Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1991, Blaðsíða 26
34
FIMMTUDAGUR 23' MAl 1991.
Afmæli
Kj artan Ragnars
Kjartan Ragnars, fyrrv. sendifull-
trúi, Bólstaðarhlíð 15, Reykjavík, er
sj ötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Kjartan fæddist á Akureyri og ólst
þar upp og í Bárðardal. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA1936, lögfræöi-
prófi frá HÍ1942, en hrl-réttindi öðl-
aðist hann 1958. Kjartan stundaði
nám á vegum Sþ 1949 og 1955 og á
vegum Nató 1958 og 1959. Hann hef-
ur setið ráðstefnur á vegum Institut
International des Sciences Admin-
istratives í Lissabon 1949, í Belgíu
1952 og í Haag 1954. Hann hlaut
fyrstu verölaun í alþjóðlegri ritgerð-
arsamkeppni Sþ 1955 og dvaldist um
skeið í aðalstöðvum Sþ í boði sam-
takanna.
Kjartan var aðstoðarmaður í fjár-
málaráðuneytinu 1942-44, fulltrúi
þar 1944-56, fulltrúi í utanríkisráðu-
neytinu 1956-60, fyrsti sendiráðsrit-
ari við sendiráð íslands í Stokk-
hólmi 1960-65 og í Osló 1965-70, var
fulltrúi í utanríkisráðuneytinu
1970-72, deildarstjóri þar 1972-83 og
sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni
1983-85 er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir. Þá stundaöi Kjartan
málflutningsstörf í Reykjavík með-
an hann var búsettur þar.
Kjartan sat í stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og lífeyris-
sjóðs barnakennara 1946-61 og var
skipaður áheyrnarfulltrúi í Afríku-
stofnun sem Norðurlönd stofnuðu
til vegna aðstoðar við þróunarlönd
Afríku.
Kjartan er riddari sænsku Norð-
stjömuorðunnar frá 1957, riddari
fyrsta stigs norsku St. Olavsorðunn-
ar frá 1970 og riddari íslensku Fálka-
orðunnarfrál975.
Fjölskylda
Kjartan kvæntist 19.10.1941 Ólafíu
Þorgrímsdóttur, f. 10.12.1916, hús-
móður en hún er dóttir Þorgríms
Sigurðssonar, skipstjóra í Reykja-
vík, og konu hans Guörúnar Jóns-
dótturhúsmóður.
Börn Kjartans og Ólafíu era Ás-
laug, f. 23.4.1943, blaðamaður í
Reykjavík, var gift Magnúsi Þórðar-
syni, starfsmanni Nató-skrifstof-
unnar á íslandi og eiga þau tvo syni,
Andrés og Kjartan, en þau skildu;
Bergljót, f. 14.6.1944, listmálari í
Reykjavík en dóttir hennar er Katr-
ín; Hildur, f. 15.7.1947, húsfreyja í
Reykjavík, var gift Knud Pilgaard
Thomasen, kennara í Danmörku og
er sonur þeirra Ath en þau skildu
og er seinni maður hennar Guðjón
Friðriksson, sagnfræðingur og
blaðamaður; Kjartan, f. 27.9.1949,
hrl í Reykjavík, kvæntur Ragnhildi
Guðmundsdóttur kennara og eru
synir þeirra Kári, Hákon og Kjartan
en Loga og Ingibjörgu átti Kjartan
fyrir hjúskap; Ragna, f. 26.1.1958,
hjúkrunarfræðingur í Kaupmanna-
höfn, gift Lars Dahl arkitekt og era
börn þeirra Kristín og Stefán Ari.
Systkini Kjartans: Egill Ragnars,
f. 1902; Þuríður Einarson, f. 1903;
Sverrir Ragnars, f. 1906; Valgerður
Ragnars, f. 1908; Ólafur Ragnars, f.
