvang í gær. Mað- urinn sem fórst hét Jóhann Þórðar- son, fæddur 23. júní 1961. Hann var ókvæntur og átti lögheimili að Stjörnusteinum 20. _ÓTT Reykjavíkurborg: Nýrborgarstjórií næstuviku Eftirmaður Davíðs Oddssonar í stól borgarstjóra Reykjavíkur verður væntanlega valinn á fundi í borgar- stjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í næstu viku. Nokkurs titrings er farið að gæta meðal þeirra borgarfulltrúa sem helst þykja koma til greina sem eftirmenn Davíðs. Þar eru þau Vil- hjálmur Þ. yilhjálmsson, Katrín Fjeldsted og Árni Sigfússon oftast nefnd til sögunnar auk þess sem nafn Magnúsar L. Sveinssonar ber á góma. Ólíklegt þykir að maður utan borgarstjórnarflokksins komi til greina Davíð Oddsson hefur sagt að hann ætli að sitja áfram sem borgarfulltrúi útkjörtimabilið. -hlh íbúðarhúsiö á Akranesi: Unglingurgrunað- urumaðhafa valdiðbrunanum Grunur leikur á að unglingspiltur hafi valdið brunanum í íbúðarhús- inu við Jörundarholt á Akranesi síð- degis á mánudag. Hann hefur gengist viö að hafa verið aö kveikja í rusli við húsið. Eftir því sem DV kemst næst liggur þó ekkert fyrir um að um ásetning hafi verið aö ræða um að kveikja 'í sjálfu húsinu. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglunni. Stórrjón varð í brunanum. Húsið var þó aðeins orðið fokhelt og enn á byggingarstigi. Mikill eldur varð í húsinu og urðu húsbyggjendur fyrir miklutjóni. -ÓTT LOKI Fyrirmæli Jóns Baldvins:Takhattþinn oggakk! Síðustu embættisverk Óla Þ. Guðbjartssonar: Dómsmálaráðherra náðaði sambýlis- mann f lokkssystur - var dæmdur fyrir alvarlega líkamsárás og áður fyrir manndráp Óli Þ. Guðbjartsson, fráfarandi dömsmálaráðherra, hefur fengið samþykktar náðanir þriggja kari- manna og tveggja kvenna sem hafa veriö dæmd í 6 til 15 mánaða fang- elsi fyrir ýmis hegningariagabrot. Ekkert af fólkinu hóf afplánun sína. Fullnustumatsnefnd hafði áður hafnaö umsóknum um náðan- irnar. Ðómsmálaráðherrá bar til- lögur sínar ekki undir nemdinEu Oli Þ. reyndi einnig að fá mann náðaðan sem nú situr i fangelsi fyrir líkamsárás sem leiddi mann til dauða. Þeirri náöunartillögu ásamt annarri var hins vegar hafh- að á síðasta ríkisráðsfundi fráfar- andi ríkisstjórnar að Bessastöðum ífyrradag, Karlmaður í þeim hópi sem hefur verið náðaður er sambýlismaður konu sem var í framboði á lista Frjálslyndra í alþingiskosníngun- um - í flokki Óla Þ. Maðurinn hafði áður afplánað fangelsisdóm vegná manndráps sem hann var dæmdur fyrir. Eftir þá afplánun framdi maöurinn gróft ofbeldisverk í húsi í Brautarholti. Hann barði mann, sem bar gleraugu, í anöUitið með þeim afleiðingum að hann míssti sjón á öðru auga. Maöurinn var síðan dæmdur í 10 mánaöa fangelsi fyrír verknaðinn. Hann óskaði síð- an eftir náðun - þeirri sem ráð- herra hefur nú veitt. Eitt af síðustu embættisverkum dórasrnálaráðherra á síðustu dög- um var einnig að ganga frá áfram- haldandi ráðningu flokksbróður síns sem hefur í tíð Óla Þ. verið aðstoðarmaður fanga. Haraldur Johannessen fangelsismálastjóri