Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Blaðsíða 2
im H30M3T‘I3?, ' SUOAdUHAM MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991. Fréttir Mikil ólga 1 Alþýðuflokki vegna flárlagagerðarinnar: Krefjast f undar í f lokks- stjórninni um fjárlögin - fleiri en 5 ráðherrar þurfa að ákveða grundvaUarstefnubreytingu, segir Guðmundur Ami Mikil óánægja er risin innan Al- þýðuflokksins vegna frétta sem að undaníörnu hafa borist af íjárlaga- gerðinni. Einkum hefur farið fyrir brjóstið á krötum sú ætlun ríkis- stjórnarinnar að taka upp gjöld á sviði mennta- og heilbrigðismála. Aö mati margra jaðra þessar hugmyndir við svik við jafnaðarstefnu flokksins. Heimildir DV herma að innan þing- flokksins sé einnig að finna megna óánægju meö framgangsmáta ríkis- stjómarinnar í fjárlagagerðinni. Fyrir helgina barst formanni og varaformanni Alþýðuflokksins, ásamt formanni þingflokksins, bréf frá þrettán óánægðum krötum þar sem þeir krefjast þess að boðað verði þegar til flokksstjórnarfundar vegna fjárlagagerðarinnar. í bréfinu er þess krafist að ráðherrar flokksins og þingmenn taki engar skuldbindandi ákvarðanir viö gerð fjárlaga fyrr en flokkstjóm hafi lagt yfir það blessun sína. Búist er við að flokksstjórnin verði kölluð saman fljótlega vegna þessa. „Þetta þjónustugjaldaæöi er algjör- lega nýtt fyrirbæri í augum okkar almennra jafnaöarmanna. Við höf- um ekki kynnst þessu fyrr né heyrt um það talað. Svona grundvallar- breyting verður ekki gerð á stefnu eins flokks án þess að fleiri en fimm ráðherrar fjalli um það,“ segir Guð- mundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, en hann er einn þeirra sem krafist hafa fundar í flokks- stjórninni. Karl Steinar Guðnason vildi í sam- tah við DV í gær ekkert tjá sig um deilurnar innan Alþýðuflokksins. „Það liggur allt undir og því ekki hægt aö skýra frá einstökum atriðum í gangi mála. Þetta skýrist allt á næstu dögum,“ sagði hann. Að sögn Olafs G. Einarssonar menntamálaráðherra kemur gagn- rýni krata á hugsanleg skólagjöld honum vemlega á óvart. Segist hann ekki hafa skilið samtöl sín við ráö- herra Alþýðuflokksins á þann veg að þeir væru á móti þessari leið. Hann segir tillögur sínar hins vegar ekki það heilagar að þeim megi ekki hafna eða breyta. Þá þurfi hins vegar að finna aðrar sparnaðarleiðir við fjárlagagerðina. „Ég er með tillögur sem miða að því að framlög til menntamálaráðu- neytisins verði svipuö á næsta ári og í ár. í því sambandi hef ég viðrað hugmyndina um skólagjöld. Hún fel- ur eiginlega í sér að það sé sett þak á innheimtu á skólagjöldum eins og lög heimila. Ég hef hins vegar aldrei komið með afdráttarlausa tillögu um þetta en tel rétt að þessi leið sé skoð- uð eins og aðrar,“ segir Ólafur. Mikil fundahöld voru hjá ráðherr- um ríkisstjórnarinnar í gær við und- irbúning fjárlaganna fyrir næsta ár. í samtali við DV vildi Friðrik Soph- usson ekkert tjá sig um hvernig fjár- lagagerðinni miðaði. í morgun kom ríkisstjórnin til fundar um málið en síðar í dag munu þingflokkar stjórn- arflokkanna koma saman. Á morgun verður málið síðan á ný tekið fyrir í ríkisstjórninni og er þá búist við að endanleg mynd komist á það. -kaa DV-myndir JAK Hjalti „Ursus“ Árnason veitti Magnúsi harða keppni og hér sigrar Hjalti í trukkdrætti Sterkasti maður íslands 1991: Magnús Ver sigraði Magnús Ver Magnússon sigraði í kraftakeppninni sterkasti maður ís- lands eftir haröa keppni við Hjalta „Úrsus“ Árnason en keppnin var haldin í Hljómskálagarðinum á laug- ardaginn og í