Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1991, Qupperneq 1
> ( r. r i 71 <
Borgarleikhúsið:
Dúfnaveislan
Fyrsta frumsýning hjá Leikfélagi
Reykjavikur í vetur er Dúfnaveislan
eftir Halldór Laxness og verður hún
í kvöld, fóstudaginn 20. september.
Það er sonarsonur skáldsins, Halldór
Einarsson Laxness, sem setur
Dúfnaveisluna á svið en þetta er í
annað sinn sem sjónleikurinn er
sýndur á vegum LR.
Halldór samdi þennan „skemmt-
unarleik“ á árunum 1965 og 1966 en
þá um vorið var verkið frumsýnt í
Iðnó. Það naut talsverðrar hylli
áhorfenda á þeim tíma þótt margt
kæmi þeim furðulega fyrir sjónir.
Verkiö fjallar um pressarahjónin
sem fluttu á mölina en þau bjuggu
áður suður með sjó. Þau hafa á ævi
sinni safnað auði því þau eru þurfta-
lítil. Dag nokkurn kemur starfsmað-
ur verðlagseftirlitsins til þeirra og
sér að á heimilinu er drepið í hvert
horn með peningaseðlum. Hann
býðst til að ávaxta féð en fær hjónin
um leið til að taka stúlkubarn í fóst-
ur. Tiu árum síðar er stúlkan gjaf-
vaxta og pressarinn ríkasti maður-
inn í bænum.
Dúfnaveislan er sérkennilegt verk.
Undir yfirbragði fyndinnar og
snjallrar orðræðu búa spennandi og
afdrifarík átök. Höfundurinn spyr
áleitinna spurninga um breytingar
samfélags okkar frá nauðþurftabú-
skap til velferðar. Hann skoðar gild-
ismat ólíkra kynslóða og ólíkra
heima. Verkið er umfram allt mikið
sjónarspil og nýtur þar leikmyndar
Sigurjóns Jóhannssonar í lýsingu
Ingvars Björnssonar. Með aðalhlut-
verk í sýningunni fara Þorsteinn
Gunnarsson, Valgerður Dan, Bára
Lyngdal Magnúsdóttir, Harald G.
Haralds og Björn Ingi Hilmarsson en
alls taka átján leikarar þátt í sýning-
unni. Höfundur tónhstar er Jóhann
G. Jóhannsson.
Dúfnaveislan eftir Halldór Laxness verður frumsýnd I Borgarleikhúsinu I
kvöld. Þaö eru Valgerður Dan og Þorsteinn Gunnarsson sem leika pressara-
hjónin. DV-mynd Brynjar Gauti
Kjarvalsstaðir:
Samsýning Gretars og Guðjóns
Myndlistarmennirnir Gretar
Reynisson og Guðjón Ketilsson opna
sýningu í austursal Kjarvalsstaða á
morgun laugardaginn 21. september.
Þeir hafa ekki áður verið með einka-
sýningu að Kjarvalsstöðum en verið
með í samsýningum þar. Gretar og
Guðjón útskrifuðst báðir frá Mynd-
hsta- og handíðaskóla íslands árið
1978 en þetta er í fyrsta sinn sem
þeir sýna saman.
Guðjón stundaði framhaldsnám í
Kanada og hefur síðan haldið átta
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum á íslandi, Kanada, Finn-
landi, Svíþjóð og Sviss. Guðjón sýnir
á sýningunni aö Kjarvalsstöðum
málverk og tréskúlptúra og eru verk-
in unnin á síðastliðnum þremur
árum.
Gretar dvaldi að námi loknu í Hol-
landi. Þetta er níunda einkasýning
Gretars, en hann hefur einnig tekið
þátt í sanisýningum bæði hér heima
og erlendis. Gretar er einnig meðkl
okkar þekktustu leikmyndateiknara
og hefur gert á þriðja tug leikmynd
í leikhúsum Reykjavíkur. Á sýning-
unni á Kjarvalsstöðum sýnir Gretar
ný myndverk unnin með akrýl, olíu
og blýanti á krossvið, striga, jám og
pappír.
Gretar Reynisson og Guðjón Ketilsson voru að vinna að uppsetningu mynda
sinna á Kjarvalsstöðum þegar Ijósmy ndara bar að garði. DV-mynd ÐG
Stjórnendur islensku hljómsveitarinnar á hennar tiunda starfsári, þeir Hákon Leifsson, Guðmundur Oli Gunn-
arsson, Páll P. Pálsson, Guðmundur Emilsson, Ragnar Björnsson og Örn Óskarsson. Þakkartónleikar hljóm-
sveitarinnar verða haldnir i Bústaðakirkju á sunnudaginn klukkan 16.
