Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Blaðsíða 2
16 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991. Húsog garðar „Þegar fólk hyggst kaupa gamalt hús tll þess aö gera upp í Reykjavík eru ákveðnar upplýsingar sem fólk ver öur aö afla sér áður en kaupin eru gerð. Kanna verður hjá Borgarsklpu- laginu hvort húsið má standa áfram eða hvort það verður í vegi fyrir nýju skipulagi. Ef húsið er lítið verð- ur að athuga hvort möguleiki sé á að byggja við það. Hjá embætti bygg- ingafulltrúa er hægt að fá uppdrætti af nær öllum húsum og í skjalasafni borgarinnar, í Skúlatúni 2, er hægt að fá alla sögu hússins, m.a.s. íbúa- skrá. Þetta er mjög aðgengilegt í Reykjavík og góð þjónusta," sagði Leifur Blumenstein, byggingafræð- ingur og sérfræðingur í endurbygg- ingum og viðhaldi gamalla húsa, í samtali við DV. Leifur vann um árabil hjá Reykja- víkurborg og hafði umsjón og stjórn á hendi við endurbyggingu fjölda gamalla húsa. Nefna má Höfða sem hann vann við undir stjórn Gunn- laugs Halldórssonar sem var arki- Tjarnargata 33 er glæsilegt hús. Hannes Hafstein byggði það áriö 1909. Þetta hús er ákaflega vel með farið. Þar hefur verið rekið barnaheimilið Tjarnar- borg undanfarna áratugi. Stýrimannastígur 8 er siðan á öndveröri öldinni. Nú er verið að skipta um járn á því í fyrsta skipti. Húsið var mjög vel farið undir járninu. Verið er að Ijúka viðgerð á því en eins og sjá má er enn eftir að skipta um gluggana. Húsið var „augnstungið", eins og það er kallað, þegar póstarnir voru teknir úr gluggunum. Á gaflinum er enn upphaflegur gluggi, hinir verða gerðir eins. Þetta glæsilega hús er Þingholtsstræti 29, svokallað katalóghús, sem kom til landsins i pörtum og var svo sett saman. Jón Magnússon ráðherra reisti það rétt fyrir aldamót. Verið er að Ijúka viðgerðinni og verður byrjað á málningarframkvæmdum innan skamms. DV-myndir Hanna aUtaf að fyrstu gerð og oft getur ver- ið um vönduð hús að ræða sem leyn- ast undir ryðguðu bárujámi. Bárujámshúsin eru mörg hver ótrúlega vel farin, sem kemur í ljós þegar skipt er um jám. Ég tel að nauösynlegt sé að skipta um báru- járn svona tvisvar sinnum á öld og það getur ekki talist mikið viðhald. Og kannski ekki einu sinni það. Á ýmsum þeim húsum sem ég hef ver- ið að vinna með hefur ekki verið skipt um jám síöan húsin vom byggð í kringum 1906 eða svo. Skipta þarf um blautrými húsanna, það er bað- herbergi, eldhús og þvottahús. Líf- aldur slíkra herbergja verður alltaf styttri og styttri. Hann var 25 ár en er nú kominn niður í 10 ár. En það þarf ekkert aö breyta herbergjunum í gömlu húsunum. Einfalt gler dugar vel í timburhúsin Sumir telja að nauðsynlegt sé að skipta um gler í gluggum gömlu hús- anna og setja tvöfalt gler. Ef gluggarnir eru ófúnir er engin ástæða til þess að hrófla viö þeim. Það er nauðsynlegt að hafa tvöfalda glugga í steinhúsum en vel hægt að nota einfalt gler í timburhúsum," sagði Leifur. „Borgarstjórar Reykjavíkur allt frá Geir til Davíðs hafa allir sýnt mikinn skilning á verðmæti gamalla húsa. Eins og áður sagði gekk borgin á undan með góðu fordæmi í friðun og endurbyggingu gamalla bygginga og fékk hnútur fyrir. Flest af þeim húsum, sem endurbyggð hafa verið, voru keypt til niðurrifs. Má nefna að Fríkirkjuvegur 11, hús Thors Jensen, var á sínum tíma keypt til niðurrifs og fleiri merk hús,“ sagði Leifur. „Erlendis, t.d. í Noregi og Þýska- landi, er vemdun og friðun gamalla húsa styrkt af almannafé. Veittir eru óafturkræfir styrkir. Ef hús er friðað verður þaö baggi á eigendum sínum, eins og mörg dæmi eru til um. Hér á landi getur þetta verið vandkvæðum bundið vegna þess að alltaf skortir fé til þessara hluta," sagði Leifur Blumenstein. -A.Bj. Lelfur Blumenstein byggingafræð- ingur. tekt endurbyggingarinnar. Það var árið 1968 og var Höíði raunar fyrsta húsið sem Leifur vann við. Síðan vann hann við hvert húsið á eftir öðru, í kringum tjörnina og annars staðar í borginni. Árið 1980 slasaðist Leifur er hann féll með vinnupalli viö Iðnskólann gamla og upp úr því lét hann af starfi sínu hjá borginni. Undanfarin ár hefur hann unniö fyr- ir einstaklinga og nú fyrir húsfriðun- amefnd. Er við heimsóttum hann í vikunni var hann að vinna vdð kirkj- una að Hjarðarholti í Dölum. Leifur hefur kennt byggingatækni við Iðn- skólann og Tækniskólann á áratugi. Endurbyggingin hefst í kringum 1970 „Það er meiri áhersla lögð á vdð- hald og endurbyggingu húsa nú en áður var. Það var í kringum 1970 að vakning varð í Evrópu um endurgerð og vdðhald gamalla húsa. Reykjavík- urborg var þannig samtíma öðmm Evrópulöndum í þessu tilliti. Höfði var endurbyggður 1968 og strax árið 1969 var Fríkirkjuvegur 3, hús Sig- urðar Thoroddsen, endurbyggt. „Vissulega má segja að verð gam- alla uppgerðra húsa í dag sé of hátt en það er eftirspumin eftir þeim sem skapar þetta háa verð. Erlendis þyk- ir tvöfóldun á byggingakostnaði ekki mikil þegar um er að ræða verð á uppgerðum húsum. Nú er í tísku að gera upp gömul hús og þá er ekki spurt um verð,“ sagði Leifur. „Gömlu húsin, frá öndverðri öld- inni, voru orðin verölítil og höíðu verið vanrækt í áratugi. Það var erf- itt um lánafyrirgreiðslur og fólk gat ekki hugsað sér að búa í öðm en nýjum húsum. Segja má að hús búi undir ryðguðu bárujáminu - hægt að fá sögu og íbúaskrá gamalla húsa hjá skjalasafni Reykjavíkurborgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.