Reiðhöllinni á sunnu- daginn. Þeir Hjalti og Magnús Ver voru áberandi sterkastir keppendanna og áttu aðrir ekki möguleika á að sigra í keppninni. Magnúsi Ver hefur verið boðið að koma og taka þátt í keppn- inni um sterkasta mann heims, sem haldin verður í byrjun október, eftir að Jón Páll Sigmarsson sleit upp- handleggsvöðvann að framan í sýn- ingaratriði í Danmörku fyrir skömmu. Var greinilegt að Magnús var að spara kraftana í þessari keppni og tók hann enga áhættu og gætti þess að ofgera sér ekki. Hyggst Magnús halda titlinum sterkasti maður heims í landinu og láta ekki einhveija útlendinga hirða hann í fjarveru Jóns Páls. Það voru ellefu keppendur sem hófu leikinn á laugardeginum en sex þeirra komust áfram í lokakeppnina á sunnudaginn. Baráttan um þriðja sætið var ekki síður hörð milli þeirra Björgvins Filippussonar, Andrésar Guðmundssonar og Kjartans Guð- brandssonar. Var lengi vel tvísýnt hvernig úrslitin yrðu en þegar upp var staðið eftir síðustu þrautina var staðan sú að Magnús Ver var í fyrsta sæti með 74 stig, Hjalti var annar með 70 stig, Björgvin þriðji með 48,5 stig, Andrés fjórði með 48 stig, Kjart- an fimmti með 39,5 stig og sjötti varð Snæbjöm Aðils með 28,5 stig. -JAK Skákþingíslands: Helgi nálgast titilinn Helgi Olafsson og Margeir Pét- ursson gerðu jafntefli í gær í bar- áttuskák í 10. umferðinni á Skák- þingi íslands. Helgi, sem hefur haft forustu allt mótið, nálgast nú ís- landsmeistaratitilinn. Hann varö síðast íslandsmeistari fyrir 10 árum, 1981. Úrslit í öðrum skákum í gær urðu þau að Helgi Áss Grét- arsson vann Halldór Einarsson, Jóhann Hjartarson vann Róbert Harðarson og Karl Þorsteins vann Sigurð Daöa Sigfússon. Biðskákir urðu hjá Héðni Steingrímssyni og Þresti Þórhallssyni, Jóni L. Áma- syni og Snorra Bergssyni og er staða þeirra jafnteflisleg. Staðan fyrir lokaaumferðina er þannig: 1. Helgi, 7ri v. 2.-3. Karl og Margeir, 7 v. 4. Jóhann, 614 v. 5. Jón L., 514 og biöskák. 6. Helgi Áss, 5 v. 7. Þröstur, 414 v. og bið- skák. 8. Róbert, 414 og biöskák. 9. Héðinn, 4 og biðskák. 10.-11. Hall- dór og Sigurður, 214 v. 12. Snorri, 114 og biðskák. Ekki er teflt í dag, nema biðskákir, en í lokaumferð- inni á morgun teflir Helgi Ólafsson við Sigurð, Karl við Snorra, Mar- geir við Helga Ás, Jóhann viö Héð- in, Jón L. við Þröst og Róbert við Halldór. -hsím - sjá einnig bls. 4 Dyravörður handtekinn Lögreglan handtók dyravörð sem var við störf á veitingahúsinu Gauki á Stöng aðfaranótt laugardagsins og færði hann til yfirheyrslu á miðbæj- arstöð. Ástæöa þess var sú aö dyra- vörðurinn brást illa við afskiptum lögreglunnar sem var í eftirlitsferö. Lögreglunni þótti ástæða til að upplýsa dyravörðinn um til hvers væri ætlast af honum í starfi. Dyra- vörður þessi hafði ekki sótt nám- skeið sem lögregla og samband veit- ingahúsaeigenda stóðu fyrir ekki alls fyrir löngu. Sextíu dyraverðir aðrir sátu það hins vegar. Dyraverðinum var sleppt eftir góða fræðslu og öllu upplýstari um eðli starfsins. Líklegt er að það verði óaðfinnsluvert í framtíðinni eftir þetta óvænta námskeið. -ELA Björgvin Filippusson og Andrés Guðmundsson börðust hatrammlega um þriðja sætið eins og glöggt mátti sjá i sekkjahlaupinu þar sem þeir hlupu 200 metra vegalengd með 90 kg sekk á bakinu. Keppnisharkan var svo mikil að þeir hlupu sig báöir um koll i lok brautarinnar og tafðist Andrés mun meira við það en Björgvin. Timi Björgvins var 54,42 sek. en Andrés hljóp vegalengdina á 104,33 sek.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.