1909, faðir Gunnars Ragnars, fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags Ak-
ureyringa; Jón Ragnars, f. 1910; Ás-
grímur Ragnars, f. 1913, nú látinn;
Guðrún Ragnars, f. 1917, móðir
Sunnu Borg leikkonu; Ragna Ragn-
ars, f. 1918; Ólafur, f. 1904, dó í
bernsku.
Foreldrar Kjartans vora Ragnar
Friðrik Ólafsson, f. 25.11.1871, d.
14.9.1928, stórkaupmaður og ræðis-
maður á Akureyri, og kona hans,
Guðrún Jónsdóttir, f. 11.1.1880, d.
29.4.1973, húsmóðir.
Ætt
Ragnar er sonur Ólafs, gestgjafa á
Skagaströnd og Akureyri, Jónsson-
ar. Móðir Ragnars var Valgerður
Narfadóttir, hreppstjóra á Kóngs-
bakka í Helgaféllssveit, Þorleifsson-
ar. Guðrún var dóttir Jóns Á. Jo-
hnsen, sýslumanns á Eskifirði,
Kjartan Ragnars.
bróður Þóru, móður Ásmundar
Guðmundssonar biskups. Jónvar
sonur Ásmundar, prófasts í Odda
Jónssonar og Guðrúnar Þorgríms-
dóttur, systur Gríms Thomsens.
Móðir Guðrúnar Jónsdóttur var
Kristrún, systir Guðnýjar,
langömmu Jónasar Haralz. Krist-
rún var dóttir Hallgríms, prófasts á
Hólmum við Reyðarfjörð, bróður
Benedikts, afa Geirs Hallgrímsson-
ar forsætisráðherra. Hallgrímur á
Hólmum var sonur Jóns, ættfóður
Reykjahlíðarættarinnar, Þorsteins-
sonar.
Kjartan verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Arinbjöm S.E
Arinbjöm Sigurður Eiríksson Kúld,
er lengst af átti og rak Efnalaugina
A. Kúld á Vesturgötunni, til heimilis
að HíaUavegi 25, Reykjavík, er átt-
ræðurídag.
Starfsferill
Arinbjöm fæddist á Ökrum á
Mýram og ólst þar upp. Barnaskóla-
kennslu fékk hann á farskóla í
nokkrar vikur og var síðar á Hvítár-
bakkaskóla 1929-30. Arinbjörn var
sjómaður frá sautján ára aldri en
kom í land þrjátíu og tveggja ára.
Þá haföi hann m.a. verið á Kötlunni
og ýmsum toguram auk þess sem
hann hafði veriö á fiskibátum. Hann
starfaði við efnalaugar og stofnaði
síðan efnalaugina A. Kúld sem hann
starfrækti í fjölda ára en hún var
lengst af til húsa við Vesturgötu 23.
Fjölskylda
Arinbjöm kvæntist 27.4.1941 Að-
albjörgu Guðnýju Guðnadóttur, f.
11.4.1918, húsmóður en hún er dótt-
ir Guðna Sveinssonar, sjómanns frá
Neskaupstað, og Aðalbjargar Guð-
mundsdóttur frá Mel.
Böm Arinbjöms og Aðalbjargar
eraHiImar, f. 13.10.1940, stýrimaður
á Höfn í Hornafirði; Helga, f. 28.6.
1942, sjúkrahði í Reykjavík; Eyjólf-
ur, f. 14.4.1945, gullsmiður í Reykja-
vík.
Systkini Arinbjöms era Elín, f.
26.10.1900, nú látin; Jóhann, f. 31.12.
1902, nú látinn; Inga, f. 10.6.1904;
Helgi, f. 1916, fórst með togaranum
Jóni Ólafssyni 1942; Óskar, f. 22.7.
1907, d. 22.1.1924.
Foreldrar Arinbjöms vora Eirík-
ur Kúld Jónsson, f. 8.4.1851, d. 15.12.
1916, húsasmiður, málari og óðalsb.
að Ökrum á Mýrum, og Sigríður
Jóhannsdóttir frá Öxney, f. 27.4.
1874, d. 8.6.1923, húsfreyja.