Þakkartónleikar í Bústaðakirkju:
íslenska hljóm-
sveitin tíu ára
Um þessar mundir eru tíu ár hð-
in frá stofnun íslensku hljómsveit-
arinnar. Af því tilefni er efnt til
sérstakra þakkartónleika í Bú-
staðakirkju, sunnudaginn 22. sept-
ember klukkan 16.00. Félagar í
samtökum um hljómsveitina, sem
eru alls á sjöunda tug talsins, flytja
þar stór og smá kammerverk eftir
þau Karólínu Eiríksdóttur, Þorkel
Sigurbjörnsson, Hróðmar I. Sigur-
bjömsson, Leif Þórarinsson, Jón
Nordal, Áma Bjömsson og Jón
Ásgeirsson.
Rórir hljómsveitarstjórar
stjóma viðameiri verkum tónleik-
anna, þeir Guðmundur Óh Gunn-
arsson, Öm Óskarsson, Hákon
Leifsson og Guðmundur Emilsson.
Einsöngvaramir Ehsabet F. Ei-
ríksdóttir og Sigurður Bragason
flytja einsöngslög við undirleik
Þóm Fríðu Sæmundsdóttur. Tón-
leikarnir eru tileinkaðir þeim fjöl-
mörgu einstakhngum, fyrirtækjum
og stofnunum er lagt hafa lóð á
vogarskálar hljómsveitarinnar í
tíu ár, þar á meðal eru ríki og borg.
Tónleikamir em þó sérstaklega
helgaðir minningu tveggja manna,
er létust á liðnu ári og stóðu öðrum
fremur vörð um starfsemi hljóm-
sveitarinnar, þeirra Vals Amþórs-
sonar bankastjóra og sr. Emils
Björnssonar.
Sex tónleikar em fyrirhugaðir á
afmælisárinu og eiga það sam-
merkt að þar hljóma eingöngu inn-
lendar tónsmíðar. Meö þessu er
minnt á höfuðmarkmið hljómsveit-
arinnar, sem er að styðja við bak
innlendra tónskálda og tórdistar-
manna. Hljómsveitin hefur falast
eftir, frumflutt og hljóöritað á
fimmta tug innlendra tónverka á
ferli sínum. Hátt á annað hundrað
tónhstarmenn hafa leikið í hljóm-
sveitinni í lengri eða skemmri tíma
og fjölmargir einleikarar og ein-
söngvarar þreytt frumraun sína
með henni, þar á méöal í óperu-
flutningi. Hljómsveitin hefur leikið
víða, þar á meðcd á Akureyri og í
Vestmannaeyjum en lengst komist
til Svíþjóðar í tónleikaför.
Hljómsveitin hefur og verið þýð-
ingarmikih vettvangur innlendra
hljómsveitarstjóra. I ár koma við
sögu þeir Páh P. Pálsson og Ragnar
Bjömsson auk þeirra sem áður er
getið.
KlæðaverksmiðjaÁIafoss í Mosfellsbæ:
Haukur og Tolli
Listamennimir Haukur Dór og
Tohi opna á morgun, laugardaginn
21. september, samsýningu í klæða-
verksmiðju Álafoss í Mosfellsbæ.
Þeir Tohi og Haukur Dór eru báðir
þekktir hstamenn hérlendis og er-
lendis og hafa haldið tjölmargar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum.
Tolh, eða Þorlákur Kristinsson,
fæddist 1953 og stundaði nám við
Myndhsta- og handíðaskóla íslands
árin 1978-1983 og við Hochschule der
Kunste í Berhn árin 1983-1984.
Haukur Dór fæddist 1940 og stund-
aði nám í málarahst og keramik í
Reykjavík, Edinborg og Kaupmanna-
höfn snemma á sjöunda áratugnum.
Hann var lengi mikilvirkur og leið-
andi leirlistarmaður og á tímabih
snerist hann einnig á sveif með
SÚM-hópnum sem blés nýju lífi í ís-
lenska myndhst. Haukur Dór hefur
lengi verið að heiman, í Bandaríkj-
unum, á Spáni og nú síðast í Dan-
mörku.
Sýningin stendur th 20. október og
er opin frá klukkan 16-21 á fóstudög-
um og 11-21 á laugardögum og
sunnudögum. Aðrir tímar eru eftir
samkomulagi.
Listamennirnir Haukur Dór og Tolli
opna á morgun, laugardag, samsýn-
ingu í klæðaverksmióju Álafloss f
Mosfellsbæ.