Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 10. 'ÁGÚST 1991 13 Stefán Dan á ísafirði: Aðstoðar fólk við að grenna sig og hætta að reykja - með nálarstungum og rafmagnsnuddi „Fólk kemur hingað frá öðrum sveitarfélögum og jafnvel alla leið að sunnan til þess að fara í þessa meðferð og fá þannig aðstoð til þess að grenna sig eða hætta að reykja,“ sagði Stefán Dan í samtali við DV, en hann er eigandi heilsuræktar- stöðvarinnar Studio Dan á ísafirði. Stefán hefur rekið heilsuræktar- stöðina síðastliðin fjögur ár, og í dag er hún sannkallaður „heilsup- ottur Vestfirðinga“. Frá götunni séð lætur hún lítið yfir sér, skilti sem á stendur „Studio Dan“ og tvær tröppur upp að dyrunum. Þegar inn er komið kemst maður að raun um að í þessu htla hús- næði rúmast hreint ótrúlega mikið. Þar er hægt að fá nudd, fara í veggjatennis, eróbikk, heitan pott, ljós og gufu. Einnig er boðið upp á þjónustu snyrtisérfræðings, mikið úrval af heilsuvörum, og nú í seinni tíð, meðferð í nálarstungu og raf- magnsnuddi til þess að grennast eða hætta að reykja. 6 kíló á hálfum mánuði „Ég er auövitað nuddari númer eitt, tvö og þijú. Ég lærði það, en svo hefur hitt bara þróast þannig að smátt og smátt bætti ég hinu við mig,“ sagði Stefán. „Ég hugsa að ég sé búin að taka á milli þijú og fjögur hundruð manns í nálarstungu-megrunar- prógrammið og árangurinn er þetta frá sex og upp í fjórtán kíló á hálfum mánuði," sagði Stefán. „Fólk kemur hingað til mín á þriggja til fjögurra daga fresti, þannig að kúrinn kostar í kringum 2.500 krónur, og ég get ábyrgst að það missa allir a.m.k. sex kíló á hálfum mánuði," sagði Stefán. Hann segir að megrunarpró- grammið byggist á breyttu matar- æði ásamt meðferð í nálarstungum og rafmagnsnuddi. „í rafmagnsnuddinu set ég blöðk- urnar á þau svæði þar sem erfiðast er að ná fitunni af. Einn tími af rafmagnsnuddi er á við sjö til átta leikfimitíma eða tækjaþjálfun." „Nálarnar set ég svo á taugaenda, í eyra eða annars staðar, til þess að örva þau líffæri sem starfa ekki nógu vel, t.d. líffærin sem sjá um meltinguna. Þessi aðferð hefur gef- ið mjög góðan árangur í megrun,“ sagði Stefán. Varanlegra en megrunarkúr Aðspurður hvort þetta væri ekki bara vökvatap frekar en varanlegt . . ' R’i'Á: Stefán beitir hér sérstöku rafmagnstæki til þess að finna réttu taugaendana áður en hann stingi’. nálunum i. Nálarnar eru hafðar i eyranu smástund, eða þar til þær hafa náð að örva starfsemi viðkomandi líffæris. DV-mynd GVA þyngdartap þverneitaði hann því. „Þetta er ekki eins og megrunar- kúr, þetta er miklu varanlegra. Þetta er breytt mataræði og kol- vetnasnauður matarkúr. Fólk boröar hvorki grænmeti, ávexti, brauð eða sykur heldur er kúrinn byggður upp á kjöti og fiski. Líka má borða egg, beikon, majones og smjör, bara ekki kolvetni." Stefán nefndi sem dæmi tvær ungar konur sem byijuðu að koma til hans á fóstudegi bg á þriðjudeg- inum var önnur þeirra búin að missa þrjú og hálft kOó en hin fimm. Hann tekur þó fram að ár- angurinn sé betri eftir því sem fólk er yngra. „Ef líkaminn fær ekki kolvetni úr fæðunni breytir hann fitunni í kolvetni. Þetta er nákvæmlega eins og ef maður borðar of mikið þá breytir líkaminn fæðunni í fitu sem sest á þig. Þetta er bara á hinn veg- inn,“ sagði Stefán. 90% hætta aó reykja Stefán notar nálarstunguna líka til að hjálpa fólki að hætta að reykja og fullyrðir að 90% af þeim sem koma til hans hætti. „En ég get ekki ábyrgst að það endist, það fer algjörlega eftir vilja viðkom- andi,“ sagði Stefán. Tækin fyrir náfarstunguna og rafmagnsnuddið keypti hann í Þýskalandi og hann fær reglulega sendar nálar að utan. Þær eru ein- nota svo fyllsta hreinlætis sé gætt. „Ég er ekki að gera neina vit- leysu, með sérstöku rafmagnstæki finn ég nákvæmlega réttu tauga- endana áður en ég sting nálunum í þá. Þessi aðferð er hundrað pró- sent örugg og hreinlætið er líka hundrað prósent.“ Ekki viðurkennd læknisaðferð Aðspurður sagði Stefán að það væri enginn með leyfi fyrir nálar- stungum á íslandi, það væri ekki viðurkennd læknisaðferð. „En það hlýtur aUtaf að vera fólk- ið sem velur. Þú getur farið til læknis og látið minnka á þér mag- ann og það er talið allt í lagi af því að læknirinn gerir það. Skurðað- gerð með öllu tilheyrandi sem ég veit jafnvel til að fólk hafi farið illa út úr. En ef verið er að tala um eitthvað svona, sem er miklu eldra en vestræn læknisfræði, þá er þetta ekki viðurkennt," sagði Stefán. Aðspurður hvenær hann hefði fengið áhuga á þessu sagðist hann upphaflega hafa ætlað að læra sál- fræði en þar sem hann hafi verið sjómaður með stóra fjölskyldu hafi ekki komið til greina að fara í nám. „Þetta var eins og einhver köllun. Eiginlega frá því að ég byijaði fyllt- ist allt hjá mér og það hefur ekkert stoppað síðan. Ég tek upp í fimmtán viðskiptavini á dag, þá annaðhvort í nudd, nálarstungu eða rafmagns- nudd. Ég hef aldrei þurft að aug- lýsa mig, þetta spyrst svo vel út,“ sagði Stefán að lokum. -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.