Ætt
Eiríkur var sonur Jóns, b. á Ökr-
um, bróður Hafliða, langafa Snæ-
bjarnar Jónssonar vegamálastjóra.
Annar bróðir Jóns var Jóhann,
langafi Kristínar, móður Atla Heim-
is Sveinssonar tónskálds. Systir
Jóns á Ökram var Björg, langamma
Bersveins Skúlasonar sagnfræð-
ings. Jón var sonur Eyjólfs eyja-
jarls, alþingismanns i Svefneyjum,
bróður Einars, langafa Jóhanns,
prófasts á Hólmum, afa Einars Odds
Kristjánssonar, formanns VSÍ. Eyj-
ólfur var sonur Einars, b. í Svefn-
eyjum og ættfóður Svefneyjarættar-
innar, Sveinbjörnssonar. Móðir
Jóns var Guðrún Jóhannsdóttir,
. Kúld
Arinbjörn S.E. Kúld.
prests í Garpsdal, Bergsveinssonar.
Móðir Jóhanns var Halldóra Snæ-
bjömsdóttir, systir Magnúsar, lang-
afaJónsforseta.
Móðir Eiríks Kúld var Elín, systir
Ingibjargar, langömmu Kristjáns
Eldjám forseta. Bróðir Elínar var
Helgi, langafl Hallgríms tónskálds
og Sigurðar, fyrrv. stjómarfor-
manns Flugleiða, Helgasonar. Ehn
var dóttir Helga, alþingismanns í
Vogi á Mýrum, Helgasonar.
Sigríður var dóttir Jóhanns, b.
Öxney á Breiðafirði, Jónssonar, og
konu hans, Ingveldar Ólafsdóttur.
Arinbjörn verður að heiman á af-
mæhsdaginn.
80 ára
Margrét Ingvarsdóttir,
Hrafnistu.DAS, Hafliarfirði.
EigLnmaður hennar var Krisfjáji
Kristjánsson, fv. skipstjóri, sem nú
erlátinn.
Hún tekur á móti gestum i Odd-
fehowhúsinu í Reykjavík sunnu-
daginn26. maikl. 15.00 fil 17.00.
75 ára
Þorvalduj Kr. Þorvaldsson,
Grettisgötu 92, Reykjavik.
70 ára
Einar Hallgrímsson,
Urðum, Svarfaðardal. Sigurður Valdemarsson,
Matthildur Guðbrandsdóttir, Krummahóliun6,Reykjavík, . Holtabrún 6, Ólafsvík.
Höfnum, Skagalireppi. 60 ára Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Laufási 5, Egilsstöðum. Magnús Guðmundsson, Kvígindisfelli, Tálknafiröi. 40 ára Gunnar Andrés Jóhannsson, Ásmundarstööum 5, Ásahreppi. Sigurpáll Steinar Kristinsson, Hjarðarslóð 4A, Dalvík. Anna FíaEmilsdóttir, Eyjólfsstööum, Vahahreppi. Baldur Guðlaugsson,
■ VatUt&lUctgtlUSUtH Munaðarhóh 10, Helhssandi. Garðar Ingj aldsson, Þorgerður Edda Birgisdóttir, Víðigrand43,Kópavogi. -
Langholti 28, Akureyri. Kolbrún Pálsdóttir, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
50 ára Silvía Georgsdóttir, Vogabraut 8, Akranesi. Siguriína Hreiðarsdóttir, Fiskakvísl 6, Reykjavík. Guðjón Gunnþórsson, Lindarbyggð 14, Mosfellsbæ.
Guðmundur
Jónatansson
Guðmundur Jónatansson, bóndi
að Byggðavegi 101E á Akureyri, er
níutíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Guðmundur er fæddur að Uppsöl-
um í Eyjafirði. Hann fluttist þaðan
að Litla-Hamri árið 1900. Þar ólst
hann upp og naut þeirrar fræðslu
er þá tíökaðist og fór snemma að
vinna öh algeng sveitastörf. Árið
1924 tók hann við búi að hálfu á
Litla-Hamri á móti bræðram sínum,
Gunnari og Tryggva.