hefur hins vegar ákveðið aðheim- ila manninum ekki að ganga til starfa í fangelsunum. Hitt fólkið, sem nú hefur verið náðað, var dæmt í 15 mánaða fang- elsi fyrir skjalafals, fjársvik og þjófnað, 6 raánaða fangelsi fyrir skjalafals og þjófnað, 8 raánaða fangelsi vegna skjalafals, fjóröí 6 mánaða fangelsi fyrir síendurtekin brot vegna ölvunaraksturs. -ÓTT Mjög góö þátttaka var á baráttufundum í miðbæ Reykjavíkur í gær, á alþjóðlegum baráttudegi verkamanna 1. maí. Kröfuganga var farin frá Hlemmi og niður á Lækjartorg þar sem 5-6000 manns söfnuðust saman og hlýddu á barátturæður og ávörp. DV-mynd Hanna .j^tS Veðrið ámorgun: Rigning eða súld sunn- anlands Á morgun verður fremur hæg suðvestlæg átt og rigning eða súld sunnanlands en norðan gola eða kaldi með skúrum norðanlands. Hiti 2 til 7 stig, hlýjast sunnan- lands. EB-EFTAviðræður: Fulltrúi íslands gekkaffundi ímótmælaskyni Hannes Hafstein, aðalsamninga- maður íslands í samningaviðræðum EFTA og Evrópubandalagsins um evrópskt efnahagssvæði, gekk út af óformlegum samningafundi síðast- liðinn föstudag til að mótmæla seina- gangi Evrópubandalagsins við að koma með tillögu í sjávarútvegsmál- um. Hannes gekk af fundinum eftir að Horst Krenzler, aðalsamningamaður Evrópubandalagsins, hafði ítrekað að framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins hefði ekkert umboð til að semja um tollaívilnanir nema í staðinn kæmi aðgangur að fiskimið- um aðildarríkja EFTA. Mat íslendinga er að þeir hafi ekk- ert að gera á fundunum ef þessi af- staða Evrópubandalagsins breytist ekki. íslendingar hafa því ákveðið að taka ekki um sinn þátt í sameigin- legum fundum með fulltrúum Evr- ópubandalagsins. Um miðjan þennan mánuð verður ráðherrafundur EFTA og Evrópu- bandalagsins haldinn og er þess vænst að á fundinum komi tillaga frá Evrópubandalaginu um sjávarút- vegsmál. Mótmæli íslendinga eru ekki síst til að knýja á um að sjávar- útvegstillagan komi fram á þessum ráðherrafundi. -JGH 5 þjóf naðir úr bflum Lögreglan í Hafnarflrði fékk fjórar tilkynningar um þjófnaö úr bílum í fyrrinótt. Útvarpstæki og hátalarar voru greinilega það sem þjófarnir voru að sækjast eftir. Brotist var inn í einn bílanna en þrír höfðu verið skildir eftir ólæstir. Bflarnir stóðu víðs vegar um bæinn í fyrrinótt. Sömu nótt var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt um eitt innbrot og þjófnað úr bifreiö og var hátölur- um stolið úr henni þar sem hún stóð við Aðalbílasöluna. Einnig var brot- ist inn í söluturn í Lóuhólum og það- an stohð sígarettum og fleiru. -ÓTT ÖkuþóráSelfossi: Stöðvaðurá 103 innanbæjar Lögreglan á Selfossi tók 21 árs karl- mann á stóru vélhjóli fyrir allt of hraðan akstur innanbæjar síðdegis í gær. Hann reyndist vera á 103 kíló- metra hraða þar sem hámarkshraði er leyfilegur 50. Maðurinn var færð- ur á lögreglustöðina og sviptur öku- réttindumtilbráðabirgða. -ÓTT NEYÐARHNAPPUR FRÁ vara fyrir heimabúandi sjúklinga og aldraða \M/ 191-29399 WÆ Alhliða öryggisþjónusta VARI síðan 1969