Guðmundur var bókavörður
Lestrarfélags Munkaþverársóknar
á árunum 1924-1962.
Hann sat í hreppsnefnd í átta ár
og var forðagæslumaður í tólf ár.
Árið 1962 brá hann búi og fluttist til
Akureyrar og starfaði hjá Iðnaðar-
deild SÍS th 1972.
í mörg undanfarin ár hefur hann
ritað um gamla starfshætti fyrir
þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins.
Guðmundur hefur ort vísur og
skráð frásagnir sér til gamans og
hafa nokkrar birst í tímaritunum
Súlum og Heima er best.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist, 25. júh
1927, Þóru Daníelsdóttur, f. 11.7.
1892, húsmóður. Foreldrar hennar
voru Aðalbjörg Þórðardóttir og
Daníel Jónsson sem bjuggu að Sel-
landi í Fnjóskadal, S-Þing.
Börn Guðmundar og Þóra era:
Aðalbjörg Rósa og Rósa J. Guð-
mundsdætur sem eru báðar búsett-
ar að Byggðavegi 101E á Akureyri.
Systkini Guðmundar voru: Gunn-
ar Jónatansson, f. 12.7.1901, maki
hans var Hhdur Hjaltalín og era þau
bæðilátin.
Anna Jónatansdóttir, f. 6.8.1899,
maki hennar var Hjalti Sigurðsson,
þauerabæðilátin.
Tryggvi Jónatansson, f. 9.9.1903,
bóndi að Litla-Hamri, maki hans var
Rósa Kristinsdóttir sem er látin.
Haraídur Jónatansson, f. 27.10.
1909, ókvæntur, búsettur í Reykja-
vík.
Foreldrar Guðmundar voru Jón-
atan Guðmundsson, f. 25.101861, d.
23.7.1943, bóndi og Rósa Júlíana
Jónsdóttir, f. 29.12.1864, d. 11.7.1921,
húsmóðir, þau bjuggu lengst af á
Litla-Hamri í Eyjafirði.
Guðmundur dvelur nú á hand-
lækningadehd Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri.
Karl Oluf Bang
Karl Oluf Bang, Dalbraut 21,
Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í
dag.
Fjölskylda
Karl Oluf fæddist í Kaupmanna-
höfn en ólst upp í Ármúla við ísa-
fjarðardjúp. Hann kvæntist 15.10.
1938 Guðríði Guðmundsdóttur
Bang, f. 1.5.1912, d. 16.3.1991, hús-
móður en hún var dóttir Guðmund-
ar Sigurðssonar, klæðskera í
Reykjavík, og Svanhhdar Bene-
diktsdóttur húsmóður.
Börn Karls Oluf og Guðríðar eru
Erling Gunnar Bang, f. 1.10.1939,
húsasmíðameistari, kvæntur
Dagnýju Karlsdóttur og eiga þau
þijú börn; Guðmundur Árni Bang,
f. 16.6.1941, laxaræktarstjóri hjá
Fehalaxi hf„ kvæntur Geröu Guð-
jónsdóttur og eiga þau þrjárdlætur;
Karl Finnur, f. 8.11.1945, d. 15.9.
1946.
Hálfsystkini Karls Oluf, sam-
mæöra, era Snæbjöm Sigvaldason
Kaldalóns, látinn; Sigvaldi Þórður
Kaldalóns, látinn; Selma S. Kaldal-
Karl Oluf Bang.
óns, látin.
Hálfsystkini Karls Oluf, samfeðra,
er Pahe Bang og Stig Bang.
Stjúpfaðir Karls Oluf var Sigvaldi
Kaldalóns, f. 13.1.1881, d. 28.7.1946,
læknir og tónskáld. Móðir Karls
Olufs var Karen Margarethe Kalda-
lóns (f. Mengel Thomsen), d. 17.4.
1958, læknisfrú.
Karl Oluf verður að heiman á af-
mælisdaginn.